Morgunblaðið - 30.05.1978, Page 4
LOFTLEIDIfí
l^BÍLALEIGA
Hópferðabílar
8—50 farþega
Kjartan Ingimarsson
Sími 86155. 32716
r
KANARI-
EYJAR
NYTT. Vegna hagkvæmra samn-
Inga getum vi6 I tumar boöiö
fjöltkyldum, ókeypit ferö meö dvöl
I fbúö, fyrir öll börn innan 12 ára.
Vetur, sumar vor og haust, dagflug
á fimmtudögum.
Sólskinsparadís allan ársins hring.
Nú fá íslendingar í fyrsta sinn tæki-
færi til sumarleyfisdvalar á Kanarí-
eyjum. Aldrei of kalt og aldrei of
heitt, þar er sjórinn, sólskinið og
skemmtanalifiö eins og fólk vill
hafa það, í 365 daga á ári. Góðar
baðstrendur, fjölbreytt skemmt-
analíf. Kanaríeyjareru frihöfn með
tol Ifrjálsa verslun. Hægt er að velja
um dvöl á vinsælustu og bestu
hótelum og íbúðum á Gran Canaira
og Jenerife svo sem: Koka, Corona
Bla'nca, Corona Roja o.fl. Sunnu
skrifstofa með þjálfuöu íslensku
starfsfólki nú opin allan ársins
hring.
SUNNA
Bankastræti 10. Simar 16400
12070 - 25060 - 29322.
EVTNRUDE
öðrum fremri
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGINN 30. MAÍ 1978.
. Útvarp Reykjavtk
ÞRIÐJUDKGUR
30. maí
MORGUNNINN
7.00 MorKunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15
ok 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
íorustuKr. datíbl.), 9.00 og
10.00.
Morgunstund barnanna kl.
9.15. Sigríður Eyþórsdóttir
les „Salómon svarta“, sögu
eftir Iljört Gíslason (7).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða.
Ilin gömlu kynni kl. 10.25.
Valborg Bentsdóttir sér um
þáttinn.
Morguntónleikar kl. 11.00.
Fílharmoníusveit Berlínar
leikur Sinfóníska dansa fyr-
ir hljómsveit cftir Paul
Hindemith. höfundur stjórn-
ar.
Géza Anda leikur með Sin-
fóníuhljómsveit útvarpsins í
Berlín Rapsódiu op. 1 fyrir
píanó og hljómsveit eftir
Béla Bartók.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar.
Við vinnuna. Tónleikar.
SÍÐDEGIÐ__________________
14.30 Miðdegissagan. „Gler-
húsin“ eftir Finn Söeborg
Halldór S. Stefánsson les
þýðingu sína (7).
15.00 Miðdegistónleikar
Svjatoslav Richter leikur
Píanósónötu í c-moll op. 20
eftir Haydn. Félagar úr
Vínaroktettinum leika
Strengjakvintett í d-moll op.
29 eftir Becthoven.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popp
17.20 Sagan. „Trygg ertu.
Toppa“ eftir Mary 0‘Hara
Friðgeir H. Berg íslenzkaði.
Jónína H. Jónsdóttir les (8).
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
KVÖLDIÐ
19.35 Lestur og tal
Helgi Tryggvason yfirkenn-
ari flytur síðara erindi sitt.
20.00 Sinfónía nr. 2 í B dúr op.
15 eftir Johan Svensen
Fflharmoníusveitin f Osló
leikur. Öivin Fjeldstad stj.
20.30 Útvarpssagan. „Kaup-
angur“ eftir Stefán Júlíus-
son
Höfundur les (8).
21.00 Einsöngur
Elísabet Erlingsdóttir
syngur lög eftir Sigvalda
Kaldalóns og Árna Björns-
son.
Guðrún Kristinsdóttir
leikur á pfanó.
21.20 Sumarvaka
a. Grjótnesferð
Björn Haraldsson í Austur-
görðum segir frá kynnisfcrð
sem farin var úr Keldukcrfi
norður á Melrakkasléttu
vorið 1907.
Baldur Pálmason les.
b. Ljóð eftir Magnús
Jóhannsson frá Ilafnarnesi
Guðmundur Magnússon lcs.
c. Huldukonurnar og hús-
freyjan á Steinsstöðum
Sigríður Jónsdóttir frá Stöp-
um segir frá.
d. Kórsöngur
Árnesingakórinn í Reykja-
vík syngur íslenzk lög; Þur-
íður Pálsdóttir stjórnr.
22.30 Vcðurfregnir. Fréttir.
Harmonikulög
Johnny Meyer og félagar
23.00 Á hljóðbergi
„Saga í hlátrum". Bob Hope
í Víetnam anno 1964.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
ÞRIÐJUDAGUR
30. maí
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dag-
skrá>
20.30 Alþýðufræðsla um efna-
hagsmál (L).
íslenskur fræðslumynda-
flokkur.
3. þáttur.
hagskerfi
afleiðing.
í þessum þætti verður fjall-
að um óstöðugleika hins
fslenska efnahagskerfis,
vcrðlag í utanríkisviðskipt-
um. gengismál og aðgerðir
til að leysa afkomuvanda
útílutningsfyrirtækja.
Greint verður '’írá því, í
hverju gengisfclling er fólg-
Óstöðugt efna-
— orsök og
in og hvaða afleiðingar hún
hefur. Einnig verður rætt
um leiðir tíl að auka stöðug-
leika atvinnulífsins.
Umsjónarmenn Ásmundur
Stefánsson og dr. Þráinn
Eggertsson. Stjórn upptöku
Örn Harðarson.
21.00 Serpico (L)
Bandarfskur sakamála-
myndaílokkur. Lokaþáttur.
„Ast hafðir þú meyja."
Þýðandi Jón Thor Haralds-
son.
21.50 Sjónhending (L).
Erlendar myndir og mál-
efni. Umsjónarmaður Sonja
Diego.
22.10 Iþróttir.
Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
23.45 Dagskrárlok.
Bob
Hope í
Víetnam
SÍÐAST á dagskrá útvarps
í kvöld er þátturinn „Á
hljóðbergi" í umsjá Björns
Th. Björnssonar. Þátturinn
í kvöld nefnist „Saga í
hlátrum", Bob Hope í Víet-
nam anno 1964.
Bob Hope ætti að vera
vel þekktur hérlendis, en
hann hefur leikið í fjöl-
mörgum grínmyndum, auk
þess komið oft fram í
sjónvarpsþáttum. Hann
fæddist árið 1904 í Bret-
landi, en ólst upp í Banda-
ríkjunum. Hope lék í sinni
fyrstu kvikmynd 1938, eða
34 ára gamall, en síðan þá
hefur hann leikið í mörgum
myndum, sem sumar hverj-
ar hafa notið mikilla vin-
sælda. Má þar nefna mynd-
irnar í flokknum „Vegurinn
til“, en þær nutu mikillar
hylli fyrir um 30 árum. Bob
Hope hefur oft skemmt
bandarískum hermönnum
á erlendri grund, en í kvöld
fáum við að heyra hvernig
honum tókst til í Víetnam
árið 1964.
KLUKKAN 22.10 í kvöld er í sjónvarpi iþróttaþáttur í umsjá Bjarna Felixsonar.
Aðspurður sagði Bjarni að í kvöld yrði sýndur leikur stjörnuliðs Bobby Charltons og
úrvalsliðs KSI, sem leikinn var í gærkvöldi. Verður leikurinn að öllum lfkindum sýndur
í heild.
„Serpico”
kveður
KLUKKAN 21.00 í kvöld verður
sýndur lokaþáttur bandaríska
sakamálamyndaflokksins
„Serpico". Þáttur þessi nefnist
„Ást hafðir þú meyja", og er
hann, eins og allir hinir þætt-
irnir, sendur út í lit. Við
„Serpico" tekur bandaríski
sakamálamyndaflokkurinn
„Kojak“, en fyrsti þáttur hans
verður sýndur á þriðjudag eftir
viku. Á föstudag verður hinsV/
vegar sýnd samnefnd bandarísk
sjónvarpskvikmynd, sem er und-
anfari sakamálamyndaflokks-
ins.