Morgunblaðið - 30.05.1978, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 30.05.1978, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGINN 30. MAÍ 1978. 400 þroskaheftir á dansleik í Stapa SKEMMTUN fyrir þroskaheft fólk var haldin sl. laugardag í félagsheimilinu Stapa í Njarð- víkum. Alls komu þangað um 400 manns. Starfsfólkið í Stapa bauð Þroskahjálp á Suðurnesj- um að halda þessa skemmtun samtökunum að kostnaðarlausu, og fékk sér til aðstoðar hljóm- sveitina Geimstein með Rúnari Júlíussyni og Maríu Baldurs- dóttur, Lúðrasveitina í Mosfells- sveit og krakka í Barnaskólan- um í Keflavík til að flytja grínþætti. Kræsingar voru margbreyti- legar, því margar velviljaðar konur af öllum Suðurnesjum tóku sig til og bökuðu heii býsn af alls kyns kökum og góðgæti. Matstofan Þröstur sýndi einnig örlæti sitt með því að gefa 300 poppkornspoka óumbeðið. Þarna voru því margar hendur sem lögðust á eitt enda tókst skemmtunin sérlega vel að allra mati. Á skemmtunina var öllum þroskaheftum boðið að koma, sem það vildu og gátu. Komið var frá átta heimilum af Reykjavíkursvæðinu í lang- ferðabílum og einkabílutfi. Dyraverðirnir voru spurðir að því hvernig þeim þætti að sjá svo stóran hóp þroskaheftra saman kominn á einum stað, og svöruðu þeir því til að þeir hefðu að óreyndu aldrei trúað því að til væru svo margir þroskaheft- ir, enda ekki oft sem þroskaheft fólk sæist á götum úti á Suðurnesjum. Þeim var þá bent á að þessi hópur væri aðeins sá hluti þroskaheftra sem þrek hafði haft til að sækja skemmt- unina. Þessi hópur var kominn til að skemmta sér og það gerði hann svo sannarlega af hjartans lyst. Ánægjan og eftirvæntingin skein úr hverju andliti og smitaði svo frá sér, að þeir sem að hátíðinni stóðu eða veittu henrti lið sitt, gátu ekki uppskor- ið betri laun en að sjá hversu innilega þetta fólk naut sín. Rúnar Júlíusson sagði líka er hann var spurðúr hver væri helzti munurinn á því að skemmta þessum hópi og á almennum dansleik, að sá munur væri helzt fólginn í þakklætinu sem þetta fólk léti í ljós vegna þess sem fyrir það væri gert. I lok skemmtunarinnar var úthlutað hljómplötum til átta heimilanna á Reykjavíkursvæð- inu, en hljómplötuverzlanir í Keflavík og hljómsveitin Geim- steinn gáfu þessar plötur til minningar um eftirminnilega skemmtun. Einar Guðberg, formaður Þroskahjálpar á Suðurnesjum, afhendir hljómplöturnar. Dansinn stiginn. Viö tlytjum hílinn - lið fljúgið í Mð Það er fátt skemmtilegra en ferðalag á eigin bíl í út- löndum, það geta þeir staðfest sem reynt hafa. Við bjóðum tíðar skipaferðir til fjölmargra hafna í Evrópu, t.d. Antwerpen, Felixstowe, Gautaborgar, Hamborgar, Kaupmannahafnar og Rotterdam. Senda má bílinn til einnar hafnar og heim aftur frá annarri höfn, ef þess er óskað. Leitið upplýsinga um áætlanir okkar og hin hagstæðu farmgjöld. HE EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS Pósthússtræti2 sími 27100. Breytingar á starfsemi Hússtjórnarskóla Suð- urlands næsta vetur Með samþykki menntamálaráð- herra og skólanefndar Hússtjórn- arskóla Suðurlands hefur verið ákveðin breyting á starfsemi skólans, nú þegar á næsta hausti. Stjórnskipuð nefnd, sem fjallaði um starfsemi skólanna á Laugar- vatni, lagði til að stofnuð yrði við skólann ný tveggja ára hús- stjórnarbraut, eöa réttara sagt hússtjórnardeild, í samræmi við lög nr. 53/1975 um hússtjórnar- skóla. Áætlað er að veita nemend- um menntun til að annast forstöðu smærri mötuneyta og viststofnana og til að vera aðstoðarráðsmenn í stórum mötuneytum, að viðbættri starfsþjálfun, svo og ræstingar- stjórar á sjúkrahúsum og stærri stofnunum. Einnig veitir þessi deild góðan undirbúning til fram- haldsnáms í Hótel- og veitinga- skóla Islands og fleiri skólum. Ákveðið hefur verið að meta til styttingar nám þeirra um- sækjenda, sem lokið hafa námi frá einhverjum hússtjórnarskóla, svo að þeir geti Iokið umræddu tveggja ára námi í hússtjórnarfræðum á styttri tíma en ella. Bóklega námið í framhaldsdeildinni verður sam- ræmt og tengt við aðrar nýjar framhaldsbrautir sem ákveðið er að stofna við hina skólana að Laugarvatni. Þá verða, auk þess sem áður er getið, haldin styttri námskeið í almennum heimilisfræðum við skólann. 1) Á tímabilinu 1,—14. október verður haldið námskeið, sérstak- lega ætlað ungu fólki sem hyggst stofna heimili og verður trúlofuðu fólki og hjónum gefinn kostur á að búa saman í herbergi. Á námskeiðinu verður lögð sérstök áhersla á fræðslu fyrir byrjendur í heimilishaldi. Fengnir verða sérfræðingar til fyrirlestra um hjúskaparmál og barnauppeldi o.fl. 2) Tveggja mánaða námskeið verður hatdið í heimilisfræðum og handmennt á tímabilinu frá 18. okt. til 16. desember. Kenndar verða manneldis-, heilsu- og upp- eldisfræðigreinar. Jafnhliða al- mennri matreiðslu verða einnig kennd hauststörf á þjóðlega vísu, svo sem sláturstörf, niðursuða og hraðfrysting matvæla. Sérstök áhersla verður lögð á jólaundir- búning á þessu námskeiði. Framhald á bls. 35

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.