Morgunblaðið - 30.05.1978, Qupperneq 15
MtfRGUS:BLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGINN 30. MAÍ 1978.
15
kosningunum í gær, og okkar maður
var þar að auki kosinn í sýslunefnd,
sagði Albert Kemp, efsti maður á
lista sjálfstæðismanna á Fáskrúðs-
firði, í samtali við Mbl. í gær en
sjálfstæðismenn fengu sem fyrr tvo'
fulltrúa kjörna í hreppsnefnd Búða-
hrepps.
Albert kvað engar viðræður hafa
farið fram um meirihlutamyndun
ennþá en það myndi skýrast á næstu
dögum.
Þá vildi Albert nota tækifærið og
þakka öllum þeim fjölmörgu er unnu
fyrir þá og studdu þar í sveit.
Vestmannaeyjar:
„Við sjálf-
stæðismenn
erum alls
ekkert
óhressir
með
árangurinn“
• „Við sjálfstæðismenn í Vest-
mannaeyjum erum alls ekki óhressir
með þann árangur sem við náðum í
þessum bæjarstjórnarkosningum.
Við héldum okkar hlut fyllilega þrátt
fyrir að uppröðun listans væri
þannig að mest var þar um nýtt fólk
að ræða, sagði Arnar Sigurmunds-
son efsti maður á lista sjálfstæðis-
manna í Vestmannaeyjum í samtali
við Mbl. í gær. Sjálfstæðisflokkurinn
fékk að þessu sinni fjóra fulltrúa
eins og í kosningunum 1974.
Ég er auðvitað mjög óhress með
fram okkar stefnuskrá, sem er
rökrétt og skorinort, þannig að fólk
sér að þarna er alvara á ferðum. Við
unnum vel að þessu verki saman. Þá
er það einnig að fólk hefur fundið að
okkar fulltrúi í bæjarstjórn á s.l.
kjörtímabili var kjölfestan i bæjar-
stjórninni.
Þá höfðum við marga fulltrúa
verkalýðsins á okkar lista, sem veitir
okkur mikinn styrk. Nú svo fer ekki
hjá því að það hafi áhrif, hversu
ríkisvaldið hefur komið illa framvið
verkalýðinn hér eins og annars
staðar. Og að síðustu hefur það
sjálfsagt haft eitthvað að segja að
sjálfstæðismenn áttu við vandræði
að stríða á s.l. kjörtímabili vegna
klofnings, sagði Ragnar að síðustu.
Si^lufjörður:
Viðræður
hafnar um
myndun
meirihluta
• „Ég er þrátt fyrir allt ánægður
með það að við Sjálfstæðismenn hér
í Siglufirði höfum tapað einna
minnst þegar litið er á fylgi
Sjálfstæðisflokksins annars staðar á
landinu í þessum kosningum, en ég
tel samt að fólkið hafi verið að
hengja bakara fyrir srnið", sagði
Björn Jónasson, efsti maður á lista
Sjálfstæðisflokksins í Siglufirði, en
flokkurinn fékk nú tvo fulltrúa í
bæjarstjórn en hafði áður þrjá. „Við
höfum goldið þess hvernig ríkis-
stjórnin hefur verið að haga sér í
efnahagsmálum, og þá fyrst og
fremst kjaramálunum. Myndun;
meirihluta hefur ekki verið rædd
neitt enn sem komið er. Síðast hafði
setja í bein tengsl við landsmálapóli-
tíkina. Annars er hér áberandi að
það er Framsóknarflokkurinn, sem
bíður mestan ósigur, bæði hvað
viðkemur fylgi og eins hinum miklu
vonum, sem Framsóknarmenn höfðu
gert sér um brautargengi í þessum
kosningum. Við Alþýðubandalags-
menn lítum á þessa fylgisaukningu
sem traustsyfirlýsingu við þá bæjar-
málastefnu sem við höfum fylgt, en
nú um langt árabil höfum við verið
í minnihlutaaðstöðu. Við höfum
þegar hafizt handa um myndun
meirihluta og höfum forystu þar um.
Fyrir kosningar lýstum við því yfir
að við hefðum hug á samstarfi við
Alþýðuflokkinn í bæjarstjórn, en það
er alls ekki útilokað að sá meirihluti
verði myndaður af fleiri flokkum.
Þessar viðræður eru á algjöru
frumstigi, þannig að meira get ég
ekki um þær sagt að svo stöddu,“
sagði Gunnar Rafn Sigurbjörnsson í
Siglufirði.
Seyöisfjörður:
„Sveiflan
yfir til
Alþýðu-
flokks“
• „Við sjálfstæðismenn hér á
Seyðisfirði erum ekkert óhressir með
útkomuna hér,“ sagði Theodór
Blöndal, efsti maður á D-listanum
þar eystra. „Við settum okkur það
markmið ásamt framsóknarmönnum
að halda meirihlutanum og við
bættum við okkur verulega, svo að
við teljum þetta ótvíræða traustsyf-
irlýsingu. A hinn bóginn þykir okkur
einkennileg sveiflan yfir til Alþýðu-
flokks í þessum kosningum, en ég tel
einsýnt að atkvæðamagnið sé langt
umfram raunverulegt flokksfylgi og
Ölafsfjörður:
„Enginn
átti von á að
D-listinn
tapaði 3.
manni
• „Úrslitin hér komu geysilega á
óvart — það kom engum í hug að
sjálfstæðismenn héldu ekki sínum
þremur mönnum, ekki heldur and-
stæðingum okkar,“ sagði Gísli M.
Gíslason, framkvæmdastjóri og 3.
maður á lista Sjálfstæðisflokksins á
Ólafsfirði, en þar vann H-listinn,
bræðslulisti hinna flokkanna, mann
af sjálfstæðismönnum og hefur 5
menn í bæjarstjórn. „Það er enginn
vafi að landsmálin hafa fléttast inn
i þessa kosningu og þá ekki sizt
kauplagsmálin, þó að það kunni að
koma einkennilega fyrir sjónir í
svona litlu bæjarfélagi þar sem
maður hefði haldið að allt snerist um
heimamálin.“
Armann Þórðarson, efsti maður á
H-listanum, var hins vegar léttur í
lund, þegar Mbl. hafði samband við
hann. „Auðvitað voru það heimamál-
in sem voru fyrst og fremst á
dagskrá," sagði hann. „Við vorum
núna með eins framboð og fyrir
fjórum árum en þá náðum við
meirihlutanum með aðeins 20
atkvæða mun. Við höfum síðan borið
einhverja ábyrgð á stjórn bæjarins,
að við viljum meina, réðum ungan og
dugandi bæjarstjóra, Pétur Má
Jónsson, sem unnið hefur mjög gott
starf hér. Það var núna tekizt á um
það hvort Ólafsfirðingar teldu okkur
þess trausts verða að halda áfram á
ingu sem Alþýðubandalagið hefur
fengið. Er það meðal annars örugg-
lega til komið til að refsa núverandi
stjórnmálaflokkum. sagði Jóhann
Ársælsson efsti maður á lista
Alþýðubandalagsins, sem bætti við
sig einum fulltrúa við bæjarstjórn-
arkosningar á Akranesi, í samtali
við Mbl. í gær.
„Þá vil ég segja að framboð okkar
hér á Akranesi hafi verið mjög gott
og stuðlað öðru fremur að þessum
góða árangri og svo hefur sjálfsagt
hið mikla umrót sem hér varð í
meirihlutamyndun í bæjarstjórn á
s.l. kjörtímabili haft sitt að segja,"
sagði Jóhann að síðustu.
Valdimar Indriðason, efsti maður
á lista sjálfstæðismanna var ekki
jafn ánægður og sagði hann m.a.:
„Ég varð fyrir miklum vonbrigð-
um með úrslitin hér á Akranesi, því
er ekki að neita og mér kemur þetta
mikla fylgi , Alþýðubandalagsins
mjög spánskt fyrir sjónir," sagði
Valdimar Indriðason. Sjálfstæðis-
menn töpuðu þar einum fulltrúa til
Alþýðubandalags í kosningunum.
Valdimar kvaðst ekki hafa neina
einhlita skýringu á þessu tapi
sjálfstæðismanna á Akranesi en
stærstan þáttinn ætti sjálfsagt
landsmálapólitíkin sem hefði spilað
óeðlilega mikið inn í þessar sveitar-
stjórnarkosningar. Þar væri sjálf-
sagt verið að mótmæla ýmsum
ráðstöfunum ríkisvaldsins að undan-
förnu.
Um myndun væntanlegs meiri-
hluta sagði Valdimar að ekkert hefði
verið um það rætt til þessa en það
myndi ráðast á næstu dögum. Fyrir
kosningar mynduðu fulltrúar sjálf-
stæðismanna, alþýðuflokksmanna og
alþýðubandalagsmanna meirihluta á
Akranesi.
Á kjörstað á Akureyri.
útkomu flokksins í heild, sem ég tel
vera mjög alvarlegt mál, en þar spila
landsmálin langstærstan hlut.
Næstu dagar munu síðan skera úr
um það hverjir komi til með að
mynda hér meirihluta í bæjarstjórn-
inni næsta kjörtímabil og má í því
sambandi nefna að fulltrúar Alþýðu-
flokks og Alþýðubandalags höfðu
lýst því yfir fyrir kosningar að þeir
væru reiðubúnir að mynda hér
meirihluta fengju þeir til þess
umboð, sagði Arnar að síðustu.
Þá ræddi Mbl. við Ragnar Óskars-
son 2. mann á lista Alþýðubanda-
lags, sem að þessu sinni vann einn
fulltrúa og hefur nú tvo bæjarfull-
trúa.
„Þetta er greinilega mikill sigur
fyrir okkur, sem sést bezt á því að
síðast værum við saman með Fram-
sóknarflokknum og fengum þá tvo
fulltrúa saman," sagði Ragnar
Óskarsson.
Þennan mikla sigur vil ég fyrst og
fremst þakka því að við höfum sett
?ig tH 8 i
Sjálfstæðisflokkurinn forystu um
meirihlutamyndun, og ég vil ekki
útiloka slíkt samstarf við Alþýðu-
flokk og Framsóknarflokk áfram.
Þetta hefur verið ágætis meirihluti
og samstarfið hefur verið gott. Ég vil
taka það fram að við erum tilbúnir
til að mynda meirihluta með hverj-
um þeim, sem er tilbúinn að taka
ábyrga afstöðu í bæjarstjórnarmál-
um í Siglufirði."
Að lokum sagði Björn: „Ég vil
engu spá um alþingiskosningarnar,
en við bæjarstjórnarmenn Sjálf-
stæðisflokksins munum stefna að
kjöri þingmannsefna okkar, þrátt
fyrir það að við höfum verið hengdir
fyrir þá.“
Gunnar Rafn Sigurbjörnsson var
annar maður á lista Alþýðubanda-
lagsins í Siglufirði, en flokkurinn
fékk nú þrjá fulltrúa í bæjarstjórn
í stað tveggja áður. Gunnar Rafn
sagði um kosningaúrslitin:
„Það er hér eins og annars staðar,
að þessi kosningaúrslit má örugglega
þarna séu einnig á ferð leifar
gamalla lista, svo sem framboðs-
flokksins auk þess sem gífurleg
óánægja var með lista Alþýðubanda-
lagsins og margir Alþýðubandalags-
menn munu hafa kosið Alþýðuflokk-
inn. Við munum halda áfram starfi
okkar í meirihlutanum hér. Það var
að mínum dómi eingöngu tekizt á um
staðbundin mál hér á Seyðisfirði og
með þessari ágætu útkomu vildu
bæjarbúar láta okkur njóta þess.“
Hallsteinn Friðþjófsson, efsti
maður á A-listanum, var í sjöunda
himni. „Þetta er skínandi útkoma
hjá okkur," sagði hann. „Ég held að
það sé greinilegt að landsmálin hafi
spilað töluvert inn í þessa kosningu
en auðvitað er einnig tekizt á um
bæjarmál. Ég er á því að þessi úrslit
gefi nokkra vísbendingu um að við
Alþýðuflokksmenn séum í sókn hér
eystra. því að þar sem flokkurinn
hefur boðið fram á öðrum stöðum
hér á Austurlandi hefur okkur
gengið nokkuð vel.“
sömu braut og ég vil þakka Olafs-
firðingum fyrir þessa ótvíræðu
forustu, sem þeir hafa veitt okkur.“
Akranes:
„Refsing
fyrir
núverandi
stjórn-
arflokka“
• „Ástæðuna fyrir þessu mikla fylgi
sem við fáum hér er fyrst og fremst
að þakka hinni almennu fylgisaukn-
Ilúsavík:
Sjálfstæðis-
fylgið að
verða
nokkuð
traust
• „Ég held að við sjálfstæðisfólk á
Húsavík megum vera ánægð með
okkar hlut, þar sem fráhvarf frá
Sjálfstæðisflokknum er mikið um
allt land en við höldum hinsvegar
nokkurn veginn okkar hlut hér.
K-listinn, það er að segja Alþýðu-
bandalag og óháðir, hefur bætt við
yyyyyiJiyyyyyyyyyyyyiyyyyyyyyy