Morgunblaðið - 30.05.1978, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGINN 30. MAÍ 1978.
Hvað segja Reykvíkingar um úrslitin?
Hermann Kristjánsson og Róbert Bergmann
„Geysihörð barátta
arnar“
ÞEIR Hermann Kristjánsson og
Róbert Bergmann voru meðal
þeirra vegfarenda sem við hittum
á förnum vegi í gær, og þeir voru
sammála um að fylgistap Sjálf-
stæðisflokksins hafi verið fyrir-
sjáanlegt, en þó hafi það komið á
óvart að flokkurinn skyldi tapa
meirihlutanum. „Ég var mjög
hissa á því hvað fylgisbreytingin
virtist vera jöfn um allt land,“
sagði Róbert. „Það er víst óhætt að
búast við geysiharðri kosningabar-
fyrir alOingiskosning-
áttu fyrir alþingiskosningarnar,
en ætli fylgishlutfall flokkanna
breytist mikið frá því sem það
reyndist vera í kosningunum núna
um helgina," sagði Hermann. Þeir
félagar sögðust ekki búast við
miklum breytingum á stjórn
borgarinnar þótt aðrir tækju nú
við stjórn hennar, — þarfir
borgarbúa og leiðir til að ráða
fram úr málum þeirra hefðu ekki
breytzt með þessum kosningaúr-
slitum.
Úlfar Hermannsson og Sigrún Eyjólfsdóttir
„Úrslitin koma mjög
„ÞESSI úrslit koma mjög mikið á
óvart,“ sagði Úlfar Hermannsson
og Sigrún Eyjólfsdóttir tók í
sama streng: „Ég bjóst við að
Sjálfstæðisflokkurinn héldi meiri-
hlutanum, en nú verður spennandi
að sjá hvernig nýja meirihlutan-
um gengur að koma sér saman um
málin. Mér lízt vel á þá hugmynd
að ráða sem borgarstjóra ópóli-
tískan mann, það er að segja mann
mikiö á óvart“
sem sér um framkvæmdir eins og
hjá hverju öðru fyrirtæki." „Það
var kannski kominn tími til að
breyta til,“ sagði Úlfar og þau
bættu því við í lokiu að þau ættu
von á því að fylgistap Sjálfstæðis-
flokksins í alþingiskosningunum
yrði enn meira en varð á sunnu-
daginn var, — og sjálf kysu þau
ekki sama flokk til Alþingis og
borgarstjórnar.
„Lofar ekki góðu um
Það sem framundan
er“
„Ég er ákaflega vonsvikin, mér
fannst Sjálfstæðisflokkurinn eiga
það skilið að vinna á í borgar-
stjórnarkosningunum því að hann
hefur stjórnað borginni vel,“ sagði
Kristín Axelsdóttir þar sem við
hittum hana á strætisvagna-
stöðinni i Aðalstræti. „Það eykur
auðvitað á vonbrigðin að það skuli
geta munað svona litlu á því hvort
Sjálfstæðisflokkurinn eða hinir
flokkarnir þrír skuli hafa meiri-
hluta. Mér finnst þetta ekki lofa
góðu um það sem framundan er, en
skýringin á þessum óvæntu og
Kristfn Axelsdóttir
ómaklegu úrslitum hér í borginni
hlýtur að vera það, sem ríkis-
stjórnin er búin að gera af sér í
launamálum. Já, ég kýs alltaf
sama flokkinn, bæði í kosningum
til borgarstjórnar og Alþingis."
Um það hvort breytingar væru
framundan í borginni sagði
Kristín: „Ég held að eitthvað hljóti
að breytast við þetta, en það er
bara eftir að sjá hvort nýi
meirihlutinn getur komið sér
saman um eitthvað.
„Fólkið vill Þetta“
„Ég hef ekkert nema gott um
þetta að segja,“ sagði Vilhjálmur
Þorsteinsson, „fólkið vill þetta. Ég
átti nú satt að segja ekki von á
svona mikilli breytingu, en um
orsakirnar get ég ekkert sagt. Það
er ekki gott að spá um úrslit í
alþingiskosningunum í framhaldi
af þessu, en ég hef nú ekki trú á
því að það verði mikil breyting á
fylginu. Fólk skiptir ekki svo um
Vilhjálmaur Þorsteinsson.
skoðun á tæpum mánuði að útlit
sé fyrir stórfelldar breytingar.
Annars er maður varla búinn að
átta sig á þessum úrslitum eða
gera sér grein fyrir því hvaða
breytingu þau muni hafa í för með
sér. Ætli skýringarinnar sé ekki
helzt að leita hjá ríkisstjórninni.“
„Finnst gott aö Sjálf-
stæðisflokkurinn
skyldi tapa“
„Ég er ánægður og mér finnst
gott að Sjálfstæðisflokkurinn
skyldi tapa. Það má svo sem segja
að hann hafi bæði staðið sig illa
Bergsveinn Jóhannson
og vel, en það var kominn tími til
að láta aðra komast að“, sagði
Bergsveinn Jóhannsson. „Ég er
viss um að alþingiskosningarnar
verða stórsigur fyrir Alþýðuflokk-
inn, en ég er viss um að Alþýðu-
bandalagið fær ekki nærri eins
mikið fylgi í þeim kosningum og
hann fékk núna, alla vega ekki hér
í Reykjavík".
Sveinbjörg Vigfúsdóttir
„Til háborinnar
skammar
fyrir borgarbúa“
„Það er til háborinnar skammar
fyrir borgarbúa að þeir skuli hafa
fellt borgarstjórnina og mér þykja
þetta bölvuð úrslit, þótt það sé
kannski ljótt að tala svona," sagði
Agústa Vigfúsdóttir þegar við
spurðum hana álits á kosningaúr-
slitunum, en Sveinbjörg systir
Ágústa Vigfúsdóttir
hannar var á annarri skoðun: „Mér
finnst þetta allt í lagi, þeir voru
búnir að vera svo lengi í þessu að
þeir mega vel hvíla sig,“ sagði hún.
Ágústa sagðist ekki eiga von á
góðu frá nýja borgarstjórnar-
meirihlutanum, — „Þú getur
ímyndað þér hvort þeir rífa ekki
niður það sem hinir hafa verið að
byggja upp. Ég vona bara að fólk
gái að sér og sýni meiri ábyrgð í
alþingiskosningunum," sagði
Ágústa Vigfúsdóttir að lokum.
„Röng stjórnar-
stefna í landsmál-
um réð úrslitum“
„Ég er óánægður meö að sjálf-
stæðismenn skyldu missa meiri-
hluta sinn í Reykjavík og það þarf
ekki að fara í neinar grafgötur um
að það, sem hefur ráðið úrslitum
þessara kosninga, er röng stjórn-
arstefna í landsmálum. Óánægja
fólks með þá stefnu, sem núver-
andi ríkisstjórn hefur haldið uppi
í efnahagsmálum og þá aðallega
óheppilegar aðgerðir, hefur bitnað
á þeim sjálfstæðismönnum, sem
stjórnað hafa Reykjavík og það að
ósekju," sagði Björn Þórarinsson,
starfsmaður Skattstofunnar í
Björn Þórarinsson
Reykjavík. „Framsóknarflokkur,
Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag
hafa alltaf verið ósammála í
fjölmörgum málum og það á
margt eftir að breytast ef svo
verður ekki áfram. Um áhrif
þessara úrslita á komandi alþing-
iskosningar vil ég segja, að ég tel
að stjórnarflokkarnir komi til með
að tapa enn og þeir verða að taka
þessa áminningu alvarlega, Sjálf-
ur er ég sjálfstæðismaður og kaus
Sjálfstæðisflokkinn nú sem fyrr,“
sagði Björn að síðustu.
„Leið yfir bví
að missa Birgi“
„Ég er mjög leið yfir því að við
missum Birgi sem borgarstjóra, þó
ég fylgi honum ekki að flokki.
Landsmálapólitíkin og þá sérstak-
lega kjaramálin hafa þarna ráðið
úrslitum, þó ekki sé rétt að blanda
saman borgarmálum og landsmál-
Brynhildur Eggertsdóttir
um,“ sagði Brynhildur Eggerts-
dóttir, húsmóðir. „Ég hef ekki trú
á að það verði mikil breyting á
stjórn borgarinnar en vissulega
hlýtur maður að koma í manns
stað í þessu sem öðru. Það er hins
vegar sjálfsagt að láta nýja menn
reyna sig við þessi störf en það er
líka mín skoðun að borginni hafi
ekki verið illa stjórnað af sjálf-
stæðismönnum. Um alþingiskosn-
ingarnar er það að segja að ég er
ekki viss um að Alþýðubandalagið
haldi því fylgi, sem það fékk nú en
hrædd er ég um að Framsóknar-
flokkurinn tapi jafnvel enn meiru.
Um Alþýðuflokkinn og Sjálf-
stæðisflokkinn er erfiðara að
segja," sagði Brynhildur.
„Ánægður með
fall meirihluta
sjálfstæðismanna
en óánægður með
tap Framsóknar“
„Ég er persónulega mjög ánægð-
Kristín Árnadóttir og Bára Halldórsdóttir
„Á ekki von á pví að mikið breytist“
„ÉG ER mjög ánægð með þessa
útkomu og ég geri mér góðar vonir
um áframhaldandi þróun í sömu
átt í sambandi við alþingiskosn-
ingarnar," sagði Kristín
Árnadóttir þegar við spurðum
hana og Báru Halldórsdóttur álits
á kosningaúrslitunum. „Ég varð
satt að segja hálfhissa á þessu, en
ég á nú reyndar ekki von á því að
mikið breytist t borgarmálunum
þótt nýir menn taki við stjórn-
inni“, sagði Bára.