Morgunblaðið - 30.05.1978, Síða 23
23
— MORGUNBLÁÐIÐ ÞRIÐJUDAGINN 30. MAÍ 1978.
------L_U_-----------------------------
EKKI léku íslensku veðurguðirn-
ir við knattspyrnuunnendur í
gærkvöldi er stjörnulið Bobby
Charltons lék við úrvalslið KSI.
Rigndi allan tímann meðan á
leiknum stóð og um tíma var
skýfall. betta gerði það að
verkum að völlurinn var mjög
þungur og glerháll. Gerði það
leikmönnum beggja liða erfitt
fyrir og var því mesta furða hve
bæði liðin léku oft stórgóða
knattspyrnu. Leikurinn var mjög
opinn og skemmtilegur og var
miðja vallarins gefin eftir hvað
cftir annað af beggja hálfu og
hvert marktækifærið myndaðist
af öðru. Ekki tókst að nýta þau
sem skyldi og má með sönnu
segja að þetta hafi verið leikur
hinna glötuðu marktækifæra.
Jafntefli varð í lciknum. báðum
liðum tókst að skora tvö mörk.
Má segja að það hafi verið
sanngjörn úrslit eftir gangi hans.
bví þrátt fyrir að íslendingarnir
hafi átt fleiri tækifæri þá voru
marktækifæri stjörnuliðsins öllu
hættulegri.
íslenska úrvalsliðið hóf leikinn
af miklum krafti og náði strax
nokkuð góðum samleik. Var knött-
urinn látinn ganga vel á milli
manna og tókst þeim strax að
skapa glundroða í vörn stjörnu-
liðsins. Fyrsta hættulega mark-
tækifærið kom á 7. mín. eftir að
Guðmundur Þorbjörnsson nær að
nikka knettinum laglega inn í
vítateiginn fyrir fætur Herði
Hilmarssyni sem er í góðu færi en
skot hans sleikir stöngina utan-
• Bobby Charlton sýndi oft snilldartakta á Laugardalsvellinum í gærkvöldi og sýndi að hann er fjarri því að vera dauður úr öilum
æðum. Hér á hann í höggi við Skagamanniiyi Árna Sveinsson og virðist hafa betur eins og oftast í leiknum. Ljósm. Friðþjófur
LEIKUR HINNA GLOTUÐU TÆKIFÆRA
verða. Bretunum gengur illa að ná
saman í byrjun og þrátt fyrir
góðar tilraunir tekst þeim ekki að
sækja neitt sem heitið getur.
Sóknirnar þyngjast af hálfu úr-
valsins og við skulum líta í
minnisbókina.
9. mín. Kristinn Björnsson er
kominn í gott færi inni í vítateig
en freistar þess áð leika áfram í
stað þess að reyna skot og
markvörðurinn nær að bjarga.
11. mín. Karl Þórðarson á skot
eftir að mikii hætta hafði myndast
eftir þvögu inni í teig hjá stjörnu-
liðinu.
25. mín. Enn er Karl í færi, nú
rétt fyrir utan vítateiginn en skot
hans er ekki hnitmiðað og fer
framhjá.
26. min. Eitt besta færi leiksins.
Há fyrirgjöf frá Árna Sveinssyni
inn í vítateiginn, markvörðurinn
nær boltanum en rennur í hálu
grasinu og missir knöttinn fyrir
fætur Guðmundar Þorbjörnssonar
sem af markteigslínu tekst að
skjóta yfir markið.
Nú er komið að stjörnuliðinu.
Smátt og smátt nær það betri
tökum á leiknum og fær að eiga
sín tækifæri. Joe Royle fær góða
sendingu frá kempunni Charlton
og leikur upp vinstri kantinn og
alveg inn að markteigshorninu,
þar sem hann hleypir af en hárfínt
yfir þverslá. Worthington fær
fyrirgjöf á 34. mín og fær knöttinn
á brjóstið svo til alveg á marklínu
en á hreint yfirnáttúrlegan hátt
tekst honum að koma boltanum
framhjá markinu. Það hefði
heyrst hljóð úr horni hefði landinn
gert þetta. Síðasta orðið í fyrri
hálfleiknum á svo hinn skotfasti
Leeds-leikmaður Peter Lorimer,
þar sem hann afgreiðir knöttinn
viðstöðulaust með föstu skoti í
bláhorn marksins en Þorsteinn
Bjarnason lætur ekki að sér hæða
og var ef snilld.
Leikmennirnir voru eins og
hundar af sundi dregnir er þeir
gengu til búningsherbergja sinna í
leikhléi. Væntanlega hefur tesop-
inn yljað þeim því síðari hálfleikur
byrjaði af sama krafti og sá fyrri.
Og ekki láta marktækifærin á sér
standa. Royle er á ferðinni á 52.
mín., en Þorsteinn er rétt staðsett-
ur og lendir í engum vandræðum.
Liðin skiptast á upphlaupum án
þess að þeim takist að skora.
- þegar Charlton og Co gerðu jafntefli við úrvalið 2:2
Fyrsta mark leiksins.
Loksins kemur markið sem allir
eru búnir að bíða eftir.
Á 56. mínútu leiksins sækja
Islendingar og eru komnir inn að
vítateig Bretanna, þar hrekkur
knötturinn af Karli Þórðarsyni út
til Harðar Hilmarssonar sem nær
að leggja knöttinn vel fyrir sig og
fer sér í engu óðslega, leikur nær
markinu og rétt utan við mark-
teigshornið skýtur hann þrumu-
skoti sem hafnar í markhorninu
fjær, og þrátt fyrir góða tilraun
Mellor markvarðar nær hann ekki
að koma neinum vörnum við. Var
þetta vel gert hjá Herði. En Adam
var ekki lengi í paradís. Aðeins
þremur mínútum síðar jafnar
stjörnuliðið. Lorimer er brugðið
inni í vítateig og Worthington
skorar örugglega. Tveimur mínút-
um síðar sendir Lorimer háan
knött inn í teiginn. Dýra mistekst
að skalla frá og Royle nær að gefa
hælspyrnu fyrir markið og þar
kom gamli maðurinn Bobby Charl-
ton á fullri ferð og skoraði
óverjandi fyrir Þorstein markvörð.
Var laglega unnið að marki þessu.
Nú kom smá deyfð í leikinn
skamma stund en úrvalið gafst
ekki upp, og á 69. mínútu er dæmd
vítaspyrna á Royle þar sem hann
slær knbttinn inni í vítateig með
hendinni.
Gísli Torfason skorar og jafnar
leikinn 2—2. Rétt skömmu síðar
liggur við að Hörður leiki eftir
sama leikinn og er hann skoraði
fyrsta mark leiksins en Mellor
markvörður bjargar af hreinni
snilld. Það eru Islendingar sem
eiga síðasta tækifærið í leiknum
og eitt það besta. Kristinn Björns-
son kemst einn innfyrir vörnina og
á aðeins markmanninn eftir,
Mellor kemur út á móti og þrátt
fyrir að hann sé hálfkominn úr
jafnvægi nær hann að slæma
hendinni í knöttinn og bjarga
marki. Jafntefli urðu því úrslitin
og Bobby verður að koma í þriðja
sinn ef hann ætlar að fara með
sigur af hólmi yfir íslensku
úrvalsliði. Leikurinn var skemmti-
legur á að horfa fyrir áhorfendur
sem voru fjölmargir þrátt fyrir
slæmt veður.
Úrvalslið KSÍ lék oft ágætlega
saman í leiknum en þó hafði
maður það á tilfinningunni að það
vantaði meiri brodd i sóknarleik-
inn. Bestu menn liðsins voru
Þorsteinn Bjarnason og Janus
Guðlaugsson, sem lék mótherja
sína upp.
Hörður Hilmarsson og Guð-
mundur Þorbjörnsson áttu líka
báðir góðan leik, þá var Karl
Þórðarson sívinnandi en uppskar
ekki sem skyldi. Hjá stjörnuliðinu
sýndu allir atvinnumennirnir góða
knattmeðferð og sendingar þeirra
voru hnitmiðaðar. Þar voru aug-
sjáanlega engir viðvaningar á ferð.
Sjálf stjarna liðsins, Bobby, sýndi
að lengi lifir í gömlum glæðum og
var hrein unun að sjá hann er
hann tók á sprett og ýmist plataði
mótherjann eða lagði upp hættu-
leg tækifæri. Þá átti Powell góða
spretti.
- þr.
„Gífurlegar framfarir hjá
íslendingum í knattspyrnu
— segir Bobby Charlton í samtali við Mbl.
V
HENSON
„VIÐ leggjum meiri áherslu á að
skemmta fólki með leik okkar,
heldur en að vinna 8—0 eða svo,“
sagði gamla kempan Bobby
Charlton í stuttu spjalli við
fréttamenn eftir leikinn við
úrvalslið KSÍ. „Og svo virðist sem
fólki sé skemmt, því að við lékum
á síðasta ári sjö leiki í ferð okkar
og vorum siðan boðnir að koma
aftur á alla viðkomandi staði.“ —
„Við lékum betur núna heldur cn
í fyrra, enda komum við þá beint
út úr flugvélinni, en núna feng-
um við góða hvíld.“
Næst var Charlton spurður um
álit sitt á íslenska liðinu og hann
svaraði: nÞið lékuð mun betur að
þessu sinni, því að við vorum mun
sterkari nú en þá, Islendingar eiga
marga mjög góða fótboltamenn, en
það kemur mér ekki á óvart því að
framfarirnar hafa verið svo gífur-
legar í íþróttinni undanfarin ár.
Það er erfitt að benda á einn
Islending öðrum fremur, en
miðherjinn (Guðmundur Þor-
björnsson) var mjög góður í fyrri
hálfleik".
Stjörnuliðið kemur hingað beint
frá Noregi þar sem þeir unnu stóra
sigra með tölum eins og 8—0 og
5—1. En Charlton segir að það
hafi ekki verið úrvalslið heldur
félagslið og því ekki sanngjarnt að
bera saman við islenska liðið. Ferð
Stjörnuliðsins lýkur hér á landi og
Bobby Charlton er á förum til
Argentínu þar sem hann mun
starfa sem sjónvarpsmaður. Að-
spurður hverjir myndu vinna á
HM, gerðist Bobby loðinn í svörum
en sagði loks að hvaða lið sem væri
að þeim sem kæmust í átta lið
úrslit væri til sigurs líklegt.
„Ég vona innilega að geta komið
hingað á nýjan leik næsta ár og þá
munum við líka sigra,“ sagði hinn
viðkunnalegi Bobby Charlton að
lokum.
— KK-
Islenzka
liðið gott
VIÐ GRIPUM þá Peter Lorimer
og markvörðinn Peter Mellor
traustataki er þeir geystust út úr
búningsklefunum.
Þeir voru sammála um að
íslenska liðið væri mjög gott,
mun betra en þeir höfðu átt von
á. Þeir voru einnig ánægðir með
eigin frammistöðu og leikinn í
heild. Þeir voru báðir hrifnastir
af framlínumönnum og tiltóku þá
einkum Karl Þórðarson og Janus
Guðlaugsson. Þá sá Lorimer
cinnig ástæðu til að hrósa Þor-
steini Bjarnasyni fyrir mark-
vörsluna.
Að lokum tippuðu þeir félagar
á tilvonandi heimsmeistara og
taldi Mellor Ítalí sigurstrangleg-
asta, en Lorimer lokaði sig inni
í skel og sagði ekkert.