Morgunblaðið - 30.05.1978, Page 33

Morgunblaðið - 30.05.1978, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGINN 30. MAI 1978. 33 „Fólk úr öllum flokkum kaus Sjálf- stæðisflokkinn,, r __ — segir Arni Emilsson á Grundarfirði „ÉG ER mjög hamingjusamur og ánægður mcð úrslitin í kosning- unum hér, og ég tel að Grundfirð- ingar hafi tekið ábyrga afstöðu, fólk úr öllum flokkum kaus Sjálfstæðisflokkinn. Fólkið mat góða stöðu bæjarfélagsins og horfði framhjá landsmálunum,*' sagði Arni Emilsson efsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins og sveitarstjóri í Grundarfiri þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gær. Á Grundarfirði fékk Sjálf- stæðisflokkurinn 3 fulltrúa af fimm og hélt þar með meirihluta sínum. „Það gladdi mig mikið þegar fólk úr öllum flokkum kom til mín og kvaðst mundu kjósa núverandi meirihluta. Sjálfur hafði ég sett það á oddinn fyrir kosningarnar, að ég myndi víkja úr starfi ef við misstum meirihlutann og það voru margir sem studdu mig vegna þessarar ákvörðunar. Að lokum vil ég aðeins þakka Grundfirðingum fyrir veittan stuðning við Sjálf- stæðisflokkinn og þá ekki sízt unga fólkinu, sem tók afstöðu með okkur,“ sagði Arni að lokum. „Fólkið vildi sýna meirihlutanum sitt traust” — segir Ellert Kristinsson í Stykkishólmi • „bað er vitað mál, að það hefur mikið verið framkvæmt í Stykkis- hólmi á s.l, kjörtimabili og úrslit kosninganna sýna, að fólk hefur viljað lýsa trausti yfir starfi meirihlutans,** sagði Ellert Krist- insson efsti maður á lista Sjálf- stæðisflokksins og óháðra á Stykkishólmi, en listinn fékk nú íimm af sjö bæjarfulltrúum en hafði fjóra áður. „Það er stefna meirihlutans að ljúka þeim verkum, sem þegar hefur verið ráðist í. Ég vil benda á það, að við sjálfstæðismenn höfum haft góða samvinnu við óhátt fólk og þess vegna m.a. drógust landsmálin ekkert inn í kosningabaráttuna á Stykkishólmi og tel ég mjög gott að vera í samvinnu við óháða aðila. Með þessu móti er frekar hægt að halda innansveitarmálum frá landsmál- unum. Úrslit kosninganna tel ég einnig vera traustsyfirlýsingu við okkar ágæta sveitarstjóra, Sturlu Böðvarsson. Þessar kosningar voru mjög persónulegar," sagði Ellert að lokum. „Túlkum úrslitin sem stuðning við okkar stefnu” — segir Kristinn V. Jóhannsson í Neskaupstað „Við Alþýðubandalagsmenn fengum hærri prósentutölu í þcssum kosningum heldur en við höfum nokkurn tíma fengið síðan 1950 og höfum við aldrei haft svona mikinn atkvæðafjölda á bak við okkur eða 57.2%,“ sagði Kristinn V. Jóhannsson efsti maður á lista Alþýðubandalags- ins í Neskaupstað þegar Morgun- blaðið ræddi við hann. Alþýðu- bandalagið hélt sínum meirihluta í Neskaupstað, en missti mann, hafði áður sex bæjarfulltrúa af níu, en hefur nú fimm. „Árangur kosninganna þakka ég góðu starfi á kjörtímabilinu og erum við afskaplega þakklátir. Úrslitin túlkum við sem stuðning við þá stefnu sem við höfum fylgt og þá stefnu sem við höfum lagt fram,“ sagði Kristinn. Felldu bann við sunnudagsakstri Gení 28. maí. Reuter. SVISSNESKA þjóðin felldi í þjóðaratkva'ðagreiðslu í dag með miklum meirihluta tillögu þess efnis. að banna akstur á sunnu- dögum einu sinni í mánuði, umhverfisins vegna. Helmingi fleiri voru á móti tillögunni en með, en hún var upphaflega borin fram af níu háskólanemum. Tillagan fékk síð- an töluverðan hljómgrunn og skrifuðu 115.000 kjörgengir Sviss- lendingar undir tillöguna, og varð þá að fara fram þjóðaratkvæða- greiðsla um hana. Samkvæmt tillögunni hefði öll umferð einkaflugvéla og báta einnig verið bönnuð einn sunnudag í mánuði. Ríkisstjórnin og flestir þing- manna lögðust á móti tillögunni og bentu á að hún myndi draga úr ferðamannastraumnuminum og skaða efnahag landsins. RAX

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.