Morgunblaðið - 30.05.1978, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGINN 30. MAI 1978.
Meyer og vinkonur
innikróuð í Berlín
Vestur-Berlín, 28. mal. Reuter.
Hryðjuverkamaðurinn Till
Meyer og vopnuðu konurnar sem
hjálpuðu honum að flýja úr
rammjíerðu fangelsi í Vest-
ur-Berlín hafa sennilega ekki
haft nokkurn mÖRuleika á því að
sleppa frá Bcrlín að sö(?n lögrejíl-
unnar.
Yfirvöld hafa aukið eftirlit á
flugvelli borgarinnar og við borg-
armörkin án þess að komast á slóð
hryðjuverkafólksins.
Haft er eftir embættismanni í
Baader - Meinhof
hryðjuverkamenn
teknir í Júgóslavíu
Bonn 29. maí AP.
TALSMAÐUR vestur-þýzku
stjórnarinnar staðfesti í kvöld að
fjórir menn, sem grunaðir væru
um að vera áhrifamiklir félagar
í Baader-Meinhof samtökunum.
hefðu verið gripnir í Júgóslavfu
og væru þar í haldi unz ákvörðun
hcfði verið tekin um það hvort
þeir verða framscldir. Meðal
fjórmenninganna er kona sem
talin cr hafa haft tengsl við
mannræningja Aldo Moros. Vest-
ur-þýzka stjórnin mun í dag hafa
sett fram formlega beiðni um að
þeir yrðu framseldir.
Óstaðfestar
heimildir
hennar, Knut Folkerts, var hand-
tekinn og dæmdur í 20 ára fangelsi
fyrir morð.
Hoffmann er sögð hafa
fengið þjálfun sína hjá Palestínu-
skæruliðunum í æfingabúðum
þeirra í S-Jemen. Hafi þar verið
með henni Wisnewski sem áður er
nefndur og fleiri grunaðir hryðju-
verkamenn.
WagOer er grunaður um þátt-
töku í ráni og morði á Schleyer og
fleiri hryðjuverkum og Peter
Boock hefur tekið þátt í mörgum
grimmúðlegustu glæpaverkum
Baader-Meinhofsamtakanna og
hefur lengi verið leitað.
Vestur-Berlín að flóttinn sé meiri-
háttar áfall í baráttunni gegn
hryðjuvérkamönnum og Helmut
Kohl, leiðtogi kristilegra demó-
krata í Vestur-Þýzkalandi, segir
flóttann sýna fram á minnkandi
vald lýðræðisríkja.
Meyer var einn sex vinstri-
manna sem hafa verið fyrir rétti
vegna ránsins á leiðtoga kristi-
legra demókrata í Vestur-Berlín,
Peter Lorenz, og morðsins á
Gúnter von Drenkmann dómara
1974. Lögreglan segir að allt að
fimm konur hafi verið viðriðnar
björgun Meyers. Tilraun þeirra til
að bjarga fleiri vinstrimönnum úr
fangelsinu sem Meyer var í fór út
um þýfur.
Tíu af 15 öfgamönnum sem
lögreglan leitar mest að eru konur.
Nokkrar konur eru grunaðar um
að hafa tekið þátt í ráninu á
Lorenz, morðinu á Drenkmann og
þremur árásum á þessu ári, þar á
meðal ráninu á Hanns Martin
Schleyer.
Starfandi borgarstjóri Vest-
ur-Berlínar, Dietrich Stobbe,
kvaðst í dag hafa beðið dómsmála-
og innanríkisráðherra um ná-
kvæma skýrslu um öryggi í
Moabit-fangelsi þar sem Meyer
var hafður í haldi. En hann sagði
að ekki mætti búast við að
dómsmálaráðherrann segði af sér
vegna málsins.
Bandaríski gamanleikarinn Bob Hope átti 75 ára afmæli fyrir
helgina og var honum haldin mikil veizla í Kennedy Center í
Washington. Meðal annars var þessi feiknamikla afmæliskaka gerð
í tilefni dagsins og sézt Bob Hope hér skera sér fyrstu sneiðina.
AP-fréttastofunnar skýrðu frá því
að fólkið hefði verið handsamað í
Júgóslavíu fyrir þremur vikum,
sama dag og fimmti vestur þýzki
hryðjuverkamaðurinn Stefan
Wisniewski, var tekinn á Orlyflug-
velli er hann ætlaði upp í flugvél
er átti að fara til Zagreb. Heimild-
irnar sögðu að fólkið hefði verið
tekið vegna þess að alþjóðleg
samvinna hefði verið höfð við
leitina. Talsmaður dómsmálaráðu-
neytis Júgóslavíu sagði á blaða-
mannafundi í dag að fólkið væri
Brigitte Mohnhaupt, 28 ára, Siegl-
inde Gutrun Hoffmann, 33 ára,
Rolf Clemens Wagner, 33, og Peter
Booek, 26 ára. Þazu eru öll á lista
yfir hættulegustu hryðjuverka-
menn V-Þýzkalands og hefur
þeirra verið leitað dyrum og
dyngjum í langa hríð. Talið er
nokkurn veginn víst að þau hafi öll
átt að einhvern hátt aðild að
ráninu á Hans Martin Schleyer í
Köln í fyrra og síðan morði á
honum nokkrum vikum síðar. Þá
er og talið að Birgitte Mohnhaupt
hafi haft mjög nána samvinnu við
Rauðu herdeildina á Italíu, þ.e.
mannræningja Aldo Moros. Hún
hefur áður setið í fangelsi vegna
hryðjuverka. Talið er að hún hafi
gengið til samstarfs við Baad-
ér-Meinhof fyrir sjö árum. Hún er
einnig talin hafa átt aðild að
árásinni á Bubek, saksóknara í
Karlsruhe. Hún mun hafa komizt
naumlega undan í skotbardaga við
hollenzku lögregluna í fyrra en þá
féll einn lögreglumaður. Félagi
NATO-fundur í skugga
aukinna umsvifa Rússa
Washinjíton, 29. maí. Reuter.
CARTER forseti Bandaríkjanna
og æðstu menn 14 annarra
NATOlanda hefja tveggja daga
fund á morgun. staðráðnir í að
efla styrk handalagsins í Ijósi
vaxandi hernaðarmáttar Sovét-
ríkjanna.
Leiðtogarnir munu þó sem fyrr
vinna að eflingu bættrar sambúð-
ar austurs og vesturs og að
samningum um að draga úr
vígbúnaði. En fundurinn er hald-
inn í skugga vaxandi umsvifa
Rússa og Kúbumanna í Afríku og
meintra mannréttindabrota í
Sovétríkjunum með þeim afleið-
ingum sem þetta kann að hafa
áhrif á slökunarstefnuna í sambúð
austurs og vesturs.
Herforingjar og stjórnmálasér-
fræðingar NATO hafa varað við
stöðugri eflingu kjarnorkumáttar
og venjulegs herstyrks Varsjár-
bandalagsins. Yfirmaður alls her-
afla NATO, Alexander Haig hers-
höfðingi, hefur áætlað að yfirburð-
ir Rússa í vígbúnaði séu um það bil
10 á móti einum. Hann telur að
efling landherafla Rússa hafi verið
engu minni en efling sjóhers
þeirra. Rúmlega 100.000 mönnum
hefur verið bætt við sovézka
heraflann í Mið-Evrópu einni.
Ráðunautur Carters forseta í
þjóðaröryggismálum, Zbigniew
Brzezinski, sem er nýkominn frá
Peking, hefur dregið upp dökka
mynd af fyrirætlunum Rússa í
sjónvarpsviðtali. Hann sakaði
Rússa um tilraun til að umkringja
Miðausturlönd og auka ítök sín
þar og að kynda undir kynþátta-
ólgu í Afríku. Hann sagði svona
framkomu ósamrýmanlega leik-
reglum slökunarstefnunnar, dé-
tente.
Vestrænir embættismenn segja
Bannað að fara
frá Egyptalandi
að fyrir fundinum liggi tvær
skýrslur sérfræðinga sem Carter
forseti fór fram á að yrðu samdar
á fyrsta fundi æðstu manna
NATO-landanna sem hann sótti í
London fyrir ári. Fyrri skýrslan
fjallar um langtímastefnu banda-
lagsins sem miðar að því að
viðhalda styrk bandalagsins og
laga herlið þess að þörfum næsta
áratugar. Hin skýrslan fjallar um
pólitískar og efnahagslegar hliðar
samskipta austurs og vesturs.
Þetta er fimmti fundur þjóðar-
leiðtoga aðildarríkja bandalagsins
í 29 ára sögu þess og sá fyrsti sem
er haldinn í Washington.
Kairó 29. maí. Ap. Reutor.
MOHAMED Ilassanein Heikal,
fyrrverandi ritstjóra hins áhrifa-
ríka dagblaðs A1 Ahram, og
fjórum öðrum kunnum blaða-
mönnum var á sunnudag bannað
að fara frá Egyptalandi. Fimm-
menningarnir eru mcðal 60
manna. sem ríkissaksóknari
Egyptalands ákærði fyrr í vik-
Þetta gerðist 30. maí
1973 — Nixon forseti fer til
íslands til viðræðna við
Pompidou forseta.
1971 — Bandaríkjamenn skjóta
Mariner 9 til Mars.
1968 — De Gaulle neitar að
segja af sér, rýfur þing og boðar
til kosninga.
1967 — Lýst yfir sjálfstæði
Biafra og herútlx)ð í Nígeríu.
1961 — Trujillo, einræðisherra
Dóminiska lýðveldisins, veginn.
1913 — Tyrkir og Balkanríkin
undirrita friðarsamning í Lond-
on.
1904 — Japanir taka Darien af
Rússum.
1814 — Fyrri Parísar-friðurinn:
Frakkar viðurkenna landamær-
in frá 1792 og sjálfstæði Norður-
landa og ítölsku og þýzku
ríkjanna.
1808 — Napoleon innlimar
Toscana á jtaiíu.
1588 — Flotinn ósigrandi sigiir
frá Lissabon til Englands.
1539 — Hernando de Soto stígur
í land á Fiorida.
1534 — Hinrik VIII kvænist
Jane Seymour.
1498 — Kólumbus siglir frá
Spáni í þriðju ferðina til Nýja
heimsins.
1431 — Jóhanna af Örk brennd
á báli í Rúðuborg.
Afmæli dagsins: Pétur mikli
Rússakeisari (1672 — 1725) —
Henry Addington, enskur for-
sætisráðherra (1757 — 1844) —
Benny Goodman, bandarískur
tónlistarmaður (1909 — ...).
Innlent: Eggert Ólafsson
drukknar 1768 — Fyrsti íslenzki
ríkisráðsfundurinn í Fredens-
borghöll 1919 — Nixon til
íslands 1973.
Orð dagsins: Það er mannlegt
að skjátlast, það er guðlegt að
fyrirgefa — Alexander Pope,
enskt skáld (1688 — 1744).
unni um að hafa ófrægt Egypta-
land erlendis með skrifum sínum
um Anwar Sadat Egyptalandsfor-
seta og stefnu hans í málefnum
Miðausturlanda.
í frétt í A1 Alhram segir að þeir
fjórir, -sem eins og Heikal eru í
ferðabanni séu Ahmed Hamroush,
Mohamed Sayed Ahmed, Salah
Issa og Ahmed Fuad Nagm. Þá
segir að 34 af hinum 60 séu
blaðamenn, sem búi erlendis og
skrifi fyrir þarlendar fréttastofur.
Heikal sagði eftir að hann hafði
verið settur í ferðabann að
„ákvörðunin væri einkennileg. Eg
sé enga ástæðu fyrir henni. Eg er
ósammála Sadat hvað varðar það
hvernig hægt verður að koma á
friði í Miðausturlöndum, en ég hélt
það vera sjálfsögð borgararétt-
indi,“ sagði Heikal.
Ferðabannið fylgir í kjölfar
þjóðaratkvæðagreiðslu í Egypta-
landi, sem haldin var í landinu
fyrir rúmri viku. Þjóðaratkvæða-
greiðslan fjallaði um rétt stjórn-
valda til að banna þeim blaða-
mönnum sem skrifa greinar eða
útvarpa efni, sem ógnar þjóðarein-
ingu Egyptalands og gerir lítið úr
stjórnmálaafrekum stjórnarinnar,
að taka þátt í stjórnmálum.
Nazista-
foringi
hand-
tekinn
Vinarborg 29. maí AP.
SIMON Wiesenthal, hinn frægi
forstöðumaður Heimildasafns
Gyðinga í Vínarborg og sá sem
haft hefur upp á flestum
stríösglæpamönnum nazista,
sagði í dag að nazisti sem hefði
verið viðriðinn dauða 250 þús-
und manns í Sobibor-útrýming-
arbúðunum, hefði verið settur í
stofufangelsi í Brazilíu. Hann
sagði að hann ætti þarna við
Gustav Wagner, 66 ára gamlan
foringja í SS-sveitunum. Borizt
hefðu upplýsingar um að hann
væri í Brazilíu og hefði hans
verið leitað þar. Sannanir hefðu
þó ekki fengizt fyrir veru hans
þar fyrr en Wiesenthal sá hann
Framhald á bls. 31