Morgunblaðið - 30.05.1978, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGINN 30. MAÍ 1978.
47
Geir Hallgrímsson forsætisráðherra á aukaþingi S.Þ.;
Lýðræðið er f orsenda
Mðsamlegrar sambúðar
New York, 29. maí
Frá fréttamanni Morgunblaösins
SPENNU MILLI þjóða verður því aðeins eytt að
lýðræðislegir stjórnarhættir, mannréttindi og aukin
samskipti manna af ólíku þjóðerni fái notið sín, var einn
þátturinn í boðskap Geirs Hallgrímssonar forsætisráð-
herra í ræðu, sem hann flutti á aukaþingi Sameinuðu
þjóðanna hér í New York upp úr hádeginu í dag. Þingið,
sem hófst í síðastliðinni viku, f jallar um afvopnunarmál
eingöngu og hafa ýmsir áhrifamanna frá ýmsum löndum
þegar lagt leið sína hingað til að ávarpa það.
Forsætisráðherra kom til New
York síðdegis í gaer og heldur til
Washington seinna í dag, mánu-
dag, þar sem hann verður einn af
fimmtán forystumönnum NATO-
ríkja, sem mæta til fimmta
leiðtogafundar bandalagsins, sem
fréttamenn hér vestra fullyrða
raunar að geti orðið afdrifaríkast-
ur þeirra allra fyrir framtíð þess.
Áður en Geir Hallgrímsson
flutti ræðu sína í dag, hafði hann
átt stuttan fund með forseta
Kýpur hér í aðalstöðvum Samein-
uðu þjóðanna. Sá fundur var
haldinn að beiðni þess síðarnefnda
og þarf ekki að fara í grafgötur um
að tilefnið hafi verið rétt eitt það
vandamálið sem NATO-fundurinn
í Whasington fær einmitt að
spreyta sig á, nefnilega Kýpurdeil-
an og sundrungin sem hún hefur
valdið innan bandalagsins.
Forsætisráðherra kom víða við í
ræðu sinni innan þeirra marka
sem fundarefni er sett. Hann hét
á þjóðirnar að draga úr vígbúnaði
og stuðla að félagslegum og
efnahagslegum umbótum í heim-
inum.
Jafnframt lýsti hann yfir
þeirri skoðun sinni að í þess stað
að verja takmörkuðum fjármunum
í hergögn og vígbúnað bæri að
stórauka aðstoðina við þróunar-
löndin í því augnamiði að bæta
lífskjör íbúa þeirra og raunar alls
mannkyns. Um vígbúnaðarkapp-
hlaupið hafði forsætisráðherra
það meðal annars að segja að
munurinn á lýðræði og einræði
væri með öðru sá að lýðræðisöflin
leituðust við að halda hernaðarút-
gjöldum í lágmarki en þar sem
einræðisöflin réðu ferðinni hefðu
fjárveitingar til vopnabúnaðar
forgang.
Geir Hallgrímsson forsætisráðherra ávarpar Allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna í New York í gær, mánudag, en fundir þess um alþjóðlega
afvopnun standa nú yfir.
Nýr forseti ísraels, Yitzak
Navon.
Nýr forseti
Israels
Jerúsalem 29. maí AP.
YITZAK Navon, innfæddur ísra-
elskur sjórnmálamaður og leik-
ritaskáld, sór í dag embættiseið
sinn sem næsti forseti ísraels, sá
fimmti í röðinni f þrjátfu ára
sjálfstæðri sögu ríkisins. Ilann er
57 ára gamall og tekur við af
Ephraim Katzir sem ákvað að
hætta forsetastörfum og snúa sér
að nýju að vísindastörfum sínum
við Weizmannstofnunina í Jcrú-
salem.
Forfeður Navons eru spanskir
Gyðingar sem voru fluttir einkum
til Arabalanda í ofsóknum
kristinna á miðöldum á hendur
þeim. Forseti ísraels hefur nánast
ekkert pólitískt vald og felst
skylda hans einkum og nær
einvörðungu í því að koma fram
sem fulltrúi þjóðar sinnar inn á
Framhald á bls. 31
Ceausescu
í Kambódíu
Bangkok 29. maí. Reuter.
NICOLAE Ceausescu, forseti
Rúmeníu, kom til Phnom Penh í
opinbera heimsókn í boði komm-
únistaflokks Kambódíu og stjórn-
ar landsins að því er útvarpið í
Phnom Penh sagði frá. Var
sérstaklega tekið fram að
Ceausescu hefði fengið sérstak-
lega hlýjar og vinsamlegar mót-
tökur er hann kom.
Börn fyr-
ir borgun
New York 29. maí Reuter
BANDARÍSKUR lögfræðingur
hefur haft upp á um tvö hundruð
konum, sem eru til þess búnar að
ganga með og ala börn fyrir
barnlaust fólk, en aðeins fyrir
borgun. Frá þessu segir í síðasta
hefti vikuritsins Time. Time segir
að lögfræðingurin Noel Keane
hafi sett auglýsingu í blöð í
Michigan þar sem hann fór þess
á leit og fékk hann 200 svör.
Konurnar kváðust tilbúnar til að
gervifrjógvun yrði beitt ef óskað
væri eftir, en þær settu upp frá
200 til tíu þúsund dollara fyrir
vikið. Engin kvaðst gera þetta
endurgjaldslaust.
Konur skotnar
Ankara 29. maí AP.
TVÆR konur biðu bana og þrír
háskólanemar slösuðust alvar-
lega þegar óþekktir byssubófar
hófu að skjóta á hóp manna sem
beið við strætisvagnastöð í tyrk-
nesku borginni Gazianttep í
suðausturhluta landsins. Sagt
var í tilkynningu lögreglu að
líklega lægju pólitískar ástæður
að baki þessari atlögu og hefði
sennilega verið ætlunin að drepa
stúdentana en af óheppni hefðu
konurnar tvær orðið fórnarlömb
byssumanna þessara.
Begin lasinn
Tol Aviv 29. maí. Routor.
SKYNDILEG veikindi hrjá nú
Menachem Begin, forsætisráð-
herra Israels, og varð því að
fresta mjög mikilvægum stjórn-
arfundi um frið í Miðausturlönd-
um og næstu tillögur þar að
lútandi. Talsmaður stjórnarinnar
sagði að Begin hefði verið með
háan sótthita um helgina og hefði
hann fengið fyrirmæli um að vera
í rúminu í nokkra daga. Talsmað-
urinn sagði þessi veikindi ekkert
vera í tengslum við hjartasjúk-
dóm þann sem Begin þjáist af og
hefur þrívegis brotizt fram á einu
ári. Síðdegis var sagt að líðan
Begins væri betri og hiti hefði
lækkað en nánari skýring var
ekki gefin á veikindum hans.
I
Veður
víða um
heim
Amsterdam 23 sól
Apena 28 skýjað
Berlín 25 sól
Brtissel 25 sól
Kairó 37 sól
Chicago 33 rigning
Kaupmannah. 25 sól
Frankfurt 24 bjart
Genf 18 sól
Helsinki 21 sól
Jóhannesarb. 19 sól
Lissabon 24 sól
London 25 sól
Los Angeles 26 bjart
Madrid 23 bjart
Miami 26 rigning
Moskva 25 bjart
Nýja Delhi 41 bjart
New York 27 skýjað
Ósló 25 sól
París 24 sól
Rómaborg 24 sól
San Francisco 19 bjart
Stokkhólmur 24 sól
Tel Aviv 28 bjart
Tókíó 26 skýjað
Vancouver 16 skýjað
Vínarborg 22 skýjað
Ný loftbrú til Saba til
að sækia konur og böm
Kínvhuvu M m:»í Reuter
Kinshasa. 29. maí Routor.
FRAKKAR og Belgar ráðgera
brottflutning kvenna og barna
írá Shaba-héraði til þess að
afstýra skelfingu meðal hvitra
manna þar eftir fjöldamorðin í
Kolwezi.
Tvær franskar herflugvélar og
ótiltekinn fjöldi belgískra flugvéla
eru við því búnar að sækja 2.000
mæður og börn þeirra í námubæj-
um héraðsins að því er áreiðanleg-
ar heimildir herma.
Frakkar fluttu burtu meginliðs-
afla sinn fyrir tveimur dögum en
skildu eftir 150 menn úr Utlend-
ingahersveitinni í Kolwezi. Það lið
hörfaði í dag til höfuðborgar
Shaba-héraðs, Lubumbashi, 320
km fyrir suðaustan Kolwezi. Bær-
Vodka hækk-
ar í Póllandi
Varsjá, 29. maí, Reuter.
PÓLSKA stjórnin tilkynnti á
laugardag að hún hefði í hyggju
að hækka verulega verð á
áfengi til að stemma stigu við
vaxandi drykkju í landinu
undanfarin þrjú ár. Verð á
vodka hækkaði i dag um 23 til
30%, og hækkað Wyborówa-
vodkað mest. Pólverjar drekka
í dag allra þjóða mest af
sterkum tegundum.
inn er þá í höndum um 1.000
Zaire-hermanna.
Jafnframt fóru þvir flokkar
belgískra fallhlífahermanna í dag
til námubæja í Shaba-héraði þar á
meðal Likasiakambove, Kipusji og
Lubumbashi, til þess að stappa
stálinu í hvíta menn og hvetja þá
til þess að missa ekki kjarkinn.
Nú þegar hafa um 200 hvítar
konur og börn þeirra farið frá
Shaba, mæður hafa hætt við að
senda börn sín í skóla og margir
hafa ákveðið að fara fyrr en
venjulega í árlegt oflof til Evrópu.
Að minnsta kosti 20 Katanga-
hermenn voru teknir til fanga í
Kakoma í Zambíu skammt frá
landamærunum að Zaire þegar
þeir voru á flótta frá Shaba-hér-
aði. Franskir embættismenn sögðu
í dag að 138 hefðu týnt lífi í
Kolwezi þegar bærinn var á valdi
uppreisnarmanna.
Tveir Katangamenn sem voru
teknir til fanga í innrásinni í Zaire
halda því fram að sögn bandaríska
fréttaritsins Newsweek að tveir
kúbanskir ráðgjafar hafi verið í
fylgd með 4.000 manna innrásar-
liði uppreisnarmanna þegar það
sótti inn í Shaba frá æfingabúðum
í Angola. Sex portúgalskir marx-
istar voru einnig með innrásarlið-
inu að sögn ritsins.
Mobutu Sese Seko forseti kom í
dag til Rabat, höfuðborgar
Marokkó, þar sem gert er ráð fyrir
að hann reyni að tryggja sér
hernaðarlegan stuðning Hassans
konungs. Marokkómenn hafa þeg-
ar sent 50 tæknifræðinga til
Kolwezi.
Erítreumenn
hörfa úr vígi
R«m. 29. maí. Reuter.
UPPREISNARMENN í Erítreu
sögðu í dag að þeir hefðu hörfað
frá einu sterkasta vígi sínu vegna
mikilla loftárása Eþíópíumanna
sem hafa orðið að minnsta kosti
100 manns að bana.
Flugher Eþíópíu hefur gert
daglegar árásir á bæinn Mande-
ferre (einnig kallaður Adi Ugri) og
hann er að miklu leyti í rústum að
sögn talsmanns Frelsisfylkingar
Erítreu (ELF-RC). Bærinn er við
aðalveginn milli Addis Abeba og
Asmara, höfuðborgar Erítreu, sem
uppreisnarmenn hafa haldið í
umsátri í marga mánuði.
Ef Eþíópiumenn hefja sókn frá
grannhéraðinu Tigre kynnu þeir
að sækja eftir þessum þjóðvegi í
von um að ná sambandi við
Asmara.
Jafnframt hafa Erítreumenn
hrundið sókn Eþíópíumanna norð-
vestur af Asmara og hrakið
stjórnarhermenn aftur fyrir fyrri
stöðvar þeirra.
Talsmaður Alþýðufylkingar-
innar til frelsunar Erítreu (EPLF)
sagði að Eþíópíumenn hefðu sótt
til þorpsins Herberti um 30 km
vestur af Asmara og tveggja
annarra þorpa en EPLF hóf
gagnsókn og allt lið Eþíópíumanna
var hrakið á flótta. Enn er barizt
í þorpi aðeins sex km norðvestur
af Asmara, Wekideba.
Frá því er einnig skýrt að
sameiginlegur liðsafli EPLF og
ELF haldi áfram baráttunni um
yfirráð yfir bænum Barentu í
norðvésturhluta Erítreu og að
EPLF hafi teflt fram sovézkum og
bandarískum skriðdrekum sem
þeir hafi náð af Eþíópíumönnum.