Morgunblaðið - 23.06.1978, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 1978
3
Olafur Jóhannesson gagnrýndi
naglasúpu Alþýðubandalagsins
Vinstri flokkamir í hári saman, afhjúpa, ósam
komulag sitt fyrir sjónvarpsáhorfendum
Magnús Torfi kallar stefnu Alþýðubanda-
lagsins „gaffalbitastefnu”
ÞAÐ VAKTI athygli í sjón-
varpsumræðum formanna
stjórnmálaflokkanna í
fyrrakvöld, hve talsmenn
vinstri flokkanna fóru oft í
hár saman, m.a. réðst
Magnús Torfi Ólafsson
harkalega að Benedikt
Gröndal fyrir afstöðu Al-
þýðuflokksins til útfærslu
fiskveiðilögsögu 1971, en
Benedikt Gröndal svaraði
því m.a. til. að atlaga þeirra
SFV-manna væri hrein föls-
un og sagði, að þeir hefðu
með fullyrðingum sínum og
tilvísun í bréf þáverandi
formanns Alþýðuflokksins
hrundið af stað rógi um
Alþýðuflokkinn, eins og
hann komst að orði. Magnús
Torfi svaraði því til, að
Alþýðuflokksmenn hefðu
sakað sig um falsanir og
dylgjur og kvaðst ekki
mundu sitja undir slíkum
fúkyrðum án þess að svara
þeim.
Þá sagði Lúðvík Jósepsson,
að ekki væri hægt að byggja
á Alþýðuflokknum, þótt
hann bætti einhverju við
fylgi sitt, því að þar mundu
aðeins koma til atkvæði
óánægðra sjálfstæðismanna,
eins og hann komst að orði,
en Benedikt Gröndal tók þá
yfirlýsingu mjög óstinnt
upp. Þá vakti það einnig
mikla athygli, að Ólafur
Jóhannesson spurði Benedikt
Gröndal, í hverju hið nýja
andlit Alþýðuflokksins, eins
og það hefur verið nefnt,
væri fólgið. Hann talaði um
stefnuskrá Alþýðuflokksins
sem boðorðin 10 og fór
háðsorðum um Alþýðuflokk-
inn, sem hinn „frelsaða"
flokk. Benedikt Gröndal
reyndi að svara því til að
nýir starfshættir tíðkuðust
nú í Alþýðuflokknum og nýir
menn tækju þátt í störfum
hans. Ólafur Jóhannesson
spurði þá í tilefni af hinum
„nýju starfsháttum", hvar
þeir Alþýðuflokksmenn
hefðu sagt frá því, að þeir
hefðu fengið erlent fjár-
magn, sem hefði runnið í
vasa Alþýðuflokksins. Bene-
dikt Gröndal svaraði hinni
þungu ádrepu formanns
Framsóknarflokksins: „Það
kemur í næsta reikningsyfir-
liti“. Ólafur Jóhannesson
benti á, að hin „nnýju andlit"
Alþýðuflokksins væru allt
gamalkunnir alþýðuflokks-
menn — eða hvort það væri
ekki rétt? Benedikt viður-
kenndi það, en sagði að „nýju
andlitin“ hefðu fengið nýja
stöðu í flokknum. Ólafur
Jóhannesson lagði áherzlu á
það, að eina „nýja andlitið"
í framboðsliði Alþýðuflokks-
ins væri Bjarni Guðnason og
lét orð falla um það, að „hið
nýja andlit“ væri það eitt, að
í stað andlits Gylfa Þ.
Gíslasonar væri komið and-
litið á Benedikt Gröndal. Þá
sagði Ólafur Jóhannesson, að
hann hefði kynnt sér hina
nýju stefnuskrá Alþýðu-
bandalagsins og sagði að þar
væri að finna „yfirgnæfandi
blekkingar og gyllingar, sem
skortir allt jarðsamband,"
eins og hann komst að orði.
Sagði hann að hin nýja
álaíur Maifnús
JóhannoNson Torfi
I.úóvik lícnrdikt
J«'iN4>p.N.son (íröndal.
stefnuskrá Alþýðubanda-
lagsins minnti á söguna um
naglasúpuna en nú er eftir
að sjá, hvort kjósendum
þykir sú naglasúpa jafngóð
og konunni í sögunni, sagði
formaður Framsóknar-
flokksins.
Þess má að lokum geta, að
Magnús Torfi Ólafsson gagn-
rýndi stefnuskrá Alþýðu-
bandalagsins harðlega, tal-
aði um hana sem boðorðin
120, þar sem hvað ræki sig á
annars horn. Kallaði hann
afstöðu Alþýðubandalagsins
í utanríkisviðskiptum „gaff-
albitastefnuna" — í stað
þess að tryggja okkur mikil-
vægasta markað í Evrópu
með aðild að EFTA hefði
Alþýðubandalagið aðeins
bætt við enn einum vafasöm-
um kafla í austurviðskiptum
eins og hann komst að orði.
Á meðan Alþýðubandalags-
menn hefðu verið austur í
Moskvu að tala við Brésnef
um „gaffalbitastefnuna",
hefði Alþýðubandalagið
greitt atkvæði gegn aðild við
EFTA á Alþingi.
Þá sagði Magnús Torfi að
stefna Alþýðubandalagsins í
orkumálum væri Krafla, en
Lúðvík Jósepsson mótmælti
því, framkvæmdirnar við
Kröflu ættu allar rætur að
rekja til ríkisstjórnarinnar
og afneitaði þar með starfi
fyrirrennara síns í sæti
formanns Alþýðubandalags-
ins, Ragnars Arnalds, sem
situr í Kröflunefnd, svo og
einróma samþykkt Alþingis
um Kröfluvirkjun á sínum
tíma. Loks minnti Magnús
Torfi Ólafsson á, að iðnaðar-
stefna Alþýðubandalagsins
væri Grundartangi, en járn-
blendiverksmiðjan á rætur
að rekja til iðnaðarráðherra
flokksins, eins og kunnugt
er.
GT-VINYLAÐFERÐIN er ný vísindalega þróuö bandarísk aöferö
til viögeröa á rifnu, tættu, rispuöu eöa upplituöu vinyláklæði,
leöurlíki og vinyllíki á bifreiðasætum og húsgögnum.
Viögeröin er varanleg og þolir alla venjulega notkun, sem aldrei
heföi oröiö skemmd á hlutnum.
VENTILL H/F
T0Y0TAVARAHLUTAUMB0ÐIÐ
Armúla 23 sími 30690