Morgunblaðið - 27.06.1978, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 27.06.1978, Qupperneq 36
AUil.YSINíiASIMINN Kll: 22480 Plor0imí)lnbiii ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 1978 Drógu tillögu um hvalveiði- bann til baka FUNDUR Alþjóðahvalveiðiráðs ins hófst í London í gær og fyrii Islands hönd sitja fundinn þeii Þórður Ásgeirsson skrifstofu stjóri sjávarútvegsráðuneytisim og varaforseti Alþjóðahvalveiði ráðsins og Kristján Loftssoi framkvæmdastjóri Ilvals h.f. í samtali við Morgunblaðið gær sagði Þórður að fyrir fundin um hefði legið tillaga frá Panamé um að banna allar hvalveiðar heiminum um tíma, en þegar také hefði átt tillöguna til afgreiðslu hefðu Panamamenn dregið tillög- una til baka. Þá sagði Þórður, af ekki væri hægt að búast við af neitt markvert gerðist á fundinurr fyrr en á miðvikudag í fyrsta lagi Kjörseðlar með breytingum tölvuunnir „ÞAÐ voru tiltölulega margir kjörseðlar í Reykjavík með breytingum og nú er ætlunin að tölvuvinna þær hjá Reiknistofu Háskólans og verður það í fyrsta skipti, en hingað til hefur þetta alltaf verið handiðnaður og ákaflega seinvirkt," sagði Páll Líndal formaður kjörstjórnar-, innar í Reykjavíkurkjördæmi í samtali við Mbl. í gær. Páll kvaðst ekki hafa séð „neinar sérstakar línur" í breytingunum heldur hefðu þær verið „ákaf- iega ómarkvissar". Talningu í Austurbæjarskólanum lauk tíu mínútum yfir hálf sex á sunnu- dagsmorgun og sagði Páll að talningin nú hefði tekið tíu mínútum lengri tíma en við síðustu kosningar. Við flokkun og talningu atkvæða störfuðu 32 og er myndin tekin þegar talningin stóð sem hæst. SAAB-bifreiðin eftir slysið á Laxárbrú. Geir Hallgrímsson leggur fram lausnar- beiðni ÁRDEGIS í dag eða klukkan 10.30 mun ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar koma sam- an til fundar. Að loknum fundi rikisstjórnarinnar verður haldinn ríkisráðs- fundur og þar mun Geir Hallgrímsson leggja fram lausnarbeiðni fyrir sig og ráðuneyti sitt. Venju sam- kvæmt má telja líklegt, að forseti íslands, herra Kristján Eldjárn, muni biðja ríkisstjórnina að sitja þar til nýtt ráðuneyti hefur verið myndað. Eftir alþingiskosningarnar 1974, sneri forseti íslands 'sér til Geirs Hallgrímssonar, formanns Sjálfstæðisflokks- ins, og fól honum að gera í dag tilraun til myndunar ríkis- stjórnar. Geir hóf könnunar- viðræður við aðra stjórn- málaflokka, en niðurstöður þeirra viðræðna urðu ekki jákvæðar. Fól þá forsetinn Olafi Jóhannessyni fráfar- andi forsætisráðherra vinstri stjórnarinnar að gej-a tilraun til myndunar ríkisstjórnar. Góð sala Hópsness IIÓPSNES frá Grindavík seldi 37.4 lestir af ísuöum fiski í IIull í gærmorgun fyrir 9.9 millj. kr. Fékkst gott verð fyrir fiskinn úr bátnum og að meöaltali fengust 263 krónur fyrir kílóið. Ólafur hóf viðræður við Alþýðubandalag, Samtök frjálslyndra og vinstri manna, svo og við Alþýðu- flokkinn um stækkaða vinstri stjórn með þátttöku Alþýðu- flokksins. Þær viðræður stóðu yfir um nokkurn tíma, en reyndust síðan árangurs- lausar. Hóf þá Ólafur Jóhannesson könnunarvið- ræður við Geir Hallgrímsson um myndun samstjórnar Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks, en þær viðræð- ur leiddu til þess að forseti íslands fól Geir Hallgríms- syni formanni Sjálfstæðis- flokksins að nýju myndun ríkisstjórnar. Ráðuneyti Geirs Hallgrímssonar tók svo við hinn 28. ágúst 1974, en allt frá alþingiskosningum, sem haldnar voru síðasta sunnudag í júní-mánuði, höfðu þessar viðræður, sem hér hefur verið getið, staðið. Það liðu því rétt um tveir mánuðir frá kosningum og þar til starfhæf ríkisstjórn sá dagsins ljós. 17 ára pilt- ur ferst í bifreiðarslysi SAUTJÁN ára piltur, Omar Hilmarsson, Kolbeinsá í Bajar* hreppi í Strandasýslu, beið bana í hifreiöarslysi við Búöardal á sunnudagsmorgun, er bíll sem hann ók lenti á handriðsstólpa á brúnni yfir Laxá og valt inn á brúna. Þrír farþegar voru í bílnumi einn ha-lbrotnaöi, ristar- Sjálfstæðisflokkur: Fundur miðstjómar og þingflokks MIÐSTJÓRN Sjálfstæðis- flokksins og hinn nýi þing- flokkur hafa veriö boðuð til fundar á morgun. miðvikudag, kl. 11.00 í Valhiill við Iláaleit- isbraut til þess að ræða hin nýju viðhorf á vettvangi stjórnmálanna að því er Geir Ilallgrimsson. formaður Sjálf- stæðisflokksins, skýrði Morgunblaðinu frá í gær. brotnaði, fingurbrotnaði og marðist illa i andliti og hinir tveir skárust illa í andliti og annar ökklabrotnaði en hinn hlaut sprungu á höfuðkúpu. Slysið varð um klukkan 10:30 á sunnudagsmorgun. Piltarnir voru á leið frá Búðardal og ætluðu yfir í Strandasýslu. Ekki er ljóst með hverjum hætti slysið varð, en svo virðist sem Ómar hafi misst vald á bílnum er að brúnni kom. Vegurinn er þarna beinn og breiður og engar þær aðstæður fundust sem útskýrt gætu slysið. Læknir frá Búðardal kom fljótt á slysstað. Þá var Ómar látinn. Svo vildi til að flugvél var stödd á flugvellinum vjð Búðardal og voru farþegarnir þrír fluttir í henni suður og lagðir inn á slysadeild Borgarspítalans. Einn hefur fengið að fara þaðan aftur, en hinir tveir lágu enn í sjúkrahúsi í gærkvöldi. Bíllinn, sem er af gerðinni SAAB 96, árgerð, 1971, er gjör- ónýtur. Eigendaskipti á Norglobal: ísbjörninn h.f. á 10% hlutaf jár FYRIR nokkru urðu cigcnda- skipti á norska verksmiðjuskip- inu Norglobal og meðal núver- andi eigenda skipsins er ísbjörn- inn h.f. í Reykjavík, sem á 10% hlutafjár í hlutafélagi sem nú rekur skipið. Jón Ingvarsson framkvæmda- stjóri Isbjarnarins h.f. sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að stofnað hefði verið sérstakt hluta- félag um rekstur skipsins. Fyrr- verandi eigendur skipsins, fyrir- tækið Sigurd Herlofsson og Co í Noregi ættu nú 45% hlutafjár, Sine Darby Commodities í Eng- Iandi ættu önnur 45% og Isbjörn- inn síðan 10%. Hlutafé okkar í skipinu er 10 þúsund dollarar, sagði Jón. Hið nýja hlutafélag sem gerir út Norglobal er skráð í Bermuda og er skipið nú gert út þaðan. Norglobal fór fyrir tæpum þremur vikum frá Kristiansand í Noregi til Nýfundnalands, þar sem skipið tekur nú á móti loðnu frá norskum bátum sem þar eru á loðnuveiðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.