Morgunblaðið - 07.12.1978, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 07.12.1978, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 1978 22 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guömundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson Þeir ky nda veróbólguelda Sú óðaverðbólga, sem enn geisar á íslandi á rætur sínar að rekja til stjórnar- skipta á miðju sumri 1971. Þá lét Viðreisnarstjórnin af völd- um og vinstri stjórn undir forsæti Ólafs Jóhannessonar tók við. Viðreisnarstjórnin skilaði frá sér góðu búi, með digrum sjóðum og verðbólgu, sem nam um 7%. Vinstri stjórnin, sem við tók þetta sumar þoldi ekki þessa góðu daga og kunni fótum sínum ekki forráð. Til hennar var stofnað með sérstæðum hætti. Hvað eftir annað, með- an á stjórnarmyndunarviðræð- um stóð, hvatti Ólafur Jóhann- esson, formaður Framsóknar- flokksins til þess, að menn hespuðu stjórnarmyndunina af, þótt málefnasamstaða hefði ekki náðst, um það væri hægt að tala síðar. Segja má, að sú afstaða hafi einkennt störf þeirrar ríkisstjórnar allt henn- ar skeið. Þegar er stjórnin tók við völdum byrjaði hún að eyða þeim sjóðum, sem viðreisnar- stjórnin skildi eftir sig. I þá daga var talað um, að vinstri stjórnin hefði efnt til mikillar veizlu á fyrstu valdamánuðum sínum. Á örskömmum tíma fór allt úr böndum. Engin stjórn var á efnahagslífi landsins, stjórn peningamála fór úr böndum, stöðugt hallaði undan fæti hjá ríkissjóði, sem stefndi í mikinn hallarekstur eftir trausta fjármálastjórn Magn- úsar Jónssonar. Á fyrsta valdaári vinstri stjórnarinnar tvöfaldaðist verðbólgan frá því, sem hún hafði verið við stjórnarskiptin og á árinu 1973 tvöfaldaðist hún enn og komst upp í 34% eða þar um bil. Þetta eru óhrekjanlegar staðreyndir og þýðingarlaust fyrir Tímann eða aðra að reyna að halda öðru fram. Enginn bar meiri ábyrgð á þessari þróun mála en Ólafur Jóhannesson, forsætisráðherra þeirrar stjórnar en hann naut dyggilegs stuðnings Lúðvíks Jósepssonar og Alþýðubanda- lagsins við að kynda verð- bólgubálið. Á árinu 1974 keyrði þó um þverbak. I upphafi þess árs voru gerðir kjarasamning- ar, sem lengi verða í minnum hafðir. Þessir samningar voru gerðir undir handarjaðri ríkis- stjórnar Ólafs Jóhannessonar. Hann sendi þrjá ráðherra sína til þess að sitja yfir samninga- mönnum á Hótel Loftleiðum nætur og daga, vikum saman. Kjarasamningarnir í febrú- ar 1974 voru gerðir og undirrit- aður með blessun rikisstjórnar Ólafs Jóhannessonar. Áhyggj- um vinnuveitenda vegna þess, sem var að gerast, var svarað með brosi út í annað munnvik- ið, og því, að þeir yrðu að kasta sér til sunds, þótt þeir sæju ekki til lands. Þetta einstæða ábyrgðarleysi landsfeðranna veturinn 1974 leiddi til þess, að verðbólgan komst upp í54%. Þegar allt var komið í óefni hjá vinstri stjórninni vorið 1974 hélt hún þannig á málum undir forystu Ólafs Jóhannes- sonar, að forseti ASI taldi sig hafa verið rekinn úr ríkis- stjórninni. Síðan lét Ólafur Jóhannes- son sér til hugar koma, að Sjálfstæðisflokkurinn mundi bjarga honum út úr þeim ógöngum, sem hann var kom- inn í! Auðvitað fóru fram kosningar, vinstri stjórnin fékk sinn dóm og Sjálfstæðis- flokkurinn tók við stjórnarfor- ystu. Á þremur árum tókst ríkis- stjórn Geirs Haligrímssonar að ná þeim árangri í barátt- unni við verðbólguna, að á miðju ári var hún komin niður í 26% úr 54% sem var viðskiln- aður vinstri stjórnarinnar. Vörið 1977 hófust örlagaríkir kjarasamningar, sem augljós- lega hlutu að ráða úrslitum um það hver verðbólguþróunin yrði að þeim gerðum. Hvað gerist þá? Ólafur Jóhannesson, formaður Framsóknarflokks- ins og viðskiptaráðherra, lýsti því yfir, að auðvitað bæri að ganga að tilteknum kröfum verkalýðssamtakanna. Þar með var teningnum kastað. Utilokað var, að verkalýðsfor- ystan teldi sig geta samið um minna — en forystumaður annars stjórnarflokksins taldi sjálfsagt 'og eðlilegt. I þessu skipti engu, þótt formaður Framsóknarflokksins teldi sig hafa sett ýmsa fyrirvara. Eftir þessa yfirlýsingu Ólafs Jóhannessonar var leikurinn tapaður og verðbólgan fór vaxandi á ný eins og Morgun- blaðið benti rækilega á að mundi gerast bæði fyrir og eftir þessa örlagaríku kjara- samninga. Kannski voru það mestu mistök Sjálfstæðis- flokksins að láta þá ekki skerast í odda og rjúfa sam- starfið. Ætla mætti, að núver- andi forsætisráðherra hefði eitthvað lært af þeim örlaga- ríku mistökum, sem honum hafa orðið á á ráðherraferli sínum í þessum efnum. En bersýnilegt er að svo er ekki. Enn skal Ieika sama leikinn. I stað þess að styðja tillögur Alþýðuflokksins, sem hefðu verið raunhæft viðnám gegn verðbólgu, ef framfylgt hefði verið, lýsir forsætisráðherra stuðningi við tillögur Alþýðu- bandalagsins, sem eru þannig úr garði gerðar, að þótt í þeim felist vísitöluskerðing, sem er óhjákvæmileg, útiloka þær engu að síður árangur í verð- bólgubaráttunni vegna þess að gert er ráð fyrir stórfelldri skattlagningu og fjáraustri úr ríkissjóði á móti. Þegar þessi saga frá miðju sumri 1971 til dagsins í dag er höfð í huga verður væntanlega ljóst, að enginn einn maður ber meiri ábyrgð á óðaverðbólg- unni en Ólafur Jóhannesson, forsætisráðherra, sem vissu- lega hefur notið dyggilegs stuðnings Alþýðubandalagsins bæði 1971—1974 og nú síðustu mánuði við að kynda verð- bólguelda. Kalt borö og kertaliós LOKAÐ var fyrir rafmagn hjá Félagsstofnun stúdcnta í gær- morgun. vegna skuldar stofnunarinnar við Rafmagns- veitu Reykjavíkur. í gærkvöldi var enn rafmagnslaust, og engin lausn f fjárhagsvanda stofnunarinnar í sjónmáli. Skúli Thoroddsen, forstöðu- maður Félagsstofnunarinnar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að skuldin við Rafmagns- veituna næmi nú rúmlega 10 milljónum króna, eða nákvæm- lega 10.707.864.00 krónum. Væri þetta orkureikningur fyrir það sem af er þessu ári, en rafmagnsreikningar fyrir árið 1977 sagði Skúli að hefðu verið greiddir upp í október síðást liðnum. „Við höfum engin ráð til úrbóta," sagði Skúli, „þetta hefur lengi legið í loftinu, þetta hefur verið fyrirsjáanlegt um talsvert langan tíma. Þessi skuld við Rafmagnsveituna stafar af. greiðsluerfiðleikum undanfarin ár, en þessir Lokað fyrir rafmagn hjá Félagsstofnun stúdenta reikningar hafa mætt afgangi hjá okkur, auk þess sem ekki hefur verið unnt að greiða opinber gjöld, afborganir og vexti af lánum, og ýmis launa- tengd gjöld. Þess í stað höfum við reynt að greiða viðhald á stofnuninni og eigum hennar, og greitt fyrir hráefni til mötuneytisins." Skúli sagði ennfremur, að hann hefði ekki náð sambandi við neinn ráðherrann vegna þessa máls, en ríkisstjórninni hefði verið gerð grein fyrir málinu hinn 13. nóvember síðast liðinn. Sagði Skúli að sótt hefði verið um 25 milljóna króna aukafjárveitingu, en alls vant- aði stofnunina raunverulega um 58 milljónir til þess að endar næðu saman. Alls skorti 72 milljónir, en upp í það væru til 14 milljónir, þannig mismunur- inn væri 58 milljónir króna. „Þetta bágborna ástand er bein afleiðing þess að undanfar- in ár hefur Félagsstofnunin aöeins fengið um 30% af umbeð- inni fjárveitingu," sagði Skúli enn fremur, „og það hlýtur fyrr eða síðar að leiða til þess að stofnunin kemst hreinlega í greiðsluþrot. Á næsta ári er enn gert ráð fyrir því að við fáum tæplega 30% samkvæmt fjár- lagafrumvarpinu." Sagði Skúli, að þetta ástand hefði varað um all mörg undanfarin ár, en einna skást hefði það verið árið 1970, þá hefði Félagsstofnunin fengið um 70% af umbeðinni fjárveit- ingu. Að lokum sagði Skúli, að erfitt væri að halda starfsemi Félagsstofnunarinnar gangandi við þessar aðstæður. „Við gáfum fólki kalt, smurt brauð í dag, og hér á skrifstofunni vinnum við við kertaljós." Fólk varð að gera sér það að góðu að borða kalt brauð við kertaljós í Félagsstofnun stúdenta í gær, vegna þess að lokað hafði verið fyrir rafmagnið. Ljósm: Emiiía Trúi ekki öðru en ráðu- neytið hafi gengið í málið — segir Ragnar Arnalds menntamálaráðherra „ÉG FÓR fyrir nokkru síðan fram á aukafjárveitingu til Félagsmálastofnunarinnar, vegna þess að þá var íyrirsjá- anlegt að lokað yrði fyrir rafmagn hjá stöfnuninni vegna greiðsluerfiðleika,“ sagði Ragnar Arnalds mcnntamála- ráðherra, er Morgunblaðið bar undir hann fjárhagserfiðleika Félagsstofnunar stúdenta. Sagði Ragnar að þessi beiðni um aukafjárveitingu hefði enn ekki verið afgreidd, en hann hefði hins vegar rætt málið við fjármálaráðherra, Tómas Árna- son, „og ég trúi ekki öðru en að gengið hafi verið í að leysa málið,“ sagði Ragnar. Menntamálaráðherra sagði, að sér hefði verið það ljóst fyrir einu ári síðan, að fjárveitingin til Félagsstofnunarinnar væri ekki nægilega há, en ekki heði verið tekið tillit til tillögu er hann hefði flutt um hækkun á fjárveitingunni. „Þetta kemur því ekkert á óvart núna, en það er þó ljóst að hallinn á árinu er mun meiri en nokkurn gat órað fyrir, og á hann sér væntanlega að nokkru skýringar í lélegri afkomu hótelrekstursins hjá stúdentum í sumar,“ sagði Ragnar Arnalds að lokum. Morgunblaðinu tókst ekki að ná tali af Tómasi Árnasyni fjármálaráðherra í gær vegna þessa máls. Ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins, Hösk- uldur Jónsson, sagði hins vegar í gærkvöldi, að hann vissi til þess að opnað hefði verið fyrir rafmagnið til félagsstofnunar og taldi að það hefði verið gert fyrir tilmæli fjármálaráðherra en kvaðst ekki vita til að greiðslur hefðu farið fram af hálfu ráðuneytisins. Þekki málið ekki — segir Höskuldur Jóns8on, ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytis

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.