Morgunblaðið - 07.12.1978, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 1978
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 1978
25
vinA
KVEOIA
No. I 1978
Auglýsing
"\ .
0 i y s, u i
'>TÍT*fe
/i^s
r. _ 4 ./ 3»
■»»««41^ '■■■"n*-, -
k' -/
... iöá mundu
steinarnir hrópa.
Samhjálp sendir hér frá sér sitt fyrsta
tölublað af VINAKVEÐJU. Dálítið er aðferðin
óvenjuleg, að líkindum, en hvatning til hennar
kemur frá svo ótalmörgu fólki víðsvegar um
landið, að það verður tæpast náð til þess nema
á þennan hátt.
Þessir ótal mörgu sem nefndir eru, hafa á
svo margan hátt sýnt SAMHJÁLP áhuga, með
örvandi orðum, gjöfum og umhyggju ýmiskon-
ar.
Þá eru einnig margir sem spurt hafa:
Samhjálp, er hún til ennþá? Samhjálp, hætti
hún ekki?
Og kannske eru þeir flestir-sem spyrja:
Samhjálp, hvað er það?
Þessu blaði er ætlað að segja nokkuð frá
starfi Samhjálpar, bæði þeim sem ekki vita
neitt um hana og svo þeim sem standa með
henni, að þeir megi fylgjast með.
Nokkurs konar þáttaskil eru í starfi
Samhjálpar núna, en 18 mánuðir eru frá því
undirritaður var kallaður til starfs þar.
I ljós kemur, þegar þessi tími er gerður upp,
að í flestum greinum starfsins veitir Guð
meðbyr og því við hæfi að gera dálitla grein
fyrir starfinu og áformunum, og Guði dýrðina
fyrir örlæti hans og mannelsku.
Það er stórkostlegt að mega vera með í verki
Guðs, mega sjá hann starfa. Mega sjá hann
beygja sig niður að særðum mönnum til að
græða þá, flytja þá til húsa og fæða þá, klæða
þá og hjúkra þeim og uppbyggja.
Mannlegur skilningur tekur ofan snjáð stolt
sitt og lýtur höfði, er hann horfir á mildi
dúfunnar, leysa hlekki og lækna sár, þar sem
steyttur hnefi hafði orðið frá að hverfa, — og
úr innsta hugskoti stígur andvarp: Mikill ertu
Drottinn og undursamlegur."
Samhjálp hefur hlotið það traust, að fá að
reka vistheimilið í Hlaðgerðarkoti í Mosfells-
sveit.
Þar eru rúm fyrir 22 vistmenn og þegar
þetta er ritað, eru þar gestir í 21 rúmi. Frá því
í maí 1977, hafa 140 einstaklingar gist
heimilið, í alls 11000 daga. Það er því alveg
augljóst, að þörf er fyrir Hlaðgerðarkot og hún
brýn.
Starfslið Samhjálpar er nú 9 manns, 8
starfandi í Hlaðgerðarkoti og 1 á skrifstofu í
Reykjavík.
Mönnum sem koma til dvalar, er veitt öll sú
aðhlynning sem völ er á og læknir heimilisins
skoðar þá og skrifar inn.
I endurhæfingarstarfinu er megináherslan
lögð á Kristna trú, mönnum kynnt Biblían, og
sagt frá Jesú Kristi, sem leitar að særðum til
að græða þá. Kennsla þessi er veitt af
mönnum, sem sjálfir hafa upplifað undur
trúarinnar og vita, að Kristur er í dag hinn
sami.
Gengið er út frá því orði Biblíunnar, að
engan mann á að kalla vanheilagan eða
óhreinan, — þó kemur einn og einn sem
brjálar umhverfi sitt, og telst óhæfur til
dvalar.
Á hverju kvöldi er komið saman í
samkomusal, sungið og lesið úr Heilagri
ritningu, skipst á skoðunum og lífið litið frá
þeim útsýnispunkti, að Guð er til.
Það virðist vera ótrúlega erfitt fyrir marga,
að fella sig við þá hugsun, en er því
ánægjulegra, þegar þeir fallast á að reyna
trúna og upplifa þá nærveru Krists, raunveru-
lega og áþreifanlega á svo sterkan hátt, að þeir
verða aldrei sömu menn eftir það. Niðurstaðan
er því sú, að hver sá sem vill prófa, hann
hlýtur, — leitið, biðjið, knýið á. Og það
Fyllt í grunn júní ’78
Unniö viö uppslátt Ytra byröi tilbúiö.
I matsal
' f*’uff’” *,r“ «**« *f»» ií*
?* " ■* *** >1« í||1
’V’ itMÉS ffífíife- 4i
HANN FRELSAÐI MIG
í september 1977
var ég aö
skemmta mér,
eins og þaö er
kaliaö, og var á
leiö vestur á land.
Ég kom við á
símstööinni á
Brúarlandi og
ætlaöi aö láta
fólkiö mitt vita,
aö ég yröi sennilega lengi í burtu.
þegar inn á símstööina kom, datt mér
í hug að hringja upp í Hlaögerðarkot,
og ég spuröi hvort ég mætti koma þar
við.
Þar ákvaö ég svo aö stansa nokkra
daga og athuga minn gang.
Mér var lánuö Biblían, eins og öllum
öörum sem þangað koma, og fljótlega
fann ég aö eitthverskonar áskorun frá
Jesú Kristi, um að prófa trúna, — um
aö koma til hans, — knú-i á hjarta
mitt.
Ég tók áskoruninni, og baö Jesú aö
leysa mig frá áfengisnautninni og gefa
mér sigur og frið.
Og þaö var einmitt þaö sem hann
geröi, hann frelsaði mig frá vínlöng-
unni og gaf mér frið og trú á
framtíðina.
Þaö eru núna 14 mánuöir síðan ég
smakkaði vín, sex mánuðir síðan ég
hætti aö reykja.
Hef nú starf sem mér líkar, og hlakka
til morgundagsins.
Gunnar Jakobsson.
Fokhelt okt. ’78
/
iffT
Litla-Hraun
Akurhóll
SJÁ NÚ ER MJÖG HAGKVÆM TÍÐ
| Ég vil nota þetta tækifæri til aö
ffþakka Jesú Kristi, fyrir þaö sem
8 hann hefir gert fyrir mig. Hann hefir
| frelsað mig, úr viöjum áfengisböls-
ins og frá öllum vímugjöfum sem ég
| var bundinn við.
Hann hefir leyst mig frá tóbakinu
einnig. Hann hefir veitt mér mikla
náð, miklu meiri og áþreifanlegri en
Iég vissi aö fælist í tilboöi hans:
Komiö til mín allir þér sem erfiöiö,
og ég mun veita yður hvíid. Hann
gaf mér frið, og friður var þaö sem
mig vantaöi.
Þaö eru 10 mánuöir síöan ég kom fyrst í Hlaðgerðarkot,
og það hefir orðiö mjög mikil bylting í lífi mínu síöan. í fyrstu
þrjá mánuöina kom löngunin yfir mig, og ég féll aftur og
aftur.
En svo í maí síöastliðnum breyttist allt hjá mér, hið innra
hjá mér. Ég tók aö ákalla Jesúm og bað hann að leysa mig
út úr þessu böli sem ég var fastur í.
Og um leið og ég ákallaði hann af öllu hjarta þá kom hann
og tók að breyta mér. Bölv og ragn hvarf úr munni mínum.
Vínlöngun hvarf frá mér. Tóbakslöngunin hvarf frá mér. Ég
vil lofa hann og gefa honum dýröina, því þaö er hann sem
hefir umskapaö mig. Lífið meö honum er yndislegt, og ég vil
ekki skipta á því og neinu sem ég áður þekkti. Og langar mig
aö enda vitnisburö minn með Biblíuversi, frá 2 Kor. 6:2—3.
Á hagkvæmri tíö bænheyröi ég þig og á hjálpræðisdegi
hjálpaöi ég þér. Sjá, nú er mjög hagkvæm tíö.
Þú, lesandi minn, hann bíður stöðugt við hjartadyr þínar,
en þaö er í þinni hendi hvort hann kemst til þín. Ó, ef þú
skildir hvílíkt hnoss þaö er aö finna hann í hjarta sínu, —
hvílík undursamleg elska Guös aö gefa okkur son sinn
Jesúm Krist.
— Því svo elskaði Guö heiminn, aö hann gaf son sinn
eingetinn til þes að hver sem á hann trúir glatist ekki, — til
þess aö hver sem á hann trúir glatist ekki, — glati$t ekki —
Friörik Friðriksson.
heldur hafi eilifan friö.
stórkostlegasta við starfið er því, að sjá- þegar
niðurbrotnir menn finna Krist og þeim tekst
að hefja nýtt líf frá þeirri stundu, — efldir af
krafti Heilags anda, sem magnar í manninum
allt það jákvæða, þannig að það neikvæða
missir takið og upp rís ný sköpun í Kristi.
Fastir liðir í starfi Samhjálpar eru
reglulegar heimsóknir austur í Akurhól til að
hafa kristilegar samkomur, og hefir okkur
verið afburða vel tekið af forstjóra og öðru
heimilisfólki, sem fjölmennir á samkomurnar
og syngur með af gleði.
Einnig hafa verið heimsóknir í Víðines og
austur á Litla Hraun, og viðtökur ávallt
vingjarnlegar og hlýjar.
Tilgangur ferða þessara, er að segja frá og
gleðjast yfir Kristi, eiga saman gleðilega stund
og hvetja menn til að staldra við augnablik,
svo að þeir komi auga á, að Kristur er eitthvað
meira en orðin tóm.
Einnig tekur Samhjálp þátt í samkomum
Fíladelfíu í Hafnarfirði, en þar eru samkomur
hvert fimmtudagskvöld klukkan hálf níu í
Gúttó. Á sunnudögum er síðan fjölmennt í
Fíladelfíukirkjuna í Reykjavík.
Það sýndi sig fljótt, að menn sem dvelja sér
til hughreystingar á stað eins og Hlaðgerðar-
koti, þurfa á því að halda, að eitthver atvinna
sé fyrir hendi, svo þeir geti einbeitt huganum,
aflað fáeinna króna og sett markið á að hjálpa
til á hinum almenna vinnumarkaði. Við
settum því efst á bænalistann, í október 1977
bæn um vinnuhúsnæði.
Og það hljómar kannske eins og æfintýr, en
staðreynd er það samt, að síðastliðinn október,
varð neðri hæð hússins fokheld, eða 250
fermetrar. Og við eygjum þann möguleika, að
geta gert þá hæð nothæfa í vetur, að við getum
hafið vinnu þar. Villt þú hjálpa okkur?
Þegar hefja átti bygginguna var ekki úr
miklu að spila, og útlitið hvergi sérstaklega
aðlaðandi.
En Guð opnaði veginn skref fyrir skref.
Steypustöð B.M. Vallá gaf loforð um hjálp.
Skarphéðinn Ásgeirsson í Amaró á Akureyri
einnig. Og voru gjafir og hjálp þessara aðila
tveggja afgerandi póstur í byggingunni.
Þá réðist Samhjálp í útgáfu á hljómplötu, og
gáfu alla vinnu sína við hana, kórfélagar
Fíladelfíukórsins í Reykjavík, kórstjóri og
textahöfundur. Útkoman varð Samhjálpar-
platan, vel heppnuð plata og góð, sem þjóðin
hefur tekið afburða vel.
Næst er að geta útgáfu bókarinnar
„Krossinn og hnífsblaðið", en hún kom út í
október síðastliðnum, og hefir þegar sýnt, að
hún vekur mikla athygli, svo ört selst hún. En
hvarvetna þar sem hún hefir verið gefin út,
hefir hún orðið mörgum til hjálpar og
leiðbeiningar.
Hundruð einstaklinga, sem aldrei verður
getið að verðleikum, hafa sent Samhjálp gjafir
og styrki, ótrúlega mikill fjöldi, bókstaflega
ber hina bágstöddu á hjarta sínu, af samúð og
löngun til að hjálpa þeim.
Kona vestur á landi gaf 200 þúsund. Eldri
maður í Árnessýslu 200 þúsund, kona í
Kópavogi 100 þúsund, kona í Reykjavík 78
þúsund, mjög margir hafa gefið 10 þúsund, 5
þúsund, 1 þúsund, en þessar gjafir eru einmitt
þeir peningar sem hafa komið húsinu upp, og
eru aðalhjálpin í Samhjálparstarfinu.
Það sýnir sig hér, að þegar nógu margir taka
saman höndum, þá er hægt að segja við fjall
þetta: steypist þú í sjóinn."
Samhjálp vill hér, auðsýna þakklæti öllum
þeim sem hafa lagt af mörkum, öllum þeim
sem hafa sýnt viljan í verkinu. Guð blessi
ykkur ríkulega og umvefji með friði og
kærleika.
Samhjálp vill einnig þakka þeim sem ætluðu
að leggja af mörkum og vill benda þeim á, að
enn er hægt að gera það, enn er þörfin brýn, og
sérhver króna innilega þráð.
Áform Samhjálpar eru á næsta ári þau,
fyrst að ljúka vinnuhúsnæðinu og koma sér
upp starfi þar.
Þá að hefja útgáfu blaðs, og er stefnt að því
að fyrsta tölublað 1979 komi út í febrúar til
mars. Væntanlega mun það hljóta nafnið
VINAKVEÐJA, en blað með því nafni kom út
á árunum 1965 til 1969. Var það blað í 3000
eintökum og væntum vér þess að útbreiðsla
blaðsins verði enn meiri núna.
Verður blaðið tileinkað starfi Samhjálpar,
tilgangi, áætlunum og framvindu, svo og
kristilegum málefnum almennt, vitnisburðum
og frásögnum af reynslu fólks af trú.
Blaðið verður ókeypis og sent öllum sem
vilja vera svo vingjarnlegir að veita því
viðtöku.
Allir stuðningsmenn Samhjálpar fá það að
sjálfsögðu, og hver sem er getur með einu
símtali fengið áskrift. Símarnir eru 11000 og
66148.
Einnig, ef þú sendir Samhjálp gjöf, hvort
sem er á Gíróseðli eða á annan hátt, þá muntu
fá blaðið sem kvittun. En gírónúmerið er
11600. Hugmyndir eru uppi um að breikka
starfsgrundvöllinn og reyna að ná til unglinga
landsins. þeirra sem þegar hafa hlotið rás á
rangri hlaupabraut.
Verkefnin eru mörg og viðamikil, og hvergi
má slaka til.
Þrjú brot úr starfinu.
Ai Um haustið 1977 í fyrstu frostum hringdi
A úr almenningssíma í miðborg Reykjavíkur,
upp í Hlaðgerðarkot og spurði hvort nokkur
leið væri að hann mætti koma uppeftir, —
hann væri ósköp þreyttur og honum væri svo
kalt á fótunum, — reyndar ætti hann ekki
fyrir farinu með áætlunarbílnum, — hvort við
sæjum einhverja leið.
Sent var eftir A, óg klukkustund eftir að
hann hringdi, var hann kominn uppeftir.
Hann var gegnumkaldur og dofinn, undir-
fatalaus og sokkalaus í rifnum strigaskóm.
Fætur hans voru hlaðnir opnum sárum og
hann skalf af kulda og þreytu.
Eftir fyrstu aðhlynningu sendi læknir
heimilisins hann á Landspítalann vegna
sáranna á fótunum. Og að þeim grónum kom
hann aftur í Hlaðgerðarkot. Þar dvaldi hann í
sex mánuði, nærri samfellt.
Hann fór í bæjarleyfi eins og þau eru leyfð,
kom rakur til baka í fyrstu skiptin, en að
lokum hætti hann að smakka það, og flutti í
bæinn síðastliðið vor. I dag fagnar hann átta
mánaða bindindi, eftir 40 ára ofdrykkju.
Bi Börn hans óku honum upp í Hlaðgerðar-
kot, þar sem hann var borinn inn máttvana af
drykkju. Föt hans foru full af saur og þvagi, og
var hann afklæddur og spúlaður með vatni.
Þrem dögum síðar kraup hann í samkomu
og hrópaði á Jesúm Krist, og bað hann að leysa
sig úr þessum ægilegu fjötrum, hjálpa sér út
úr þessari miskunnarlausu örbirgð, sem hafði
kostað hanri heimili, konu og börn, vinnu og
sjálfsvirðingu.
Hann upplifði Jesúm sem frelsara og
eignaðist nýtt líf.
Ci Matsveinn utan af landi kom síðla veturs
til vikudvalar í Hlaðgerðarkoti. Eygði Jesúm
Krist og útgönguleið úr fjötrum vanans.
Hann ílentist í þrjá mánuði og fór þá til
vinnu og í dag fagnar hann yfir sigri fyrir trú,
eftir átta mánaða bindindi.
Hafði verið drukkinn meira og minna í 22 ár.
Að lokumi
Kæri lesandi minn, meðborgari þinn er í
neyð, þarfnast hjálpar þinnar, — vilt þú
hjálpa honum?
Sendu gjöf til Samhjálpar, hún hefir það
eina markmið, að hjálpa særðum mönnum,
föllnum og vegamóðum.
Oska ég þér gleðilegra jóla, ög bið Guð að
blessa þér jólahátíðina, með friði og nægtum.
Með virðingu og þökk
Óli Ágústsson
forstöðumaður.