Morgunblaðið - 14.01.1979, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1979
7
Skoöum mynd, sem eitt
guöspjallanna geymir:
Á veiku fleyi sigla menn
og ekki kyrran lognsæ, því
aö ofsarok er óvænt skoll-
iö á. Það ískrar og marrar
í boröviöum bátsins veika.
Hver af öðrum rísa öldu-
faldar hærri og hærri eins
og geigvænir hrammar
muni færa bátinn í kaf.
Skipverjar eru vanir að
glíma viö öldurót Genes-
aretvatnsins, því aö þar
hafa sumir skipverjar alið
aldur sinn hálfan, en nú er
þeim geigur því aö brattari
bárur hafa þeir naumast
þurft aö etja afli við, og
næturmyrkriö gerir ferö-
ina enn hættulegri. Úti á
þessu mikla vatni er langt
til lands, og djúp þess
geyma margar líkamsleifar
fiskimanna úr þorpunum
umhverfis vatniö.
í skutnum liggur maöur,
sem sefur. Áhyggjulaus
hvílir hann höfuö á segl-
dúk og sefur rólega meö-
an öldurnar kasta bátnum
milli sín líkt og barnshend-
ur léttu leikfangi. Hér er
friöur, hér er rósemi. Gegn
um svefninn heyrir hann
öskriö í öldurótinu og þó
er sál hans þrungin slíkum
friöi, aö ekkert haggar
trausti hans á þaö, aö hin
veika súö, vinir hans og
sjálfur hann séu undir
æðri vernd svo aö öllu sé
borgiö, eKkert aö óttast,
öllu óhætt.
Er ekki eitthvaö ósegj-
anlega töfrandi, ósegjan-
lega eftirsóknarvert í
þessari mynd, éitthvað,
sem hver einasta manns-
sál þráir, eitthvað sem viö
erum vitandi eöa óvitandi
alla ævi aö leita aö, en
erfitt er aö finna. Hvar er
þennan friö að finna?
Hverjir hafa fundiö hann?
Margir dá rósemi heim-
spekingsins, og víst getur
hún veriö aðdáunar verö,
ekki sízt hugarró og sjálfs-
stjórn sumra hinna fornu
heimspekinga. En óneit-
anlega hefur leiö þeirra
reynst fáum fær og megn-
ið af hugsanakerfum
heimspekinnar gerir til
iökandans kröfur, sem
fæstir geta risiö undir. Þá
eru líka mörg heimspeki-
kerfi ekki til þess fallin aö
rækta rósemi hugans. Mér
koma þá í hug sum heim-
spekikerfi nútímans, ekki
sízt „exentialisminn".
Aörir hafa leitaö rósemi
hugans og fundið hana
með því aö sökkva sér
niöur t nautn fagurra lista.
Ekki skal þaö dregið í efa,
aö á þeim leiöum hafi
margir fundiö sál sjnni
fullnægju og friö, rósemi
gagnvart margskonar
andstreymi. En ekki er
þaö markmiö allrar listar
aö auka mönnum hugarró
og sálarfriö, enda fjarri því
aö vera æskilegt. Listin
rekur menn oft út í storm-
inn og á aö gera þaö og
vekja menn af svefni,
arró
kenna þeim aö lifa þrautir
og þjáningar samtíöarinn-
ar. Hrópandinn í eyði-
mörkinni er velgeröa-
maður samtíöar sinnar, og
þar hafa margir hinna
stóru listamanna unniö hiö
þarfasta verk þótt verk
þeirra leiöi þá, sem njóta,
ekki til hugarrósemi eöa
sálarfriöar. Þau verömæti
veita þó í ríkum mæli
mörg verk hinnar „fögru
listar". Þaö hef ég hvergi
séö eins og meöan ég átti
dvöl í Benediktsmunka-
klaustrinu í hinu yndis-
fagra Beuron, þar sem
jafnvel krossfestingar-
myndir málarans Verkade
og annarra málaramunka í
klaustrinu önduöu unaös-
legum friöi aö hverjum
þeim, sem málverkin
skoöuöu og íhuguðu.
Og loks hafa menn
leitaö róseminnar og sál-
arfriöarins á leiöum trúar-
bragöanna. Langflestir
hafa fundiö hann þar,
enda aöaimarkmiö allra
hinna meiriháttar trúar-
bragöa aö vísa mönnum
þann veg og veita sálar-
friö, öryggi, rósemi and-
spænis þeim örlögum,
sem erfiöust veröa á vegi
mannsins.
Hann hafa óteljandi
mannssálir fundiö á veg-
um austrænna trúar-
bragöa Asíumanna og trú-
speki þeirra, sérstaklega í
trúarheimi Indverja og
kenningum Laotses, hins
fornkínverka spekings og
mikla hugsuðar.
Þau trúarbrögö og trú-
speki beinast mest aö
dultrú, „mystík", íhugunar-
lífi og innlifun í háleit
andleg sannindi og stefna
hæst að dulæðri, mý-
stískri einingu viö guö-
dóminn sjálfan. Enduróm
þeirrar tegundar trúar-
reynslu austrænnar trúar
má þegar finna í þeim
oröum, sem Jóhannesar-
guöspjall leggur Jesú í
munn um aldamótin 100:
„Ég og faðirinn erum eitt.“
Á þessum leiöum hafa
austrænir menn margir
sál-
fundiö djúpa hugarrósemi
og sálarfrið.
Hin austræna dultrú var
um og fyrir upptök kristin-
dóms oröin mjög útbreidd
um grísk-rómverska heim-
inn og áhrif frá henni
bárust mjög snemma inn í
kristindóminn, og hámarki
sínu náöu þau í miöalda-
kristninni, einkum innan
klaustranna, eins og aug-
Ijóst er af guörækniritum
hinna merkustu höfunda,
eins og heil. Teresu,
spænsku vitrananunnunn-
ar, einnar gáfuöustu konu
sinnar aldar, Henriks
Suso, Jakobs Böhme o.fl.
o.fl. í íslenzkum trúarbók-
menntum frá þessum öld-
um má furðulítil áhrif
greina frá þessum merku
höfundum og stefnu
þeirra, sem skapaði þó ein
fegurstu blómin á akri
trúarlegra bókmennta
margra alda í rómverskum
siö.
í vestrænum heimi hefur
kristindómurinn veitt ótelj-
andi mönnum þessa svöl-
un, þessa sálarró, og þó
ekki meö sama hætti og
Asíutrúarbrögðin og trú-
speki þeirra. En rúm mitt
er á þrotum að þessu
sinni, svo aö því máli verö
ég aö fá aö gera nokkur
skil í næstu sunnudags-
grein minni.
Sálarfriður
Ferðasknfstofan
fariö meö
Útsýn
Ódýr tilbreyting í skammdeginu.^
Helgarferöir til
Kaupmanna-
hafnar
Frá föstudegi
til mánudags
Brottfttr:
19. janúar, 16. febrúar, 9.
marz og 30. marz
Verð frá kr. 89.300.000
Innifaliö flug, flugvallar-
skattur, gisting með
morgunverði.
Einnig getum viö boöiö sérstakt verö á
SAS Royal hóteli. Innifaliö morgunveröur,
þríréttaöur kvöldveröur á laugardeginum
og á sunnudeginum er tvíréttaöur hádeg-
isveröur.
Verö frá kr. 113.300.00
Austurstræti 17,
símar 26611 og 20100.
ELDAVÉLAR • ÍSSKÁPAR
FRYSTISKÁPAR • VIFTUR
UPPÞVOTTAVÉLAR • ÞVOTTAVÉLAR
RYKSUGUR
FRYSTIKISTUR
ínnréttíngaYal hf . 5 '
Elektro gfl Helios
Traust heimilistæki
^^4 Lítid barn hefur
_lí' lítið sjónsvid