Morgunblaðið - 14.01.1979, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1979
33
Sjötug;
Lilja Pálsdóttir fv.
prófastsfrú Akranesi
Fyrir fjöldamörgum árum rakst
ég á stutta grdin í gömlu Kirkju-
riti, sem mér fannst mjög merkL
leg og ég hef eigi gleymt síðan. I
greininni, sem reyndar er einka-
bréf til þáverandi ritstjóra Kirkju-
ritsins, er frá því sagt, að
prestsfrúin í Holti undir Eyjafjöll-
um hafi fengið undursamlega
lækningu fyrir hjálp æðri máttar.
Hún hafði verið haldin af ill-
kynjaðri meinsemd og töldu lækn-
ar, að ekkert væri hægt að gera
fyrir hana. Hún var þá rúmlega
þrítug og átti stóran hóp ungra
barna. Þá sem endranær sneru
hjónin sér í einlægri bæn til Guðs,
enda líf þeirra og hamingja reist á
eilífðarmætti trúar og bænar. Og
bæn þeirra var heyrð á svo
undursamlegan hátt, að það verð-
ur ekki útskýrt með mannlegum
rökum. Líknarhendur í þjónustu
Drottins lífsins og kærleikans
læknuðu meinin til fulls.
Þessi ágæta kona, frú Lilja
Pálsdóttir, verður sjötug á morg-
un. Og þegar ég nú minnist
afmælis hennar fáeinum orðum, er
mér þessi gamla grein ofarlega í
huga, enda varpar hún skýru ljósi
á lífsskoðun og lífstrú þeirrar
konu, sem nú er að ganga sín
fyrstu spor inn í áttunda tug
ævinnar. Þau spor verða gengin í
bæn og öruggu trausti á hand-
leiðslu Guðs.
Jónína Lilja Pálsdóttir er fædd
á Ísafirði hinn 15. janúar árið
1909. Foreldrar hennar voru hjón-
in: Páll Einarsson, skipasmiður, og
Pálína Jónsdóttir, sem bæði voru
ættuð af Suðurnesjum. Kornung
fluttist Lilja með fjölskyldu sinni
til Reykjavíkur og ólst þar upp.
Hún var aðeins fimm ára gömul,
er faðir hennar fórst. Þá fóru í
hönd erfið ár, fátæktin var mikil,
en trúin máttug, viljinn sterkur og
vonin heið og björt. Á unglingsár-
unum þurfti Lilja að leggja hart
að sér og vinna erfiðisvinnu, meðal
annars vann hún á netageröar-
verkstæði, sem mun hafa verið
fátítt með stúlkur á þeim tíma.
Árið 1930 urðu hamingjuríkustu
og þýðingarmestu hvörfin í lífi frú
Lilju, er hún hinn 18. október það
ár giftist Jóni M. Guðjónssyni, er
þá var við nám í Guðfræðideild
Háskóla Islands. Hann lauk em-
bættisprófi þremur árum síðar, og
fluttust þau hjónin þá til Akra-
ness, þar sem séra Jón var
aðstoðarprestur í eitt ár. Árið 1934
fékk hann veitingu fyrir
Holtsprestakalli undir Eyjafjöll-
um. I Holti var heimili þeirra
hjónanna í tólf ár, eða til ársins
1946, er séra Jón fékk veitingu
fyrir Garðaprestakalli á Akranesi
og þjónaði því óslitið síðan, þar til
hann fyrir fjórum árum fékk lausn
frá embætti sakir aldurs, og hafði
þá jafnframt verið prófastur um
skeið. Það er alkunna, að séra Jón
var góður, vinsæll og vel metinn
sóknarprestur, sem allir hafa
elskað og dáð. Stóran og ómetan-
legan þátt í starfi hans og
hamingju á frú Lilja. Hún hefur
verið honum hin styrka stoð og
sanni lífsförunautur, hinn fórn-
fúsi, bjarti oggóði geisli í lífi hans.
Það hefur verið sagt, að íslenzkir
prestar ættu það sameiginlegt,
hvað þeir væru vel kvæntir. Það
orð hafa sannazt á vini mínum
séra Jóni, svo frábær sem konan
hefur reynzt honum í öllum
hlutum.
Starf prestskonunnar er í senn
fjölþætt,.erfitt og mikilvægt, og til
hennar eru að jafnaði gerðar
miklar kröfur. Prestskonan er ekki
aðeins móðir og húsmóðir á sínu
einkaheimili, heldur einnig oft á
tíðum nokkurs konar forstöðukona
safnaðarheimilis, rausnar- og
menningarheimilis, þar sem marg-
ir koma, um marga þarf að hugsa
og mörgum gott að gjöra. Góð
prestskona er einnig sálusorgari
manns síns, nánasti ráðgjafi hans
og reynir í hvívetna að styðja hann
í starfinu, þjóna með honum og
byggja hann upp. Þetta hlutverk
hefur frú Lilja skilið mjög vel og
verið næm á nauðsyn og mikilvægi
þeirra samskipta, sem sóknar-
börnin þurfa að hafa við heimili
prestsins. Prestsheimilið, sem hún
hefur prýtt og búið, hefur verið
einstaklega fallegt, listrænt og
hlýtt, sannkallaður unaðsreitur,
þar sem allir, ekki sízt þeir sem
gengu sorgarsporin að húsi prests-
ins, hafa fundið andblæ umhyggju r
og kærleika, fórnfýsi og fegurðar,
þegar dyrum var lokið upp.
Frú Lilja hefur látið sér mjög
annt um starf manns síns og lagt
kirkjunni öflugt lið. Um 30 ára
skeið var hún formaður kirkju-
nefndar kvenna á Akranesi. Hafa
þær konurnar lagt sig mjög fram
um að fegra og prýða Akranes-
kirkju, eins og kirkjan ber glöggt
vitni um.
Frú Lilja er kona mjög fórnfús
og óeigingjörn, gjöful og góðviljuð.
Þess hafa margir notið og standa í
mikilli þakkarskuld við hana. En
stærst og mest hefur hún verið
heimili sínu, manni sínum og
börnum og öllum stóra ástvina-
hópnum. Þau hjónin eignuðust
ellefu börn. Elzta barnið misstu
þau nýfætt, en hin tíu eru á lífi.
Þau hafa fundið það og notið þess,
að þau eiga mikla og göfuga
móður.
Frú Lilja Pálsdóttir er göfug og
glæsileg kona bæði í sjón og raun.
Yfir svip hennar og framkomu er í
senn tiginmannleg glæsimennska,
kvenleg fegurð, hógværð og auð-
mýkt. Hjá henni sameinast
höfðingleg auðmýkt og göfug-
mannleg reisn.
Eftir að séra Jón lét af embætti
og þau hjónin fluttust frá Kirkju-
hvoli, hafa þau átt heimili í nýju
og glæsilegu húsi að Bjarkargrund
31 á Akranesi. Heimili þeirra er
óvenju fagurt og glæsilegt og
nýtur í ríkum mæli alúðar, um-
hyggju og fórnfýsi hinnar mikil-
hæfu og ágætu húsmóður. Enn
sem fyrr er heimili þeirra unaðs-
reitur, þar sem yndi er að koma,
allt geislar af góðvild og fegurð og
vitnar um fágætlega listrænan
smekk og óvenju næmt fegurðar-
skyn þeirra hjónanna beggja.
Á þessum tímamótum í ævi frú
Lilju færum við hjónin henni
okkar innilegustu hamingju- og
blessunaróskir, þökkum vináttu og
góðvild þeirra hjónanna á liðnum
árum og biðjum þeim blessunar
Guðs um framtíð alla. Við biðjum
þess, að sá Drottinn lífsins og þær
líknarhendur, sem vitjuðu prests-
frúarinnar í Holti forðum daga,
megi leiða þessi göfugu hjón og
góðu vini okkar um ókomin æviár.
(Frú Lilja verður að heiman á
afmælisdaginn).
Jón Einarsson,
Saurbæ.
Ertu ekki búinn ad
finna þaðennþá?
oo °°
stu
verið slæmt
að týna kvittun..
Hjá Pennanum finnur þú allt, sem
þarf til að skipuleggja heimilisbók-
haldið, — möppur, geymslubindi,
tímaritagáma, gatara, límmiða,
teygjur, bréfaklemmur, o.s.fr.
Hjá Pennanum finnur þú allt, sem
þú þarft til að finna þína eigin
pappíra á augabragði.
Komdu og finndu okkur í Hallarmúla!
cniin
HALLARMÚL A 2
M*
-Sfc
Lítið barn hef ur lítið sjónsvið