Morgunblaðið - 14.01.1979, Side 44

Morgunblaðið - 14.01.1979, Side 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1979 Vl«> MORö’dh/- RArr/NO (Or^L-. GRAISTI GÖSLARI Kk skal segja yður læknir, að það veldur mér áhyggjum hvað það er orðið eríitt íyrir mig að halda á einkaritaranum mín- um. Þetta markar tímamót í heimssögunni. Tæmdu úr peninKaskúffunum í pokann hér, annars senri ég konunni þinni að þú haíir fengið óvænt launahækkun. BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson í keppnisbridge verða allir að hlita ákveðnum reglum og siðum svo allir eigi sömu möguleika til að ná eðlilegum og sanngjörnum árangri. Komi fyrir óeðlileg atvik er keppnisstjóranum gert viðvart en hlutverk hans og skylda er að tryggja eðlilegan gang spilsins og dæma í anda og eftir bókstaf keppnislaganna. En það getur verið erfitt. Norður gaf, allir á. Norður S. Á H. K6 T. 753 L. ÁDG9832 Vestur Austur S. G986 s. 10542 H. G5 H. Á109742 T. Á986 T. KG2 L. K76 L. - COSPER Við ætlum að borga. — Hver íyrir sig! Barnaárið Það hefur nýlega komið fram í fréttum að tugir milljóna barna lifa við aðstæður, sem ekki upp- fylla lágmarksskilyrði hvað snert- ir viðurværi og menntun. Hungursneyð er í Eþíópíu og í ríkjunum sunnan Sahara brytjar skorturinn niður börn og full- orðna. I könnunum sem gerðar hafa verið á vegum Sameinuðu þjóðanna hefur komið fram að þriðja hvert barn sem fæðist í þennan heim deyr innan fimm ára aldurs af völdum hungurs og hörgulsjúkdóma. Það er vel við hæfi í upphafi alþjóðaárs barnsins að athuga þessar staðreyndir nánar. Sennilega er flestum ljóst að engar umtalsverðar breytingar verða á högum barna á því ári, sem í hönd fer, að óbreyttu pólitísku og menningarlegu andrúmslofti í heiminum. Hin ójafna og rangláta skipting lífs- gæðanna vekur líka ýmsar gamal- kunnar spurningar. Hvað veldur því til dæmis að þjóðir vestursins, sem leggja svo ríka áherslu á félagslegar umbætur og samhjálp hjá sjálfum sér, skuli halda að sér höndum meðan milljónir með- bræðra þeirra svelta í hel svo að segja á þröskuldinum hjá þeim? Hvað kemur í veg fyrir róttækar og tafarlausar aðgerðir til að forða þessum ægilega harmleik? Hér skiptir ekki lengur máli hver á mesta sök eða ber þyngsta ábyrgð. Meðan ekkert er aðhafst, eru allir samsekir og samábyrgir, sem á annað borð geta hjálpað. Fram- búðarlausnin er ekki í því fólgin að senda mat og peninga til hinna nauðstöddu þjóða, þótt öll slík líknarviðleitni sé virðingarverð. Eina lausnin er sú, að gera þeim kleift með markvissri menntun og tækniaðstoð að nýta til fulls þau landsgæði, sem fyrir hendi eru; hjálpa þeim til sjálfshjálpar og viðunandi afkomu í landi sínu. Allt er þetta kunnugra en frá þurfi að segja. En af hverju sýna hinar ríku þjóðir heims þá ekki þessa eðlilegu og sjálfsögðu mannúð? Ef þessi mál eru athuguð hlutlaust þá blasir ætíð við sú grundvallarstaðreynd, að ekkert verður gert til frambúðarúrlausn- ar þessum og öðrum vanda, sem heimurinn stendur andspænis, nema og þangað til þjóðir heims- ins ráðast gegn honum í sameiningu. Sundrað mannkyn er einskis megnugt. Þjóð, sem er sjálfri sér sundurþykk, getur ekki einu sinni byrjað að fást við sín eigin vandamál, hvað þá annarra. Sameinað mannkyn, þ.e. þjóðir, sem hafa tekið höndum saman í pólitísku og menningarlegu banda- lagi (sbr. bandalag ríkjanna í N-Ameríku á síðustu öld) geta hins vegar barist kröftuglega gegn hungri og fáfræði og mannlegri eymd og unnið frækilegan sigur. En þjóðir, sem eru önnum kafnar við það eitt að gæta eigin hags- muna, raunverulegra og ímynd- aðra, geta lítið annað gert en rétta hinu nauðlíðandi fólki mola af borðum sinum annað kastið. Spurningin er í rauninni þessi: Hvenær munu stjórnmálamenn skilja að hagsmunir einnar þjóðar eru hagsmunir allra? Hvað kemur í veg fyrir að þeir viðurkenna í verki þá staðreynd, að aðeins ein fjölskylda byggir þessa jarðar- kringlu, ekki margar, og að Suður S. KD73 H. D83 T. D104 L. 1054 Spil þetta kom fyrir í leik milli Bandaríkjanna og Ítalíu fyrir nokkrum árum. ítalinn Belladonna var með spil norðurs og varð sagnhafi í þrem gröndum. Hann var heppinn með útspilið þegar austur lagði hjartatiuna á borðið. Vestur lét gosann og Belladonna fékk slaginn. Hann hóf sókn sína í laufinu, tók á ásinn og vestur tók síðan drottninguna með kóng og spilaði hjarta. Belladonna hefur sjálfsagt verið annars hugar en hann lét þá tígulþristinn, austur níuna og drottningin tók slaginn — í bili. Suður spurði þá Belladonna hvort hann ætti ekki hjarta (lögmæt spurning) og Belladonna fann þá strax sexuna. „Keppnisstjóri“! Þetta urðu dýr litarsvik. Lögin segja, að við leiðréttingu litarsvika megi saklausa hliðin taka upp á hendurnar spil, sem látin hafa verið en sagnhafi tekur spil sitt upp á höndina og fylgir lit eðlilega. En spil, sem látið hefur verið frá blindum skal kyrrt liggja. Austur tók því níuna, lét ásinn í staðinn og slagurinn varð hans. Sennilega hefur Belladonna tekið þetta nærri sér og gert einhverja vitleysu því sagan segir, að hann hafi fengið aðeins þrjá slagi! „Fjólur — mín Ijúfa" Framhaldssaga eftir Else Fischer \ Jóhanna Kristjónsdóttir pýddi 33 , greinir höíðu orðið milli Hermans og tryggingafélags- ins ... þegar hann dró kæruna tii baka ... ef hann haíði gert það. Susanne smeygði peysunni yfir höfuð sér og sparkaði af sér blautum skónum. — Víst hafði það verið sorglegt með þennan þjófnað, en hálf var þetta nú Guðrúnar írá Lundilegt. sagan um ljóta vonda soninn. sem hafði orðið góður og vinina tvo sem varðveitt höfðu vináttu sína gegnum þykkt og þunnt ... Ef það var svo eftir alit saman kannski cinhver kunningi sonarins sem hafði slegið hana niður var vísast bezt að gleyma því snarlega því að gamli íæknirinn hafði mæðzt í nógu mörgu. 8. kafli — Hvernig væri að fá sér sígarettu og kjafta saman áur en kallað verður á okkur f tedrykkjuna? — Það lízt mér bærilega á. Fáðu þér sæti. ég er að verða tilhúin. Susanne hallaðist upp að speglinum meðan hún var að snyrta sig. Hún átti eríitt með að leyna því að það fór í taugarnar á henni að Lydia skyldi umsvifalaust koma inn í herbergi hcnnar, meira að segja án þess að berja að dyrum en þegar hún skynjaði að Lydia hafði ekki hugsað sér að fá sér sæti. sneri hún sér að henni ögn vinsamlegri og benti henni að láta fara vel um sig. — Nci, komdu frekar yfir til mín. Lydia leit óróleg um öxl eins og hún óttaðist að cinhver lægi á hleri. — Það er rólegra inni hjá mér.- Eins og Lydia sjálf var herbergi hennar snyrtilegt, næstum úr hófi. en ákaflega smekklegt og allt svo skínandi hreint. Susanne dáðist að spegli á einum veggnum og horfði með hrifningu á rammann um hann. — Þegar þú ert búin að dást nægju þina geturðu kannski fengið þér sígarettu. Rödd Lydiu var skjálfandi og allt að því torkennileg. Susanne lét fallast allt að því sakhitin f einn hægindastól- anna. Sem hún kveikti á eldspýtunni horfði hún í áttina til Lydiu sem arkaði mjög óróleg fram og aftur um gólfið. Það þurfti ekki mikla skynsemi til að sjá að það var citthvað meira en litið sem amaði að þessari frænku Martins. Kvöldið áður hafði hún komið svo fyrir sjónir sem hún væri allt að þvi fullkomin í klæða- burði og útliti og framkomu, en nú var sem allt væri með öðrum hrag. Hún átti meira að segja erfitt með að sýna einföldustu kurteisi. Ef aðeins var litið snöggt á hana mátti kannski segja að hún væri glæsileg í útliti, en þegar betur var að gáð var eitthvað meira en lítið breytt í fari hennar og ekkert gat dulið baugana undir aug- um og áhyggjuhrukkur á enninu. — Þú skiiur sjálfsagt ekki af hverju ég vildi tala við þig, hóf Lydia máls og saug sígarettuna f ákafa. — Ég veit það ekki. Það er alltaf notalegt aö fólk spjalli saman. Susanne teygði sig eftir öskubakkanum og lcit spyrjandi á konuna. Á því lék enginn vafi að Lydiu lá eitthvað alveg sérstakt á hjarta og hún átti í miklum örðugleik- um með að stynja því upp. — Þetta var alveg hræðilegt — þetta slys Einars Einarsen, byrjaði hún loks og snarþagn- aði síðan. Ilún horfði í gaupnir sér, svo reis hún enn upp og náði sér nú í aseton og byrjaði að fjarlægja lakkið af nöglum sér. Ilún virtist gera það annars hugar, en hún gerði það samt, svo að ekki var hún alveg úti að aka. hugsaði Susanne. — Ég þekkti hann ekki

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.