Morgunblaðið - 24.02.1979, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. FEBRUAR 1979
Samtök um vostræna samvinnu hóldu hádegisvcrAarfund s.l. þar scm Bencdikt Gröndal
utanrikisráðhcrra ræddi um utanríkismál. Mikið fjölmenni var á fundinum og þurfti að stækka salinn
svo nægilcgt rými væri fyrir fundarmcnn. Myndin cr frá fundinum og sýnir þá Guðmund Garðarsson,
Benedikt Gröndal, Björgvin Vilmundarson, Heimi Hannesson og Halldór Blöndal.
Unglingamynd í Stjörnubíói
STJÖRNUBÍÓ hcfur hafið sýn- í aðalhlutverkum þessarar
ingar á myndinni Drive in, myndar eru Lisa Lemole, Glenn
bandarískri mynd í gamansömum Morshower, Gary Gary
tón. þar sem segir frá unglinga- Gavagnaro, Billy Milliken en leik-
ástum og dcilum unglingaflokka. stjóri myndarinnar er Amateau.
Gudmundur Sigur jóns-
son á sitt sterkasta mót
„Þetta er sterkasta skákmót, sem
ég er með í. Ég hef aldrei teflt á
móti fyrr með heimsmeistara og
fyrrverandi heimsmeistara,“ sagði
Guðmundur Sigurjónsson stór-
meistari f samtali við Mbl. f
gærkvöldi, en í dag heldur
Guðmundur til Miinchen að tefla í
alþjóðlegu stórmeistaramóti
v-Þýzka skáksambandsins.
Keppendur verða 16, þar af 13
stórmeistarar, og í þeirra hópi
heimsmeistarinn Karpov og
Spassky fyrrverandi heimsmeistari.
Firðrik Olafsson forseti Alþjóða-
skáksamhandsins verður við upp-
haf mótsins, en- fyrsta umferð
verður tefld á morgun, sunnudag.
Hinir stórmeistararnir 10 verða
Anderson Svíþjóð, Balaschow, Sovét-
ríkjunum, Robatsch, Austurríki,
Kavalek Bandaríkjunum, sennilega
Sax, Ungverjalandi, og Stean,
Englandi, og heimamennirnir
Hiibner, Pachman, Pfleger og
Unzicker. Einnig taka þrír v-Þýzkir
alþjóðlegir meistarar þátt í mótun-
um, Lieb, Dankert og Lau.
Mótinu lýkur 15. marz og tíu
dögum síðar fer Guðmundur til
þátttöku í Lone Pine skákmótinu í
Kaliforníu, en þar verða Helgi Ólafs-
son og MargeirPétursson einnig
meðal þátttakenda. Guðmundur
Sigurjónsson sagði í samtalinu við
Mbl. að Korchnoi yrði meðal
keppenda í Lone Pine og eftir þeim
upplýsingum sem hann hefði yrði
þar einnig tveir sovézkir keppendur,
en ekki er búið að tilkynna, hverjir
það verða.
í maímánuði teflir Guðmundur
svo á svæðamóti, þar sem Helgi og
Margeir keppa einnig af íslands
hálfu.
60 fóstureyðingar í kjöl-
far rauðu hunda-faraldurs
RAUÐU hunda-faraldur hefur
gengið hér á landinu frá því á
miðju síðasta ári og er enn ekki
Senginn yfir, að því er ólafur
lafsson landlæknir sagði i
viðtali við Mbl.
Landlæknir kvaðst seint á
síðasta ári hafa sent út tilkynn-
ingu til allra vanfærra kvenna,
sem komnar væru skemur en þrjá
mánuði á leið, að leita til lækna
sinna og láta kanna ónæmi þeirra
Deilur innan Náttúrulækningafélags Reykjavíkur:
Búist við því að til tíðinda
dragi á að alfundinum í dag
AÐALFUNDUR Náttúrulækningafélags Reykjavíkur fer fram í dag, laugardag, í Háskólabíói.
Agreiningur hefur verið innan stjórnar félagsins um gildi aðalfundarins út af félagaskrá síðasta árs og
kröfðust formaður NLFR og Björn L. Jónsson varaformaður lögbanns við því að aðalfundurinn færi fram.
þar eð þeir töldu fundinn ógildan á grundvelli þeirrar félagaskrár frá síðasta ári, sem aðrir stjórnarmenn
höfðu á hinn bóginn staðfest. Þessi lögbannskrafa var ekki tekin til greina samkvæmt fógetaúrskurði í
gær.
Morgunhlaðinu barst fyrir nokkru fréttatilkynning frá Marínó L. Stefánssyni, formanni NLFR, og Birni
L. Jónssyni. varaformanni NLFR, og í kjölfar þess yfirlýsing frá öðrum stjórnarmönnum NLFR.
að þeir sem að þessu standa hafi
ekki hreint mjöl í pokanum? Þeim
spurningum fæst væntanlega
svaí'að áður en langir tímar líða.
Marínó L. Stefánsson,
form NLFR.
Björn L. Jónsson
varaform. NLFR.
fyrir rauðum hundum. í kjölfar
þessa hefði um 60 konum verið
ráðið að láta framkvæma fóstur-
eyðingu eftir að staðfest hafði
verið að þær hefðu fengið rauðu
hundana á tímabilinu. Sagði Ólaf-
ur, að í flestum tilfellum hefðu
konurnar verið fremur tregar til
að gangast undir þessa aðgerð.
Landlæknir sagði, að það gerði
greiningu rauðra hunda að mörgu
leyti erfiða að oft fyndi fólk vart
til veikinnar og að í um 25%
tilfella væru útbrot mjög væg.
Hann sagði hins vegar að nú væru
möguleikar á því að bólusetja gegn
rauðum hundum og þess vegna
hefði nú verið ákveðið að bólusetja
allar konur á aldrinum 15—45 ára
sem ekki hefðu ónæmi fyrir veik-
inni og væru Islendingar hinir
fyrstu sem gripu til slíkra fyrir-
byggjandi aðgerða varðandi rauða
hunda. Sagði Ólafur að ásamt
honum hefðu þau prófessor
Margrét Guðnadóttir og Skúli
Johnsen borgarlæknir einkum
unnið að skipulagi þessa viðfangs-
efnis.
Svæðismót votta
Jehóva um helgina
VOTTAR Jehóva halda nú um helg-
ina sva'ðismót í Ríkissal þeirra að
Sogavegi 71 í Reykjavík um helg-
ina.
Dag.skrá laugardagsins mun fjalla
m.a. um mikilvægi einingar og sam-
heldni fjölskyldunnar, sem og safn-
aðarins í heild. Hámark þessa
tveggja daga móts verður svo á
sunnudag kl. 14 en þá verður fluttur
fyrirlestur sem nefnist: Viðhaldið
óhagganlegu trúartrausti allt til
enda. Ræðumaður verður Jóhann
Sigurðsson. A sunnudagsmorgun fer
fram skírn svo sem venja er á slíkum
mótum votta Jehóva, að því er segir í
fréttatilkynningu.
Fréttatilkynningin er svohljóð-
andi:
Með því að Náttúrulækninga-
/ciag Reykjavíkur (NLFR) er
stærsti aðilinn í Náttúrulækninga-
félagi íslands (NLFI), sem er
eigandi hins hálfopinbera fyrir-
tækis Heilsuhælis NLFÍ í Hvera-
gerói, telja undirritaðir ástæðu til
að gera almenningi grein fyrir
óvenjulegri smölun inn í NLFR um
síðustu áramót.
Til skýringar skal það tekið
fram, að samkv. lögum NLFR eiga
þeir einir atkvæðisrétt á félags-
fundum sem eru skuldlausir við
félagið við næstu áramót, og sömu
réttindi öðlast að sjálfsögðu þeir
sem gerast félagar fyrir áramót.
Nú skeður það eftir miðjan
janúar 1979, að gjaldkeri NLFR,
Guðjón B. Baldvinsson, afhendir
skrifstofunni um 30 lista með
rúmlega 800 nöfnum, segir allt
þetta fólk hafa gengið í félagið
fyrir árslok 1978 og greitt gjöld sín
fyrir það ár, og óskar þess að því
yrðu send félagsskírteiui. Jafn-
framt upplýsist, að gjaldkerinn
hefir hinn 29.12. ’78 lagt inn á
hlaupareikning félagsins upphæð
sem mun vera nálægt því að svara
til félagsgjalda þessara 800
manna. Allt er þetta gert á bak við
formann NLFR, sem fær enga
vitneskju um málið fyrr en eftir
miðjan janúar, nánast af tilviljun.
Formaður tók iistana þegar í
sínar hendur. Á engum þeirra er
eiginhandarundirskrift þessa
fólks, og nú þegar er vitað um
JNNLENT,
nokkra sem votta það, að nöfn
þeirra hafi verið sett á listana án
vitundar þeirra, og virðist þar því
um hreina fölsun að ræða.
Ennfremur teljum við okkur
hafa góðar heimildir fyrir því, að
ýmsir þeirra sem á listunum eru,
hafi ekki greitt sín félagsgjöld
sjálfir. Og það er enn óupplýst
mál, hvaðan það fé er komið sem
gjaldkerinn lagði inn hinn 29.12.
’78.
Að áliti lögfræðinga sem við
höfum leitað til eru listarnir sem
slíkir einskis virði sem fylgiskjal
með reikningum eða sem sönnun
þess að þessir 800 menn hafi gerst
löglegir félagar með atkvæðisrétti
á árinu 1979 á fundum NLFR.
Auðvitað er það ánægjuefni að
sem flestir gerist félagar í samtök-
um okkar. En hvers vegna þetta
laumuspil á bak við formann?
Hlýtur það ekki að vekja grun um,
Yfirlýsing frá öðrum stjórnar-
mönnum Náttúrulækningafélags
Reykjavíkur vegna inntökubeiðna
í félagið er svohljóðandi:
I tilefni bréfs Marínós L.
Stefánssonar, tökum við undirrit-
aðir fram eftirfarandi: Á stjórnar-
fundi félagsins, sem haldinn var sl.
laugardag, var ákveðið með
atkvæðum okkar undirritaðra, að
þeir-skyldu teljast fullgildir félag-
ar við árslok 1978, sem færðu
sönnur á að ósk þeirra um inn-
göngu í félagið hefði verið fram
borin og tekin upp á nafnalista
fyrir árslok, þ.e. í desember 1978.
Þeim sem með undirskrift hafa
staðfest þetta fyrir miðnætti í dag
verða því skráðir lögmætir félagar
1978.
Reykjavík, 21. feb. 1979,
Guðjón B. Baldvinsson,
Jón G. Hannesson,
Njáll Þórarinsson,
Guðmundur R. Guðmundsson.
Landhelgis-
nefnd
endurskipuð
LANDIIELGISNEFND hcfur verið
cndurskipuð, en hún er ríkisstjórn-
inni til ráðuneytis í málefnum sem
snerta landhclgi fslands og hefur
slfk nefnd starfað öðru hvoru um
árabil.
Eftirtaldir menn eiga nú sæti í
nefndinni samkvæmt tilnefningu
þingflokkanna:
Lúðvík Jósepsson, fv. ráðherra
(Alþýðubandalag); Matthías Bjarna-
son, fv. ráðherra (Sjálfstæðisflokk-
ur); Sighvatur Björgvinsson,
alþingismaður, (Alþýðuflokkur) og
Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri
(Framsóknarflokkur).
Utanríkisráðherra, Benedikt
Gröndal, er formaður nefndarinnar.
Fyrsti fundur nefndarinnar var
haldinn í gær.