Morgunblaðið - 03.03.1979, Page 46
46
!
Skúli er
meiddur
TVEIR íslendingar verða
meðal þátttakenda á Evr-
ópumeistaramótinu í kraft-
lyftingum, sem fram fer í
Jönkópinjí um helgina. Ann-
ar þeirra er óskar Sigur-
pálsson. sem er i mjög góðri
æfingu um þessar mundir.
Fyrirhugað var að Skúli
óskarsson tæki þátt f móti
þessu, en hann er meiddur
og verður að sitja eítir
heima.
Ný skíða-
lyfta í
Skálafelli
í DAG opnar skfðadeild
KR-inga nýja skfðalyftu í
Skálafelli. Lyfta þessi er
mjög fullkomin og er um
600 metra löng. Afköst
hennar eru um 700 manns á
klukkustund þegar best læt-
ur. Ekki verður lyftan vígð
formlega um heigina heldur
verður það látið bíða betri
tíma. Mikil gróska er nú í
öllu félagslffi í skfðadeild
KR. Þá er mikill snjór f
Skálafelli núna og rétt að
benda fólki á að notfæra sér
þá góðu aðstöðu sem þar er
fyrir hendi.
Punktamót í
HamragiH
PUNKTAMÓT á skíðum fer
fram f Hamragili nú um
hclgina. Verður keppt í
svigi í dag. en stórsvigi á
morgun. Þetta er annað
punktamót vetrarins. það
fyrsta fór fram á Akureyri.
Efstu keppendurnir í stiga-
keppninni eru nú þessir:
KARLAR:
stig
Tómas Leifss. Ak 33
Sigurður Jónss. ÍS 25
Árni Þ. Árnason Rk 24
KONUR:
stig
Steinunn Sæmundsd. Rk 45
Nanna Leifsd. Ak 28
Ásdís Alfreðsd. Rk 25
Leeds eys
um sig fé
LEEDS Utd. ætlar sér ýmsa
hluti stóra á þessu keppnis-
tfmahili og ætlar ekki að
spara peningana til þess að
svo megi verða. Fram-
kvæmdastjóri liðsins greiddi
út 350.000 sterlingspund í
fyrradag fyrir Kevin Hird,
varnarmann Blackburn
Rovers. Er það fjári mikið
fyrjr lítt þekktan leikmann.
Talið er að Hird muni leika
sinn fyrsta leik fyrir Lceds
strax á morgun. er liðið
mætir Norwich á Elland
Road.
Valsara-
mara-
þon
2. FLOKKUR Vals í knatt-
spyrnu mun í dag hefja
aðför að giidandi íslands-
meti í maraþonknattspyrnu.
Munu piltarnir, sem eru 8
talsins, hefja leikinn í dag
klukkan 14.00 í Valsheimil-
inu. Ætla þeir að leika
knattspyrnu samfleytt í 33
klukkustundir.
^ klukkustundir.
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MARZ 1979
Öruggir sigrar í
blaklandsleikjunum
ÍSLENDINGAR voru ekki í vandræðum með að leggja Færeyinga að
velli í blaklandsleikjunum sem fram fóru í gær á Akureyri. í
kvennalandsleiknum sigruðu fslensku stúlkurnar örugglega 3—0, og
sýndu góðan leik á móti frekar óöruggu og taugaóstyrku liði færeysku
stúlknanna. í fyrstu hrinunni var um algera yfirburði að ræða og
endaði hrinan 15—2 og stóð aðeins í 10 mínútur. Næsta hrinan var
jafnari og endaði 15—7 eftir 14 mínútur. í síðustu hrinunni var svo
aftur um yfirburði að ra*ða og sigruðu fslensku stúlkurnar 15 — 3 eftir
12 mfnútna leik.
Anna Guðný Eiríksdóttir var best í liði íslands en einnig áttu
systurnar Laufey og Kristjana Skúladætur góðan leik. Lið Færeyinga
olli nokkrum vonbrigðum í leiknum og virtust stúlkurnar vera bæði
taugaóstyrkar og miður sín.
Karlalandsliðið sigraði af miklu öryggi í öllum þrem hrinum sfnum
á móti Færcyingum, enduðu hrinurnar 15—3 eftir 8 mfnútna leik,
15 — 10 eftir 16 mfnútna leik, var þessi hrina einna jöfnust. Og í
síðustu hrinunni sigraði landinn 15 — 7. Ilaraldur Hlöðversson var
bcstur í íslenska liðinu en Böðvar Sigurðsson átti einnig ágætan dag.
Lið íslands var jafnt og barðist vel. Á morgun verður svo leikið aftur
og þá í Ilagaskóla kl. 14.00. Má þá búast við meiri mótspyrnu af hálfu
Færeyinga.
- þr.
Viggó
markhæstur
Axclsson var næstur en skor-
aði flest sín mörk úr vítaköst-
um.
Það vekur mikla athygli að
hornamenn íslenska liðsins,
þeir Bjarni Guðmundsson,
ólafur Jónsson og Erlendur
Hcrmannsson. sem lék reynd-
ar aðeins síðasta leikinn.
skora 20 mörk samtals. Þá
fiska þeir 18 vítaköst í leikjun-
um. sem er í rauninni frábær
frammistaða. Ólafur Jónsson
skorar 9 mörk og fiskar 9
vftaköst, Bjarni Guðmundsson
skorar 8 mörk og fær 9 víta-
köst, og Erlendur Ilermanns-
son skorar 3 mörk í síðasta
landsleiknum og þeim eina
sem hann tók þátt f.
EKKERT hefur frekar gerst í
máli Viggós Sigurðssonar í
sambandi við atvinnumennsku
í handknattleik á Spáni. Viggó
mun hins vegar ræða í dag við
forráðamenn F.C. Barcelona
og fá skýrar línur í hvað í boði
er. Viggó sagðist samt ekki
taka neina ákvörðun í máli
þessu fyrr cn heima á íslandi
er hann hefði rætt málin við
konu sína. Þá var 2. deildar lið
í Madrid mjög spennt fyrir að
fá Viggó strax í sínar raðir og
láta hann leika út keppnis-
tímabilið á Spáni í rúma tvo
mánuði.
VIGGÓ Sigurðsson varð mark-
hæstur íslendinganna í leikj-
unum fimm á Spáni. Skoraði
Viggó alls 28 mörk. Axel
• Viggó Sigurðsson.
Markagráðugir
Valsmenn
ÍSLANDSMÓTIÐ í knattspyrnu innanhúss hófst í gærkvöldi með 7
leikjum í A-flokki og einum f B-flokki. Á móti þessu er keppt f 3
flokkum. C-flokki auk hinna sem þegar eru ncfndir. Einnig er keppt í
kvennaflokki og leika þar 6 lið f 2 riðlum. í A- og B-flokki er leikið f
fjórum 4 liða riðlum, en í C-flokki eru riðlarnir aðeins tveir. Úrslit
þeirra leikja sem fram fóru í gærkvöldi eru þessi:
2. riðill Þróttur Rk-KR
3. riðill Fram —Víkingur
4. riðill UBK —Haukar
1. riðill Valur—Þróttur Nk
2. riðill Ármann—KR
3. riðill Fram —Fylkir
1. riðill (B) Stjarnan —óðinn
5- 6
6- 8
5-9
12-0
3-7
7-3
5-4
0 Karlalandsliðið í blaki á landsliðsæfingu.
Aftari riið frá vinstri: Hreinn Þorkelsson UMFL, Guðm. E. Pálsson
Þrótti. Böðvar H. Sigurðsson Þrótti. Sigfús Haraldsson ÍS, Haraldur
G. Hiöðversson UMFL, Jason ívarsson Þrótti, Indriði Arnórsson ÍS.
Fremri röð frá vinstri:
Kjartan Páil Einarsson ÍS, Benedikt Höskuldsson Þrótti, Gunnar
Árnason Þrótti, Samúei Örn Erlingsson UMFL, Leifur Harðarson
UMFL.
Óvæntur sigur
Hollendinga
HOLLENDINGAR SIGRUÐU Búlgarfumenn í leiknum um 7.-8. sætið
í B-keppni á Spáni í gærkvöldi 24—22. Var sigur Hollendinga nokkuð
óvæntur en þeir léku vel og verðskulduðu sigur. Staðan í hálfleik var
12—11 þeim í hag. Leikurinn var skemmtilegur á að horfa og mjög
hraður. Var þessi sigur Hollands nokkur uppreisn fyrir liðið eftir þá
slæmu útreið sem liðið fékk á móti íslandi. Hollendingar hreppa því 7.
sætið f keppninni en Búlgarfa 8. sætið.
íþróttir um helgina
FÁEINIIl leikir verða á dagskrá í 1. deild kvenna og 2. og 3. deild
karla í handbolta. Þeir eru:
LAUGARDAGUR:
Vestmannaeyjar, 2. deild kvenna, Þór Ve—Þróttur kl. 13.15.
Vestmannaeyjar. 2. deild karla, Þór Ve—Þróttur kl. 14.15.
Akureyri, 3. deild karla, Dalvík—Týr kl. 15.30.
SUNNUDAGUR:
Ilafnarfjörður, 1. deild kvenna, Haukar—UBK kl. 14.50
Hafnarfjörður, 1. deild kvenna, FII —KR kl. 15.50.
Síðari landsleikur íslendinga og Færeyinga í blaki fer fram í
íþróttahúsi Ilagaskólans í dag og hcfst viðureign kvenfólksins
klukkan 14.00, en karlarnir bftast tveim tímum síðar. eða klukkan
16.00.
Körfuboltinn
TÖLUVERT VERÐUR á seyði í körfunni um helgina, þ.á m. leikir
bæði í úrvalsdeild og 1. deild karla. Leikir helgarinnar eru
eftirfarandi:
LAUGARDAGUR:
Njarðvík, úrvalsdeild UMFN — KR, kl. 14.00.
Hagaskóli, 1. deild karla, KFÍ — Snæfell kl. 17.30.
Vestmannaeyjar, 1. deild karla, ÍV — Ármann kl. 13.30.
SUNNUDAGUR:
Hagaskóli, 1. deild karla. UMFG - KFÍ kl. 13.30.
Hagaskóli. úrvalsdeild. ÍR — Valur kl. 15.00.
Akureyri, úrvalsdeild. Þór — ÍS kl. 14.00.
Njarðvík. 1. deild karla, ÍBK — Snæfell kl. 13.00.
Meistaramót
íslands í júdó
MEISTARAMÓT íslands í júdó hefst á morgun og hefst það í
íþróttahúsi kennaraháskólans klukkan 14.00. Keppt verður íöllum sjö
þyngdarflokkum karla og eru keppendur frá Júdófélagi Reykjavíkur,
Armanni, Keflavík. Grindavík og frá Akureyri. Ýmsir kappar verða
þó fjarri góðu gamni, þannig keppa aðeins 3 keppenda. núverandi
jslandsmeistarar, en það eru þeir Halldór Guðbjörnsson, Þórarinn
Ólason og Bjarni Friðriksson. Þetta er tíunda íslandsmeistaramótið
sem haldið er í júdó.
Leeds
úr leik
ÞAR KOM AÐ því að WBA og
Leeds útkljáðu bikarviðureign
sína. Lcikurinn fór fram á heima-
velli WBA, en eftir venjulegan
leiktfma var staðan þannig, að
hvorugt liðið hafði skorað mark.
Þegar langt var liðið á framleng-
inguna, skoraði loks fyrirliði
West Brom. John Wile. Á sfðasta
andartakinu skoraði síðan Ally
Brown annað mark West Brom.
Og enn kemst David Mills ekki í
liðið, var varamaður gegn Leeds.