Morgunblaðið - 16.03.1979, Qupperneq 1
56 SÍÐUR
63. tbl. 66. árg.
FOSTUDAGUR 16. MARZ 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
\ SimamyndAP
STRÍÐSFANGA FAGNAÐ VIÐ HEIMKOMUNA — Á myndinni er Avraham Amram, ísraelskur
hermaður, með börnum sínum tveimur eftir að honum hafði verið skilað úr haldi skæruliða í Líbanon í
skiptum fyrir 76 Palestínumenn, sem voru í fangelsi í ísrael. Amram var handtekinn í Suður-Líbanon í
apríl 1978.
Víetnamar óska
ef tir vidrædum
Peking, Bangkok, Tokýo, 15. marz. AP. Reuter.
HUA Kuo-feng. þjóðarleiðtogi Kínverja, tilkynnti í kvöld, að allt
kínverskt herlið væri farið frá Víetnam, að því er japanska
fréttastofan Kyodo sagði í fréttum frá Peking. í Bangkok var á hinn
bóginn haft eftir kínverskum embættismönnum, að Kínastjórn hefði í
hyggju að skilja eftir liðsafia á allstóru svæði innan landamæra
Víetnams og færa landamærin í raun fram með þeim hætti.
Víetnamsstjórn fór í dag fram á
viðræður við Kínverja um átökin
milli landanna að undanförnu, en
gerði það að skilyrði að allt kín-
verskt lið yrði á brott áður en þær
gætu hafist. Var stungið upp á því,
að viðræðurnar ættu sér stað í
Hanoi eða á landamærum ríkj-
anna. Ekkert svar hafði í kvöld
borizt frá valdhöfunum í Peking.
Gagnkvæmar ásakanir um of-
beldi og árásir gengu milli aðila í
dag og í gær og sökuðu Kínverjar
Víetnama um að gera árásir á
kínverska hermenn sem þó væri
verið að flytja brott. Víetnamar
sökuðu Kínverja um hryðjuverk og
aðra glæpi á þeim svæðum sem
her þeirra hefði farið um. Hefur
stjórnin í Hanoi nú ákveðið að fela
nefnd sem haft hefur með höndum
rannsókn á stríðsafbrotum Banda-
ríkjamanna í Víetnam að leggja
niður þau störf, en kanna í staðinn
stríðsglæpi Kínverja í landinu.
Friðarsamningur ísraelsmanna og Egypta:
Búizt er við undirritun í
Washington 1 næstuviku
Kaíró. Jerúsalem, Washinalon, 15. marz. AP. Reuter.
EGYPZKA STJÓRNIN samþykkti í dag einróma fyrirhugaðan friðar-
sáttmála ísraels og Egyptalands og er nú líklegt talið að formleg
undirritun samningsins fari fram í Washington á fimmtudag eða
föstudag í næstu viku. þegar þjóðþing beggja landanna hafa lagt blessun
sina yfir samkomulagið.
Miklar róstur urðu á Vesturbakka
Jórdanár í dag og létust tveir ungir
Palestínuarabar, þegar ísraelskir
hermenn skutu á mannfjölda, sem
fór með grjótkasti um bæinn
Halhoul til að mótmæla samkomu-
laginu.
Varnarmálaráðherrar Egypta-
lands og ísraels, Kamal Hassan Ali
og Ezer Weizman, eru á leið til
Bandaríkjanna til að binda enda á
ýmis tæknileg atriði samkomulags-
ins og er gert ráð fyrir því að
viðræður þeirra muni taka tvo daga.
Ráðherrarnir 'munu þá hver í sínu
lagi ræða við bandariska ráðamenn
um fjármálalegan þátt Bandaríkj-
anna i samkomulaginu, en talið er að
Bandaríkin muni leggja fram fjög-
urra milljarða dollara hernaðarað-
stoð til ríkjanna sameiginlega á
næstu fjórum árum og að auki
milljarð dollara i efnahagsaðstoð til
Egyptalands.
Dayan utanríkisráðherra ísraels
skýrði í dag frá nokkrum atriðum
hins nýja samkomulags, sem síðast
var samið um. Sagði Dayan að
ísraelsmenn hefðu m.a. fallist á að
afhenda Egyptum borgina E1 Arish,
þar sem 30 þúsund manns búa,
skömmu eftir undirritun samninga.
I staðinn féllust Egyptar á að
skipzt yrði á sendiherrum i Kairó og
Jerúsalem innan 10 mánaða frá
undirritun samninga og jafnframt
féllu þeir frá kröfu sinni um að fá að
hafa eftirlit með því hvernig heima-
stjórn verður komið á á Gazasvæð-
inu. Samkvæmt samkomulaginu
verða Israelsmenn á burt með lið sitt
frá þremur fjórðu hlutum
Sinai-skagans innan níu mánaða frá
því að það verður undirritað.
Hafréttarráðstefna:
„Alvarlegt
ástand
náist ekki
samkomulag”
Washington, 15. marz. AP.
ELLIOT Richardson. sendi-
herra Bandaríkjanna á haf-
réttarráðstefnu S.b., sem hefst
að nýju í Genf á mánudaginn,
sagði í dag í Washington, að
mjög alvarleg vandamál
kynnu að skapast í samskipt-
um þjóða heims, náist ekki
samkomulag um hafréttarsátt-
mála á ráðstefnunni.
Richardson nefndi sem
dæmi, að aðrar þjóðir kynnu að
reyna að setja hömlur á frelsi
bandarískra skipa og flugvéla
til að fara ferða sinna og
jafnframt að til ágreinings og
átaka kynni að koma milli
þjóða um fiskveiðiréttindi, lög-
sögu og mengunarvarnir.
Richardson sagði, að Banda-
ríkin ættu yfir höfði sér póli-
tískar aðgerðir annarra ríkja,
ef bandarísk námafyrirtæki
hæfu vinnslu málma á hafs-
botni án þess að fyrir lægi
alþjóðasáttmáli um hvernig
slíkri vinnslu skyldi hagað.
Kaupmannahöfn:
Banki var rændur
í verkfalli lögreglu
Kaupmannahöfn. 15. marz. Frá Gunnari Rytgaard. fréttaritara Mbi.
BANKARÆNINGJAR rændu banka í Kaupmannahöfn og höfðu á brott
með sér um 70 þúsund danskar krónur (jafnvirði um 4,5 milljóna
íslenzkra) á meðan lögreglan tók þátt í verkfalli opinberra starfsmanna
fyrir hádegi í dag.
Ekki er vitað til þess að til
annarra alvarlegra atburða hafi
dregið á meðan á verkfallinu stóð, en
mestöll opinber þjónusta lá niðri í
morgun, þar á meðal kennsla í svo að
segja öllum skólum í landinu.
Mörg hundruð þúsund opinberir
starfsmenn í Danmörku tóku þátt í
verkfallinu og lögðu niður vinnu í
þrjá tíma í morgun og héldu fundi
um kjaramál sín á vinnustöðum.
Verkfallið var mjög útbreitt og
jafnvel í fjármálaráðuneytinu lögðu
margir niður vinnu, en Knud
Heinesen fjármálaráðherra sagði í
dag, að dregið yrði af launum þeirra,
sem þátt tóku í vinnustöðvuninni.
Fyrrum forsætisráðherra írans:
Ákærður fyrir brot
gegn Guði og mönnum
Teheran, 15. marz. Reuter, AP.
AMIR ABBAS Hoveyda fyrrum forsætisráðherra írans var í dag
leiddur fyrir íslamskan dómstól og m.a. ákærður fyrir að hafa
„skapað spillingu á jörðinni“ og „barizt gegn Guði og sendimönn-
um hans“. Ráðherrann fyrrverandi á líflátsdóm yfir höfði sér
verði hann sekur fundinn.
Hoveyda var forsætisráð-
herra á árunum 1965—1977 og
einn nánasti samstarfsmaður
keisarans á þeim árum. Hann
varð dómari í hæstarétti írans
er hann lét af ráðherrastörfum
en var vikið frá sl. haust og
skömmu síðar lét stjórn keisar-
ans taka hann fastan. Var hann
ákærður fyrir spillingu og fyrir
að hafa farið illa með opinbert
fé og hefur verið í haldi síðan.
Hoveyda er sextugur að aldri.
Hann er hæst setti maðurinn,
sem núverandi valdhafar sækja
til saka.
Hoveyda hefur vísað öllum 17
ákæruatriðum á bug og sagst
ekki hafa borið persónulega
ábyrgð á aðgerðum stjórnar
keisarans, heldur hafi hann
aðeins verið einn hlekkur í
umfangsmiklu stjórnkerfi keis-
arastjórnarinnar. Hoveyda
hefur kvartað yfir því hvernig
staðið er að réttarhöldunum yfir
sér og kveður þau líkjast skrípa-
leik, en dómarinn í máli hans
vísaði öllum slíkum kvörtunum
á bug og sagði dómstólinn fara
eftir lögum Islams, en ekki
vestrænum venjum.
Ágreiningur virðist kominn
upp innan stjórnar Bazargans
og í dag var upplýst í Teheran
að Sanjabi utanríkisráðherra
hefði boðizt til að segja af sér
embætti fyrir fjórum dögum, en
Bazargan neitað að taka af-
sögnina til greina. Sanjabi mun
því væntanlega taka á móti
utanríkisráðherra Norð-
ur-Kóreu, sem kemur til lands-
ins á morgun, fyrstur leiðtoga
kommúnistaríkja, til að óska
hinum nýju leiðtogum Irans til
hamingju með byltinguna.
Tilkynnt var í Teheran í dag,
að framvegis yrðu erlendar
fréttastofnanir að framvísa öll-
um fréttamyndum til upplýs-
ingamálaráðuneytisins áður en
þær eru sendar frá landinu og
að ekki væri heimilað að senda
„villandi“ myndir frá Iran.