Morgunblaðið - 16.03.1979, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 16.03.1979, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. MARZ 1979 Geir Hallgrímsson: Frumvarp á banadægri Cesars Hver er Brútus? Mæli fyrir á mánudegi Ólafur Jóhannesson, forsætis- ráðherra, sagði frumvarp sitt lagt fram í efri deild, enda væri hann í þeirri þingdeild, og myndi hann mæla fyrir því n.k. mánudag; skýra þá mál og málsmeðferð. Við skulum taka þessu rólega í svip- GEIR HALLGRÍMSSON, formaður Sjálfstaeðisflokksins, kvaddi sér hljóðs utan dagskrár á Alþingi í gær vegna opinbers ágreinings stjórnarflokkanna um efnahags- frumvarp forsætisráðherra, sem sýndi, að ríkisstjórnin væri ekki starfi sínu vaxin og bæri því að segja af sér. Ég veit ekki, hvort það er tilviljun, sagði Geir Hallgrímsson, að forsætisráðherra ber nú fram efnahagsfrumvarp sitt 15. marz, á banadægri Cesars, en ef svo er ekki þá er spurningin: Hver er Brútus? Selir á þurru landi Áður en Geir Hallgrfmsson (S) kvaddi sér hljóðs utan dagskrár hafði Sverrir Hermannsson (S) vikið að þessu máli í umræðu um „Könnun á stærð selastofnsins" (tillaga Gunnlaugs Finnssonar), þ.e. þeim vinnubrögðum háttvirtr- ar ríkisstjórnar í efnahagsmálum, sem minntu á húðarseli, blöðruseli og jafnvel syndaseli eins og hann komst að orði. Við hæfi væri að forystumenn ríkisstjórnarflokk- anna gæfu Alþingi þær skýrslur og yfirlýsingar um innri ágreining og áætlanir, varðandi stjórnun þjóðmála sem eðli málsins sam- kvæmt heyrðu undir Alþingi, en ráðherrar hefðu látið nægja að flytja í fjölmiðlum og kunngera hinum og þessum aðilum utan þings. Ríkfsstjórnin ósamstarfshæf Geir Hallgrímsson (S) sagði það einstæðan atburð að forsætisráð- herra legði fram frumvarp í efna- hagsmálum, sem verið hefði eitt helzta samstarfsatriðið í stjórnar- sáttmála, í eigin nafni, þar sem ekkert samkomulag væri í ríkis- stjórninni um málið. Forsætisráð- herra og ríkisstjórn, sem ekki gæti komið sér saman um mikilvægasta viðfangsefni sitt, bæri að segja af sér. Vitnaði GH til harðorðrar yfirlýsingar frá ráðherrum Al- þýðubandalagsins, sem lesin hefði verið upp í útvarpi í hádeginu (í gær), þar sem veitzt var að for- sætisráðherra og tveimur sam- starfsflokkum vegna framlagning- ar þessa frumvarps og því lýst yfir, að yrði það samþykkt óbreytt á A.lþingi, myndu ráðherrar Al- þýðubandalagsins segja af sér. Þá andmælti Geir því, að ríkis- fjölmiðlar hefðu gefið talsmönn- um Alþýðubandalags kost á því í fréttatíma að koma á framfæri ýmsum deiluatriðum án þess að þeim, er deilt var á, væri gefinn kostur á að bera hönd fyrir höfuð sér. Þá hefði og takmarkað verið við stjórnarandstöðuna rætt, varð- andi stöðu þing- og þjóðmála nú. Gott væri hins vegar að efna- hagsfrumvarp forsætisráðherra væri loksins komið fram, á réttum vettvangi, þann veg að þinginu gæfist kostur á að fjalla um það, og forystumönnum stjórnarflokk- anna að gefa þær skýringar á stöðu mála, sem fyrst og fremst bæri að gefa á Alþingi. Spurning væri, hvern veg forsætisráðherra hygðist standa að afgreiðslu þessa máls eða meðferð, vegna hótana samráðherra. Ef til vill er það tilviljun, sagði Geir, að forsætis- ráðherra leggur fram frumvarp sitt á banadægri Cesars. Ef svo er ekki þá er spurningin þessi: Hver er Brútus? Síðan las Svavar orðrétt bókun ráðherra Alþýðubandalagsins í ríkisstjórn, sem lesin var upp í hádegisfréttum útvarpsins í gær. Þar eð hún er birt í heild á öðrum stað í Mbl. í dag verður hér látið nægja að vitna til hennar. Samkomulag varð orðið um frumvarpið Sighvatur Björgvinsson (A) sagði frv. nú flutt eins og sam- komulag hefði verið orðið um það í ríkisstjórninni. Það hefði verið samþykkt af verkalýðsráði, mið- stjórn og þingflokki Álþýðuflokks- ins, sem myndi styðja það. Þá deildi SBj á fréttaflutning ríkis- fjölmiðla, sem veitt hefði einum stjórnarflokknum óeðlilega mikið rúm, í samanburði við aðra, til að skýra afstöðu sína. Hér væri um mistök að ræða, enda ættu þessir fjölmiðlar að láta jafnt yfir alla ganga, þegar viðamikil deilumál væru á ferð, og fara að starfsregl- um í því efni. Deilur á deilur ofan Einar Ágústsson (F) sagði stjórnarandstöðu hafa lengi deilt á forsætisráðherra fyrir það að leggja ekki fram frumvarp um inn, sagði hann, og auðvitað getur frumvarpið tekið einhverjum breytingum í meðförum þingsins. En þá verður að gæta þess, hver er tilgangurinn með því, og víkja ekki af vegi að settu marki. Eg kann ekki við að fara út í efnisatriði frumvarpsins fyrr en það verður tekið á dagskrá með formlegum hætti. Ég beygi mig að sjálfsögðu fyrir þingvilja, þegar hann kemur í ljós. Um leið og Alþingi samþykkir vantraust á mig eða ráðuneyti mitt mun ég segja af mér, ef sú verður niðurstaðan, en fyrr ekki. Tvímælalaus réttur for- sætisráðherra Svavar Gestsson, viðskiptaráðherra, sagði það tvímælalausan rétt forsætisráð- herra sem þingmanns að leggja fram frumvarp, hvort heldur sem er um þetta efni eða annað. Hins vegar er það álit okkar alþýðu- bandalagsmanna, að það að leggja frumvarpið fram með þessum hætti geti spillt fyrir samkomu- lagi milli stjórnarflokkanna. Ef verðbótakafli frv. verður sam- þykktur óbreyttur munum við ráðherrar Alþýðubandalagsins segja af okkur. Geir Hallgrímsson ólafur Jóhannesson Fréttamaður rikisútvarps dreginn inn í deilur á Alþingi Breytingar innan ramma til- gangsins, sagði forsætisráðherra efnahagsmál. Nú væri deilt á hann fyrir að hafa lagt frv. fram. Ríkisstjórn starfar í umboði Alþingis. Því er það réttur vettvangur að leggja þetta mál hér fram. Ríkisstjórn- in leysir engan vanda Matthías Bjarnason (S) gerði grein fyrir þeirri framhaldssögu, sem fjallaði um sífelldar deilur á stjórnarheimilinu, en fæli ekki í sér lausn á neinum vanda. Fyrst hefði efnahagsfrumvarpið birst í dagblaði, síðan hjá ýmsum aðilum utan þings, þá hefði það velkst í ríkisstjórn vikum saman en nú hefði forsætisráðherra neyðst til að leggja það fram á Alþingi í eigin nafni vegna sömu gömlu sögunnar: ósamkomulags á stjórnarheimilinu. Gott væri að frumvarpið kæmi nú fram á réttum vettvangi. Þó væri spurning, hvers vegna það væri ekki lagt fram í neðri deild. Þar sætu formenn flokks og þing- flokks stjórnarandstöðu. Þar sitja formenn flokks og þingflokks Alþýðuflokks. Þar situr formaður flokks og þingflokks Alþýðubanda- lags, sem er einn og sami maður- inn. Og þar situr varaformaður Framsóknarfl., sem Ólafur telur sig máske geta mælt fyrir í e.d. En rétt forsætisráðherra til að bera frumvarpið fram, hvar hann kýs, dregur enginn í efa. Matthías minnti á fyrirheit stjórnarflokka um að leggja ekk- ert það mál fram, sem ekki væri samstaða um við launþegahreyf- ingu. Nú væri veigamikið mál ekki einungis lagt fram án þeirrar samstöðu, heldur án samstöðu í ríkisstjórninni sjálfri. Sýnt væri enn að stjórnin væri ófær um að leysa nokkurn vanda. Hún á því að víkja. Þingmaður Alþýðuflokks og fréttastofan Olafur R. Grímsson (Abl) sagði það koma úr hörðustu átt, er Alþýðuflokkurinn deildi á misrétti í fréttatíma ríkisfjölmiðla. Hann minnti á frétt ríkisútvarps um samkomulag í ríkisstjórninni sl. laugardag, og niðurstöður þess samkomulags, sem hvorttveggja hefði verið rangt. Hann hefði hringt í fréttastofuna og fengið þær upplýsingar hjá Gunnari Eyþórssyni, fréttamanni, að heimildarmaður fréttarinnar væri ónafngreindur þingmaður Alþýðu- flokks, en samkomulag hefði orðið um (milli fréttamanns og þing- manns) að gefa ekki upp nafn hans. Skoraði Ólafur á þennan þingmann, sem vísvitandi færði ríkisfjölmiðlum skröksögur í fréttastað, að segja til sín og standa fyrir máli sínu. Fjárlagafrumvarp með fyrirvörum... Matthías Á. Mathiesen (S) sagði fjárlagafrumvarp hafa verið flutt með fjölmörgum fyrirvörum flestra ráðherranna. Nú væri efna- hagsfrumvarp flutt af forsætis- ráðherra einum vegna ósættis í ríkisstjórninni. Ríkisstjórn, sem ekki næði saman, hvorki í ríkis- fjármálum né efnahagsmálum í heild, væri ekki starfi sínu vaxin. Samstaða um það eitt að sitja í ráðherrastólum nægði ekki til að leysa þau vandamál, sem við væri að etja. Minnti Matthías á fleyg orð Hermanns heitins Jónassonar, 1958, þegar svipað ósamkomulag kom upp í þávérandi vinstri stjórn, sem falið hefðu í sér viðurkenn- ingu og rétt viðbrögð við orðnum hlut: afsögn ráðuneytis. Hvorki starfs- grundvöllur né starfsfriður Albert Guðmundsson (S) vék að yfirlýsingu ráðherra Alþýðu- bandalagsins, sem fælu í sér ádeilu á forsætisráðherra og opinberaði ósamkomulagið í ríkisstjórninni. Þar væri talað um að framlagning frv. spillti samkomulagi í ríkis- stjórninni, sem ekki var víst of gott fyrir, ósvífnar fullyrðingar samstarfsflokka o.s.frv. Ljóst væri að þessi ríkisstjórn réði ekki yfir þeirri samstöðu og festu, sem þjóðin þyrfti nú á að halda í málum sínum. Það bezta, sem þessi ríkisstjórn gæti nú gert þjóð sinni, væri að fara frá, því fyrr því betra. Ósannindi Ólafs Ragnars Sighvatur Björgvinsson (A) sagði fréttamenn ríkisfjölmiðla ekki hafa aðstöðu til að bera af sér sakir á Alþingi. Hann hefði hringt í þann fréttamann, sem ÓlRGr hefði nefnt, og borið fyrir þeirri sögu, að þingmaður Alþýðuflokks hefði verið heimildarmaður að tiltekinni frétt, en samkomulag orðið um, að hans yrði hvergi getið. Viðkomandi Fréttamaður, sem nú væri á leið niður í þinghús, hefði sagt sér, að hann hefði hvorki nefnt þingmann né Alþýðu- flokk á nafn við ÖlRGr, þessa frétt varðandi. Frásaga ÓlRGr væri ómerkilegur tilbúningur. Viðkom- andi fréttamaður er nú mættur hér, sagði SBj, og skora ég á ÓlRGr að hafa við hann persónu- legt samband hér í þinghúsinu og leiðrétta ummæli sín. Þá vitnaði SBj. til gildandi reglna um frá- sagnir af deilum í þjóðfélaginu í ríkisfjölmiðlum, að leita skuli umsagna beggja deiluaðila og birta sem jafnast frá þeim. Þessa hefði ekki gætt í fréttatímum útvarps og sjónvarps í gær (þ.e. fyrradag). Einfalt mál, sagði Ólafur Ragnar Ólafur R. Grímsson (Abl.) sagði m.a., að sjá mætti hér í þingsölum hver tengsl væru milli Alþýðu- flokks og ríkisfjölmiðla. Hann vitnaði enn til viðtals við frétta- mann ríkisútvarps og sagði einfalt mál að leysa þá deilu, sem upp væri komin, með því að ríkisút- varpið gæfi upp heimildarmann að viðkomandi frétt. Á hvað var deilt? Ragnhildur Helgadóttir (S) sagði það rétt hjá Einari Ágústs- syni að sjálfstæðismenn hefðu deilt á það, að efnahagsfrumvarp hefði ekki verið lagt fram fyrr. Það væri og rétt hjá honum að nú væri deilt á það, að frumvarpið væri fram komið. Það væru hins vegar ekki sjálfstæðismenn, sem héldu þeim deilum uppi, heldur einn stjórnarflokkurinn, Alþýðu- bandalagið. Alþýðubandalagið vill halda efnhagsmálum utan Alþing- is, sagði hún. Vitnaði hún í hádeg- isfréttum i gær (fyrradag). Hún teldi þvert á móti að forsætisráð- herra hefði gegnt skyldu sinni með því að leggja málið fyrir Alþingi, sem væri hinn rétti umfjöllunar- aðili þess. Það væri hinn þingræð- islegi háttur við afgreiðslu slíkra mála. Ríkisstjórnin er sýnilega klofin í þessu máli sem fleirum, sagði Ragnhildur. Það reynir hins vegar á það næstu daga, hvort hún er fallin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.