Morgunblaðið - 16.03.1979, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 16.03.1979, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 16. MARZ 1979 Flestir íslendingar 11 —36 ára hafa fengið Ngja testa- mentið frá Gídeonfélaginu Gídeonfélagið er alþjóðleg sam- tök kristinna kaupsýslumanna og annarra sérmenntaðra manna úr flestum evangeliskum kirkjudeild- um heims, með höfuðstöðvar í Nashville, Tennessee, Bandaríkj- unum. Gídeonféíagið var stofnað í Bandaríkjum Ameríku 1. júlí 1899, af þrem kristnum sölumönnum. Tildrög að stofnun félagsins voru þau að haustið 1898 kom sölumað- ur að nafni John H. Nicholson frá Janesville Wisconsin til borgar- innar Boscobel og baðst gistingar á Hótel Central. Að þessu sinni var gistihúsið fullskipað naetur- gestum. Það rættist þó úr þessu vandamáli og hann fékk að vera í herbergi með öðrum sölumanni, sem hét Samúel E. Hill. 26 árum áður en þetta bar við hafði John þá 13 ára gamall gefið deyjandi móður sinni það loforð að lesa dag hvern í Biblíunni. Þegar hann nú var kominn upp í her- bergið og hugðist leggjast til hvíldar sagði hann við Samuel um leið og hann tók Biblíuna sína upp úr ferðatöskunni: „Ég er kristinn og það er venja mín að lesa í Heilagri Ritningu og biðja áður en ég fer að sofa“. „Það gieður mig að heyra svar- aði þá Samuel, því ég er einnig kristinn og þetta er líka mín venja“. Nú ákváðu þeir að eiga sameiginlega guðræknisstund. Meðan þeir báðu saman fæddist með þeim sú hugsjón, er síðar varð að hinum blessunarríka veruleika í Gídeonfélaginu, sem nú breiðir sig út um öll lönd og náð hefur fótfestu í 117 þjóðlöndum með sívaxandi áhrifum til blessunar þjóðum og einstaklingum. Þegar þeir skildu morgunin eftir ákváðu þeir að hittast síðar, sem þeir og gerðu og stofnuðu Gídeonfélagið ásamt þriðja sölumanninum William J. Knight 1. júlí 1899, eins og fyrr segir. Leitað að nafni Þeir áltu úr vöndu að ráða um nafngift félagsins. Vandann lögðu þeir því fram fyrir Guð í bæn. Er þeir höfðu beðið um stund reis Knight á fætur og sagði: „Við skulum kalla okkur „The Gideons", (Gídeonítar). Síðan opnaði hann Biblíuna sína og las 6. og 7. kapítula Dómarabókarinnar, þar sem segir frá hinum unga Gídeon, hinni hraustu hetju Guðs. En Gídeon var maður, sem reiðubúinn var að gera nákvæmlega það, sem Guð vildi að hann gerði, án tillits til þess, hvað honum sjálfum fannst um aðferðir og árangur. Þetta er og fyrirmyndin,, sem Gídeon-samtökin reyna að tileinka öllum meðlimum sínum, að hver og einn sé reiðubúinn að gera Guðs vilja, hvenær sem er, á hvern þann hátt, sem Guðs Andi bendir til Brátt breiddist félagið út um öll Bandaríkin og í Kanada var einnig stofnað Gídeonfélag 1911 og síðan í fleiri löndum. Fyrsta Gídeorifélagið, sem stofnað var utan Bandaríkjanna og Kanada var Gídeonfélagið á íslandi og átti það sér stað 30. ágúst 1945. Tildrögin að stofnun félagsins hér á landi eru það merkileg, að það er saga útaf fyrir sig, sem ekki verður sögð í stuttri blaðagrein sem þessari. Þó er ekki úr vegi að geta þeirra að nokkru hér, til sönnunar því, að vegir Guðs eru órannsakanlegir. Seinni hluta ágústmánaðar 1945 kom hingað til lands vestur- íslenski kaupsýslumaðurinn Krist- inn Guðnason, sem lést 23. desem- ber 1958, 75 ára gamall. Aðaltil- gangur komu hans var að kanna möguleika á að stofna hér Gídeon- félag. Þessari blessunarríku för og góða tilgangi var vissulega stjórn- að af Guði, enda varð árangurinn slíkur, að vart verður efast um handleiðslu Guðs, sem með trúum þjónum sínum hafði undirbúið jarðveginn, sem gjörði slíka félagsstofnun mögulega. Sautján stofnendur Einn augljósasti votturinn um handleiðslu Guðs tel ég þá stað- reynd, að Kristinn skyldi leita á .fund Ólafs Ólafssonar kristniboða og biðja hann, en ekki einhvern annan, um aðstoð til að kalla saman kristna verslunar- og kaup- sýslumenn, því að á þeim tíma mun Ólafur líklega hafa verið einasti maðurinn hér á landi, sem vegna vinsælda sinna og áhrifa gat náð saman svo mörgum sem 17 játandi kristnum verslunarmönn- um og talið þá á að taka höndum saman um myndun þessara bless- unarríku samtaka, eftir að Krist- inn hafði kynnt starf Gídeonfélag- sins. Félagið hafði ekki enn fest rætur utan Ameríku, þótt hliðstæð félög hefðu reyndar verið stofnuð áður á Norðurlöndunum þrem, Svíþjóð, Danmörku og Noregi, en báru þá ekki nafn Gídeons fyrr en nokkru eftir að Isl. félagið hafði verið stofnað. Eftir að Kristinn hafði þrjú kvöld í röð talað á samkomum í KFUM og kynnt Gídeonfélagið var félagið stofnað, eins og fyrr segir 30. ágúst 1945 af 17 kristnum versiunar- og kaupsýslumönnum. Jarðvegurinn, sem Gídeonfélag- ið hér á landi er sprottið upp úr, má segja að sé KFUM, enda voru allir stofnendurnir undantekning- arlaust meðlimir þess félags. Séra Friðrik Friðriksson, stofnandi og framkv.stjóri KFUM, var ekki á landi hér, þegar félagið var stofn- að. Hann var rétt ókominn heim, eftir að hafa dvalist í Danmörku öll hernámsárin. Þegar hann kom heim og frétti af þessari félags- stofnun, gladdist hann mjög, enda sagði hann, að kristnir vinir hans meðal vefnaðarvörukaupmanna í Kaupmannahöfn hefðu beðið sig að kanna, hvort ekki væri hægt að koma á slíkum samtökum á Islandi sem þeir hefðu að koma biblíum fyrir í gistihúsum. Svo að segja má í jákvæðri merkingu þess orðs, að sótt hafi verið að okkur, bæði úr austri og vestri í sama tilgangi. Má einnig í þessu sjá vilja Guðs og handleiðslu, sem við Gídeonfélagar höfum svo margoft fengið að þreifa á allt til þessa dags. Eftir að sr. Friðrik kom heim, sat hann jafnan með okkur á fundum félagsins, sem haldnir voru mánaðarlega, þótt ekki væri hann leikmaður. Eins og kunnugt er, samanstendur félagið eingöngu af leikmönnum, þ.e. kaupsýslu- mönnum og öðrum sérmenntuðum mönnum. Sr. Friðrik heiðursíélagi Með hliðsjón af þvi, hve mikil- vægan þátt sr. Friðrik átti í því að hægt væri að stofna hér Gídeon- félag, þar sem hann hafði verið Gideonfélagið hefur fengið Nýja testamentið í stóru broti og með stóru letri, sem einkum er ætlað öldruðum. Myndin er tekin er Helgi Elfasson (t.v.) og Friðrik Vigfússon afhentu Gísla Sigurbjörnssyni forstjóra Grundar eintök af þeirri útgáfu. Ljósm. Kristján. verkfæri í hendi Guðs til að undirbúa þann jarðveg, sem Gídeonfélagið hér á landi er sprottið upp úr, þá var sr. Friðrik gerður að heiðursfélaga Gídeonfél- agsins, sá eini, sem þann heiður hefur hlotið, og var undantekning gerð í þessu tilliti, þar sem lög félagsins gera ekki ráð fyrir slíku. Þrátt fyrir það sem að framan segir, má að sjálfsögðu rekja rætur Gídeonfélagsins hér á landi víðar. Það verður hinsvegar ekki gert hér nema í stórum dráttum. Tildrögin til stofnunar félagsins hér eiga sér langan og merkilegan aðdraganda. Eins og fyrr segir, kom frumkvöðull að stofnun Gídeonfélagsins, Kristinn Guðna- son, frá Bandaríkjunum, gagngert til að stofna hér fyrsta Gídeon- félagið utan Ameríku. Kristinn fæddist austur í Flóa. Hann ólst upp í fátækt sem töku- drengur, við sult og seyru, eins og hann sjálfur hefur sagt. Um alda- mótin síðustu, um svipað leyti og KFUM var að myndast hér á landi og Gídeonfélagið í Bandaríkjun- um, fer Kristinn með sildarskipi til Noregs og hefur ofan af fyrir sér með bókasölu. Fjórum árum síðar hyggst hann freista gæfunn- ar í Ameríku. Hann fer til Kaup- mannahafnar 1904, og á meðan hann bíður eftir skipsfari til Bandaríkjanna, dvelst hann á hóteli þar í borg. Kvöld eitt kemur hann til hótels- ins eitthvað undir áhrifum víns. Þegar afgreiðslumaður hótelsins sér hann þannig, segir hann við hann um leið og augu þeirra mætast: „Þú þarft að verða krist- inn“. Kristinn hélt nú að hann væri það, bæði skírður og fermdur, og þar að auki safnaðarmeðlimur. Þá rétti maðurinn honum Biblíu og bað hann að lesa 53. kapitula Jesaja. Þegar hann kom upp í herbergið, fór hann að lesa um hinn fyrirlitna og þjáða mann, særðan vegna synda okkar. Djúpt snortinn og fullur löngunar til að vita frekari deili á manni þessum, fór hann til afgreiðslumanns hótelsins. Hjá honum heyrði hann svo fagnaðarerindið um Jesúm Krist, Guðsson, sem dáið hafði á krossi til endurlausnar syndugum mönnum. Síðan sagði hann hon- um, að með því að trúa og treysta frelsaranum, sem svo mjög hefði elskað mennina, gæti hann eignast eilíft líf. Með tárin í augunum fór Kristinn aftur upp í herbergið sitt og reyndi að sofna, en gat það ekki fyrir þeirri hugsun, sem á hann sótti, að allt þetta hefði frelsarinn gjört fyrir hann. Hann reis úr rekkju sinni og kraup við rúmið og úthellti hjarta sínu fyrir Guði, og færðist þá yfir hann friður æðri öllum skilningi, og fylltist hann slíkum kærleika, sem hann aldrei áður hafði fundið. Ekki tilfinn- ingar eða áfengi Á þessari stundu segist hann hafa gengið yfir frá dauðanum til lífsins. Dagarnir, sem í hönd fóru sönnuðu, að þetta var hvorki runnið undan rótum tilfinninga né af áhrifum áfengis, því frá honum var tekin öll löngun í tóbak og áfengi. Nú reyndi hann að útvega sér Biblíu. Honum tókst að útvega sér stóra gamla Biblíu, sem hann skildi ekki við sig upp frá því, þrátt fyrir háðsbros nokkurra vantrúaðra gárunga, sem á vegi hans urðu. Á þrettán daga ferð sinni til New York las hann Biblíuna tvisvar spjaldanna á milli. Þegar þangað kom eyddi hann hluta af 15 dölum, sem hann átti, til þess að kaupa Biblíu á ensku. Þessar tvær Biblíur gengdu síðan þrennskonar hlutverki, að vera honum andleg uppspretta, hjálp til að læra ensku, með því að bera saman texta beggja bókanna, svo og að vera koddi, þegar hann átti hvergi höfði sínu annars- staðar að halla en undir berum himni eða í opinberum byggingum. Ekki sagðist hann hafa baðað í rósum, er hann varð kristinn. Satt að segja liðu mörg ár, þar til hagur hans vænkaðist. En allan þann tíma fékk hann að reyna vináttu frelsarans og áhrifa hans, sem fik » r Geirlaugur Arnason (standandi) og Ilelgi Elfasson eru hér að ávarpa nemendur í barnaskólan- um á Selfossi og afhenda þeim Nýja testamenti. Leifur Eyjólfsson skólastjóri barnaskólans á Selfossi tók á móti Gídeonfélögunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.