Morgunblaðið - 16.03.1979, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 16.03.1979, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. MARZ 1979 11 hjálpaði honum að yfirstíga alla erfiðleika. Hann settist fyrst að í Kansas, þar sem hann vann við járnbraut. Hinn mikli sumarhiti þarna og erfitt starf sliguðu hann, svo að hann varð að hætta. Hann hafði með sér nokkuð af fatnaði, er hann bar á bakinu, og nokkra skildinga, svo og hinar endingargóðu Biblíur. Auk þess keypti hann sér brauð í nestið. Það var máltíð hans næstu þrjá daga. Hann lagðist til svefns undir heysátu. Bóndinn, sem heyið átti, bað hann að hjálpa sér við upp- skeruna. Kristinn tók því fegins hendi og sparaði launin til næstu mánaðamóta, lagði síðan land undir fót til Chigago. Það besta, sem hann hafði upp úr þeirri för, var eiginkonan, sem hann eignaðist, Francis, sem hann hitti í „Moody Memorial Church" — Carson Pirie Scott & Co. (sem nú um nokkur undanfarin ár hefur verslað mikið með ísi. ullarvörur.) Sex ár í tjaldi Kristinn var ekki lengi í þjónustu Carsons. Hann fluttist ásamt konu sinni til vestur- strandarinnar og settist að í Port- land Oregon. Hann langaði til að lifa af litlum tekjum sínum. Keypti hann sér því tjald með trégólfi og hóf þar búskap sinn. Þetta var heimili þeirra næstu 6 árin, og þar fæddust börnin þeirra þrjú, meðal þeirra dóttirin Alice, sem hann síðar lét fyrirtæki sitt heita í höfuðið á, fyrirtæki, sem nú er þekkt um öll Bandaríkin undir nafninu „Alice of California". Ekki taldi Kristinn, að þessi ár hefðu verið honum auðveld. En fjölskyldan hélt áfram að setja allt sitt traust á Guð. Það reyndist erfitt að láta af hendi tíundina, sem þau ætluðu starfinu í Guðs- ríki. Brauðstritið gaf í aðra hönd aðeins 15 dali á viku. Dag einn segir hann við konu sína: „Guð veit að við erum fátæk og við eigum þrjú börn“. Síðan ályktaði hann svo: Skyldi Guð ekki sjá í gegnum fingur við okkur þó við afhendum honum ekki þennan hálfan annan dal? Vissulega gæti Guð fundið einhvern annan, sem gæti bætt það upp. Þá svaraði konan: „Ef Guð getur ekki trúað okkur fyrir 15 dölum, hvernig getum við búist við að hann trúi okkur fyrir meiru?" Síðan bætti hún við: „Við skulum reynast trú í litlu". Frú Guðnason hefur vissulega ekki grunað áhrif þessara ráðlegg- inga. En staðreyndin varð sú, að tekjur mannsins hennar jukust úr 15 dölum upp í 45 dali á viku, aðeins tveim vikum eftir ákvörðun þeirra að halda áfram að afhenda Guði 10% af tekjum sínum. Þegar svo Kristinn hætti störfum hjá fyrirtæki þessu stuttu síðar, voru árstekjur hans orðnar 10.000 dalir sem sölumanns. Nú lá leið hans upp á við. Hann fluttist til Los Angeles, þar sem hann gekk í þjónustu kjólafram- leiðanda nokkurs. Þar lærði hann verslunarfræðina það vel, að hann gat stofnað sitt eigið firma 1925. Hann varð brátt auðugur maður. Auður hans varð honum þó eigi fjötur um fót, því að hann var jafnframt ríkur í Guði og notaði hinn veraldlega auð sinn til að vinna að útbreiðslu Guðs ríkis. Hann tók þátt í safnaðarstarfi kirkju sinnar og gerðist einnig Gideonfélagi. Gídeonfélagið taldi hann vera bestu félagssamtök, sem hann hafði kynnst. Skuld við ættlandið Þrátt fyrir þau kröppu kjör, sem hann hafði orðið að búa við á ættlandi sínu, íslandi, fannst hon- um hann standa í skuld við hina íslensku þjóð. Þá skuld áleit hann sig best geta goldið með þvi að stofna þar Gídeonfélag. Hann segir sjálfur svo frá í grein, sem hann ritaði eitt sinn í blað Gídeonfélagsins (lausl. þýtt hér): „Eftir að hafa starfað að kirkju og kristindómsmálum um margra ára skeið, gjörðist ég Gídeonfélagi. Gídeonstarfið er það dásamlegasta starf, sem ég hefi fengið tækifæri til að taka þátt í. Eg hugsaði sem svo: Hversvegna ekki að stofna Gídeonfélag á ættlandi mínu Islandi? Hvað var þá eðlilegra til að framkvæma þetta en að Gídeonfélagi af íslensku bergi brotinn, búsettur í Bandaríkjun- um, tæki sér ferð á hendur til íslands til þess að athuga, hvað hægt væri að gera? Eg gerði einlæga tilraun, til þess að hafa upp á slíkum manni, sem Guð gæti notað til að stofna Gídeonfélag þar. Mér til mikillar hryggðar gat ég engan slíkan fundið. Eftir að hafa beðið mikið og lesið Guðs orð, komst ég að þeirri niðurstöðu, að Guði þóknast stundum að nota bara venjulega menn, til þess að framkvæma vilja sinn. Ég las í I. Kor. 1, 26—29: Því að lítið, bræður, á köllun yðar: Þér eruð ekki margir vitrir að manna dómi, ekki margir máttugir, ekki margir stór- ættaðir: heldur hefur Guð útvalið það, sem heimurinn telur heimsku, til þess að gjöra hinum vitru kinnroða, og Guð hefur útvalið það, sem heimurinn telur veik- leika, til þess að gjöra hinum volduga kinnroða. Og hið ógöfuga í heiminum og hið fyrirlitna hefur Guð útvalið, og það sem ekkert er, til þess að gjöra það að engu, sem er, til þess að ekki skuli neitt hold hrósa sér fyrir Guði. „Svo heldur Kristinn áfram og segir: „Ef til vill getur þá Guð notað mig. Og svo lagði ég af stað til Islands á ágúst 1945 í þeim tilgangi að stofna þar Gídeondeild. Vel tekið heima „Þegar þangað kom,“ segir hann ennfremur, „varð ég þess fljótt áskynja, að ég hafði gleymt móðurmálinu. Ég hafði varla heyrt það né talað í meira en fjörutíu ár. Á íslandi hitti ég fyrir kæran bróður, Ólaf Ólafsson, sem tók mér tveim höndum og tók málaleitun minni sérstaklega vel.“ Svo bætir hann við og segir: „Vissulega var ég þar í veikleika miklum, hræddur og skjálfandi. Ég hélt mér að Guðs orði: Náð mín nægir þér, því að krafturinn fullkomnnast í veikleika." Félagið var síðan stofnað með 17 meðlimum 30. ágúst 1945 eins og fyrr getur. Markmið Gídeonfélagsins er hið sama og hinnar sönnu kirkju Krists frá öndverðu að ávinna menn fyrir Jesúm Krist. Enda hefur Gídeonfélagið stundum ver- ið nefnt hinn útrétti armur kirkjunnar. Gídeon félagar ná með starfi sínu oft til þeirra, sem aldrei koma í kirkju eða þangað, sem Guðs orð er um hönd haft. Það eru til ótal vitnisburðir um það, hvernig Guðs orð hefur náð með sínu blessunarríku áhrif til manna, er lásu það á hótelum, fangelsum, sjúkrahúsum, eða Nýjatestamenti, sem lagt hefur verið í hendur fólks, sem síðan hefur lesið það sér til blessunar og eilífs hjálpræðis. Það er ekki fá dæmi þess, að menn, ef til vill með misjafna fortíð, ofurseldir synd og lasta lífi, koma til gistingar á hótelum, sumir hverjir staðráðnir í að stytta sér aldur, þar sem þeim hefur fundist fokið í öll skjól fyrir þeim. I náttborðsskúffunni hafa þeir svo fundið Biblíu og farið að blaða í henni, jafnvel af þeirri einu ástæðu að hún var þarna. I orðinu hafa þeir fundið þá lausn, sem nægði þeim. Eftir nætur dvöl á hótelinu hafa þeir síðan farið út nýir menn, með nýja lífsmöguleika framundan, þá lífsmöguleika, sem trúin á Jesú Krist, ein getur veitt þeim, sem leita Hans hjálpar, hvernig sem ástatt er fyrir þeim. Nýtir þegnar Margir vitnisburðir eru einnig til um afbrotamenn, sem í fangels- um hafa komist undir heilög áhrif Guðs orðs og endurfæðst til nýs lífs og orðið nýtir þjóðfélagsþegn- ar, er þeir komu aftur úr fangelsunum. Þannig mætti lengi halda áfram. Slíkir vitnisburðir berast stöðugt höfuðstöðvum Gídeonfélagsins og birtast síðan í mánaðarblaði félagsins til uppörvunar öllum þeim sem trúa því að orð Guðs vinni sitt verk í hjörtum mannanna, samkv. því sem segir í Jes. 55, 10—11 og Hebreaþr. 4,12. Sú staðreynd að orð Guðs er lifandi og kröftugt og hefur umbreytandi mátt i lífi mannanna og skapar hugarfar í samræmi við Guðs vilja, ef það fær óhindrað að hafa sín áhrif, er okkur Gídeonfélögum hvatning til starfs, enda vitum við að sam- kvæmt Orðinu er „Erfiði okkar ekki árangurslaust í Drottni". Dreifing Guðs orðs hér á landi á vegum Gídeonfélagsins hefur verið jöfn og stöðug ár frá ári. Haustið 1954 hófst dreifing á Nýjatestam. meðal allra 12 ára skólabarna á landinu. Síðar var aldurinn færður niður í 11 ár, þannig að ætla má að á þessum vetri verði búið að afhenda öllum Islendingum á aldrinum 11—36 ára Gídeon Nýja- testamenti. Þess skal geta að hundrað þúsundasta eintakinu af Nýjatestamenti til 11 ára skóla- barna var úthlutað í fyrra haust og í tilefni þess var forseta Is- lands, biskupi íslands og þáverandi kirkjumálaráðherra afhent Gídeon Biblía, hverjum fyrir sig. 200 milljón biblíur Alheims dreifing Guðs orðs á vegum Gideonfélagsins hefur aukist mjög hin síðari ár. Á alþjóðamóti Gídeons Int., sem haldið var í júlí s.l. sumar í Miami, Florida, kom fram að á árinu 1971 hefði verið búið að dreifa hundrað milljónum eintaka af Heilagri Ritningu á vegum Gídeons Int. Nú sjö árum síðar, eða í apríl. s.l. hefði tvöhundruðasta eintakið ver- ið afhent einhversstaðar í heimin- um, svo ör væri dreifingin, og í tilefni þess var forseta Banda- ríkjanna afhent Gídeon Biblía. Þrátt fyrir þennan fjölda eintaka, þá eru óteljandi menn, sem ekki hafa fengið í hendur Guðs orð, og sökum fátæktar hafa jafnvel ekki efni á að veita sér það, þótt þeir ættú kost á því, þess vegna má betur ef duga skal. Þróunarlöndin vantar lesefni og eru and- stæðingar kristinsdómsins ósparir á að dreifa guðleysiritum sínum þangað á meðan fjöldinn allur í hinum svokölluðu kristnu löndum hafa ekki hugsun á að styrkja þá, sem hafa það markmið að dreifa Guðs orði sem víðast, áður en dyr lokast fyrir Orðinu eins og þegar hefur átt sér stað í nokkrum löndum. I mörgum þessara landa ríkir mikil andleg og líkamleg eymd og fátækt. En það hefur hinsvegar sýnt sig að þar sem Guðs orð hefur náð tökum á fjöldanum, þar hefur jafnan blómgast „þjóðlíf með þverrandi tár, sem þroskast á Guðs ríkis braut.“ Þess skal að lokum getið að hér á landi hefur lengi skort Nýja- testamenti með stóru letri, til afnota fyrir fólk í elliheimilum. Nýlega hafa Gídeon félagar fengið slík Testamenti til dreifingar og fer sú dreifing fram innan skamms. Þorkell G. Sigurbjörnsson. Þeir Helgi og Geirlaugur fengu nemendur til að fletta upp f Nýja testamentinu og lesa nokkur vers. Á hverju ári eru afhent milli 4 og 5 þúsund eintök tii 11 ára skólabarna og var í fyrravetur afhent hundrað þúsundasta eintakið. LAUGAVEGI 47 SIM117575

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.