Morgunblaðið - 16.03.1979, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. MARZ 1979
Loðnuaflinn yfír hálfa
milljón tonna í nótt?
LOÐNUVEIÐI heíur verið
góð undanfarna daga og er
nú löndunarbið hjá öllum
bræðslum, sem næstar eru
veiðisvæðinu í Faxaflóa.
Bátarnir hafa því m.a.
þurft að sigla með aflann
norður til Siglufjarðar, til
EINN íslendinganna fjög-
urra, sem sitja í gæzluvarð-
haldi vegna kókaínmálsins
í Kaupmannahöfn á að
losna úr fangelsi í dag.
Hins vegar er talið fullvíst
að gæzluvarðhaldið verði
framlengt vegna nýrra
upplýsinga, sem lögreglan
hefur aflað sér um málið.
Lögreglumenn úr fíkniefna-
deildinni í Kaupmannahöfn fóru í
fyrradag til Helsingborgar í Sví-
þjóð til að yfirheyra þar nokkra
aðila. Samkvæmt þeim upplýsing-
um sem Mbl. aflaði sér í gær fékk
lögreglan mikilvægar upplýsingar
í Svíþjóðarförinni og hefur
kókaínmálið skýrst mjög eftir að
þessar upplýsingar komu fram.
M.a. mun hafa komið í ljós að
umræddur Islendingur átti miklu
stærri þátt í málinu en áður var
15% hækkun
Vestmannaeyja og víðar.
Loðnubann gengur í gildi
um hádegi á sunnudag og
síðastliðin nótt var sú síð-
asta á vertíðinni hjá mörg-
um bátanna, sem bíða
verða lengi eftir löndun
eða sigla langt með aflann.
álitið og hann væri jafnvel aðal-
maðurinn ásamt Ungverjanum. I
gær var fullvíst talið að gæzlu-
varðhaldsvist hans yrði framlengd
að kröfu lögreglunnar. Umræddur
maður var tekinn til yfirheyrslu
síðdegis í gær hjá lögreglunni.
BORIS Spassky fyrrverandi
heimsmeistari bar sigur úr být-
um í' alþjóðlega skákmótinu í
Miinchen, sem lauk í gær. Friðrik
Ólafsson varð í 8.-9. sæti en
Guðmundur Sigurjónsson hafn-
aði í 10. —11. sæti af 14 keppend-
um. Tveir hættu keppni sem
kunnugt er. Karpov heimsmeist-
ari og Adorjan.
Spassky hlaut SV2 vinning og
jafnir honum að vinningum urðu
Andersson, Balashov og Hiibner
en samkvæmt Sonneborn-Berger
stigakerfinu hlaut Spassky flest
Segja má að nú sé barist
um klukkustundirnar frek-
ar en loðnuna. Heildarafl-
inn á vertíðinni er nú kom-
inn yfir 490 þúsund tonn
og má reikna með að hann
hafi farið yfir hálfa milljón
tonna í nótt, en útlit var
fyrir ágætt veiðiveður.
Frá því klukkan 18 á miðviku-
dag til jafnlengdar í gær tilkynntu
eftirtalin skip um afla til Loðnu-
nefndar:
Miðvikudagur: Kap II 640,
Bergur II 500, Arney 300, Hákon
680, Heimaey 150, Pétur Jónsson
580, Gjafar 70, Steinunn 160,
Arnarnes 400, Guðmundur 900,
Hafrún 400.
Fimmtudagur: Harpa 300, Óli
Óskars 1100, Bjarni Ólafsson 950,
Ársæll 400, Breki 650, Gísli Árni
620, Hrafn 600, Sæberg 550, Þórs-
hamar 300, Hamravík 60, Rauðsey
540, Vonin 140, Jón Kjartansson
1080, Víkingur 1000, Árni Sigurður
750, Skírnir 250, Súlan 750, Albert
570, Örn 550, Jón Finnsson 500,
Seley 420 og Keflvíkingur 200 eða
alls 12.200 tonn.
stig eða 53,50, Andersson og
Balshov hlutu 52,25 stig og Hubner
49,50 stig.
I næstu sætum urðu Stean með 8
vinninga, Robatsch og Pachman 7,
Unzicker og Friðrik 6'/2, Pfleger og
Guðmundur 6, Lau 4'/2, Lieb 4 og
Dankert 2 vinninga.
Urslit skáka í gær urðu þau að
Spassky vann Húbner, Balashov
vann Lieb, en jafntefli gerðu Frið-
rik og Andersson, Pachman og
Unzicker, Pfleger og Robatsch,
Stean og Dankert.
Kókaínmálið:
Mikilvægar
upplýsingar
frá Svíþjóð
Spassky sigraði í
Miinchen-skákmótinu
afnotagjalda
og 17% á
litsjónvarpi
ÁKVEÐIN hefur verið hækkun
afnotagjalda útvarps og sjón-
varps. Að sögn Harðar Vilhjálms-
sonar, fjármálastjóra Ríkisút-
varpsins, munu afnotagjöld af
útvarpi hækka um 15% eða úr
5000 krónum í 5.800 fyrir hvern
ársfjórðung, afnotagjöld svart/
hvítra sjónvarpstækja hækka
einnig um 15% eða úr 10.700 í um
12.300. Hins vegar hækka afnota-
gjöld litsjónvarpstækja meira eða
um 17% — þ.e. úr 13.900 í 16.300
kr.
ísafjörður:
Annir í
sjúkraflugi
FLUGFÉLAGIÐ Ernir á ísafirði
fór í fyrrinótt í 34. sjúkraflug sitt
frá áramótum, en í þeirri ferð var
sóttur maður á Blönduós sem
hafði orðið fyrir reykeitrun á
bænum Vatnsenda í Vesturhópi.
Flugmenn Arna urðu að lenda við
bílljós á Blönduósflugvelli vegna
þess að rafmagnslaust var þegar
þá bar að um kl. 3 um nóttina.
Ernir hafa jöfnum höndum lagt
áherzlu á sjýkraflug og farþega-
flug innan Vfestfjarða.
Kór Mýrarhúsaskóla
Ljósm.: Kristján.
Hundruð barna
syngja á Akureyri
Landsmót barnakóra
í Skemmunni
LANDSMÓT barnakóra verður
haldið á Akureyri um helgina,
og er þetta landsmót annað 1
röðinni. Hið fyrsta var haldið
árið 1977. Öllum barnakórum á
landinu er heimil þátttaka, og
munu kórar vfða að af landinu
taka þátt 1 mótinu. Ekki er um
söngkeppni að ræða, heldur
hittast kórarnir og syngja einir
sér og saman.
Allmargir kórar koma til
mótsins, þar á meðal fjórir frá
Reykjavík, og þrír frá ná-
grannabyggðarlögum Reykja-
víkur, kór frá Akranesi, Ákur-
eyri og víðar.
Mótið verður sett í kvöld, og
því lýkur á laugardaginn, og
gert er ráð fyrir því að kórfélag-
ar haldi síðan hver til síns
heima á sunnudag. Vegna þess
hve margir þátttakendur eru
dugir ekkert minna en Iþrótta-
skemman á Akureyri fyrir kór-
ana, og þar munu þeir syngja.
Kórarnir eru nokkuð misstórir,
allt frá 23 upp í 55 börn eru í
hverjum kór.
Ekki með
öllu út-
dauður!
Eskifirði, 15. marz.
MARGIR hér um slóðir hafa
undrazt það hversu stór þorsk>
urinn er, sem netabátarnir
hafa verið að íá núna í vetur.
Allt hefur þetta verið heljar-
stór fiskur og átti eftir öllum
sólarmerkjum að dæma að vera
löngu útdauður.
Ekki nóg með það, heldur
hefur einnig einn og einn risa-
fiskur, hreinn og beinn gol-
þorskur, slæðzt inn á milli og í
fyrradag kom Sæljónið SU 104
að landi með einn slíkan.
Þorskurinn sá reyndist alls
160 sm á lengd og rösklega 50 kg
á þyngd og er þess vegna með
stærstu þorskum sem veiðzt
hafa eftir því sem menn minn-
ast.
Myndirnar sem hér fylgja
voru teknar í fiskverkunarstöð
Friðþjófs á Eskifirði af gol-
þorski þessum. Mennirnir sem
halda á honum eru þeir Kristinn
Karlsson og Karl Friðriksson en
á næstu mynd eru það þær
Jónína Jónsdóttir og Bára Haf-
steinsdóttir sem halda á fiskn-
um flöttum.
— Ævar
Orðahnippingar
um útvarpsfrétt
TIL ALLHARÐRA orðaskipta
kom á Alþingi í gær, er fréttir
Rfkisútvarpsins kom til umræðu
utan dagskrár. Deildi Sighvatur
Björgvinsson á fréttamenn Ríkis-
útvarpsins fyrir að gefa Alþýðu-
bandalaginu of mikið rúm í
fréttatímum, en Ólafur Ragnar
Grímsson sagði hins vegar, að
þingmönnum Alþýðuflokksins
færist ekki að kvarta yfir því að
þeirra málstað væru ekki gerð
nægileg skil.
Gerði Ólafur frétt Útvarpsins á
sunnudaginn sérstaklega að umtals-
efni, og kvað hann Gunnar Eyþórs-
son fréttamann hafa sagt sér að
heimildarmaður þeirrar fréttar
væri einn þingmanna Alþýðuflokks-
ins.
Skömmu síðar kom Gunnar Ey-
þórsson síðan í Alþingishúsið, eftir
að Sighvatur Björgvinsson hafði
hringt í hann, og kom til snarpra
orðaskipta milli Gunnars og Ólafs
Ragnars í hliðarsölum hússins.
Kvað Gunnar þingmanninn fara
með rangt mál, og sagði Ólaf
Ragnar reyna að gera sín eigin orð
að sínum, það er orð þingmannsins
að orðum fréttamannsins.
Sjá nánar þingíréttir á blaðsíðu
18 í Morgunblaðinu í dag, og
„Deilur á Alþingi um fréttaflutn-
ing Ríkisútvarpsins“ á blaðsfðu
19.
Búist við þvi að 80 til
90 þús. sjái Grease
KVIKMYNDIN Grease hefur nú
margslegið öll fyrir aðsóknarmet
að kvikmyndum hér á landi.
Samkvæmt upplýsingum Frið-
finns ólafssonar forstjóra
Háskólabíós höfðu 72 þúsund
manns séð myndina f gærkvöldi.
„Við sýnum myndina a.m.k. alla
næstu viku og ég tel líklegt að 80
— 90 þúsund manns hafi séð
myndina þegar við hættum að
sýna hanu,“ sagði Friðfinnur.
Önnur stórmynd er tilbúin til
sýninga, Súperman. Sú mynd
hefur farið sigurför um heiminn
og býst Friðfinnur við mikilli að
sókn að myndinni.
„Við ætlum að skjóta einni
mynd inní, Last Tycoon, reyndar
ágætri mynd, svona rétt til þess að
draga andann á milli stórmynda,"
sagði Friðfinnur.
Skólafólk hefur hópast á Grease
víða af landinu. T.d. kom í vikunni
rúta með skólafólk úr Mýrdal.
Margir hafa komið aftur og aftur
að sjá myndina og allwlargir hafa
séð hana oftar en 20 sinnum.