Morgunblaðið - 16.03.1979, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. MARZ 1979
3
Einar Birnir
kjörinn formaður
Félags íslenzkra
stórkaupmanna
AÐALFUNDUR Félags íslenzkra stórkaupmanna var haldinn
í gær á Hótel Sögu og í upphafi fundarins flutti Georg Ólafsson
verðlagsstjóri ræðu um verðlagsmál. Fóru síðan fram
aðalfundarstörf og var m.a. kjörinn nýr formaður félagsins,
Einar Birnir. Fráfarandi formaður var Jón Magnússon, en
hann hefur gengt starfi formanns í tvö kjörtímabil, samtals
f jögur ár, og mæla lög F.Í.S. svo fyrir að sami maður skuli ekki
gegna því starfi lengur en tvö kjörtímabii.
I ræðu sinni minntist verðlags- lega þekkingu á þessum málum.
stjóri m.a. á samnorrænu verð-
lagskönnunina og þá gagnrýni er
hún hefði hlotið og sagði hann að
viðbrögð forystumanna verzlunar-
innar hefðu ekki verið jákvæð.
Einnig ræddi Georg Ólafsson um
nýlega skýrslu er hann hefur
skilað til viðskiptaráðherra um
verðlagsmál, sem hann kvað renna
stoðum undir að innkaupsverð
væri hérlendis hærra en í ná-
grannalöndunum, og væri þar á
ferð vandamál sem þyrfti að ræða
í hópi verzlunarmanna vel og
ítarlega. Sagði verðlagsstjóri að sú
gagnrýni er fram hefði komið í
blaðagreinum Jóns Magnússonar
og Einars Birnis benti til þess, að
þeir hefðu ekki til að bera nægi-
Umræður áttu að vera að lok-
inni ræðu verðlagsstjóra og fyrir-
spurnir, en hann þurfti að hverfa
af fundi að lokinni ræðu sinni.
Tóku Jón Magnússon og Einar
Birnir til máls og kváðu orð sín í
blaðagreinum standa óhögguð og
sögðu að brottför verðlagsstjóra af
fundinum sýndi meira en mörg
orð.
Síðan hófust aðalfundarstörf
Félags ísl. stórkaupmanna og að
loknu kjöri fundarstjóra og
fundarritara minntist Jón
Magnússon Tómasar Tómassonar
sem lézt 9. nóv. s.l., en hann var
einn stofnenda félagsins og sá
síðasti þeirra er eftir lifði. Flutti
Frá aðalfundi Félags ísl. stórkaupmanna. í ræðustóli er Georg ólafsson og næst ræðustólnum sitja Jón
Magnússon. hægra megin. og Einar Birnir, vinstra megin. Ljósm. Emiiím.
Jón síðan skýrslu sína og kom
fram í henni að mikil gróska hefði
verið í starfi félagsins sl. starfsár
og hefði aðalstarfið verið í kring-
um verðlagsmál og 50 ára afmæli
félagsins. Þá ræddi Jón Magnús-
son í skýrslu sinni um nauðsyn
þess að efla mjög útbreiðslu- og
kynningarstarf félagsins og tengsl
þess við fjölmiðla. Einnig voru að
aðalfundinum lagðar fram skýrsl-
ur um hin ýmsu nefndastörf á
vegum félagsins, framkvæmda-
stjóri þess flutti skýrslu og fjallað
var um Lífeyrissjóð verzlunar-
manna og Fjárfestingasjóðs stór-
kaupmanna. Síðan voru skýrslur
og reikningar samþykktir og fór
þá fram stjórnarkjör. Agúst Ar-
mann, Ólafur Haraldsson og
Valdemar Baldvinsson áttu að
ganga úr stjórn og gaf Ágúst
Ármann ekki kost á sér. Var
Jóhann Ágústsson kjörinn í hans
stað, Einar Birnir var kjörinn
formaður sem fyrr er sagt og í stað
hans var kjörinn í stjórnina
Ólafur H. Ólafsson. { fundarlok
voru samþykktar ályktanir um
verðlagsmál, greiðslufrest á að-
flutningsgjöldum, lánsfjármál,
skattamál og gjaldeyrismál.
„Ekki um neitt annað að
ræða en boða til kosninga
— segir Matthías Bjarnason alþm.
„MÉR FINNST. eítir allan
þann málatilbúnað og gífur-
lega tíma sem farið hefur í
undirhúning þessa frumvarps,
þá sé árangurinn afar lélegur",
sagði Matthfas Bjarnason al-
þingismaður er Morgunblaðið
spurði hann áiits á efnahags-
frumvarpi Ólafs Jóhannesson-
ar í gær. Matthfas sagði að
frumvarpið væri engan veginn
þannig úr garði gert að það
drægi neitt að marki úr verð-
bólgunni og þvf væru mörg
atriði sem sjálfstæðismönnum
væru á móti skapi; kaflar sem
þeir mundu aldrei sætta sig við
þó vissulega fyndust í frum-
varpinu nokkur atriði sem
sjálfstæðismenn gætu stutt.
„En eftir allan þennan tíma er
sýnilegt að stjórnarflokkarnir
hafa ekki náð samkomulagi um
það sem þeir hétu að vinna að,“
sagði Matthías ennfremur, „og
þar með er forsenda þessa
stjórnarsamstarfs ekki lengur
fyrir hendi. Hjá öllum venjuleg-
um flokkum, og hjá öllu venju-
legu fólki segði slík ríkisstjórn
af sér.“
Matthías sagði hins vegar að
ómögulegt væri að segja til um
hvað þessi stjórn kynni að gera,
er hann var spurður um hvort
hann teldi að ríkisstjórnin héldi
lífi enn um sinn þrátt fyrir allt.
„Þetta hefur ekki verið neitt líf
hjá stjórninni frá byrjun“, sagði
hann enn fremur, „hver dagur í
Matthfas Bjarnason.
hennar lífi hefur verið óvissu-
dagur. En það getur svo sem vel
átt sér stað að hún lafi eitthvað
áfram, en þá verður það með
sama hætti og verið hefur, hér
verður ekki um að ræða neitt
samstarf þessara þriggja flokka
að ræða, það er ekki fyrir hendi
og verður örugglega ekki fyrir
hendi.“
„Það er alveg ótvírætt að
sigurvegarar síðustu kosninga
hafa svikið öll sín kosningalof-
orð, og þeir hafa ekki borið gæfu
til að starfa saman og þá er ekki
um neitt annað að ræða en efna
til nýrra kosninga svo fljótt sem
kostur er,“ sagði Matthías þegar
Morgunblaðið spurði hann hvort
til greina kæmi að Sjálfstæðis-
flokkurinn gengi til stjórnar-
samstarfs í einhverri mynd án
undangenginna kosninga.
S.U.S. og ungir al-
þýðubandalagsmenn:
Kappræðu-
fundir
STJÓRN Sambands ungra
sjálfstæðismanna skoraði
lyrir nokkru á Æskulýðsnefnd
Álþýðubandalagsins til kapp-
ræðufunda í öllum kjördæm-
u m landsins, þar sem rætt yrði
um fslensk stjórnmál og helstu
ágreiningsefni Sjálfstæðis-
flokksins og
Alþýðubandalagsins.
Æskulýðsnefnd Alþýðu-
bandalagsins hefur nú tekið
þessari áskorun ungra sjálf-
stæðismanna, og verða fundirn-
ir væntanlega haldnir mjög
bráðlega. Viðræðunefndir
S.U.S. og Æskulýðsnefndar-
innar munu hittast að máli
eftir helgina og ganga endan-
lega frá fyrirkomulagi og tíma-
setningu fundanna.
Kirkjuvikan
á Akureyri
SAMKOMAN í kvöld hefst kl. 21.
Aðalræðumaður kvöldsins verður
Steingrímur Hermannsson, dóms- og
kirkjumálaráðherra, sr. Bolli
Gústafsson svarar spurningum
kvöldsins og Jón G. Aðalsteinsson
flytur ávarp. Passíukórinn syngur
undir stjórn Roars Kvam. Jakob
Tryggvason leikur á orgel kirkjunn-
ar, og auk þess verður samlestur
presta og safnaðar og almennur
söngur.
Vaka vann einn mann
VAKA, félag lýðræðissinn-
aðra stúdenta, vann einn
fulltrúa í kosningunum,
sem fram fóru innan há-
skólans um fulltrúa í
stúdentaráð
Alls kusu 1550 í þessum kosn-
ingum eða um 53% og fékk Vaka
647 atkvæði eða 44,35% og 6
fulltrúa kjörna en Verðandi, félag
vinstri manna, fékk 813 atkvæði
eða 55,65% og 7 menn kjörna.
Vaka bætti þannig við sig einum
manni í stúdentaráði frá síðustu
kosningum.
í kosningum til háskólaráðs
fékk Vaka 640 atkvæði og 1 mann
en Verðandi 842 atkvæði og 1
mann og er það óbreytt frá því
sem var.
Arni Gunnarsson lætur
af ritstjórn Alþýðublaðsins
ÁRNI Gunnarsson alþingismaður
hefur látið af ritstjórn Alþýðu-
blaðsins og er Bjarni P. Magn-
ússon, formaður framkvæmda-
stjórnar Alþýðuflokksins, nú
skráður ábyrgðarmaður blaðsins.
Bjarni P. Magnússon sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær, að
þessi breyting stæði í sambandi
við fyrirhugaða uppstokkun á út-
gáfumálum blaðsins sem kynnt
yrði síðar, en auk þess mætti ljóst
vera að sami maður kæmist ekki
yfir allt í senn: að vera alþingis-
maður með öllum þeim margvís-
legu trúnaðarstörfum, sem á þá
hlæðust, og bera síðan ábyrð á öllu
skrifuðu máli sem birtist i blaðinu,
og þess vegna hefði Árni óskað
eftir því að verða leystur undan
því að standa sem ábyrðarmaður
fyrir blaðinu.
Skúli Hansen,
yfirmatreiðslumaöur á
Hótel Holti,
gefur súper uppskrift í dag
fyrir fjóra.
smjörsteikingu
fram yfir«
Pönnusteikt smálúðuflök með
tómötum og lauk. (U.þ.b. 250 g á
mann).
Smálúðan er skorin í þunnar sneiðar.
Þeim er síðan velt upp úr hveiti og
kryddaðar með salti, pipar og papriku.
Steikt upp úr íslensku smjöri. Skerið
niður 4 tómata og 2 lauka og lát ið krauma
með. Að 8 íðustu er safi úr sítrónu kreistur
yfir og auðvitað nýjar soðnar kartöflur <*>
og hrásalat borið með. -■
O)
t