Morgunblaðið - 16.03.1979, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. MARZ 1979
Nýtt Nýtt
Dömu-, herra- og
barnatréklossar.
Póstsendum.
V E R Z LU N I N
GZísm
LítiÓ
barn
hefur
lítíð
sjónsvið
Feigðarboðinn heitir handarf.sk sjónvarpskvikmynd sem er á
dagskrá sjónvarpsins klukkan 22.00 í kvöld. Þessi ljósmynd er af
Tom Courtenay í einu af aðalhlutverkum myndarinnar. Myndin
fjallar um ungan prest sem fer til starfa í afskekktu indíána-
þorpi í Kanada.
Öryggismál sjómanna, eit-
urlyf og Rannsóknastofnun
byggingariðnadarins
Kastljós verður á dagskrá
sjónvarpsins klukkan 21.00 í
kvöld. Umsjónarmaður þáttar-
ins er Magnús Bjarnfreðsson og
verða þrjú mál tekin til umfjöll-
unar í þættinum.
Fyrst ræðir Sigrún Stefáns-
dóttir fréttamaður við þá
Hjálmar R. Bárðarson siglinga-
málastjóra og Ágúst Sigur-
laugsson sjómann er var skip-
verji á fiskibáti frá Ólafsfirði
sem fórst fyrir skömmu. Ræða
þeir Hjálmar og Ágúst um
gúmbjörgunarbáta og önnur ör-
yggismál sjómanna út frá þeirri
reynslu sem fengist hefur, eink-
um upp á síðkastið.
Magnús Bjarnfreðsson.
Þá verður fjallað um Rann-
sóknastofnun byggingariðnað-
arins, en sú stofnun hefur verið
nokkuð í fréttum að undanförnu
vegna rannsókna á steypu-
skemmdum húsa og veðrun ein-
Sjónvarp kl. 20.35:
Kastljós kl. 21.00:
Eltingaleikur júgóslavnesku
leynilögreglunnar við þá, sem
óþjálir eru Tító forseta
Morðið á Bruno Busic heitir
mynd sem er á dagskrá sjón-
varpsins strax að loknum fréttum
t kvöld. Myndin fjallar um Króat-
ann Bruno Busic sem bjó í útlegð í
Lundúnum, en hann beitti sér
mjög fyrir því að Króatar fengju
sjálfstæði. Busic fannst látinn í
október 1978 og er fjaliað um það
í myndinni hvort júgóslavneska
leynilögreglan hafi valdið dauða
hans.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem Mbl. hefur aflað sér er hér
um athyglisverðan þátt að ræða.
Kemur þar fram að júgóslavneska
leynilögreglan hefur verið af-
kastamikil í því að kála Júgóslöv-
um sem óþægilegir eru Tító for-
seta. Leynilögreglan heldur sér
við skotvopnin, en ekki regnhlífar
o.þ.h. tól.
Þeir sem leynilögreglan er
venjulega á eítir hafa fæstir
hreinan skjöld. Þeir hafa m.a.
tekið þátt í ýmiss konar skæru-
liðaæfingum, t.d. ráðist inn í
sendiráð landsins erlendis.
Heimildamenn tjáðu Mbl. að
eiginlega væri um að ræða upp-
reisnarástand í Júgóslavíu, en
stríðið væri hins vegar háð víðs
vegar í Evrópu. í því stríði er
leyniþjónusta Júgóslavíu annar
stríðsaðilinn.
angrunarglers.
I þriðja lagi verður rætt við
þá Vilhjálm G. Skúlason pró-
fessor og Hjalta Zóphaníasson
um áhrif og útbreiðslu eitur-
lyfja.
Sigrún Stefánsdóttir.
Útvarp Reykjavík
FÖSTUDKGUR
16. marz
MORGUNNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Tónleikar.
7.10 Leikfimi.
7.20 Bæn
7.25 Morgunpósturinn.
Umsjónarmenn: Páll Heiðar
Jónsson og Sigmar B.
Hauksson. (8.00 Fréttir)
8.15 Veðurfregnir.
Forustugreinar dagbl.
(útdr.). Dagskrá
8.35 Morgunþulur kynnir
ýmis lög að eigin vali.
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barnanna:
Geir Cristensen heldur
áfram að lesa „Steipurnar
sem struku“ eftir Evi
Bögenæs (4).
9.20 Leikfimi
9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10
Veðurfregnir.
10.25 Morgunþulur kynnir
ýmis lög; — frh.
11.00 Ég man það enn:
Skeggi Ásbjarnarson sér um
þáttinn.
11.35 Morguntónleikar: Julian
Bream og Cremona-strengja-
kvartettinn leika Kvintett í
e-moll op. 50 nr.3 fyrir gítar
og strengjahljóðfæri eftir
Luigi Boccherini.
SÍÐDEGIÐ
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan:
„Fyrir opnum tjöldum44 eftir
Grétu Sigfúsdóttur
Herdís Þorvaldsdóttir les (8)
15.00 Miðdegistónleikar:
Felicja Blumental og
Mozarteum-hljómsveitin í
Salzburg leika Konsert f
B-dúr fyrir pianó og hljóm-
sveit eftir Francesco
Manfredini; Inoue stj.
Kammersveitin í Vín leikur
Sinfóníu í D-dúr eftir
Michael Haydn; Carlo Zecchi
stj.
15.40 Lesin dagskrá næstu
viku
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.30 Popphorn:
Dóra Jónsdóttir kynnir.
FÖSTUDAGUR
16. MARS 1979
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Morðið á Bruno Busic ,
Króatinn Bruno Busic bjó í
útlegð f Lundúnum. Hann
beitti sér mjög fyrir því að
Króatar fengju sjálfstæði. í
þessari bresku mynd er
m.a. leitað svara við því,
hvort júgóslavneska leyni-
lögreglan hafi valdið dauða
hans í október 1978.
Þýðandi og þulur Gylfi
Pálsson.
V___________________________ ... .
17.20 Útvarpssaga barnanna:
„Polli, ég og allir hinir“
eftir Jónas Jónasson
Höfundur les (3).
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.40 Fróðleiksmolar um ill-
kynja æxli
Þriðji og sfðasti dagskrár-
þáttur að tilhlutan Krabba-
meinsfélags Reykjavíkur.
Þátttakendur: Elfsabet
Ingólfsdóttir, Guðmundur
Jóhannesson, Sigríður
Lister og Þórarinn Guðna-
son.
21.00 Kastljós
Þáttur um innlend málefni.
22.00 Feigðarboðinn
(I Heard the Owl Call my
Name)
Bandarfsk sjónvarpskvik-
mynd frá árinu 1973.
Aðalhlutverk Tom
Courtenay og Dean Jagger.
Myndin er um ungan prest,
sem sendur er til starfa til
afskekkts indfánaþorps f
Kanada.
Þýðandi Ragna Ragnars.
23.15 Dagskrárlok.
20.00 Frá útvarpinu í Hessen
Victor Yoran leikur með
Sinfóníuhljómsveit útvarps-
ins í Frankfurt „Schelomo“,
hebreska rapsódíu fyrir
selló og hljómsveit eftir
Ernest Bloch; Eliahu Inbal
stj.
20.30 Kvikmyndagerð á Is-
landi fyrr og nú; annar
þáttur
Umsjónarmenn: Karl
Jeppesen og Óli Örn
Andreassen.
Fjallað um leiknar kvik-
myndir og heimildarmyndir.
Rætt við Reyni Oddsson,
Þránd Thoroddsen og Vil-
hjálm Knudsen.
21.05 Kórsöngur
Orpheus-kórinn í Glasgow
syngur bresk lög; Sir Hugh
Robertson stj.
21.25 í kýrhausnum
Sambland af skringilegheit-
um og tónlist. Umsjón: Sig-
urður Einarsson.
21.45 Liv Glaser leikur pfanó-
lög eftir Agötu
Backer-Gröndahl.
22.05 Kvöldsagan: „Heimur á
við hálft kálfskinn“ eftir
Jón Heigason
Sveinn Skorri Ilöskuldsson
les (4).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Lestur Passíusálma (29).
22.55 Bókmenntaþáttur
Umsjónarmaður: Anna
Ólafsdóttir Björnsson.
Rætt öðru sinni við Hjört
Pálsson dagskrárstjóra um
bókmenntir í útvarpi.
23.10 Kvöldstund
með Sveini Einarssyni.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.