Morgunblaðið - 16.03.1979, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. MARZ 1979
5
68 keppendur á skák-
þingi Norðurlands
Akureyri — 15. marz.
SKÁKÞING Norðlendinga var
sett í dag kl. 14 í Félagsborg í
samkomusal starfsmanna SIS.
Mótsstjóri er Albert Sigurðsson
en dómnefnd skipa Gunnlaugur
Guðmundsson, Jón Björgvinsson
og Haraldur Olafsson.
Skákþingið er fjölmennasta
skákmót sem haldið hefur verið
utan Reykjavíkur en þátttakendur
eru 68. í meistaraflokki eru
keppendur 27, unglingaflokki 35 og
í kvennaflokki, sem nú er í fyrsta
sinn á skákþingi Norðlendinga,
keppa 6 stúlkur.
I meistara- og unglingaflokki
skal leika fyrstu 40 leikina á 2 klst.
en ljúka síðan skákinni á xk klst. I
unglingaflokki skal ljúka skákinni
á 1 og 'A klst. Tvær umferðir verða
tefldar á dag til laugardags og ein
á sunnudagsmorgun.
í kvennaflokki verður tefld tvö-
föld umferð í einum riðli.
Hraðskákmót Norðurlands verð-
ur háð á sunnudag og hefst kl. 16.
- Sv.P.
Eldsvoði á Vatnsenda:
Setkk að tafli
Bóndinn med-
vitundarlaus þeg-
ar ad var komið
Hvammstanga, 15. marz.
SLÖKKVILIÐIÐ á Hvammstanga
var kl. 9.20 í gærkvöldi kallað út
að bænum Vatnsenda í Aust-
ur-Hópi en við þann bæ var
skálkonan Rósa Guðmundsdóttir
kennd. Hafði þar kviknað í
íbúðarhúsi út frá eldvél, sem vatn
hafði verið hitað á um daginn til
fjárböðunar.
Árni Jóhannesson er einbúi á
bænum, og reyndi hann í fyrstu að
fást sjálfur við eldinn en fékk
ekkert við ráðið. Hringdi hann þá
á hjálp en þegar komið var að lá
hann í öngviti á gólfinu. Varð að
senda hann í sjúkrahús í Reykja-
vík í nótt, og að sögn ðlafs
Magnússonar læknis nú um hádeg-
ið líður Árna eftir atvikum.
Húsið á Vatnsenda er forskalað
timburhús og er það töluvert
skemmt af eldinum, sérstaklega
þil og veggur næst eldavél. Mikil
ófærð er milli Hvammstanga og
Vatnsenda en bílum gekk nokkuð
vel að komast þangað yfir
„Björgin" sem kallað er, en er þeir
ætluðu skemmri leið til baka tók
ferðin um tvo tíma.
- S.Þ.
Rabbfundur um
jafnrétti hjá Hvöt
IIVÖT, félag sjálfstæðiskvenna í
Reykjaví, hefur tekið upp þá
nýbreytni að efna til svokallaðra
rabbfunda um hádegi á laugar-
dögum. Fundirnir hafa verið
annan hvern laugardag í austur-
salnum á 1. ha'ð í Valhöll, Sjáif-
stæðishúsinu, að Iláaleitisbraut 1,
frá kl. 12-14.
Léttar veitingar hafa verið fram
bornar og jafnan eitthvað sérstakt
efni tekið til óformlegrar umræðu.
Á morgun verða gestir félagsins
þær Guðrún Erlendsdóttir, for-
maður Jafnréttisráðs, sem mun
kynna ráðið og lög um jafnrétt
karla og kvenna frá 1976, og Anna
Sigurðardóttir, forstöðumaður
Kvennasögusafns íslands, sem
mun lýsa sýningunni „Kvinnen í
Norden". Þessi sýning á rætur
sínar að rekja til þess, að þegar
Ragnhildur Helgadóttir var for-
maður Norðurlandaráðs 1975, bar
hún fram í ráðinu tillögu um að
komið væri á fót sýningu í tilefni
kvennaárs Sameinuðu þjóðanna.
Skyldi það vera eins konar yfirlits-
sýning yfir stöðu og sögu kvenna á
Norðurlöndum og vera farandsýn-
ing.
Sýningin sem er á 6 spjöldum
hefur farið víða um Norðurlönd en
hér á landi hefur hún m.a. verið
uppi í Norræna húsinu, í skrifstofu
Jafnréttisráðs og Húsmæðraorlof-
inu að Hrafnagili. Ennfremur
hefur sýningin iðulega verið kynnt
á fundum ýmissa félagasamtaka,
svo sem Kvenréttindafélags ís-
lands og Rauðsokkahreyfingarinn-
ar.
Allir félagar í Hvöt og gestir
þeirra eru velkomnir á rabbfund-
ina.
Vigdís Björnsdóttir,
fyrrv. skólastjóri, látin
nvammstanga, 15. marz.
VIGDÍS Björnsson fyrrverandi
skólastjóri og kennari andaðist í
gær í Héraðshælinu á Blönduósi á
83. aldursári. Ilún var fædd 21.
ágúst 1896, dóttir hins lands-
fræga Björns Eysteinssonar í
Grímstungu.
Vigdís var kennari og skóla-
stjóri í Sveinsstaðahreppi frá
1922-54 eða í 32 ár og kenndi þá
iðulega einnig börnum úr Torfu-
lækjarhreppi og Áshreppi. Síðan
fluttist hún á Blönduós og stund-
aði þar einkakennslu og hjálpar-
kennslu til 1975, þannig að
kennsluævi hennar varð 53 ár.
Maður Vigdísar var Eiríkur Hall-
dórsson, sem lést fyrir nokkrum
árum. — S.Þ.
Vigdfs Björnsdóttir
Austurstræti 22. sirru fra skiptiboröi 28155
TlZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
WKARNABÆR
Laugaveg 66 Austurstræti 22 Glæsibæ Simi 28155
□ Drengja tweed-jakka,
meö riffluöum flauelsbuxum.
□ Drengja tweed-föt.
□ Drengja skyrtur.
i □ Stúlkna tweed-dragtir,
L með buxum eöa pilsi.
□ Stúlkna blússur.
□ Stúlkna kjólar og kápur
□ Bindi, slaufur,
treflar, skór.
Austurstræti 22
2. hæö
simi 281 55
t
\ wk Vt' •
\ u
« aÉ||g|y» jr^ Jm1
'i P^|i||
4 ; • iium
J , 1, jl
j