Morgunblaðið - 16.03.1979, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. MARZ 1979
13
Við geðdeild Nýja hjúkrun-
arskólans í Reykjavík hefur
að undanförnu kennt norsk
kona, Marie Lysnes. Marie
var rektor við Statens skole
for psykiatrisk sykepleie í
Bygdö í Ósló í 20 ár eða til
ársins 1977 er hún fór á
eftirlaun. Marie sem er merk-
ur brautryðjandi í geðhjúkr-
unarmálum í Noregi sýndi
mikinn áhuga á að koma
hingað er haft var samband
við hana fljótt eftir að
kennsla í geðhjúkrun hófst
við Nýja hjúkrunarskólann
árið 1975. Hún kom hingað í
janúar 1978 og átti að vera
hér í 3 mánuði en var hér í 5
mánuði og kom aftur til ís-
lands í desember sama ár og
er hér enn. Marie sagðist
búast við að fara til Noregs í
lok maí en hún hefur lofað að
koma hingað aftur f október f
haust og vera við kennslu í
skólanum fram til ársins
1980.
„Ég byggi kennsluna upp
svipað og ég hef gert í Noregi
nema að ég brýni það fyrir
íslenskum nemendum mínum
að þeir verði að sníða það sem
þeir læra eftir íslenskum að-
stæðum.
Geðhjúkrun er mjög merki-
legt námsefni og okkur finnst
fleiri en þeir sem.hafa hugsað
sér að vinna á geðsjúkrahús-
um ættu að hafa innsýn í
fagið. Það ætti ekki að vera
erfitt fyrir ykkur, svo fá-
menna þjóð, að skipuleggja
hjúkrunarnám þannig að geð-
hjúkrun verði eitt af grunn-
„Noregur og ísland
í sérflokki
Evrópulanda á sviði
geðhjúkrunarmála ”
Marie Lysnes ásamt Maríu
Pétursdóttur skólastjóra
Nýja hjúkrunarskólans.
Sú tegund geðhjúkrunar
sem ég hef mikinn áhuga á
núna hóf nýlega göngu sína í
Noregi og er fólgin í ráðgjöf.
Geðhjúkrunarfræðingarnir
gefa þá hjúkrunarfræðingum
sem starfa á öðrum sviðum
ýmsar upplýsingar í sambandi
við sjúklingana og hvernig
bregðast eigi við hinum ýmsu
einkennum. Svipuð ráðgjafa-
þjónusta var hafin í Banda-
ríkjunum og Kanada árið 1972
og hefur gefist vel,“ sagði
Marie.
Marie sagði að sér hefði
líkað vel hér á íslandi en af og
til fengi hún nokkra heimþrá.
„Ég á fjölskyldu í Ósló og
heimili mitt er þar,“ sagði
hún.
Frábær
kennari
„Marie er frábær kennari og
býr yfir mikilli reynslu bæði
sem geðhjúkrunarfræðingur
og kennari í faginu," sagði
María Pétursdóttir skólastjóri
Nýja hjúkrunarskólans. Skól-
inn hóf störf haustið 1972 í
húsnæði Grensásdeildar Borg-
arspítalans en starfar nú í
leiguhúsnæði að Suðurlands-
braut 18 á annarri hæð ásamt
námsbraut í hjúkrunarfræði
við Háskóla íslands. í skólan-
um fer fram kennsla í hjúkr-
unarfræði svo og í sérgreinum
innan hjúkrunarfræðinnar og
er geðhjúkrunin ein þessara
greina. Til þess að komast að í
námi í þessum sérgreinum
þarf hjúkrunarpróf auk
starfsreynslu.
Rætt við Marie Lysnes fyrrverandi rektor og Mariu Pétursdóttur skólastjóra
fögunum. Það er nauðsynlegt
fyrir hjúkrunarfræðinga, bæði
í sambandi við áframhaldandi
uppbyggingu náms þeirra og
einnig við hin ýmsu störf á
mismunandi sviðum. Líkamleg
sýki hefur svo oft áhrif á
hugann og því er mjög gott
fyrir hvaða hjúkrunarfræðing
sem er að kunna skil á helstu
atriðum í sambandi við geð-
hjúkrun. Það gerir aðeins illt
verra að kvíði sjúklingsins
valdi hræðslu hjá hjúkrunar-
fræðingnum sem á að stunda
hann. I Bandaríkjunum og
Kanada er geðhjúkrun ein af
undirstöðugreinum í hjúkrun-
arfræði og hefur verið það um
nokkurt skeið og ég er viss um
að með tímanum á það einnig
eftir að verða hér.
Marie sagði að veigamikið
starf geðhjúkrunarfræðings
væri inni á sjálfri deildinni.
„Þegar sjúklingur hefur ver-
ið í meðferð hjá lækni þarf
hjúkrunarfræðingurinn að
fylgjast vel með öllum við-
brögðum og kunna skil á því
sem um er að vera. Það er oft
sem sjúklingur hegðar sér eins
og hann heldur að læknirinn
vilji að hann hegði sér þegar
hann er í meðferð en eftir á
koma viðbrögðin í ljós. Þetta
er svipað og þegar hjúkrunar-
fræðingur tekur við sjúklingi
eftir aðgerð. Hann þarf þá að
hafa þekkingu á ástandi sjúkl-
ingsins og vita hvað á að gera
ef líðan sjúklingsins breytist.
Þetta skapar samstarf milli
lækna og hjúkrunarfræðinga
og auðveldar báðum störf
þeirra og flýtir fyrir bata
sjúklingsins.
Marie taldi geðhjúkrun
langt á veg komna hér á
Islandi.
„Við teljum Noreg vera
brautryðjendaland í geðhjúkr-
un og teljum okkur vera
fremst á sviði kennslu í þeirri
grein í Evrópu. Ég tel að
Island komi þar á eftir. Öll
önnur lönd í Evrópu standa
langt að baki.
„í upphafi var ætlað að Nýi
hjúkrunarskólinn starfaði
samkvæmt lögum sem gilda
um Hjúkrunarskóla íslands en
hann hafði þá um margra ára
skeið verið eini hjúkrunarskóli
landsins. En fljótt eftir að Nýi
hjúkrunarskólinn hóf störf
var stofnuð hjúkrunardeild við
Háskólann og er það ein
ástæða þess að við höfum
heldur farið meira inn á sér-
nám á sviði hjúkrunarfræði.
Þegar við hófum að kenna
geðhjúkrun vorum við fyrst
með 15 mánaða námskeið en
nú er það tveggja ára nám og
er lengsta sérnámið við skól-
ann ásamt svæfingarhjúkrun-
inni. Við höfum hér í skólan-
um núna annan hópinn í geð-
hjúkrunarnámi og vonumst til
að geta hafið kennslu með
þann þriðja meðan við ennþá
njótum kennslu Marie
Lysnes.“
María sagði að mjög góður
samstarfsandi ríkti í skólan-
um og það hefði verið. mjög
ánægjulegt að starfa með
þessa tvo hópa sem geð-
hjúkrunina hafa stundað við
skólann. Hún sagði einnig að
nemarnir í geðhjúkruninni
væru sérstaklega ánægðir með
kennslu Marie.
„Við erum lika afskaplega
þakklát þeim skilningi sem
stjórnvöld hafa sýnt hér á
landi varðandi sérnám hjúkr-
unarstéttarinnar," sagði
María að lokum.