Morgunblaðið - 16.03.1979, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. MARZ 1979
15
Amin kvartar
yfir samsæri
Nairobi, 16. marz. Kcuter.
IDI AMIN forseti sakaði í dag
Bretland og Bandaríkin um að
standa fyrir alvarlegu og hættu-
legu samsæri gegn Uganda í
samvinnu við ísraelska zíonista.
Hann sakaði þessar þjóðir um
að útvega innrásarliðinu frá
Tansaníu vopn í bréfi til Kurt
Waldheims, aðalframkvæmda-
stjóra SÞ.
Hann kvað það vís-
bendingu um þetta samsæri að
brezkum og bandarískum þegnum
hefði verið ráðlagt að yfirgefa
Uganda.
Jafnframt halda andstæðingar
Amins áfram sókn sinni með
stuðningi Tanzaníumanna til
Kampala og harðir bardagar geisa
að sögn útlaga í Nairobi í úthöðr-
um þorpsins Mpigi um 40 km frá
höfuðborginni.
Utlagarnir segja að Amin
marskálkur hafi kvatt allt að 800
hermenn frá vígstöðvunum til að
verja hernaðarlega mikilvæg
mannvirki í iðnaðarbænum Jinka
fyrir austan Kampala.
Grenada á valdi
byltíngarmanna
St. George’s, Grenada, 15. marz. AP.
LEIÐTOGI byltingarinnar, sem kollvarpaði stjórninni á eynni
Grenada á Karíbahafi þar sem 110.000 manns búa, Maurice Bishop,
lýsti sig forsætisráðherra í dag og sagði að hann mundi viðhalda
nánum tengslum við Bandaríkin, Kanada og Bretland.
Bishop skoraði á stuðningsmenn
sína að sýna „fyllstu kurteisi" og
sagði að tilgangur byltingarinnar
væri sameiginlegt átak í velferð-
ar-, mennta- og frelsismálum.
Verzlanir hafa aftur verið opn-
aðar, en flugvöllurinn er enn
lokaður og allir símar eru enn
lokaðir.
Diplómatar segja að Bishop sé
hófsamur vinstrimaður. I Barba-
dos er talið að kveikjan að bylting-
unni hafi verið harðstjórn Eric
Árás á afmœli
Róm, 15. marz. AP.
HRYÐJUVERKAMENN, ein kona
og tveir karlmenn í lögregluein-
kennisbúningum, réðust í dag á
skotvopnaverzlun í miðborg Rómar
og höfðu á brott með sér um 60
skammbyssur og 14 riffla. Frétta-
stofunni Ansa var tilkynnt í síma
að þetta væri verk „Nuclei armati
rivoluzionari“, einna af mörgum
samtökum hryðjuverkamanna.
í Trapani á Vestur-Sikiley skaut
unglingur á lögregluforingja, sem
særðist ekki alvarlega. Unglingurinn
komst undan.
Þessar árásir eru gerðar í sama
mund og ítalir búa sig undir að
minnast þess að eitt ár er liðið síðan
stjórnmálaleiðtoganum Aldo Moro
var rænt.
NyrforæU
í Brazitíu
Brasilíu, 15. marz. Reuter.
JOAQ Baptista Figueiredo hers-
höfðingi tók í dag við embætti
forseta Brazilíu og hét því að
koma á lýðræði. Hann er fimmti
hershöfðinginn sem gegnir for-
setaembættinu síðan herforingjar
kollvörpuðu vinstri stjórn Jao
Goulart fyrir 15 árum.
Fyrirrennari Figueiredo hers-
höfðingja, Ernesto Geisel forseti,
kom á stjórnmálaumbótum sem
miða að því að endurreisa lýðræði
að fullu í Brazilíu og gert er ráð
fyrir því að Figueiredo hershöfð-
ingi muni hrinda þeim í fram-
kvæmd.
Hann sagði í embættistökuræðu
sinni að hann mundi berjast fyrir
virðingu fyrir mannréttindum og
réttlátari skiptingu þjóðartekna.
Verðbólga er 40% í Brazilíu og
mikil ókyrrð er meðal verka-
manna, þar sem framfærslukostn-
aður er mikill og laun lág. Rúm-
lega 200.000 málmverkamenn eru í
verkfalli í Sao Paulo og kennarar í
Rio de Janeiru hafa einnig lagt
niður vinnu.
Gairy fráfarandi forsætisráð-
herra, sem er sérvitringur og trúir
á fljúgandi furðuhluti. Hann
meinaði andstæðingum stjórnar-
innar aðgang að dagblaði og út-
varpsstöð eyjarskeggja, sem eru
undir stjórn yfirvalda, og bannaði
mótmælaaðgerðir stjórnarand-
stæðinga og opinbera fundi.
Einn maður beið bana í bylting-
unni, foringi í varnarliði eyjunnar.
Fréttamenn segja að nýja stjórnin
sé traust í sessi. Allri mótspyrnu
lauk þegar „byltingarher" Bishops
gerði áhlaup á Fort George, aðal-
stöðvar lögreglunnar. Allt virðist
vera með kyrrum kjörum á eynni.
Gairy fór til New York á mánu-
dag og neitaði að honum hefði
verið steypt af stóli. Bishop segist
ætla að fara fram á að Gairy verði
framseldur og leiða hann fyrir rétt
fyrir glæpi, þar á meðal morð.
Flestir ráðherrar Gairys og
yfirmenn lögreglunnar munu vera
í gæzluvarðhaldi.
Veður
víða um heim
Akureyri +2 léttskýjað
Amsterdam 3 skýjað
Apena 22 skýjað
Barcelona 8 skýjað
Berlín 0 skýjað
Brussel 7 rigning Oskýjað
Chícago
Frankfurt 8 rigning
Genf 14 poka
Helsinki +2 skýjað
Jerúsalem Jóhannesarb. 27 téttskýjað
Kaupmannahöfn 3 léttskýjað
Lissabon 13 rigning
London 4 rigning
Los Angeles Madrid 12 léttskýjað
Malaga 13 léttskýjað
Mallorca 13 skýjað
Miami 22 léttskýjað
Moskva 3 skýjað
New York 18 léttskýjað
Ósló , 1 skýjaó
París 12 rigning
Río de Janeiro 30 rígning
Rómarborg 20 skýjað
Stokkhólmur 0 skýjað
Tel Aviv Tókýó 14 skýjað
Vancouver 15 skýjað
Vínarborg 14 skýjað
Heimkomu fagnað — Kínverskri herdeild fagnað og hún boðin velkomin aftur til föðurlandsins eftir
hernaðarátökin í Víetnam. Kínverjar hafa nú lýst því yfir að þeir hyggist ekki draga allt lið sitt
fullkomlega aftur yfir landamærin.
Loftárásir á stöðvar
skæruliða í Mósambík
Salisbury, 15. marz. AP.
HERSTJÓRNIN í Salisbury stað-
festi í dag að rhódesískar herflug-
vélar hefðu flogið inn fyrir landa-
mæri Mósambik og ráðizt á
vopnageymslu skæruliða í bænum
Chocue 180 km norðvestur af
hafnarborginni Maputo.
Þar með rauf herstjórnin sólar-
hrings þögn, en sagði aðeins að
þetta væri önnur árásin sem hefði
verið gerð á vopnageymsluna og
allar herflugvélarnar hefðu snúið
aftur heilu og höldnu.
I Lissabon sagði portúgalska
fréttastofan Anop að 17 hefðu
Schlesinger sætir
harðri gagnrýni
Washington, 15. marz. AP.
UMRÆÐUR hófust í bandarísku
öldungadeildinni í dag um það
hvort Carter forseta bæri tafar-
laust að reka orkumála ráðherra
sinn James J. Schlesinger úr
embætti. Að minnsta kosti sex af
hörðustu andstæðingum ráðherr-
ans, með Howard Metzenbaum í
fararbroddi, skipulögðu ræðu-
höld til að draga fram í dagsljósið
naumt trúnaðartraust hans og
getuleysi.
Formaður bandarísku orku-
málanefndarinnar, Henry
Jackson, ásamt nokkrum öðrum
tóku á hinn bóginn upp hanskann
fyrir Schlesinger. Kvað Jackson
það eintóma hræsni að hafa ein-
Dag skyldi að
kveldi lofa
Benevento, Ítalíu, 15. marz. AP.
UNGUR maður í bænum Bruno á
Suður-Italíu hrifsaði á fimmtudag
til sín handtösku konu á sjötugs-
aldri, barði hana í höfuðið og tók
síðan til fótanna. Skeiðið tók
óvæntan endi því ungi maðurinn,
de Luisa, hljóp fyrir bíl á flóttan-
um og var fluttur á sjúkrahús.
Þegar hann rankaði við sér upp-
götvaði hann að fórnarlambið frá
því fyrr um daginn lá í næsta rúmi
við hliðina. Lögregla í bænum ber
að hér hafi verið um einskæra
tilviljun að ræða.
stakan mann að skotmarki vegna
ástandsins í orkumálum. Schles-
inger vitnaði fyrir orkumálanefnd-
inni fyrr í þessari viku og sagðist
hafa boðið Carter að hann segði af
sér störfum, en forsetinn mun
hafa hafnað uppástungunni.
Gagnrýnendur Schlesingers
ásaka hann einkum um að hafa
aðhafst lítið til að stuðla að
úrvinnslu nýrra orkulinda og segja
hann bera hag olíufyrirtækja meir
fyrir brjósti en afkomu almennra
neytenda.
fallið í árásinni í gær, þar af einn
Rhódesíumaður. Sjö særðust, þar
af einn Rhódesíumaður, að sögn
fréttastofunnar, sem vitnað í
hernaðaryfirvöld í Mósambík.
Hin opinbera fréttastofa í
Mósambík segir að flugvélarnar
sem gerðu árásina hafi verið af
Mirage-gerð þótt Rhódesíumenn
hafi þráfaldlega neitað að þeir eigi
slíkar flugvélar og sagt að þeir eigi
aðeins gamlar brezkar þotur og
herflugvélar.
Rhódesíska herstjórnin í Salis-
bury hefur alltaf haldið því fram
að allar árásir inn í Angola,
Mósambík og Zambíu á síðustu
tveimur árum hafi beinzt gegn
búðum skæruliða. Rhódesískar
herflugvélar hafa ráðizt sex sinn-
um á stöðvar í þessum löndum á
síðustu þremur vikum.
Tilgangurinn með árásunum er
að buga skæruliða Zanu undir
forystu Robert Mugabes og Zapu
undir forystu Joshua Nkomos fyrir
þingkosningarnar í næsta mánuði.
Nkomo og Mugabe hafa tilkynnt
að þeir muni reyna að spilla fyrir
kosningunum, herða á stríðinu og
kollvarpa fyrstu meirihlutastjórn
blökkumanna í Rhódesíu.
í»etta gerðist 16. marz
ERLENT
1978 — Aldo Moro rænt og fimm
lífverðir hans myrtir.
1976 — Harold Wilson forsætis-
ráðherra segir af sér.
1975 — Ríkisstjórn Portúgals
segir af sér.
1945 — Andspyrnu Japana í Iwo
Jima lýkur.
1942 p— Koma fyrstu bandarísku
hermannanna til Ástralíu kunn-
gerð.
1939 — Slóvakía sett undir þýzka
vernd og Ungverjar innlima
Rútheníu.
1935 — Þjóðverjar afneita ákvæð-
um Versala-samningsins um af-
vopnun.
1934 — Rómar-bókanir ítala,
Austurríkismanna og Ungverja,
sem stofna Dónár-bandalag gegn
Litla bandalagi Tékka, Rúmena og
Júgóslava.
1922 — Bretar viðurkenna
egypzka konungsríkið og sameig-
inlega stjórn Egypta og Breta í
Súdan.
1844 — Grikkir fá stjórnarskrá.
1815 — Vilhjálmur af Óraníu
verður Vilhjálmur I, konungur
Hollands.
1812 — Austurríkismenn lofa að
sjá Frökkum fyrir her.
1792 — Gústaf III Svíakonungur
skotinn (d. 29. marz).
1534 — Englendingar slíta öllu
sambandi við Páfastól.
1521 — Portúgalski sæfarinn
Magellan kemur til Filippseyja.
Afmæli: James Madison, banda-
rískur stjórnmálaleiðtogi
(1751 — 1836) — Georg Simon
Ohm, þýzkur eðlisfræðingur
(1787—1854) — M.P. Mussorgsky,
rússneskt tónskáld (1839—1881).
Andiát: Sir Austen Chamberlain,
stjórnmálaleiðtogi, 1937 — Selma
Lagerlöf, rithöfundur, 1940.
Innlent: Gvöndarbardagi, d. Guð-
mundur góði 1237 — d. Jón
Indriðason biskup 1341 — Þórður
Þorláksson biskup 1697 — Þor-
finnur Þorgeirsson ábóti 1216 —
Alþingi samþykkir gerðardóm tog-
aradeilu 1938 — Tuttugu þúsund
hætta 15 daga verkfalli 1968 —
Stórbruni í Grindavík 1972 — d.
Bríet Bjarnhéðinsdóttir 1939 —
Valtýr Stefánsson 1963 — f. Nína
Tryggvadóttir 1913 — Andrés
Björnsson 1917 — Alfreð Elíasson
1920.
Orð dagsins: Sigurinn er þeirra
sem þrauka lengst — Napoleon
(1769-1821).