Morgunblaðið - 16.03.1979, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. MARZ 1979
19
Deilur á Alþingi um fréttaflutning Ríkisútvarpsins
Gunnar Eyþórsson:
Ólafur leggur mér
í munn það sem
hann sagði sjálfur
„Ég satt að segja veit
ekki nákvæmlega hvernig
á þessu stóð,“ sagði
Gunnar Eyþórsson frétta-
maður er Morgunblaðið
ræddi við hann í gær-
kvöldi. „Ég var á vakt á
sunnudaginn, og þá var
birt frétt um efnahags-
málafrumvarpið, sem við
Fréttin
HIN UMDEILDA frétt, sem
svo miklu írafári hefur valdið,
var lesin upp í Ríkisútvarpinu
á sunnudag. Hún var svohljóð-
andi, orðrétt:
„Mikil fundahöld hafa verið í
dag á vegum ríkisstjórnar-
flokkanna um mótun efnahags-
málafrumvarps í kjölfar ríkis-
stjórnarfundar í gær. Gért er
ráð fyrir frekari fundahöldum
á morgun, en síðan er ætlunin
að reifa málin á ríkisstjórnar-
fundi á þriðjudagsmorgun.
Ólafur Jóhannesson forsætis-
ráðherra sagði í samtali við
fréttastofuna síðdegis í dag, að
hann gæti ekkert sagt um stöðu
málsins fyrr en á þriðjudag, en
þá yrði gengið frá málinu á
einhvern veg eins og forsætis-
ráðherra komst að orði.
Fyrirhugað mun vera að
þingflokkar og flokksstjórnir
ríkisstjórnarflokkanna komi
saman á morgun til þess að
ræða það sem áunnist hefur í
þessum efnum nú um helgina.
Eins og frá var skýrt í frétt-
um Utvarps í gærkvöldi þokað-
ist verulega í samkomulagsátt
um efnahagsmálin á ríkis-
stjórnarfundi í gær, og munu
ráðherrar ríkisstjórnarinnar
eftir atvikum ánægðir með
þann samkomulagsgrunn sem
náðst hefur. Eftir því sem
fréttastofan kemst næst eru
líkur á að væntanlegt efna-
hagsmálafrumvarp feli meðal
annars í sér þær bindingar á
tekjum og útgjöldum ríkisins
sem kveðið var á um í frum-
varpsdrögum forsætisráðherra,
og einnig mun hafa náðst sam-
komulag um svonefnda raun-
vaxtastefnu. Hins vegar munu
vísitölugreiðslur launa ekki
hafa verið útkljáðar enn sem
komið er. Þá munu menn hafa
sætzt á viðskiptakjaravísitölu,
og að olíuverðshækkanir á
alþjóðamarkaði hafi ekki áhrif
á greiðslu vísitölubóta á laun.“
Stofna deild Neyt-
endasamtakanna
á Akureyri
NEYTENDASAMTÖKIN haía
boðað til stofnfundar deildar
fyrir Akureyri og nágrenni á
morgun, laugardag klukkan 14 á
Hótel Varðborg.
Markmiðið með stofnuninni er að
gæta hagsmuna neytenda á verslun-
arsvæði Akureyrar með því að veita
félagsmönnum leiðbeiningar og
fyrirgreiðslu ef þeir verða fyrir tjóni
vegna kaupa á vöru eða þjónustu.
Enn fremur að reka útgáfu- og
fræðslustarfsemi.
Tveir stjórnarmenn og starfsmað-
ur Neytendasamtakanna í Reykja-
vík munu koma á fundinn.
vitum að var efnislega rétt
á þeim tíma,“ sagði
Gunnar. „Nú, Ólafur
Ragnar hringdi og bar
fram öll möguleg mótmæli
við þessa frétt. Lagði hann
aðallega útaf því að kratar
væru að koma sínum
sjónarmiðum á framfæri í
gegnum Útvarpið, að
valdir þingmenn bara
hringdu og træðu sínum
skoðunum upp á frétta-
stofu Útvarpsins og notuðu
það eins og síðdegisblað og
þar fram eftir götunum.
Ég lét hann rausa eins og hann
vildi, en þegar hann kemur í þingið
snýr hann þessu við og leggur mér
í munn það sem hann sagði sjálf-
ur.
Gistihús
á Spáni loka
Valencia, Spáni, 15. marz. AP.
UM ÞRJÁTÍU þúsund starfsmenn
urðu við tilmælum verkalýðsfélaga
um að leggja niður vinnu í Valen-
ciu á Austur-Spáni í dag með þeim
afleiðingum að hundruð gistihúsa,
veitingahúsa og ölkráa urðu að
loka. Búist er við að verkfallið vari
að minnsta kosti í fimm daga.
Þrekraun
við Alaska
Juneau, Alaska, 15. marz. AP.
FYRIR mánuði átti sá atburður
sér stað að faðir, ásamt þremur
börnum sínum, braut seglskútu
sína á kaldri eyðiey við strendur
Alaska. Fjölskyldan segist hafa
dregið fram lífið með því að borða
skelfisk og þang einhvern kaldasta
febrúarmánuð, sem skráðst hefur
á svæðinu. Öllum fjórum var
bjargað þann tíunda mars og hafði
þau kalið á fótum. Dvelja þau nú á
sjúkrahúsi í Ketchikan.
Stjórn
Callaghans
sækir á
London, 15. marz. Reuter.
BRESKI Verkamannaflokkurinn
óx heldur að vinsældum í þessum
mánuði, en er þó enn nokkur
eftirbátur íhaldsflokksins ef
marka má skoðanakönnun
Gallups, sem birt var í dag. Eftir
henni að dæma aðhyllast 51,5 af
hundraði íhaldsflokkinn, en 37
Verkamannaflokkinn. Fyrir mán-
uði studdu 53 af hundraði íhalds-
flokkinn en 33 af hundraði Verka-
mannaflokkinn.
Eftirsótt
ræðupúlt
San Francisco, 15. marz. AP.
HÁLFÁTTRÆÐUR verktaki
keypti á miðvikudag predikunar-
stól trúarleiðtogans Jim Jones á
uppboði í San Francisco og hyggst
setja hann upp til prýði í setustofu
sinni. Einnig keypti hann utan-
dyraskilti sértrúarsafnaðar Jones
til að skreyta með heimilisgarðinn.
Ræðupúltið keypti hinn glysgjarni
Max Rosenthal fyrir um fjögur
hundruð þúsund krónur íslenzkar.
Gunnar Eyþórsson fréttamaður
Staðreyndin var að þessi frétt
var soðin saman úr ýmsu og ég
gerði það ekki einu sinni yálfur,
og ég gaf honum ekki upp hvaðan
hún væri komin," sagði Gunnar.
Um samræður þeirra Olafs
Ragnars í Alþingishúsinu í gær
vildi Gunnar lítið segja, „nema
hvað ég sagði honum það, að hann
hefði notað sín eigin orð sem mín,“
sagði Gunnar, „en hann gerði ekki
annað en að heimta heimildar-
menn. Skipaði hann mér að fara og
sækja afrit og sýna sér heimildar-
manninn, en ég sagði honum að
hann gæti sótt það sjálfur."
r
Olafur Ragnar Grimsson:
Heimildarmaður-
inn gefi sig fram!
ÓLAFUR Ragnar Gríms-
son, einn þingmanna Al-
þýðubandalagsins, sagði í
umræðum utan dagskrár á
Alþingi í gær, að það komi
úr hörðustu átt þegar al-
þýðuflokksmenn gagn-
rýndu ríkisfjölmiðla fyrir
misrétti.
Minnti hann á frétt Ríkisút-
varpsins um samkomulag í rík-
isstjórninni síðastliðinn laugar-
dag og niðurstöður þess sam-
komulags, sem hvorttveggja
hefði verið rangt. Kvaðst Ólafur
hafa hringt í Gunnar Eyþórsson
fréttamann og fengið þær upp-
lýsingar hjá honum að heimild-
armaður fréttarinnar hefði ver-
ið einn þingmanna Alþýðu-
flokksins. Ekki vildi Gunnar þó
nafngreina þennan þingmann,
að því er Ólafur Ragnar sagði,
enda hefði það verið samkomu-
lag milli fréttamannsins og
þingmannsins að nafn hans yrði
ekki gefið upp.
ólafur Ragnar Grímsson
alþingismaður.
í ræðu sinni skoraði Ólafur
Ragnar á þennan þingmann,
sem vísvitandi færði ríkisfjöl-
miðlum skröksögur í frétta
stað, að segja til sín og standa
fyrir sínu máli.
Trausf fley tryggja afla
Vélbátar og fiskiskip úr trefjaplasti
frá Skipasmíöastöö Guömundar
Lárussonar h.f. Skagaströnd, eru
allir byggöir eftir kröfum Siglinga-
málastofnunar ríkisins. Þeir hafa
sannaö styrk sinn og sjóhæfni viö
íslenskar aöstæöur og sameina
fallegt útlit og ótrúlega lítiö viöhald.
Bátarnir eru fáanlegir á ýmsum
byggingastigum, eftir samkomulagi.
Afgreiöslufrestur er aö öllu jöfnu
stuttur. Eftirtaldar stæröir eru fáan-
legar:
Opinn vélbátur, 5.96 tonn
lengd: 7.43 mtr. breidd: 2.61 mtr. dýpt: 1.62 mtr.
Hægt er að fá þennan bát sem þltfarsbát,
meö tiltölulega litlum breytingum. Hentar til
handfæra, línu og netaveiöa.
15 tonna fiskiskip. Hentugt til tog, neta. línu og
handfæraveiöa.
lengd: 11.18 mtr. breidd: 3,88 mtr. dýpt: 1.75 mtr.
Opinn véibátur, 2.19 tonn
lengd: 6.12 mtr. breidd. 2.04 mtr. dýpt: 0,93 mlr.
Rétti báturinn fyrir sportveiöimannirm.
Hentugur til færaveiöa, og í grásleppuna.
Báturinn er til sýnis í Bíla og bátasölunni
Ársölum Ártúnshöföa.
9 tonna þilfarsbátur nú framleiddur með hvalbak.
lengd: 8,76 mtr. breidd: 3,72 mtr. dýpt: 1,53 mtr.
Hentar til handfæra, línu og netaveiða.
Skemmtlbátar, 10.8 mtr. á lengd.
Fáanleglr tilbúnir meö lúxus Innréttingu
og kraftmikilli dlesel vél. Fæst einnig
óinnréttaöur og vélarlaus
Einnig útvegum viö:
40—45 tonna fiskiskip úr trefjaplasti, 16,5 mtr. langt. Margra ára reynsla viö
Skotland hefur sannaö ágæti svo stórra skipa úr trefjaplasti.
Nánari upplýsingar hjá:
SkipasmíÓastöÓ Guómundar Lárussonar hf.
Skagaströnd. Sími 95-4775 og 95-4699.
í Reykjavík hjá:
B.R. Trading, Laugavegi 168, Sími 29595 (Bragi Ragnarsson, heimasími 21330).
*