Morgunblaðið - 16.03.1979, Síða 22

Morgunblaðið - 16.03.1979, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. MARZ 1979 Búnadarþing - Búnaðarþing - Búnaðarþing - Búnaðarþing - Búnaðarþing - Búnaðarþing - Alþingi urðu á mistök við ákvörð- un aukaskattlagn- ingar á sl. hausti „BUNAÐARÞING telur, að 2% nýbyggingargjald, sem Alþingi lögfesti frá síðustu áramótum, komi illa við landbúnaðinn nú, þegar hann þarf að laga sig að mjög breyttum fram- leiðslu- og markaðsskilyrð- um og leita nýrra atvinnu- úrræða til að treysta byggð í sveitum,“ segir í einni ályktun Búnaðarþings og síðar í ályktuninni segir: „Búnaðarþing telur, að Al- þingi hafi orðið mistök á við ákvörðun aukaskatt- lagningar á síðasta hausti varðandi skattlagningu sjálfstæðra atvinnurek- enda svo sem bænda.“ Varðandi nýbyggingargjaldið segir í ályktuninni að á sama tíma komi einnig til framkvæmda ný lagaákvæði um sérstakt bygging- argjald skv. byggingarlögum og skipulagsgjald. Öll þessi gjöld samanlögð hækka verð nauðsyn- legra rekstrarbygginga landbún- aðarins og torvelda landbúnaðin- um sjálfsagðar breytingar til að- lögunar nýjum aðstæðum. Bent er á að gjöld þessi koma ekki á sumarbústaði og bílskúra, en legg- ist hins vegar á búvélageymslur í sveitum. Skorar Búnaðarþing á landbúnaðarráðherra að hlutast til um afnám framangreindrar skattlagningar af útihúsum í Kosning- ar á Bún- aðarþingi VIÐ lok Búnaðarþings 1979 var kjörið í ýmsar stjórnir og nefndir á veg- um Búnaðarfélagsins. Aður hefur verið greint frá kjöri aðal- og vara- manna í stjórn Búnaðar- félags íslands. í stjórn Bændahallarinnar til tveggja ára frá 1. janúar 1980 að telja voru kjörnir Hjörtur E. Þórarinsson, bóndi, Tjörn, og ólafur E. Stefánsson, ráðunautur. Varamenn þeirra voru kjörnir: Hjalti Gestsson ráðunautur, Selfossi, og Guttormur Þormar, bóndi í Geitagerði. Sigurður Líndal, bóndi á Lækjarmóti, var kosinn endur- skoðandi Búnaðarfélagsins til næstu fjögurra ára og vara- maður hans var kjörinn Grímur Arnórsson, bóndi, Tindum. Tveir menn voru kjörnir í búnaðarfræðslunefnd skv. lögum nr. 5/1978 um búnaðarfræðslu en það voru Hjalti Gestsson, ráðunautur, Selfossi, og Egill Bjarnason, ráðunautur, Sauðárkróki. Þá voru þeir Bjarni Guðráðs- son, bóndi, Nesi, Egill Jónsson, ráðunautur, Seljavöllum, og Einar Þorsteinsson, ráðunaut- ur, Sólheimahjáleigu, kosnir í milliþinganefnd til að endur- skoða jarðræktarlögin skv. samþykkt Búnaðarþings þar urrp sveitum og gróðurhúsum. Um ákvörðun aukaskattlagning- ar á sl. hausti segir að við þá ákvörðun hafi sjálfstæðum at- vinnurekendum verið gert að greiða miklu hærri skatta en launþegum miðað við jafnháar tekjur. Sjálfstæðir atvinnurekend- ur hafi ekki heldur fengið sama rétt til frádráttar tekjum vegna fjölskyldu eða barna á framfæri þeirra. Búnaðarþing segir í álykt- un sinni, að það vænti þess, að slík skattlagning endurtaki sig ekki, og skorar á Alþingi að vera á varð- bergi um það efni við breytingar skattalaga eftirleiðis. Harmað hve treglega gengur að fá lögfestar heimildir til að- haldsaðgerða gegn offramleiðslu BÚNAÐARÞING fjallaði í sér- stakri ályktun um framleiðslu- mál landbúnaðarins og segir þar að þingið telji, að það ástand, sem nú hefur skapast í framleiðslu- og sölumálum landbúnaðarins af ýmsum samverkandi orsökum, sanni enn nauðsyn þess að hafa í lögum heimildir til aðhaidsað- gerða gegn offramleiðslu búvara og minnir þingið á samþykkt síðasta Búnaðarþings um þessi mál. Þá harmar Búnaðarþing hve treglega gengur að fá slíkar heimildir lögfestar þrátt fyrir margítrekaðar óskir bændasam- takanna á undanförnum árum. I þessari ályktun sinni fjallaði þingið um frumvarp landbúnaðar- ráðherra til breytinga á fram- ieiðsluráðslögunum, drög hans að þingsályktunartillögu um stefnu- mörkun í landbúnaði og tillögu 10 þingmanna Sjálfstæðisflokksins um stefnumörkun í landbúnaði. I fyrsta lið samþykktar sinnar segir Búnaðarþing að ljóst sé að þetta mál sé enn í mótun á Alþingi og leggur þingið áherzlu á að þannig verði gengið frá þessum ákvæðum, þegar lögfest verða, að Fram- leiðsluráð hafi svigrúm til þess, með samþykki Stéttarsambands- funda, að beita þeim aðferðum, sem heimilaðar verða (kvótakerfi, kjarnfóðurgjaldi), á þann hátt, sem bezt á við hverju sinni, án þess að lagabreytinga þurfi. Lögð er áherzla á að þessi ákvæði verði skýrt orðuð, þannig að ekki orki tvímælis hvernig með þau skuli farið. Búnaðarþing telur það mjög brýnt nú, að framleiðslustefnan í landbúnaði verði endurskoðuð með samstarfi bændasamtaka og stjórnvalda og jafnframt myndað virkt kerfi til að laga framleiðsl- una að aðstæðum hverju sinni. Fagnar þingið þeirri þings- ályktunartillögu sem landbúnað- arráðherra er nú með í undirbún- ingi og einnig að stjórnarandstað- an hefur reifað sama stefnumið og skyld viðhorf. I ályktun sinni segir Búnaðar- þing að það telji, að markmið samræmdrar framleiðslustefnu og byggðastefnu eigi. að vera þessi: 1. Byggð verði viðhaldið í öllum meginatriðum. 2. Búvöruframleiðslan fullnægi jafnan innanlandsþörf, leggi til iðnaðarhráefni og beinist að út- flutningi, þegar viðunandi verðlag næst erlendis. 3. Tekjur og félagsleg aðstaða sveitafólks sé sambærileg við það sem aðrir landsmenn njóta. Til að ná þessum markmiðum þarf: að endurbæta lög um Framleiðsluráð landbúnaðar- ins o.fl. með tilliti til fram- leiðslustjórnar og samræma framkvæmd þeirra laga og hagstjórnaraðgerðir hins opinbera (s.s. niðurgreiðslur, verðtryggingu, byggðastuðning o.fl.) til að laga framleiðsluna að markaði hverju sinni. að miða mjólkurframleiðslu sem mest við innanlandsneyzlu og leitast við að jafna hana eftir árstíðum, að koma á framleiðslu- og sölu- skipulagi, sem nái til allrar kjötframleiðslu í landinu, svo að unnt verði að hafa áhrif á hlutfallið milli framleiðslu- greina. að auka hagfræðileiðbeiningar til bænda og vinna að auknu búreikningahaldi, að stuðla að bættri heyverkun hjá bændum og efla innlendan fóðuriðnað, að efla rannsóknarstarfsemi sem stuðlar að hagkvæmari búskap, að styðja fjölbreyttari atvinnu- möguleika í dreifbýli, bæði nýjar og eldri aukabúgreinar, nýtingu hlunninda og iðnfyrir- tæki. I þriðja lið ályktunarinnar segir: „1. Þar sem mestan hluta framleiðsluvandamála land- búnaðarins má rekja til sam- félagslegra aðstæðna, verðbólgu, ýmissa framleiðsluhvetjandi þátta og skorts á lagaheimildum til stjórnunar, þá telur Búnaðarþing rökrétt að gera þá kröfu til Al- þingis að það tryggi bændum fullt verð fyrir þær umfram-birgðir búvöru sem nú eru í landinu svo og framleiðslu þess tímabils sem líður þar til stjórnunaraðgerðir hafa skapað jafnvægi í fram- leiðslunni. 2. Þingið telur mikilvægt að verðtrygging ríkisins (útflutnings- bætur) haldist, enda þótt tekin sé upp framleiðslustjórnun. 3. Þingið telur að þær gífurlegu sveiflur sem verið hafa á niður- greiðslum búvara til neytenda á liðnum árum hafi haft mjög óheppileg áhrif á sölu varanna á innanlandsmarkaði. Því skorar Búnaðarþing á Alþingi að setja niðurgreiðslunum fastar skorður í lögum, þannig að breytingar þeirra séu bornar undir samtök bænda áður en þær koma til framkvæmda og þær séu að jafnaði ákveðið hlutfall af útsölu- verði búvara. 4. Búnaðarþing telur mikilvægt, með tilliti til aðstæðna að stefnan í fjárfestingar- og lánamálum landbúnaðarins markist skýrt af hagkvæmnissjónarmiðum, þannig að ávallt sé haldið uppi fram- kvæmdum til eðlilegs viðhalds og endurnýjunar, en lagðar hömlur á þær framkvæmdir sem stefna beint að ótímabærri framleiðslu- aukningu." Búnaðarþing leggur jafnframt áherzlu á að áfram verði skipulega unnið að markaðsmálum land- búnaðarins. Þingið skorar á stjórnvöld að vinna að því með viðskiftasamningum að fá fellda niður þá tollmúra og viðskipta- hömlur sem svo mjög hafa staðið í vegi fyrir eðlilegri verzlun með íslenzkar búvörur erlendis. Ávallt sé leitast við að auka valkosti neytenda bæði á innlendum og erlendum mörkuðum með sem mestri fjölbreytni í vinnslu og afhendingu vörunnar. Við afgreiðslu þessa máls flutti Engilbert Ingvarsson, Tyrðils- mýri, breytingartillögu varðandi framleiðslutakmarkanir: verði framleiðendum ákveðið fyrirfram fullt grundvallarverð fyrir ákveðinn hluta framleiðslunnar, en útflutningsverð fyrir það, sem umfram er, ákveðnar verði sér- stakar verðbætur, ef framleiðendur draga úr fram- leiðslu sinni, sérstakar aðgerðir verði viðhafðar til að auka búvöru- framleiðslu, verði hún of lítil fyrir innanlandsþarfir í einstökum landshlutum, afurðasölufélögum yrði falin framkvæmd fram- leiðslutakmarkana eftir ákveðnum reglum, gefnir verði út skömmtunarseðlar vegna kjarnfóðurskömmtunar og lögfest verði strax að teknir skuli upp beinir samningar við ríkisvaldið til að auðvelda framkvæmd aðhaldsaðgerða. Þessi breytingatillaga Engilberts var felld. Sérstakt átak til að auka súgþurrkunina Aðgerðir til þess að örva bændur til að taka í þjónustu sína fullkomnari súgþurrkun en nú er víða, voru til umræðu á Búnaðar- þingi og samþykkti þingið að fela stjórn Búnaðarfélags Islands að beita sér fyrir eftirgreindum aðgerðum: 1. Bændum, sem setja upp hjá sér fullkomna súgþurrkun, verði gef- inn kostur á því, að framkvæmdin verði tekin 'út, þegar er hún er fullfrágengin, og jafnframt yrði styrkur út á þessa framkvæmd greiddur ekki síðar en 13 mánuð- um eftir úttekt. 2. Kannað verði um möguleika á því að fá tvenns konar lán til þessara framkvæmda. a) Víxillán til 6 mánaða, er greiddist með jarðabótastyrknum. b) 2 ára lán fyrir 2/3 kostnaöar að frádregnum styrknum. 3. Leitað verði eftir hjá Rafmagns- veitum ríkisins um möguleika á ódýrara rafmagni til súgþurrkun- ar en nú er. 4. Hertur verði áróður fyrir uppbyggingu þriggja fasa rafmagnslína með aukinni flutn- ingsgetu um byggðir landsins. 5. Jafnframt verði búnaðarsam- böndunum falið að kanna hverju á sínu svæði, ástand í súgþurrk- unarmálum og gera tillögur til úrbóta, þar sem ástæða er til.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.