Morgunblaðið - 16.03.1979, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. MARZ 1979
25
Stjórnmálaskólinn
tókst með ágætum
segir Eyþór I>órdarson formadur frædslu-
nefndar Sjálfstæðisflokksins í Njardvíkum
Ég fór í Stjórnmálaskólann til aö
styrkja sjálfan mig í framkomu, ef
ég þyrfti að standa upp á fundum.
Þar sem ég er í stjórn ungra sjálf-
stæðismanna í Njarðvík og ætla að
beita mér í jtólitík tel ég þetta
nauðsynlegt. Ég vænti þess einnig,
að ég fengi að vita meira um stefnu
Sjálfstæðisflokksins, en hún hefur
ekki legið á lausu og maður hefur
lent í erfiðleikum í viðræðum við
vinstri menn, sem virðast hafa
svörin á reiðum höndum.
Ég hef tvímælalaust grætt á þátt-
töku minni í starfi skólans og fræðzt
um ýmislegt sem ég vissi lítið um
áður. Dæmi um það er erindi
Róherts T. Árnasonar um varnar- og
NÝLEGA var haldinn á Suður-
nesjum stjórnmálaskóli Sjálfstæðis-
flokksins, 29 íbúar fjögurra sveitar-
félaga á Suðurnesjum sóttu
skólann, sem stóð í 5 daga, en hann
var haldinn í hinu nýja félags-
heimili sjálfstæðismanna í
Njarðvík.
Skólinn, sem var mikill hafsjór af
fróðleik um hina ýmsu þætti félags-
starfa, þjóðmála og stjórnsýslu var
sóttur af fólki á öllum aldri eða frá
16—54 ára, bæði konum og körlum,
sem hafa haft afskipti af stjórn-
málum og eru nú f forystu og eins
fólki sem aldrei hefur nálægt
neinni pólitík komið, sagði Eyþór
Þórðarson, formaður fræðslu-
nefndar sjálfstæðisfélaganna á
Suðurnesjum, þegar Morgunblaðið
leitaði hjá honum frétta af starfi
sjálfstæðisfélaganna þar syðra og
af starfi stjórnmálaskólans, sem nú
var í fyrsta skipti haldinn á vegum
sjálfstæðisfélaganna á
Suðurnesjum.
Frá stjórnmálaskólanum f hinum glæsilegu salarkynnum Sjálfstæðisflokksins í Njarðvíkum.
Opið hús
— Það hefur verið dauft yfir
starfi sjálfstæðisfélaganna á Suður-
nesjum frá því um síðustu kosninar,
sagði Eyþór ennfremur. Hugmyndir
um stjórnmálaskólann komu fram á
aðalfundi Sjálfstæðisfélagsins
Njarðvíkings um miðjan janúar sl. Á
þeim fundi var m.a. rætt um það
mikla fylgistap, sem Sjálfstæðis-
flokkurinn varð fyrir í síðustu
kosningum, en tap flokksins var
tilfinnanlegast á Suðurnesjum því að
þar tapaði flokkurinn verulegu fylgi
í öllum sveitarfélögunum. Á fundin-
um ríkti mikill einhugur um að auka
starfsemi sjálfstæðisfélaganna og
umfram allt að endurheimta hið
orðna fylgistap.
Á þessum aðalfundi var samþykkt
tillaga þess efnis að leita samstarfs
við öll sjálfstæðisfélögin á Suður-
nesjum. Viku síðar var boðað til
fundar með forystumönnum allra
sjálfstæðisfélaganna, en á þeim
fundi var ákveðið að halda framvegis
að stjórnmálaskólinn hafi heppnast í
alla staði með ágætum, en það gefur
fyrirheit um, að slíkt skólahald verði
árlegur þáttur í starfi sjálfstæðis-
félaganna á Suðurnesjum.
Laugardaginn 3, marz var haldið
upp á skólaslitin. í því sambandi
fóru þátttakendur í hópferð til
Reykjavíkur. Þar var m.a. Sjónvarp-
ið skoðað undir leiðsögn Ásgeirs
Valdimarssonar, dr. Gunnars
Thoroddsen, form. þingflokksins
sýndi þátttakendum Alþingishúsið,
sagði sögu þess og skýrði störf þess
og þingflokksins. Því næst var haldið
í Valhöll, húsið skoðað og þegnar
veitingar í boði flokksins.
Það er nú að verða áþreifanlegt, að
það var ekki að öllu leyti neikvætt,
að Sjálfstæðisflokkurinn tapaði fylgi
í sl. kosningum. Það er nú að sýna
sig, að tapið er nú að þjappa sjálf-
stæðisfólki saman til nýrrar sóknar,
fólki sem jafnvel var óvirkt í starfi
flokksins til þessa.
Við teljum, að sú sókn sé hafin,
sókn sem gæti tryggt Sjálfstæðis-
flokknum meirihlutafylgi í næstu
flokknum, en ég tel, að hann hafi
ekki lagt nægilega rækt við ungt
fólk.
Það er ekki beint tízkufyrirbrigði,
að ungt fólk sé í Sjálfstæðisflokkn-
um, en það var tízkufyrirbrigði hjá
ungu fólki að vera í Alþýðuflokkn-
um. En þetta er mikið að breytast,
sérstaklega þar sem þáttur öryggis-
málanna er að koma svo mikið inn í
dæmið. Ungt fólk er farið að láta
pólitík meira til sín taka en áður.
Það mótar sér fyrr skoðanir. Þó er ég
ekki fylgjandi lækkandi kosninga-
aldri, þar sem ungt fólk er ekki
mótað fyrr en í fyrsta lagi um
tvítugt.
Ég heí
grætt á þessu
Elínborgu Einarsdóttur húsmóður
í Njarðvík fórust svo orð:
Ég fór í Stjórnmálaskólann bæði
til þess að fræðast um stefnu flokks-
ins, sem mér hefur fundizt erfitt að
komast að og til þess að ég geti
staðið upp og tjáð hugsanir mínar.
öryggismál. Þar kom hann inn á
hluti, sem maður hefur aldrei hugsað
um áður.
Ég vona, að þar sem hér er mikil
og góð þátttaka ungs fólks verði það
til þess að efla starfsemi Sjálf-
stæðisflokksins, enda tel ég að ungt
hægri fólk sé í sókn.
Ungt fólk á
að vera virkara
Elínborgu Ellertsdóttur, sem ný-
komin er heim erlendis frá, fórust
svo orð:
Ég hef alla tíð talið mig sjálf-
stæðismann. Ég er nýkomin heim að
utan og hef ekki fylgzt vel með að
undanförnu og notaði því tækifærið
til þess að kynna mér stefnu Sjálf-
stæðisflokksins. Auk þess hafði ég
áhuga fyiir námskeiðinu í ræðu-
mennsku, en ég vissi að það mundi
hjálpa mér til þess að koma fram og
tjá mig betur.
Mér finnst Stjórnmálaskólinn
hafa tekizt mjög vel og ég hef fræðzt
um margt, sem ég vissi ekki áður,
ítarlega við fráfarandi stjórnvöld og
núverandi, haldið tug funda með
þingmönnum kjördæmisins og beitt
sínum áhrifum til hins ítrasta að fá
skilning á þörfum Sjöstjörnunnar og
byggðarlagsins í heild án árangurs.
Það hafa verið lögð fram plön, sem
hafa mætt skilningi, þar sem þau
fjalla m.a. um að gera út á úthafs-
rækju og möguleikar hafa verið fyrir
hendi til kaupa á tilbúnum rækju-
togara, sem kosta mundi innan við
milljarð króna, tiltölulega nýlegt
skip. Það er því engan veginn ætlun-
in að bæta við skipaflotann til að
sækjast eftir bolfiskafla, heldur nýta
betur aðra fiskstofna.
Það er furðulegt, að eftir alla þá
vinnu, sem bæjaryfirvöld ásamt
Sjöstjörnumönnum, hafa lagt í þessi
mál, að við skulum ekki enn hafa
fengið úrlausn á þessari brýnu þörf,
og erum við Suðurnesjamenn farnir
að halda það, að við séum orðnir
einhvers konar annars flokks þjóð-
félagsþegnar. Enda sér hver maður,
að það er ekkert vit í að liggja með
fjárfestingu upp á nær tvo milljarða
í frystihúsi og heimila því ekki að
afla sér hráefnis.
Kannski kann það að vera sú
skýring á þessu máli, þegar ég
minnist á að Suðurnesjamenn séu
annars flokks þjóðfélagsþegnar,
þegar vægi atkvæða hér á
Suðurnesjum eru 3—4 atkvæði gegn
einu atkvæði í dreifbýli til þess að
hafa áhrif á löggjafarþingið.
Hinn bágborni hagur útgerðarinn-
ar, sem mestmegnis hefur skapazt
vegna aflabrests og rangs fiskverðs
síðustu mánuði hefur skert greiðslu-
getu sjávarútvegsins, sem aftur
hefur haft þær afleiðingar, að allur
þjónustuiðnaðurinn hér við sjávar-
síðuna á í miklum greiðsluerfiðleik-
um, og það er hart að þurfa að segja
þann sannleika, að ef ekki hefði verið
til staðar hér varnarliðsvinna, þá
væri landflótta þegar farið að gæta á
þessu svæði.
Eitt skipu-
lagssvæði
Ég er sammála þingsályktunar-
tillögu frá alþýðuflokksmönnum um
að stokka þurfi upp varnarmála-
nefndina á þann veg, að fulltrúum
þessa svæðis sé gefið meira umboð
til að hafa áhrif á gang mála á
Keflavíkurflugvelli.
Keflavíkurflugvöllur er samræmt
skipulagssvæði við Keflavík og
Njarðvík og hefur verið starfandi
síðastliðin 12 ár samræmd skipu-
lagsnefnd á þessum stöðum, sem
hafa haft skipulagið í stöðugri end-
urskoðun þessi ár. En þar sem áhrifa
Suðurnesjamanna gætir ekki nóg
innan varnarmálanefndar, hefur
hlutur þeirra verið alvarlega fyrir
borð borinn í mörgum málaflokkum
InKvar Jóhannsson
Elfnborg Einarsdóttlr
Elfnborg Ellertsdóttir
Eyþór ÞórAarson
svokallað opið hús fyrir allt sjálf-
stæðisfólk á Suðurnesjum annan
mánudag hvers mánaðar. Auk þess
var samþykkt að leita aðstoðar hjá
fræðslunefnd flokksins í Reykjavík
um rekstur stjórnmálaskóla, er yrði
haldinn á Suðurnesjum.
Til að annast um þennan nýja þátt
í starfi sjálfstæðisfélaganna á
Suðurnesjum var kosin sérstök
fræðslunefnd, en hana skipa auk mín
Sigríður Áðalsteinsdóttir og
Kristján Einarsson.
Við í fræðslunefndinni viljum
alveg sérstaklega þakka formanni
fræðslunefndar Sjálfstæðisflokks-
ins, Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, og
skrifstofustjóra flokksins, Má
Jóhannssyni, fyrir veitta aðstoð við
undirbúning allan svo og gerð
kennslugagna og útvegun hinna
ellefu mjög hæfu leiðbeinenda, sem
kenndu við skólann. Það er álit allra,
alþingiskosningum, sem gætu orðið
jafnvel fyrr en nokkurn grunar.
Alþýðuflokkurinn
var tízkufyrirbæri
Einn af þátttakendunum á stjórn-
málaskólanum var Rósa Ingvars-
dóttir, sem starfar hjá íslenzkum
markaði á Keflavíkurflugvelli. Hún
hafði m.a. þetta að segja:
Ég er mjög hlynnt hægri stefnu,
en taldi mig ekki mig ekki hafa næga
þekkingu á stjórnmálum og stefnu
Sjálfstæðisflokksins til þess að
mynda mér fastar skoðanir. Þess
vegna vildi ég notfæra mér reynslu
þeirra, sem hingaö komu og hafði
sérstakan áhuga á ræðunámskeið-
inu, en það er undirstaða þess að
vera þátttakandi í pólitík að geta
komið fyrir sig orði. Ég hef áhuga
fyrir að verða virk í Sjálfstæðis-
Ég lendi oft í stjórnmálaumræðum
og þá finnst mér ég ekki vita nóg.
Eg hef grætt á Stjórnmálaskólan-
um að því leyti, að ég hef aðeins
komizt inn í ræðumennskuna og sé
þess vegna ekkert eftir því að hafa
farið í hann.
Fólk almennt hefur verið mjög
hikandi með stefnu sína, finnst að
það hafi ekki fengið nóg út úr því,
sem það treysti á og veit þar af
leiðandi ekki hvernig það á að líta á
þjóðmálin. Þess vegna fannst mér
það mjög nauðsynlegt að fara á
Stjórnmálaskólann og afla mér frek-
ari þekkingar á störfum og stefnu
Sj álf stæðisflokksins.
Ungt hægri
fólk í sólkn
Guðbjarti Kristjáni Greipssyni
húsasmíðanema í Njarðvík fórust
svo orð:
bæði um stefnu flokksins eins og hún
er í dag og viðhorf hans til þess, sem
er að gerast. Ég vil hvetja ungt fólk
til að vera meira með í pólitík og
kynna sér sjálfstæðisstefnuna.
Þarf að segja upp
50—60 manns
Ingvari Jóhannssyni bæjarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í Njarðvík
fórust svo orð um ástand atvinnu-
mála: Þau eru vægast sagt í mjög
slæmu ástandi, þar sem stærsta
fyrirtækið í Njarðvík, sem jafnframt
er það fullkomnasta á Suðurnesjum,
hefur verið í lágmarksrekstri, því að
Sjöstjarnan hefur ekki fundið náð
fyrir augum stjórnvalda, fyrri ríkis-
stjórnar og þessarar, til togarakaupa
og hrjáir því hráefnisskortur starf-
semi hússins.
Bæjarstjórn og atvinnumálanefnd
byggðarlagsins hafa rætt þessi mál
af opinberum aðilum. Ég vil nefna
aðeins eitt dæmi þessu til sönnunar,
þótt af mörgu sé að taka:
Við höfum legið í mörgum utan-
ríkisráðherrum og varnarmálanefnd
á umliðnum tveimur áratugum um
það, að fá lyft upp varnarliðsgirðing-
unni, sem aðskiiur Keflavík og
Njarðvík til þess að þessar tvær
byggðir geti náð eðlilegri þróun
saman með sín gatnakerfi og byggðir
án nokkurs árangurs. I dag sem fyrr
eru þessar tvær byggðir tengdar með
einum átta metra breiðum vegi, en
skipulagið gerir ráð fyrir fjórum. Á
sl. 20 árum hafa minnst 10 dauðaslys
orðið á þessum vegi og segir það sína
sögu um það neyðarástand, sem ríkir
í þessum efnum. Ég vonast til þess,
að hinn nýkjörni formaður varnar-
málanefndar Helgi Ágústsson ásamt
henni taki þetta mál föstum tökum,
því að það hefur veigamikið gildi í
okkar skipulagsmálum.