Morgunblaðið - 16.03.1979, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. MARZ 1979
Sveinbjörn Beck
—Minningarorö
Fæddur 26. júlí 1960
Dáinn 6. marz 1979
Við stöndum orðlaus og horfum
í spurn til fjallsins, sem dag hvern
gleður augað með margbreytileika
sínum. Nú hefur það birt okkur
nýja og áður óþekkta hlið sína, því
sú harmafregn hefur borist, að
Sveinbjörn Beck hafi ásamt bekkj-
arbróður sínum farist í snjóflóði í
Esjunni einn fegursta og sólbjart-
asta dag þessa vetrar.
Hraustur, tápmikill og glæsileg-
ur piltur, vel gerður á alla lund,
einkasonur og yngsta barn for-
eldra sinna. Oræð náttúra hefur
orðið honuni og félaga hans að
aldurtila.
I huganum bregður fyrir svip-
myndum. Sveinbjörn fyrir 8—9
árum í Álaborg, rólegur og yfir-
vegaður drengur, brosleitur og
bjartur yfirlitum. Síðar, 15 ára
sumarmaður í góðu yfirlæti hjá
frændfólki sínu, Hans og Guðrúnu
Beck á Sómastöðum, sem veittu
honum sem og öllum öðrum af
sínu mikla hjartarými. Hann var
glaður í bragði vegna nýfengins
póstkorts frá foreldrum sínum úr
Norðurlandaferð þeirra, það var
gleði án öfundar. Það kitlaði hug-
ann að klífa Sómastaðatind og
einn dag síðdegis er tekinn sprett-
ur ásamt yngri frænda upp í
hlíðina, svona rétt til að brýna
kraftana og kynna sér, hvað til
þurfi fyrir fjallgönguna. Stuttu
síðar er lítil frænka búin að príla
fram á ystu klettasnös við bæjar-
lækinn, þá er Sveinbjörn hávaða-
laust en eldsnöggt kominn við hlið
barnsins og ber það heim í bæ.
Næsta sumar enn á Sómastöðum,
nú er langþráðu marki náð, öku-
skírteinið fengið og ótaldir snún-
ingar sem sinna þarf sem bílstjóri.
Síðast eru það svipmyndir frá
þessum vetri. Gengið til náms og
leiks með vinum og frændum,
áhugamál að mótast, ekki hvað
síst útivist og fjallaferðir.
Framtíðin virtist blasa við
Sveinbirni, hann stóð á 18 ára
þröskuldi lífsins, næst síðasti
vetur menntaskólanáms brátt á
enda runninn, ótal óskir og fram-
tíðarvonir í handraðanum, þótt
ekki væri haft hátt um allt. — Því
eru umskiptin svo snögg og sár.
Við krefjumst langs lífs til handa
þeim, sem veita okkur hamingju
og við bindum vonir við. Þó vitum
við vel, að það er ekki lengd
samvistanna heldur gæði sem
skipta máli.
Sveinbjörn var gleðigjafi þeim
sem honum kynntust, því þökkum
við Þorvarður og börn okkar bjart-
ar svipmyndir úr ævi Sveinbjörns
og biðjum foreldrum hans og
systrum styrks í þeirra þungbæru
sorg.
Dóra Skúladóttir.
+
Móöir mín
VIGDÍS BJÖRNSDÓTTIR,
kennari,
andaöist 14. þ.m. aö Héraðshælinu Blönduósi.
Björn Eiríkston.
+ Eiginmaöur minn og faðir okkar
ROY E. ABBEY,
2259 Nelson Drive
Schenectady, N.Y.
andaöist 6. marz s.l.
María Gréta Abbey,
Eirik Abbey,
Mark G. Abbey.
Minningarathöfn um son okkar og bróöur
EIRÍK GUNNARSSON,
Aöalstraoti 16, Raykjavík,
sem fórst meö m.b. Ver frá Vestmannaeyjum, fer fram frá Dómkirkjunni,
laugardaginn 17. marz kl. 10.30.
Sigrún Hjördís Eiríksdóttir, Gunnar Haraldsson,
Haraldur Gunnarsson.
+
Þökkum auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför eiginkonu minnar,
móöur, tengdamóöur, ömmu og langömmu okkar,
SUNNIFU NÍELSDÓTTUR,
Holtagerði 59, Kópavogi.
Karl L. Jakobsson,
Margrót Karlsdóttir Magnús Magnússon,
Níels Karlsson Guörún J. Árnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega samúö og hlýhug viö andlát og útför
SIGURBJARGAR ÓLÍNU ÓLAFSDÓTTUR,
Sporöagrunni 4,
Reykjavlk.
Sérstakar þakkir viljum viö færa læknum og hjúkrunarfólki á deild D
Landspítalanum fyrir góöa umönnun.
Guö blessi ykkur öll.
Ástvinir hinnar létnu.
Lána í
erlendri
mynt til
nýsmíða
fiskiskipa
innanlands
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
neylega breytt reglugerð fyrir
Fiskveiðasjóð íslands um lána-
Þuríður Markúsdótt-
ir — Minningarorð
Fegursta gjöf, sem okkur
hlotnast á lífsleiðinni er samfylgd
góðra samferðamanna, sannra
vina.
Þakklæti fyrir slíka gjöf ríkir í
hugum okkar allra, sem áttum
Sveinbjörn Beck að samferða-
manni og vini.
I öllu fari hans komu glögglega
fram áhrif góðs og kærleiksríks
uppeldis foreldra hans, Ástu og
Árna Beck yfirvélstjóra. Mann-
kostum var hann búinn svo ríku-
lega, að óvenjulegt má teljast.
Allir góðir eiginleikar hans náðu
að þroskast, þar sem saman fóru
góðar gáfur, glæsileiki, hógværð
og prúðmennska.
Tómstundir frá námi voru not-
aðar til hollrar og þroskandi iðju.
Næmur fyrir náttúrufegurð, voru
fjalla- og óbyggðaferðir stundaðar.
í þessum ferðum gafst tækifæri til
að kynnast náttúru landsins náið
og þróttur og þor æskumannsins
efldist í erfiðum fjalla- og jökla-
göngum.
Tilgangur ferðanna var þó tví-
þættur, því að auk ánægju útivist-
ar var stefnt að þjálfun líkama og
sálar til þess að geta veitt öðrum
hjálp og aðstoð ef í nauðir ræki og
slys eða óhöpp bæri að höndum.
Góður liðsauki hefði hverri
hjálparsveit verið að slíkum pilti,
sem Sveinbjörn var.
Genginn er góður drengur. í
hugann koma orð Páls postula:
„Lát engan líta smáum augum á
æsku þína.“
Þessi góða áminning virðist
hafa verið greypt í huga Svein-
bjarnar Beck frá fæðingu. Sam-
kvæmt henni lifði hann og starfaði
og hún mótaði lífsferil hans allan.
Þannig auðnaðist honum að vera
vinum sínum og samferðamönnum
fagurt fordæmi.
Sveinbjörn er öllum harmdauði,
er hann þekktu en í hugum okkar
vina hans og vandamanna er
minningin um hann vafin heið-
ríkju góðvildar. Við þökkum af
alhug samfylgdina og biðjum for-
eldrum hans systrum og fjölskyldu
styrks i þungum raunum og bless-
unar Guðs alla ókomna daga.
Blessuð sé minning góðs dregns.
Fjölskyldan
Hávallagötu 15
F. 24. nóvember 1900.
D. 8. marz 1979.
D«yr fé
deyja frændr
deyr sjálfr et sama
en orðstfrr
deyr aldrigi
hveims sér góðan getr.
Okkur tengdasonum Þuríðar lang-
ar til að minnast hennar með
nokkrum fátæklegum orðum og
þakka alla þá vinsemd og hlýhug
er hún sýndi okkur frá fyrstu
kynnum, er við hittumst fyrst á
heimili hennar og eiginmanns að
Reynimel 24 Reykjavík, svo og alla
tíð síðan.
Þuríður var fædd þ. 24.
nóvember 1900 í Reykjavík dóttir
hjónanna Arnþrúðar Símonar-
dóttur frá Bjarnastöðum í Ölfusi
og Markúsar Guðmundssonar frá
Torfastöðum í Grafningi.
Hún var yngst systkina,
systranna Sigþrúðar og Gíslínu,
sem ein lifir systkin sín og
bræðranna Guðmundar og Krist-
ins. Þuríður ólst upp í föðurhúsum
við Framnesveg í Reykjavík og bjó
þar, eða þar til hún giftist 29.
september 1923 Guðmundi Eiríks-
syni verkstjóra, oft kenndan við
Þormóðsstaði, enda var hann um
árabil verkstjóri hjá hinu lands-
kunna útgerðarfyrirtæki Alliance.
Mann sinn missti Þuríður árið
1972.
Fyrstu hjúskaparárin bjuggu
þau hjónin að Þormóðsstöðum við
Skerjafjörð og byggðu þau þar,
ásamt Steinþóri bróður Guðmund-
ar, sitt fyrsta hús er nefnt var
„Suðurhlíð". Þar bjuggu þau til
ársins 1945 er þau fluttu í nýbyggt
hús við Reynimel 24, er þeir
bræður byggðu saman.
Þau hjónin eignuðust tvær dæt-
ur, Elínu gifta Inga Jónssyni og
Arnþrúði Guðlaugu, gifta Guð-
mundi Ingimarssyni. Einnig ólu
þau upp frá fæðingu dótturson
systur hennar Sigþrúðar, Reynir
Markússon. Barnabörn hennar eru
fjögur og barnabarnabörnin þrjú.
Síðastliðið sumar veiktist Þuríð-
ur og var þá um skeið á spítala og
er hún kom aftur heim, var ljóst
að hún var eigi söm. Um tíma eftir
heimkomuna af spítalanum bjó
hún heima hjá sér að Framnesvegi
3, en brátt var ljóst að hún gat eigi
búið ein og eftir það var hún til
skiptis á heimili dætra sinna, sem
önnuðust hana af mikilli alúð og
kostgæfni. Ennfremur dvaldi hún
um tíma á heimili dóttursonar síns
Guðmundar og konu hans Sólfríð-
ar, sem vildu og gerðu allt fyrir
hana ásamt börnum sínum tveim.
I desember s.l. var hún á ný flutt
á spítala og þar lá hún þar til hún
andaðist hinn 8. marz s.l.
Við sem kynntumst Þuríði,
minnumst hennar sem hinnar
rólyndu og dagfarsprúðu konu, er
ávallt var reiðubúin að rétta
hjálparhönd ef þess þurfti með.
Barnabörnin, Guðmundur, Jón
Ingi, Markús og Örn og barna-
barnabörnin Elín Björg, Pétur
Ingi og Þuríður Anna, senda
ömmu sinni og langömmu á
þessari hinztu kveðjustund bestu
þakkir sínar fyrir allar ánægju-
stundirnar er hún veitti þeim á
lífsleiðinni.
Við tengdasynirnir þökkum
henni á þessari kveðjustund alla
þá vinsemd og hlýhug og góðar
stundir er við áttum með henni og
eiginmanni hennar gegnum árin.
Blessuð sé minning góðrar
te'ngdamóður.
Tengdasynir.
Kveðja frá skólafélögum
ÞAU LEIÐU mistök urðu við
birtingu minningargreinar um
Stefán Baldursson og Sveinbjörn
Beck í gær, að niðurlag greinar-
innar féll niður og nafn höfund-
ar, ranglega tilgreint. Morgun-
blaðið biður velvirðingar á
þessum mistökum. — Minningar-
greinin fer hér á eftir í heild.
★
Sveinbjörn Beck
Fa>ddur 26. júlí 1960.
Dáinn 6. marz 1979.
Stefán Baldursson
Fæddur 7. desember 1960.
Dáinn 6. marz 1979.
Það var hljóður hópur, sem sat
tíma í 5. bekk X í Menntaskólanum
í Reykjavík árdegis miðvikudaginn
7. marz. Þrjú auð sæti minntu á þá
hörmulegu frétt, sem borizt hafði
snemma um morguninn. Tveir
voru horfnir úr okkar hópi, og við
vissum, að þeim yrði ekki aftur-
komu auðið.
Daginn áður hafði annar andi
einkennt þennan bekk, andi bjart-
sýni og lífsgleði, sem svo oft ríkir,
þegar ungir eru saman komnir.
Engan grunaði þá, að þessi göngu-
ferð á Esju, sem þeir höfðu rætt
um við okkur, fullir gáska og
tilhlökkunar, myndi verða þeirra
hinsta för. Við vissum öll, að þeir
höfðu farið margar slíkar ferðir
jafnt að sumri sem vetri, enda
voru fjallgöngur og náttúruskoðun
sameiginlegt áhugamál þeirra.
Þeir lögðu af stað strax að loknum
skóladegi og klifu fjallið, en á
niðurleið brast snjóhengja og tók
Stefán og Sveinbjörn með sér.
Stefán Baldursson var óvenju
brosmildur og bjartsýnn piltur.
Hann var ritstjóri De rerum nat-
ura, blaðs Vísindafélags M.R. og
nutu námshæfileikar hans og
brennandi áhugi sín vel á þeim
vettvangi.
Sveinbjörn Beck var ekki einn
þeirra, sem sífellt trana sér fram,
en í augum þeirra sem þekktu
hann, var hann maður glaðlyndur
og gefinn fyrir gáska. I okkar hópi
naut hann sín jafnan vel, og því er
skarð fyrir skildi við fráfall hans.
Nú, er við fylgjum félögum
okkur tveimur til grafar, þökkum
við þeim hina allt of stuttu, en
ánægjulegu samfylgd. Fjölskyld-
um piltanna og öllum þeim, er þá
þekktu, vottum við dýpstu samúð.
Bekkjarsystkin
í 5. bekk X, M.R.
er heimilað að lána í erlendri mynt til nýsmíða fiskiskipa innanlands og meiri háttar endurbóta eftir nánari ákvörðun sjóðsstjórnar + Móöir mín, tengdamóöir og amma,
hverju sinni.
INGIBJORG GUDMUNDSDÓTTIR,
Heimild þessi er í samræmi við Lindarhvammi 14,
tillögur starfshóps á vegum iðnað- Hafnarfiröi,
ar-, sjávarútvegs- og viðskipta- ráðuneyta og er ætlað að stuðla að andaöist í Landakotsspítala miövikudaginn 14. þ.m.
bættri samkeppnisaðstöðu inn- Hilmar Þ6r Björnaaon, Sigurveig Magnúadóttir
lendra skipasmíðastöðva gagnvart erlendum aðilum. og synir.