Morgunblaðið - 16.03.1979, Page 32
AU(»LVSINíí ASÍMINN Elí:
22480
2W»raunbInl)iíi
Verzlið
í serverzlun meö
litasjónvörp og hljcmtæki.
Skipholti 19,
\ BUOIN SÍmi
' y 29800
FOSTUDAGUR 16. MARZ 1979
Forysta VMSÍ reynir að bjarga ríkisstjórninni:
Félagslegar aðgerðir verði
mótvægi verðbótaákvæða?
LjHemjrnd Mbl.: EmlHa
Örninn á
Brjáns-
lœk dauður
ÖRNINN, sem bjargað var
særðum fyrir 7 vikum á bæn-
um Brjánslæk á Barðaströnd,
drapst í gær, að því er talið er
vegna lungnabólgu. Eru líkur
tii að fuglinn hafi ofkælzt áður
en honum var bjargað úr sjón-
um á sinum tima í hörku gaddi
og ekki náð sér eftir það, en
sárið á siðu hans hafðist hins
vegar vel við.
I samtali við Ragnar bónda á
Brjánslæk í gær sagði hann, að
fuglinn hefði verið í rúmgóðri
hlöðu undanfarnar vikur og þar
hefði hann flogið knálega um og
étið það sem honum var borið, en
í fyrradag bar hann sig illa og
gargaði í fyrsta skipti síðan hann
komst undir manna hendur. Átti
hann erfitt með að ná flugi og í
fyrrinótt drapst fuglinn.
„Heldur hefði ég viljað missa
rollur en þennan fugl,“ sagði
Ragnar, „maður var farinn að líta
á hann eins og heimilismann. Við
reyndum að gera eins og við
gátum honum til bjargar og það
horfði vel, sárið var farið að
holdfyllast vel, en svona fór nú
það.“
Örninn verður sendur suður og
krufinn í Náttúrufræðistofnun-
inni en Ragnar kvaðst hafa mik-
inn hug á að fá haminn af
fuglinum sem hann hefði lagt svo
mikla rækt við að reyna að
bjarga.
— Fundur fyrirhugaður í VMSÍ og hjá Alþýðusambandi Austurlands
ÓLAFUR Jóhannesson, forsætis- það mikill og alvarlegur þverbrest-
ráðherra, lagði frumvarp sitt ur í stjórnarsamstarfið, að óhugs
fram í efri deild Alþingis í gær og andi væri að stjórnin gæti starfað
er það óbreytt frá því er það var
fyrst kynnt samráðsaðilum í byrj-
un vikunnar. Ráðherrar Alþýðu-
handalagsins létu í gær bóka á
ríkisstjórnarfundi harðorð mót-
mæli við því að forsætisráðherra
legði frumvarpið fram, sem þeir
telja að geti torveldað samkomu-
lag innan stjórnarinnar. Þá mót-
mæla þeir „ósvífnum fullyrðing-
um samráðherra“ sinna um það,
að þeir hafi ekki haft fyrirvara
um ýmis atriði frumvarpsins.
Fátt gerðist innan ríkisstjórnar-
flokkanna annað en það, að ein-
hver gerjun er nú í Verkamanna-
sambandi íslands og umhverfis
það og hefur formannaráðstefna
VMSÍ verið boðuð um helgina.
saman af heilindum eftir þetta.
Því yrði hún úr þessu hvorki fugl
né fiskur og væri því bezti kostur-
inn að ljúka samstarfinu nú, í stað
þess að halda í óvissu áfram.
Strax og spurðist um fund
Verkamannasambands íslands,
sem enn mun þó ekki hafa verið
boðaður, fóru ýmsir hópar innan
Alþýðubandalagsins af stað og var
boðaður fundur í Alþýðusambandi
Austurlands. Formenn félaga inn-
an ASA munu hittast á fundi á
Eskifirði í dag klukkan 14 og sagði
Sigfinnur Karlsson, formaður
ASA, í samtali við Morgunblaðið,
að tilefni fundarins væri að ræða
um síðustu stjórnmálaviðburði.
Þá hafði Morgunblaðið þær
spurnir úr Alþýðuflokknum í gær,
að umræður formanns og varafor-
manns VMSÍ við forsætisráðherra
í fyrradag hefðu ekki snúist um
breytingar á verðbótakafla frum-
varps forsætisráðherra, heldur um
félagslegar hugmyndir, sem komið
gætu sem mótvægi við verðbóta-
kaflann. Þetta er þó ekki sam-
hljóða því, sem blaðið hefur heyrt
úr Alþýðubandalaginu, en þar
segja menn að umræðuefnið hafi
verið breytingar á verðbótakaflan-
um.
Forystumenn Verkamannasam-
bandsins velta nú fyrir sér ýmsum
hugmyndum um það á hvern hátt
sé unnt að bjarga ríkisstjórninni.
Hugmyndir þeirra eru um félags-
legar umbætur, sem koma eiga
láglaunafólki til góða og gætu
mildað áhrif verðbótakafla frum-
varps Ólafs Jóhannessonar. Þessar
hugmyndir virðast þó ekki eiga
upp á pallborðið hjá öðrum hópum
innan Alþýðubandalagsins, sem
vilja ekki gefa mikið fyrir yfirlýs-
ingar ríkisstjórnarinnar um
félagslegar umþætur. Síðla á síð-
asta ári hafi ríkisstjórnin, er hún
afnam allmörg vísitölustig, gefið
fögur fyrirheit um félagslegar
umbætur, sem síðan hafi lítið sem
ekkert frétzt af. Því mun óvíst,
hvort slíkur pakki hlýtur nokkurn
hljómgrunn innan Alþýðubanda-
lagsins.
Þá heyrði Morgunblaðið þær
raddir í Alþýðubandalaginu, að við
þessa síðustu viðburði hefði komið
Vegfarendur á Austurvelli
ráku upp stór augu þegar þeir
sáu skyndilega ungan mann
hlaupa eftir þakmæni Hótel
Borgar og héldu þvi e.t.v.
sumir. að þarna færi einhver
gesturinn, sem fengið hefði sér
of mikið neðan í því. Hins
vegar kom í Ijós, að pilturinn
var að ryðja klaka ofan af
þakinu, svo að menn drógu
andann léttar.
r.jóam. Mbl Ól.K.M.
Aflahrota á Eyjamiðum
og í Meðallandsbugt
MJÖG góður afli hefur verið á
Eyjamiðum og úti af Vatnajökli
að undanförnu og hefur dagsafl-
inn í Eyjum komizt upp í 700
tonn af liðlega 60 bátum. Þá
hefur afii Hornafjarðarbáta verið
mjög góður og þann 11. marz s.l.
höfðu 15 bátar þar landað um
4600 tonnum af bolfiski miðað við
2300 tonn á sama tíma í fyrra. Þá
Geir Hallgrímsson á Varðarfundi:
Greidum atkyædi
gegn frumv. Olafs
Engin aðild að ríkisstjórn án kosninga
hefur afli verið að glæðast að
undanförnu við Reykjanes og
margir bátar þár hafa fengið
sæmilegan afla upp á síðkastið.
Eyjabátar hafa fiskað vel bæði í
troll og net síðustu daga og hefur
fengist góð ýsa í trollið, upp í 45 tonn
í róðri, og stórþorskur í netin, en víða
hefur einnig verið nokkuð um ufsa.
Má segja að fiskur fáist mjög víða á
Eyjamiðum og er hann fullur af
loðnu. Netabátar í Eyjum hafa verið
með upp í 20 tonn í róðri, en yfirleitt
er aflinn 7—15 tonn. Mjög mikil
vinna er nú í Eyjum.
Hornafjarðarbátar landa nú dag-
lega um 200 tonnum og hafa þeir
verið með upp í 15 tonn af boltastór-
um fiski eftir nóttina.
1 Keflavík landa um 20 bátar
daglega og hafa þeir verið með 5—7
tonn í róðri að undanförnu, vænan
fisk og eru skipstjórar þar bjartsýnir
á betri afla með loðnugöngunni.
í Þorlákshöfn lönduðu tveir bátar
s.l. sólarhring og eru bátarnir á
miðunum fyrir austan og vestan
Eyjar með mestan afla, 30—45 tonn í
róðri eftir tvær nætur. Á vesturmið-
unum hefur verið meira ufsablandað,
en minni afli hefur verið hjá smærri
bátunum sem ekki geta sótt eins
langt eða djúpt.
í Grindavík hefur verið vottur í
fiskiríinu s.l. daga, bæði hjá bátum á
heimamiðum og þeim sem leggja
norðurfrá í Faxaflóa. Bátarnir hafa
verið með 6—10 tonn eftir nóttina, en
í Grindavík landa 35—50 bátar á dag.
Geir Hallgrímsson. formaður Sjálfstæðisflokksins, lýsti því yfir á
fundi Landsmálafélagsins Varðar í fyrrakvöld, að þingmenn
Sjálfstæðisflokksins mundu greiða atkvæði gegn frumvarpi Ólafs
Jóhannessonar, ef það kæmi til atkvæðagreiðslu eins og það er lagt
fram á Alþingi. Sagði formaður Sjálfstæðisflokksins, að í frumvarpinu
væru fjölmörg ákvæði, sem Sjáífstæðisflokkurinn væri gersamlega
andsnúinn og nefndi nokkur þeirra. Geir Hallgrímsson sagði
ennfremur, að hann teldi ekki sjáanlegan grundvöll fyrir nýrri
ríkisstjórn með þátttöku Sjálfstæðisflokksins fyrr en að afstöðnum
kosningum.
Frumvarpið gerir ráð fyrir því, að
ríkisútgjöld verði um 30% af þjóðar-
framleiðslu, en ríkisstjórn okkar
hafði náð ríkisútgjöldum niður í 28%
og við töldum, að þar væri þó ekki
nægilega vel að verki staðið og
getum því alls ekki fallizt á frum-
varp, sem gerir ráð fyrir mun meiri
ríkisumsvifum, sagði formaður
Sjálfstæðisflokksins. Þá sagði Geir
Hallgrímsson að í þeim kafla frum-
varpsins, sem fjallar um atvinnu-
greinar gæti verið opnuð leið fyrir
valdbundinni áætlunargerð, sem
væri gersamlega andvíg sjónarmið-
um Sjálfstæðisflokksins. Hann sagði
ennfremur, að ákvæði frumvarpsins
um vexti og verðtryggingu væru ekki
í samræmi við stefnuyfirlýsingu
sjálfstæðismanna enda hefði ágrein-
ingur milli sjálfstæðismanna og
framsóknarmanna á síðasta kjör-
tímabili um vaxta- og verðtrygging-
armál komið í veg fyrir að meiri
árangur næðist í peningamálum en
raun bar vitni.
Um afstöðuna til verðbótaákvæða
frumvarpsins sagði Geir Hallgríms-
son, að stefnuyfirlýsing Sjálfstæðis-
flokksins segði til um það, hver hún
yrði. I þeirri stefnuyfirlýsingu væri
lögð áherzla á frjálsa samninga aðila
vinnumarkaðarins og þ.á m., að þessi
aðilar semdu um það með hverjum
hætti laun ættu að tengjast vísitölu.
Hins vegar sagði formaður Sjálf-
stæðisflokksins, að flokkurinn mælti
með ákveðnum leiðum í sambandi
við vísitölutengingu launa, m.a. því
að miða við viðskiptakjör og taka
óbeina skatta og niðurgreiðslur út úr
vísitölunni. Það væri fyrst og fremst
hugsað sem vörn fyrir launþega til
að koma í veg fyrir að stjórnmála-
menn gætu með niðurgreiðslum fals-
að raunverulega verðlagsþróun.
Geir Hallgrímsson sagði, að það
gæti komið til greina af hálfu
Sjálfstæðisflokksins að ræða löggjöf
um þessi efni, en í þessu tilfelli
ættust við stjórnarflokkar, sem
hefðu lofað samningunum í gildi í
kosningabaráttunni sl. vor og þess
vegna væri rökrétt niðurstaða, að í
ljós kæmu úrræði þeirra.
Þá kom það fram í ræðu Geirs
Hallgrímssonar, að með verðlags-
kafla frv. væri frjálslyndri verðlags-
löggjöf, sem fráfarandi ríkisstjórn
og þáv. viðskiptarh. hefði flutt og
fengið samþykkt, gersamlega um-
snúið og strangasta haftakerfi komið
á. Á það gæti Sjálfstæðisflokkurinn
aldrei fallizt.
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn:
Hafna tillögum
ALLMIKLAR umræður urðu á
fundi borgarstjórnar í gærkvöldi
um tillögur sjálfstæðismanna
vegna nefndarálits um skipulag
raforkumála. Birgir ísl. Gunnars-
son kvað nefndarálitið algjörlega
óaðgengilegt fyrir Reykjavíkur-
borg, því að ljóst væri að iðnaðar-
ráðherra ætlaði að stíga fyrsta
skref til víðtækrar sameiningar
raforkuöflunarfyrirtækja og
myndi það m.a. hafa f för með sér
verulega hækkun raforkuverðs í
Reykjavík.
Birgir sagði, að hroki og vinnu-
brögð iðnaðarráðherra væru óvið-
unandi. Borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins myndu standa
vörð um hag Reykvíkinga en ekki
gleypa það sem að væri rétt. Því
legðu þeir til að hafnað væri
tillögu ráðherra um nefndarskip-
an, sem „gengi til samninga um
stofnun þessa Iandsfyrirtækis um
meginraforkuvinnslu og raforku-
flutning á grundvelli tillagna
nefndarinnar".
Borgarstjórnarmeirihlutinn vís-
aði tillögum sjálfstæðismanna frá
og þá lögðu borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins fram bókun þar
sem segir m.a., að Ijóst sé að í
umræddri nefnd muni viðræður
ekki fara fram á jafnréttisgrund-
velli, þær séu því fráleitar eins og
að þeim sé staðið og þess vegna
muni sjálfstæðismenn ekki til-
nefna neina fulltrúa í viðræðu-
nefnd. Gangi niðurstaða viðræðn-
anna gegn hagsmunum borgarbúa,
muni borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins óska eftir allsherjar-
atkvæðagreiöslu meðal Reykvík-
inga um málið, þar sem um svo
mikilvæga hagsmuni sé þarna að
ræða.