Morgunblaðið - 03.04.1979, Page 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
78. tbl. 66. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Túrkómanar
rufu vopnahlé
Gonbad Kavus, íran. 2. aprfl. Reuter.
HUNDRUÐ íranskra her-
manna fylktu liði inn í
borgina Gonbad Kavus
nærri landamærum Sovét-
ríkjanna í dag, er sló í
brýnu með gæzluliðum
stjórnarinnar og Túrkó-
mönum þrátt fyrir umsam-
ið vopnahlé.
Töldu talsmenn stjórnarinnar
að hún hefði þegar misst fimmtíu
menn en að ekki hefðu færri en
hundrað og fimmtíu fallið úr
röðum uppreisnarmanna. Ekki
voru liðnar nema tvær stundir frá
því að samið hafði verið um vopna-
hlé unz verðir og uppreisnarmenn
af kynflokki Túrkómana tóku að
velgja hverjir öðrum undir uggum
með sprengjuárásum.
• •
Ogrun við
Bandaríkin
í Líbanon
Beirut. I.íbanon, 2. aprí. AP, Reuter.
TVÆR flugeldasprengjur skóku
sendiráð Bandarfkjanna í Beirut
í dag án þess að valda manntjóni
eða verulegum skemmdum á
byggingunni. Vörður sendiráðs-
ins neitaði að gefa nákvæmar
upplýsingar en sagði að það hefði
samstundis verið yfirgefið.
Tveir menn, sem ekki tókst að
bera kennsl á, skutu sprengjunum
úr nokkurri fjarlægð framan við
bygginguna. Þutu þær í gegnum
tvær rúður á fyrstu og fimmtu
hæð, en mennirnir tveir flýðu
samstundis í bifreið. Atburður
þessi á sér stað í kjölfar yfirlýs-
inga frá Palestínuskæruliðum um
að láta til skarar skríða gegn
„hagsmunum Bandaríkjamanna" í
Mið-Austurlöndum eftir undirrit-
un friðarsamninganna.
Israelska hermálaráðuneytið
skýrði frá því í dag, að tekizt hefði
að hafa hendur í hári palestínskra
hryðjuverkamanna á leið til ísra-
els um borð í flutningaskipi frá
Kýpur.
í leiðara Pravda, málgagns
sovéska kommúnistaflokksins,
sagði í dag að samningar Egypta
og Israela hefðu „barmfyllt púður-
tunnu Mið-Austurlanda með
sprengiefni".
Viðtökur Begins í
Kaíró lýsa hóflæti
Kaíró, Tel Aviv, 2. aprfl.
Reuter. AP.
MENACIIEM Begin varð í dag fyrsti forsætisráðherra
ísraels til að drepa niður fæti í Kaíró. Vitnar för Begins
um auðsýnt bræðraþel í samskiptum ísraels og Egypta
og var kurteislega, en hógværlega tekið á móti honum
við komuna.
„MINN LÍFSTÍÐARDRAUMUR“ — Begin ásamt dóttur sinni (t.v.) og
egypzkum gestgjöfum fyrir framan sfinxinn og Keops-pýramídann.
Forsætisráðherrann sagði að hann hefði lengi alið þá von í brjósti að
hann fengi að skoða þessi mannvirki, en efaði í fyrsta skipti að gyðingar
hefðu tekið nokkurn þátt í gerð þeirra. Símamynd AP.
Flestir ráðherrar stjórnarinn-
ar ásamt helztu yfirmönnum
hersins tóku á móti Begin í Kairó.
Fyrstur til að heilsa gestinum var
varaforsætisráðherra Egypta-
lands, Hosni Mubarak, en hvorki
Sadat forseti né forsætisráð-
herra, Mustapha Khalil, voru
viðstaddir. Herma fréttir að eg-
ypskir viðhafnarsiðir geri ekki
ráð fyrir að forseti komi fram við
slík tækifæri, en Khalil mun hafa
borið við veikindum. I öryggis-
skyni var séð til þess að mann-
fjöldi safnaðist ekki saman á
flugvellinum og voru allir sendi-
fulltrúar Arabaþjóða fjarverandi
þar sem þeir hafa flestir verið
kallaðir frá Egyptalandi í mót-
mælaskyni við friðarumleitanir
Sadats.
Með því fyrsta, sem Begin rak
augun í er hann steig út úr
vélinni var egypzkur heiðursvörð-
ur klæddur í búning mjög áþekk-
an einkennisbúningi nazista í
heimsstyrjöldinni síðari. Þrátt
fyrir að hvarfli að fáum að ætlun
fyrirmanna hafi verið að fyrta
leiðtogann, sem er pólsk-ættaður
gyðingur, varpaði fyrirbærið
engu síður ljósi á þá staðreynd að
flestir þeirra hefðu kosið að taka
á móti honum síðar. I Israel hafa
einnig heyrzt óánægjuraddir út
af för Begins nú, en gremja
Arabaþjóða hefur einmitt aldrei
verið sárari en um þessar mund--
ir.
Ekki var þó annað að sjá en að
Begin sjálfur væri hress í bragði
við komuna og voru honum síðar í
dag sýndir egypzku pýramídarnir
og bænasamkomuhús í Kaíró. Við
pýramídana sagði Begin m.a. við
fréttamenn: „Eg hef komið til
Kaíró til að bjóða hinni merku
egypsku þjóð frið. Við ætlum að
taka höndum saman og hjálpast
að.“
Blöð í Kaíró hafa flest verið
mjög orðvör þegar sagt hefur
verið frá heimsókninni þrátt
fyrir að flest lýsi þau yfir stuðn-
ingi við hana.
Ibúar varpa nú öndinni
léttar við Harrisburg
IlarrisburK. Pennsylvania, 2. apríl, AP. Reuter. _
KJARNORKUSÉRFRÆÐINGAR skýröu frá því í dag, aö svo liti út sem vetnisský í kjarnorkuverinu við
Ilarrisburg. sem gert hefur almenningi órótt að undanförnu. hefði minnkað verulega. Bentu þeir á að
mjög hefði dregið úr hita kjarnaofnsins og stafaði nú miklu minni ógn af geislavirkni í nágrenni
kjarnorkuversins en áður. Þrátt fyrir að strangar varúðarráðstafanir séu enn í gildi eru því horfur á að
mesta hættan sé liðin hjá.
„Við höfum fulla ástæðu til
bjartsýni," sagði formaður örygg-
isnefndar Bandaríkjanna e um
kjarnorkumál, Harold Denton.
„Eg átti ekki von á þessum snöggu
umskiptum," bætti hann við. „Út-
litið er öllu betra en í gær.“
Öryggisverðir í Harrisburg og
nágrenni ákváðu engu að síður að
halda áfram að undirbúa brott-
flutning tuttugu og fimm þúsund
íbúa í minna en sjö kílómetra
fjarlægð frá kjarnorkuverinu ef
eitthvað kynni óvænt að fara úr
böndum.
Sérfræðingar unnu áfram að því
sleitulaust á mánudag að ráða
niðurlögum vetnisskýsins að fullu
••••í'.. *í":'
Kokhraustur
Amin í Jinja
Nairobi, Kenya, 2. apríl, AP, Reuter.
TANZANISKAR orrustuflugvélar gerðu i\dag sprengjuárás á
olíugeyma í Kampala svo og á bækistöðvar Úgandahers í annarri
stærstu borg landsins, Jinja, um sjötíu kflómetra austurt af
höfuðborginni. Idi Amin Úgandaforseti bjóst til varnar í Jinja
eftir árásina og sagðist mundu berjast þar til síðasta manns gegn
innrásarliðinu.
Óttaslegnir íbúar borgarinnar
sögðu svo frá stuttu eftir loft-
árásirnar á mánudagsmorgun, að
forsetinn hefði birzt á strætis-
vagnatorgi og skipað fólki að
snúa aftur til vinnu. Að sögn eins
sjónarvotta á Amin að hafa
heitið því að „taka árásaröflin í
karphúsið".
Úganzkir uppreisnarmenn
neituðu því um helgina að
hermönnum Amins hefði tekizt
að hrekja þá aftur. „Kampala er
nú aðeins í stóðrenni við okkur,“
sögðu þeir, „og aðeins spurning
um tíma hvenær við leggjum til
lokaatlögu."
með því að blanda lofttegundina
köldu vatni og síðan leyfa henni að
rjúka út í loftið utan kjarnavers-
ins. Var haft eftir einum þeirra að
tekizt hefði að hefta útbreiðslu
geislavirkni algerlega.
Þessar uppörvandi fréttir hafa
nú gefið starfsmönnum versins
meira svigrúm til að kæla kjarna-
ofn þann, er Denton hafði áður
spáð að myndi springa í loft upp
innan fimm daga. Hafði ríkisstjóri
Pennsylvaníu af þeim sökum fyrir-
skipað brottflutning allra barna
undir skólaaldri svo og barnshaf-
andi kvenna af svæði í minna en
sjö kílómetra fjarlægð, en alls er
talið að um fimmtíu þúsund
manns hafi flutzt um stundarsak-
ir. Allir nærliggjandi skólar voru
lokaðir á mánudag og rekstur
fyrirtækja í ólestri. Viðskiptavinir
mynduðu langar biðraðir við
banka í því skyni að taka út
fjármuni sína áður en tilkynnt
yrði um algera rýmingu svæðisins.
Yfirmaður stærsta sjúkrahússins í
Hárrisburg, John McGreevy,
skýrði þó frá því í dag, að hann
hefði mjög áreiðanlegar heimildir
fyrir því að enginn fjöldabrott-
flutningur myndi eiga sér stað í
fyrirsjáanlegri framtíð. Óhapp
þetta er hið versta er átt hefur sér
stað í kjarnorkuframleiðslu í
Bandaríkjunum.
Sjá frekar um viðbrögð bls. 17.
Símamynd AP.
IIÆTTAN MINNI - Carter
Bandaríkjaforseti veifar til fólks
við einn af kæligeymum kjarn-
orkuversins við Harrisburg. Kann-
aði forsetinn aðstæður í tvo tíma
og lagði áherzlu á að komið væri í
veg fyrir slík óhöpp í framtiðinni,
þar sem Bandaríkin yrðu æ háðari
| kjarnorkuframleiðslu.