Morgunblaðið - 03.04.1979, Page 11

Morgunblaðið - 03.04.1979, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1979 11 Gunni með tilheyrandi sveiflu að fanga þann gula, sveiflu sem myndi gera Travolta að gjalti. Sá guli og Mari, annar augsýnilega ánægðari á svipinn en hinn, enda enginn smádráttur. Texti og myndir: Sigurgeir Jónasson. kg. Vorum sæmilega ánægðir með það, þegar tillit er tekið til óhappa og tafa. Afli færabátanna og trillanna þennan dag var yfirleitt mjög góður, svo að minnstu trill- urnar eins og Isak tvísóttu. Afli á færi (mann) var yfirleitt V4 — 2 tonn og nær eingöngu miðlungs- stór- og golþorskur. Seinnihluta dagsins fór verulega að tregast á Þrídrangahrauninu, en á heimleið- inni fórum við á Hreiðarshraunið og fengum nokkur góð rek þar og það af golþorski. Þá var farið að líða á dag, kominn smá golukaldi af vestri, en síðan var öslað heim, landað og gert klárt fyrir næsta dag, því enn átti að fara næsta dag og var ég þá ráðinn, með því að skilja myndavélarnar eftir í landi. Það tók ég ekki í mál, en lofaði að nota þær lítið eða ekkert, en af þeim róðri hefur ekki orðið enn, því að hann brældi að norðan, svo að ekki var næði fyrir færabáta, þannig að nú er bara beðið betra veðurs og næsta færis. „íslendingar sækja leik- hús meiraen Norðmenn” — segir Haukur J. Gunnarsson í sam- tali við norska blaðið „Arbeiderbladet” Frá fréttaritara Mbl. í Ósló. íslenski leikstjórinn Ilaukur J. Gunnarsson hefur fengið mjög góða dóma í Noregi fyrir verk sem hann hefur stjórnað og sett á svið fyrir Tröndel-leik- húsið í Þrándheimi. „Ein hin þýðingarmesta og áhugaverðasta sýning sem ver- ið hefur í leikhúsinu um langan tíma“, „ágæt sýning“ og „stór- kostlegt framtak“, eru dæmi um tóninn í þeim dómum sem skrifaðir hafa verið um verk Hauks. Haukur Gunnarsson sem er 29 ára gamall vinnur sem leik- stjóri um alla Skandinavíu en er með aðsetur í Ósló. Haukur hefur áður unnið við leikhús í Japan, Englandi og íslandi. Hann hefur ekki enn sett upp verk í Ósló, en við Tröndalleik- húsið í Þrándheimi, sem þekkt er fyrir að sækja áhrif frá Haukur J. Gunnarsson leikstjóri íslandi, hefur honum vegnað mjög vel við uppfærslu á „Mýs og menn“ eftir Steinbeck og „Morðið á prestssetrinu" eftir Agöthu Christie. í samtali við norska blaðið „Arbeiderbladet" sagði Haukur er hann var spurður um áhuga Norðmanna á leikhúsum: „Af einhverjum ástæðum eru Islendingar áhugasamari við að sækja leikhús. I Reykjavík er tala leikhúsgesta hærri en tala íbúanna og þar eru helmingi fleiri leikhús en í Þrándheimi sem er miklu stærri bær. Astæðan til þess getur verið að sjónvarpið á Islandi sendir ekki eins lengi út og hér í Noregi og á Islandi er einn dagur í viku algjörlega án sjónvarpssend- inga. Aftur á móti horfa margir íslendingar á sjónvarpsleikrit og almenningur er mjög áhuga- samur,“ sagði Haukur en hann hefur sjálfur reynslu af fjöl- miðlum. Útvarpstæki frá kr. 7.626 Rakvélar frá kr. 20.119 Hársnyrtitæki frá kr. 13.860 Segulbandstæki frá kr.40.580 Philips kann tökin á tækninni! heimilistæki sf HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655 /á

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.