Morgunblaðið - 03.04.1979, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 03.04.1979, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1979 15 Hilmar Guðlaugsson: Samdráttur —öngþveiti Þorsteinn Jóhannesson. gerlegt að gera út á kola eingöngu, ennfremur lágu verði og erfiðleik- um á afsetningu, svo ekki síst þá erfiðleika og tímatöf fyrir áhöfn- ina, sem þessum veiðum fylgja. Þá höfum við það. Garðbúar eru það raunsæir, þegar allt er metið í stundargróða, að um munar 10.000 tonn af kola. Ég fæ þó ekki séð hvernig dæmið gengur upp, með 1.000—1.500 tonnum úr Faxaflóa með dragnót og fáum bátum, eins og hann talar um. Þess vegna bendum við á togar- ana. Ekki til að skarka með troll á friðlýstum svæðum, eins og fiski- fræðingurinn rangfærir herfilega, vonandi óviljandi. Eða veit hann ekki, að Bretar veiddu allan sinn kola hér við land í troll og komust hæst 1969 í um 7000 tonn, utan við 4 sjóm. og utan við firði og flóa á umræddu tímabili sbr. skýrslu Aðalsteins Sigurðssonar um skarkolaveiðar. Abending Samkvæmt síðustu ráðstöfunum um friðun nytjafiska, er gert ráð fyrir 70 daga takmörkun á togveið- um í sumar og haust, einmitt á þeim tíma er skarkolinn er best nýtanlegur. Er úr vegi, að líta á það? Laugardaginn 24. mars skrifar fiskifræðingurinn grein í Morgun- blaðið um dragnót og Faxaflóann. Þar má þó sjá, að hann er farinn að viðurkenna flest rök er fram hafa komið um rányrkju dragnót- ar, er þó að ýja að því, að ekki muni ætlað að opna allan flóann fyrir dragnót. Talar þar um ytri hluta flóans, og þá að hausti til. En, lætur í það skína, að heppilegt sé, að gera það með fáum bátum. („vegna fyrrver- andi reynslu"). Hann telur þó, að það muni vera á valdi sjávarútvegsráðherra, að taka ákvörðun um það. Til er málsháttur, sem segir: „Það er gott að hafa strákinn með og kenna honum svo klækina." Það er ánægjulegt, að fiskifræðingurinn er farinn að sjá, að þörf er á, að hlúa að fiskvinnslu á Suðurnesj- um, ekki veitir af. En, að dragnót- in leysi þann vanda almennt, er annað mál. Ég og fleiri erum á annarri skoðun, og þær skoðanir eru á rökum reistar, sem áður hefir verið skýrt. Rétt er, að upplýsa fiskifræðinginn um það, sem hann virðist ekki vita, að Suðurnesjamenn, þar sem Hafnar- fjörður og Reykjavík, ásamt Akur- nesingum hafa fram að þessu róið með línu og net á umræddum tíma, og það verið nokkur uppistaða í aflabrögðum hér um slóðir, fyrir minni báta, sem þeir telja allir því að þakka, að Faxaflói hefir verið lokaður fyrir dragnót. Ég trúi því, að alþingismenn þeir, er væntan- lega hafa móttekið þennan boð- skap eins og fiskifræðingurinn orðar það 13. mars, séu læsir á ritað mál, og rangfæri það ekki. Ég tel, að mikilsmetnir þing- menn skoði þessi mál af raunsæi, í ljósi þess, að nytjafiskstofn okkar er í hættu af ofveiði, og taki ekki þátt í, að rífa niður það, sem áunnist hefir hér í Faxaflóa, eftir áralanga baráttu fyrrverandi ráð- herra og þingmanna, Jóns Árna- sonar frá Akranesi, Jóns Á. Héðinssonar og fleiri er nú sitja háttvirt Alþingi. Kjarni málsins er, að flestir raunsæir menn við Faxaflóa telja, að með tilliti til fenginnar reynslu, sé brýn nauðsyn á öryggisfriðun fyrir aðalnytjafiska okkar, haldist eins og verið hefir. Ævintýramennsku ber að harma. Lítum réttum augum á atburði náttúrunnar, og á athafnir mann- anna. Vinstri meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkur hefur nú starfað í tæpt ár. Borgarbúar hafa á undanförn- um mánuðum fengið að kynnast skattpíningarstefnu vinstri manna, bæði í borgarstjórn og á Alþingi og hverju búast megi við af þessum mönnum í framtíðinni. Borgarbúar geta nú á auðveldari hátt en áður greint það breiða bil, sem er á milli stefnu vinstri manna og stefnu sjálfstæðis- manna í börgarmálum. Þetta mun koma enn betur í ljós eftir því, sem líður á kjörtímabilið. Vinstri menn voru ósparir á stóru orðin í kosningabaráttunni, en efndir þeirra eru heldur rýrar. Það er kaldhæðni, að í þeim málaflokkum þar sem þeir gagn- rýndu okkur sjálfstæðismenn mest fyrir aðgerðaleysi á fyrra kjör- tímabili, hafa þeir verið iðnastir við að skera niður framkvæmdir, s.s. í félagsmálum og þá ekki síst varðandi lóðaúthlutanir, sem er að mínum dómi það alvarlegasta, því þegar þetta er skrifað hefur engin lóðaúthlutun átt sér stað í ár og litlar líkur á að þar verði um bætt, nema þá að mjög litlu leyti. Stefna vinstri manna í skipulags- og lóðamálum mun valda mjög alvarlegu atvinnuleysi hér í borg í byggingariðnaðinum næsta vetur. Sjálfstæðismenn hafa bent á þessa hættu og flutt tillögu í borgarstjórn til úrbóta, tillögunni var vísað til borgarráðs og um niðurstöður munu fáir vita. Flókið kerfi Borgarbúar hafa fylgst með því, að síðan vinstri menn fengu völdin í Reykjavík, hafa þeir komið á ýmsum breytingum í borgarkerf- inu, ekki til hagræðis eða til að auðvelda rekstur borgarinnar, heldur fyrst og fremst til þess að hvert hinna þriggja stirna vinstri flokkana í borgarráði geti fylgst betur hver með öðrum. Settar hafa verið nýjar nefndir og reglugerð- um annarra breytt. Niðurstaða: Flókið kerfi. Til lengdar mun þessi kerfisbreyting lenda þungt á borgarbúum, því flókið kerfi kost- ar peninga. Ofstjórn — yfirskipulagning Við sem sitjum í stjórn Veitu- stofnana fyrir Sjálfstæðisflokkinn höfum ekki farið varhluta af þess- um breytingum, því strax í upp- hafi kjörtímabilsins var sam- þykkt, með ágreiningi, breyting á reglugerðinni um Veitustofnanir. Við mótmæltum þessum breyt- ingum og greiddum atkvæði gegn þeim með eftirfarandi bókun: „Undirritaðir telja framkomnar breytingartillögur óþarfar og ein- ungis til þess fallnar að gera stjórn Veitustofnana þyngri í vöf- um. Kjarni tillagnanna virðist í því fólginn að flytja skuli fram- kvæmdastjórn veitnanna úr hönd- um borgarráðs í hendur sérstakrar stjórnar sem heyri beint undir borgarstjórn. Engu að síður á stjórnin aðeins stjórnarnefnd áður að vera í ráðgefandi hlutverki í veigamestu málum gagnvart borgarráði, þ.e. gera tillögur um framkvæmdir, fjármál og gjald- skrárbreytingar. Raunveruleg breyting á hlutverki og stöðu stjórnar samanborið við stjórnar- nefndina áður virðist því á orði, en ekki á borði.“ Það hefur líka komið á daginn, að breyting til batnaðar hefur engin orðið, allt er orðið þyngra í vöfum og fjallað í stjórninni um ýmis forms- og efnisatriði, sem eftir sem áður eru til meðferðar og ákvörðunar hjá öðrum stjórnunar- aðilum í borgarkerfinu. Gjaldskrármál veitustofnana Eitt af okkar höfuðverkefnum í stjórn Veitustofnana eru gjald- skrármál. Til þess að tillaga um gjaldskrárhækkun nái fram að ganga, þarf endanlegt samþykki viðkomandi ráðuneytis og ríkis- stjórnar. í tíð vinstri ríkisstjórnar 1971—1974 fór alvarlega að stíga á ógæfuhliðina fyrir Veitustofnun- um Reykjavíkurborgar sem í rík- um mæli var meinað um nauðsyn- legar hækkanir á gjaldskrám vegna hækkana á reksturskostn- aði. Veitustofnanirnar voru neydd- ar til að taka erlend lán til þess að geta haldið uppi nauðsynlegri þjónustu við borgarbúa. Á þessum árum, 1971—1974, á meðan vinstri ríkisstjórn var við völd, margfaldaðist verðbólgan og þegar hún hrökklaðist frá, var hér komin 54% verðbólga. Tíðar gengisfellingar þessa ára- tugar hafa stórhækkað þessi erlendu lán sem tekin voru á árunum 1971—1974, sem aftur hafa hækkað raforkuverð hér. Það þarf engan sérfræðing til þess að finna út, að raforkuverð gæti verið miklu lægra í dag, ef nauðsynlegar og eðlilegar hækkanir á gjald- skrám hefðu fengist. Til upplýs- inga er rétt að geta þess, að Rafmagnsveita Reykjavíkur þarf að greiða af erlendum lánum í afborganir og vexti á árinu 1979 kr. 1.283.000- (einn milljarð tvö hundruð áttatíu og þrjú þúsund krónur). Að ég rifja þetta upp nú, er vegna þess að núverandi ríkis- stjórn ætlar að leika nú nákvæm- lega sama leikinn aftur, þ.e. að neita þessum stofnunum um eðli- lega hækkun á gjaldskrám vegna hækkunar á rekstrarkostnaði. Rafmagnsveita Reykjavíkur fór fram á 22% hækkun 1. febrúar s.l. en fékk 10% Svipaður niðurskurður var einn- ig gerður hjá Hitaveitu Reykjavík- ur. En af hverju er ríkisstjórnin að þessu? Jú, einfaldlega er verið að halda niðri kaupgjaldsvísitölunni og ekkert hugsað um afleiðingarnar. Eitt vitum við og það af fyrri reynslu, að hér er ekki verið að stuðla að lægra raforkuverði held- ur þveröfugt. Hér er verið að koma í bakið á borgarbúum, því eftir því sem það dregst að Veitustofnunin fái eðlilega hækkun, því hærra raforkuvérð þarf að koma til á næstu misserum. Verðjöfnunargjald á raforku Á sama tíma sem ríkisstjórnin meinar um þessar eðlilegu gjald- skrárhækkanir, er lögð tillaga fyrir Alþingi, sem þegar hefur verið samþykkt. Hækkun verð- jöfnunargjalds á raforku úr 13% í 19%. Hér er um fráleitan skatt á Reykvíkinga að ræða, hvað þá heldur að hækka hann um 6%. Við höfum í stjórn Veitustofn- ana samþykkt tillögur, þar sem skorað er á ríkisstjórn að fella þennan skatt niður, en því miður án árangurs. Samþykkt þessarar tillögu á Alþingi þýðir auknar álögur á Reykvíkinga, sem nema um 300 millj. kr. eða hækkun úr 600 millj. í 900 millj. á árinu 1979. Nú á enn að fara að gera aðför að Reykvíkingum með stórauknum álögum í hækkun raforkuverðs ef tillögur ná fram að ganga um stofnun annarrar Landsvirkjunar. Þetta er stórmál, sem væri efni í langa grein sem verður að bíða betri tíma, en rétt er að geta þess, að borgarfullt'rúar Sjálfstæðis- flokksins hafa þegar mótmælt þessum tillögum í borgarstjórn Reykjavíkur. Unnsteinn Stefánsson fjallar um íslenska laxinn. í inngangi þessarar rigerðar er vikið að landfræðilegum aðstæðum, veðurfari og flokkun íslenskra fallvatna eftir uppruna. Gerð er grein fyrir dreifingu laxveiðiáa og meðalveiði eftir landshlutum, og fjallað er um þá helstu umhverfisþætti, sem áhrif hafa á vöxt og viðgang stofnsins. Þá er rakin lífssaga laxins á mismunandi vatnasvæðum hér á landi og í því sambandi rætt um göngur, hrygningartíma, seiða- fjölda, fæðuskilyrði, aldurs- greiningar, lengd og þyngd. Loks er sérstakur kafli um laxeldi á íslandi. Þessi grundvallarritgerð er að dómi undirritaðs vel og skipulega unnin og í henni er að finna mikinn fróðleik fyrir alla þá, sem áhuga hafa á íslenska laxin- um og veiðimálum almennt. Síðari greinin er eftir Edmund Nunnallee og Jón Kristjánsson og er hún um notkun dýptarmælis við stofnstærðaráætlanir á fiski í Þingvallavatni og Skorradals- vatni. Mælirinn, sem notaður er, og lýst er í annarri grein í ritinu, var hannaður við fiskifræðideild Washingtonháskóla í Seattle. Rannsóknirnar byggðust á þv að spila lóðningar af segulbandi inn á sveiflusjá og telja allar þær lóðningar, sem voru stærri en þær smæstu, sem greina mátti á mesta dýpi, sem fiskur fannst á. Með hliðsjón af geislabreidd botn- stykkis var fundið rúmmál þess vatns, sem dýptarmælirinn skoðaði í hverri lóðningu. Mælingar voru gerðar á nokkrum sniðum yfir áðurnefnd stöðuvötn og stofnstærðin áætluð með því að finna meðalfiskafjölda í rúmmáli vatns og reikna síðan heildarfjölda fiska út frá því. Fróðlegt verður að sjá niðurstöður af mælingum á fleiri stöðuvötnum með þessari aðferð. Ég óska Veiðimálastofnuninni til hamingju með þetta myndar- lega framlag til aukinnar þekkingar á íslenskum vatna- fiskum. Forvitninni svalað i brú varðskipsins ÓSJALDAN er varðskipin koma á hafnir úti á landi nota kennarar í skólum þar tækifær- ið og fá leyfi til að fara með nemendur sína um borð í skip- in. Á dögunum var varðskipið Týr á Þingeyri og kom þá fríður flokkur nemenda í heim- sókn. Á þessari mynd Jóns Páls Ásgeirssonar sést hvar Her- mann Sigurðsson 2. stýrimaður útskýrir fyrir krökkunum leyndardóma siglingatækja skipsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.