Morgunblaðið - 03.04.1979, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1979
31
Hrólfur Jónsson
Akranesi, sextugur
Hrólfur Jónsson er fæddur í
Húnaþingi og er Húnvetningur í
ættir fram. Foreldrar hans voru
hjónin Jón Þorláksson og Anna
Sigrún Sigurðardóttir. Voru þau
fátæk að veraldarauði, en eignuð-
ust 7 drengi og tvær stúlkur.
Hrólfur ólst upp að miklu leyti hjá
sæmdarhjónunum Steinunni og
Gunnari að Harastöðum í Vest-
ur-Hópi.
Hrólfur vandist öllum algengum
störfum. Var viljugur og vel lið-
tækur. Setti hann sér mark í lífinu
að verða sjálfstæður maður. Þeir
sem þekkja Hrólf vita að hann er
alltaf veitandi og stórtækur höfð-
ingi.
Hrólfur hefir verið lánsmaður
og rennur þar ýmislegt til. Hann
er vel af Guði gerður, auðmjúkur,
lítillátur og hjartahreinn. Ungur
kvæntist hann Guðrúnu Jónas-
dóttur frá Múla í Linakradal í
Miðfirði. Rættist á þeim hið forn-
kveðna, að margfaldast og upp-
fylla jörðina. 8 mannvænleg börn
hafa þau eignast. Allt fyrirmynd-
arfólk og góðir borgarar. Hóp-
urinn stóri er nú dreifður um
landið, gift fólk og eru mörg
ömmu- og afabörnin er gleðja þau
hjónin Guðrúnu og Hrólf.
Árið 1948 flytjast þau Hrólfur
og Guðrún um set og taka bólfestu
á Akranesi. Hefir heimili þeirra
staðið þar um 30 ára skeið. Á
Akranesi er Hrólfur virtur og gegn j
borgari. Heiðvirður reglu- og
sómamaður í hvívetna. Hrólfur
stundaði öll algeng störf hins
vinnandi manns. Þó svo hann væri
kominn af léttasta skeiði, þá sett-
ist hann í Iðnskólann og nam
húsgagnabólstrun. Síðan hefir
hann stundað þau störf og er
kunnur fyrir vandvirkni og fagurt
handbragð. Um það bera verk
hans vitni.
Allt framangreint hefir stuðlað
að gæfu og hamingju Hrólfs og
hans fólks. En ósanngjarnt væri
nú við þessi tímamót, að sleppa
þætti trúarlífs Hrólfs.
Þar var í janúar árið 1953.
Hrólfur mætir frelsara sínum Jesú
Kristi. Hann eignast afgerandi
afturhvarf og frelsast. Þau urðu
fyrir hinu sama bróðir hans Þórð-
ur og kona hans Skarpheiður. Öll
þau þrjú ásamt fleirum voru skírð
heilagri niðurdýfingarskírn á
þrenningarhátíð vorið 1953 í Fíla-
delfíu Reykjavík. Allt þetta fólk
hefir verið stólpar í söfnuði
hvítasunnumanna síðan. Hrólfur
er mjög bænrækinn maður og
Biblíuna les hann mikið. Hann er
einlægur aðdáandi Jesú Krists og
sér Hann sem Son Guðs íklæddan
holdi manns, Drottin og Guð. Trú
Hrólfs er fölskvalaus og mjög
einlæg. í Guðs ríki er honum
ekkert óviðkomandi. Hefir hann
staðið styrkur með starfi hvíta-
sunnumanna í Afríku og ýmsar
starfsgreinar hefir hann stutt með
ráðum og dáð. Við þessi tímamót
vil ég fyrir hönd hvítasunnu-
manna senda Hrólfi og heimili
hans öllu innilegustu hamingju-
óskir með 60 ára afmælið. Megi
þau hjón, Guðrún og Hrólfur,
njóta lífs og gæfu áfram undir
verndarvæng Drottins.
Vinir Hrólfs og ættingjar munu
hittast í kvöld í Hallveigarstöðum
við Túngötu og samfagna góðum
vini og dáðum drengskaparmanni.
Einar J. Gíslason.
EF ÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AIGLYSINGA-
SIMINN ER:
22480
( TOYOTA
STARLET
\
Sigurvegarinn í hinni erfiðu "Tour de Europe’’ aksturskeppni
gegnum 10 Evrópulönd, — er fyrirliggjandi.
Toyota Starlet er ótrúlega neyslugrannur á bensín.
Toyota Starlet er traustur sem aðrir Toyota bílar.
Það er ekki aðeins í Bandaríkjunum sem Toyota er kjörinn einn besti bíllinn.
Félag danskra bifreiðaeigenda hefur birt niðurstöður könnunar sinnar
þar sem Toyota er valinn bíllinn sem minnst bilar og er hagkvæmastur í rekstri.
Smástyrniö neyslugranna
fö TOYOTA
UMBOÐIÐ
NÝBÝLAVEGI 8
SÍMI 44144
KÓPAVOGI
VERO UMKR.
3.400.000
V