Morgunblaðið - 03.04.1979, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1979
fclk í
fréttum
+ MÁLAFERLI kvikmyndaleikarans Lee Marvins og fyrrum sambýliskonu hans, Michelle Triola
Marvin, eru enn ofarlega á baugi í fréttum. Málaferlin hafa staðið yfir nú í vetur. Gerir konan
allveruiegar fjárkröfur til Marvins, ekki aðeins í formi fébóta heldur krefst hún einnig hlutdeildar í
heildartekjum hans á sambýlisárum þeirra. Málið er rekið fyrir opnum tjöldum. Eru 30 sæti á
áheyrendapöllum jafnan þéttsetin. Á myndinni hér að ofan eru aðal málsaðilarnir (frá vinstri):
Núverandi eiginkona Marvins, Pamela, Michelle og loks Lee sjálfur, sem nú er 55 ára gamall.
+ KATE Millett, amerfsk
kvenréttindakona, sem komst
í heimsfréttirnar um daginn.
Hún ætlaði að fara til Irans
og kynna sér stöðuna í rétt-
indamálum kvenna þar í
landi eftir að trúarleiðtoginn
mikli, Khomeini, tók völdin
þar í' landi. Hann hefur sem
kunnugt er aðrar skoðanir á
stöðu kvenna en fyrirrennari
hans, keisarinn, sem flýja
varð land. För kvenrétt-
indakonunnar til Teheran
varð með þeim hætti, að hún
hafði þar aðeins stuttan
stanz. Þarlendir töldu nær-
veru hennar eigi þörf né
æskilega. Var hún send til
baka til Parísar, en þaðan
hafði hún komið til borgar-
innar.
+ SÆNSKU konungs-
hjónin voru fyrir
skömmu í opinberri
heimsókn í V-Þýzka-
landi. Þessi mynd er af
Silvíu Svíadrottningu er
hún kom til Bonn. — Að
baki henni er kanzlari
V-Þýzkalands, Walter
Scheel. — Þetta er í
fyrsta skipti sem Silvía,
sem er fædd í Heildel-
berg, kemur til gamla
landsins, eftir að hún
varð drottning Svía, ár-
ið 1976.
41
húsa
Grundvöllur þess að hús
séu hlý og ódýr í upphitun
er, að þau séu vel einangr-
uö og vatnsvarin. Sama
gildir um sprungna hús-
veggi. Hér efst er mynd af
plastklæöningu, — séð í
endann —, (sem er) tvöföld,
með milliskilum. Hún er
sterk og gefur einangrun.
Klæðningin er negld á ca.
1“ lista. Margir fylla biliö
milli lista meö einangrun. —
Þá eru veggir orðnir vel
einangraðir. Litir eru hvítt,
beingult, grátt og
tekk-brúnt.
Komin er margra ára góö
reynsla.
Þið, sem hafiö áhuga, sendiö okkur riss eða teikningu af
húsinu. Við sendum til baka kostnaðar-áætlun um klæöning-
una.
Verið fljót að ákveða, svo allt efni veröi komið fyrir vorið.
Áklæðning á veggi og Þök — í mörgum fallegum
innbrenndum litum, slétt eða bárað.
Nýtt — einnig bárað ál með viðaráferð.
Kjölur s.t.,
X
Reykjavík, sími 21490,
Kjölur s.f.,
Keflavík, sími 2121-2041.
Ótrúlegt, en satt
Viö bjóöum nær helmings
verölækkun á Agfacolor lit-
myndum.
Verö á framköllun og stækkun
á 20 mynda Agfacolor CNS
litfilmu er
KR. 2.400.-
Verö á framköllun og stækkun
á öörum filmutegundum er
KR. 3.700.-
NOTIÐ AGFACOLOR 0G SPARiÐ MEÐ ÞVÍ
35%
Tilboö þetta gildir til 1. júní 1979.
PÓSTSENDUM
*s\\ — Austurstrœti 7
7 Sími 10966 „