Morgunblaðið - 03.04.1979, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1979
47
Bilunin í Harrisburg:
Áhrifanna gætir
víða um heiminn
Þegar bilunin varð í kjarnorkuverinu í Harrisburg var gripið til
þeirra ráða að flytja ýmsa af íbúum næsta nágrennis á brott. Meðal
þeirra var Susy Hoffman. sem er tíræð. og sést hún hér á myndinni
ásamt nokkrum nábúum sínum eftir þau höfðu verið flutt til
rikissjúkrahússins í Harrisburg.
í Bandaríkjunum og sá, sem setja
á upp í orkuverinu í Muhl-
heim-Kárlich, og því hafi frekari
framkvæmdum við þýzka orkuver-
ið verið frestað um sinn.
Blaðið Bild-Zeitung í Hamborg
tekur vægar á málinu. I ritstjórn-
argrein segir blaðið: „Harrisburg
— hræðilegt kjarnorkuslys. En
eigum við þá ekki að reisa fleiri
kjarnorkuver? Eða kemur Harris-
burg okkur ekki við vegna þess að
okkar orkustöðvar eru betri og
öruggari? Það sem nú þarf að gera
er að skoða málið niður í kjölinn
og rannsaka það vísindalega. Sá
sem viil vera án kjarnorkunnar
verður að skýra nákvæmlega frá
því hvernig á að hita upp íbúðir,
lýsa upp göturnar og tryggja
atvinnu."
Fá ríki eru jafn háð kjarnork-
unni og Japan, en þar eru starf-
andi 19 kjarnorkuknúin raforku-
ver. Hefur verið fyrirskipuð ítar-
leg rannsókn í öllum verunum til
að kanna öryggi þeirra, og á
rannsókninni að vera lokið innan
viku. Einnig verða japanskir sér-
fræðingar sendir til Bandaríkj-
anna til að kynna sér allar aðstæð-
ur í Harrisburg.
Japönsk yfirvöld hafa reynt að
draga úr hættunni frá kjarnorku-
verunum, og benda jafnframt á að
Japanir þurfi að flytja inn 99%
allra olíuafurða, sem notaðar eru í
landinu. Kjarnorkuver landsins
framleiða nú um 12,6 milljón
kílóvött, en ætlunin er að auka
framleiðsluna í 30 milljón kílóvött
fyrir árslok 1985 og í 60 milljón
kíióvött árið 1990.
Frakkar þurfa einnig að flytja
inn alla sína olíu, og þar er því
einnig mikið í húfi. Þar var sjón-
varpið, sem er ríkisrekið, í gær
látið sýna fræðslumynd á besta
sýningartíma, þar sem áherzla er
lögð á varúðarráðstafanir, sem
útiloki algjörlega möguleika á
slysum í frönskum kjarnorkuver-
um. „Þótt frönsk kjarnorkuver séu
skyld þeim bandarísku, þá er
öryggiskerfið franska annars kon-
ar og útilokar svona óhöpp," sagði
Raymond Barre forsætisráðherra í
sjónvarpsviðtali. „Við tökum þvi
sem gerðist af fullri alvöru, en
ekki má draga af því rangar
ályktanir." sagði hann.
Franskir umhverfisfræðingar
hafa skorað á yfirvöld að stöðva
nú þegar allar framkvæmdir við
kjarnorkuver, og þeir halda því
fram að ríkisstjórnin hafi vísvit-
andi farið með rangt mál, er hún
sagði kjarnorkuverin hættulaus.
Einn helzti kjarnorkufræðingur
Breta, sir Francis Tombs, er
staddur í Ástralíu um þessar
mundir. í yiðtali við blaðamenn
þar ásakaði hann blöð víða um
heim fyrir að gera of mikið úr
óhappinu í Harrisburg. Sagði hann
að þessi túlkun blaðanna hefði
valdið miklum misskilningi hjá
lesendum þeirra varðandi slysið.
Hann sagði það alrangt að halda
því fram að kjarnorkan væri eitt-
hvað hættulegri en kola- eða olíu-
orka. Fullljóst væri af þessum
þremur orkugjöfum væri kjarn-
orkan hættuminnst. „Samkvæmt
þeim heimildum, sem fyrir liggja,
hefur kjarnorkan engum orðið að
bana undanfarin 25 ár,“ sagði
hann, og bætti við að heimurinn í
dag hefði ekki um annan kost að
velja en kjarnorkuna til að full-
nægja orkuþörfinni.
Bilunin í Harrisburg hefur einn-
ig verið fréttaefni í Sovétríkjun-
um, þar sem sagt hefur verið
nokkuð ítarlega frá atburðinum. í
dag flutti Pravda, málgagn flokks-
ins, hins vegar frásögn af kjarn-
orkuveri við Leningrad, sem blaðið
sagði að væri algjörlega öruggt
mönnum og umhverfi. Þetta er
fimm ára gamalt orkuver, sem sér
norð-vesturhéruðum Sovétríkj-
anna fyrir öllu rafmagni, og hafði
fréttamaður Pravda heimsótt ver-
ið. Lét fréttamaðurinn mikið yfir
öllum öryggisráðstöfunum við
orkuverið og sagði að þegar núver-
andi viðbyggingu væri lokið, yrði
þetta stærsta kjarnorkuver heims.
Samkvæmt Reutersfréttum
skýrði umhverfismálaráðherra
Dana, Ivar Nörregaard, samráð-
herrum sínum á Norðurlöndum
frá því í dag, að Danir kynnu að
krefjast þess af Svíum að þeir
lokuðu kjarnorkuveri sínu í Barse-
bæck, sem er í um tuttugu kíló-
metra fjarlægð frá Kaupmanna-
höfn. Benti hann á að sú krafa
væri lögmæt í ljósi umhverfis-
verndarsamnings, er löndin hefðu
gert með sér.
Veður
víða
um heim
Akureyri -6 anjóól
Amsterdam 9 skýjaó
Apena 18 skýjaó
Berlín 10 skýjaó
BrUssel 8 bjart
Chicago 27 skýjaó
Frankfurt 8 rigning
Genf 10 skýjað
Helsinki 2 skýjað
Hong Kong 25 rigning
Jerúsalem 32 mistur
Jóhanesarb. 24 8ÓI
Kairó 42 skýjað
Kaupmannah. 4 skýjað
Las Palmas 19 skýjað
Lissabon 17 sól
London 11 sól
Los Angeles 23 bjart
Madrid 10 sól
Majorka 17 hálfskýjaö
Malaga 18 léttskýjað
Miami 25 skýjað
Montreal 7 skýjað
Moskva 4 skýjað
Nýja Delhi 34 bjart
New York 19 rigning
Ósló 5 skýjað
París 11 skýjað
Reykjavík 1 léttskýjað
Rómaborg 12 bjart
San Francisco 19 bjart
Stokkhólmur 2 skýjað
Sydney 25 bjart
Tel Aviv 30 mistur
Tókíó 11 rigning
Toronto 3 skýjað
Vancouver 8 skýjað
Vínarborg 10 skýjað
Skoðana/cönnun:
lOOsœtameiri-
hluti Thatchers
V erðhækkun olíu
Gcnf, 2. apríl — Reuter.
MEÐALVERÐ á oliufati frá OPEC-ríkjunum hækkaði um 17% frá og
með 1. apríl og er áætlað að þessi hækkun auki olíukostnað
olíuinnflutningsrikja um 23 milljarða dollara á ári (rúmlega 7.500
milljarða króna). Er hækkunin í samræmi við ákvörðun leiðtogafund-
ar OPEC-ríkjanna í fyrri viku, en þar var ákveðið að grundvallar-
hækkun skyldi vera 9%, og að ofan á þá hækkun mætti olíuútflutnings-
ríkin bæta sérstöku aukagjaldi vegna mikillar eftirspurnar.
Talið er að enn meiri verðhækk-
un á olíu eigi eftir að koma í ljós
því ríki utan við OPEC, eins og til
dæmis Mexíkó, eiga eftir að til-
kynna verðákvörðun.
Hækkun þessi kemur harðast
niður á Bandaríkjunum og Japan.
Talið er að útgjaldaaukning
Bandaríkjanna verði um 8 millj-
arðar dollara á ári, en olíureikn-
ingur Japana mun hækka um 4
milljarða dollara árlega.
London, 1. apr.
BREZKI Ihaldsflokkurinn
vinnur yfirburðasigur í
þingkosningunum 3. maí n.k. og
fær 100 þingmanna meirihluta ef
marka má niðurstöður Marplan-
skoðanakönnunar sem var birt í
brezka sjónvarpinu nú um
helgina. Skoðanakönnunin var
einkum framkvæmd á þeim
svæðum þar sem mjótt hefur
verið á munum og þar sem miklar
sveiflur eru á kjörfylgi flokka og
kjósendur greiða stóru
flokkunum tveimur atkvæði sín
til skiptis.
Þá kom í ljós að 55 prósent
kjósenda á þessum stöðum ætla að
kjósa Ihaldsflokkinn að eigin sögn
og 40% munu styðja Verkamanna-
flokkinn og fimm prósent
Frjálslynda flokkinn. Verði þetta
ofan á á kjördegi þýðir það sem sé
100 sæta meirihluta í Neðri
málstofunni.
I skoðanakönnuninni kom einnig
fram að karlar styðja yfirleitt
Callaghan, en konur hneigjast til
að greiða Thatcher atkvæði og
getur þetta orðið mjög þungt á
metunum í kosningabaráttunni.
■ ■■
Af/
ERLENT
Khomeini
beið ekki
úrslitanna
Teheran, 1. apríl, Reuter, AP.
AYATOLLAH Khomoini. for-
ingi múhamoðstrúarmanna í
Iran, lýsti því yfir á sunnudag
að stofnað yrði íslamskt lýð-
voldi í landinu. Lýsti
Khomoini þessu yfir áður en
úrslit þjóðaratkva'ðagroiðslu
um málið lágu fyrir í heild.
Þjóðarútvarpið í Teheran
greindi frá því um helgina, að
átján milljónir og sjö hundruð
þúsund íbúar hefðu verið á
kjörskrá og hefðu um átján
milljónir atkvæða þegar verið
taldar. Skjóta upplýsingar
þessar mjög skökku við þær
spár varaforsætisráðherra
landsins, Amir Erteza, að búast
mætti við að um tólf milljónir
manna gengju að kjörborðinu.
Khomeini sagði í ávarpi í
Teheranútvarpinu að íranir
hefðu nú „urðað tvö þúsund og
fimm hundruð ára gamalt ein-
veldi í skarnhaugi mannkyns-
sögunnar".