Morgunblaðið - 10.04.1979, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. APRIL 1979
19
Gífuryrtur málflutningur
borgarstjórnarmeirihlutans:
Sjálfstœðismenn
„hengdir’,’„rassskelltir”
og í líki „óargadýrs”
EIRÍKUR Tómasson sagði við umræður um sölutilboð á einangrunar-
efni fyrir Hitaveitu Reykjavíkur, að hann væri hissa á málflutnin gi
Magnúsar L. Sveinssonar. í stjórn Innkaupastofnunarinnar hefði
hann sýnt þann drengskap að tefja ekki brýnt mál, en hér í
borgarstjórn breyttust málin. Eitthvað á þessa leið mæltist Eiríki; ég
er hissa á, að annars þessi dagfarsprúði maður Magnús L. Sveinsson
verður eins og maður gæti hugsað sér óargadýr í ræðustól
borgarstjórnar. í stjórn ISR sat MLS hjá, en Valgarð Briem (S)
greiddi atkvæði með meirihlutanum við kaup á einangrunarefninu.
Af því tilefni og afstöðu MLS í borgarstjórn sagði Sigurjón Pétursson
borgarfulltrúi Alþýðubandalagsins efnislega á þessa ieið: „Allt er hey
í harðindum, þó þurfi að hengja Valgarð Briem og rassskella Magnús
L. Sveinsson þá víla sjálfstæðismenn ekki fyrir sér að gera það til að
koma höggi á borgarstjórnarmeirihlutann." Albert Guðmundsson
sagði, að málflutningur sá sem borgarfulltrúar meirihlutans hefðu
hér í frammi, „að borgarfulltrúar væru í mynd ófreskju og verið væri
að hengja menn“ væri á allra lægsta plani sem hægt væri að koma
umræðum á.
Það væri hins vegar ekki undarlegt í raun þegar þvílikur meirihluti
ætti í hlut og málflutningurinn væri algerlega í samræmi við
málstaðinn sem borgarstjórnarmeirihlutinn væri nú að reyna verja.
Magnús L. Sveinsson sagði: „Mér þykir leitt ef Eiríkur Tómasson sér
mig hér í líki ófreskju."
Láta Björgvin, Kristján
og Sigurjón setja
vatnaUljur í EUiðaárnar?
EINS og kunnugt er skerti borgarstjórnarmeirihlutinn fjárveitingu
til veiði- og fiskræktarráðs svo við gerð fjárhagsáætlunar, að nú þarf
að segja eina starfsmanni ráðsins upp störfum. Hafa þeir
þremenningar Björgvin, Kristján og Sigurjón nú lagt til, að skrifstofa
borgarverkfræðings og garðyrkjustjóra vinni verk fyrir ráðið og verið
samþykkt. Davíð Oddsson (S) spurði meirihlutann að því á fundi
borgarstjórnar 5. apríl hvort ætlunin væri nú að garðyrkjustjóri færi
til þess að gróðursetja vatnaliljur í Elliðaánum?
Borgarfulltrúar Sjálfstœðisflokksins:
Ráðning Gunnars Eydals
er siðlaus pólitísk
misnotkun valds
— sem ber að harma og fordœma
Eins og kunnugt er hefur borgarstjórnarmeirihlutinn ákveðið
samhijóða að ráða Alþýðubandalagsmanninn Gunnar Eydal sem
skrifstofustjóra borgarstjórnar. Af því tiiefni bókuðu borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins eftirfarandi á fundi borgarstjórnar 5. apríl. „Við
hörmum og fordæmum þá afstoðu vinstri meirihlutans í borgar-
stjórn, sem fram kemur í ráðningu skrifstofustjóra borgarstjórnar.
Um starfið sóttu tveir starfsmenn borgarinnar, sem gegnt hafa
mikilvægum trúnaðarstörfum um árabil þar á meðai skrifstofustjóri
borgarverkfræðings, en það er eitt annasamasta embætti í
borgarkerfinu og hefir Jón G. Kristjánsson gegnt því embætti með
mestu prýði. Með því að ráða Gunnar Eydal til þessa starfs er
algjöriega gengið fram hjá mætum starfsmönnum borgarinnar og
felur sú ákvörðun í sér siðlausa pólitiska misnotkun valds."
Kratar og kommar
í eina sœng
— en Framsókn til fótal
VIÐ umræður um tilboð í einangrunarefni fyrir Hitaveitu Reykja-
víkur í borgarstjórn fyrir skömmu komst Markús Örn Antonsson svo
að orði: „Þegar kratar og kommar eru komnir í eina sæng með
framsókn til fóta er stutt í svínaríið. Furðar þá fáa að farið sé að
hygla Sambandinu."
Þakka hólið!
„Þegar tilboði er skilað inn til útboðsaðila er viss samningur
kominn því tilboðsaðili er í þeirri góri trú, að einhverju tilboði verði
tekið eða öllum hafnað," sagði Albert Guðmundsson (S) á fundi
borgarstjórnar 5. apríl. Eiríkur Tómasson varaborgarfulltrúi
Framsóknarflokksins sagði, að Albert kæmi þarna með nýja
kenningu í lögfræði. Albert Guðmundsson sagðist þakka slíkt hól frá
einum æðsta yfirmanni dómsmála í landinu. Sumir þyrftu að fara í
skóla í mörg ár til að læra lögfræði, aðrir hefðu þetta í eðli sínu ef
ráða mætti af máli Eiríks.
Markús Örn Antonsson;
Afstaða borgarstjórnar-
meirihlutans er furðuleg
Markús Örn Antonsson
(S) flutti tillögu á síðasta
fundi borgarstjórnar um að
borgarstjórn heimili, að
starfsmenn útideildar haldi
áfram störfum þar til sam-
starfsnefnd sem sett var á
laggirnar hefur lokið störf-
um. Umrædd nefnd var
stofnuð þegar borgarstjórn-
armeirihlutinn hafði skert
svo fjárveitingu til útideild-
arinnar, að hún hefði fyrir-
sjáanlega orðið óstarfhæf
innan tíðar. Tillaga sú sem
Markús Orn flutti var sam-
hljóða samþykkt sem full-
trúar allra flokkanna höfðu
einróma sámþykkt í félags-
málaráði. Þorbjörn Brodda-
son (Abl) sagðist hafa talið
mjög misráðið að leggja
útideild niður. Tilmæli fé-
lagsmálaráðs hefðu verið
full almennt orðuð til að
hægt væri að fallast á þau.
Hann kvaðst bjartsýnn á,
að hægt yrði að sætta sjón-
armið og flutti síðan frávís-
unartillögu við tillögu sjálf-
stæðismanna. Markús Orn
Antonsson sagði, að frávís-
unartillagan kæmi á óvart
miðað við umræður meiri-
hlutans á fundum í félags-
málaráði og þátttöku Þor-
björns Broddasonar í þeim.
Markús Örn kvaðst hafa
vænst stuðnings frá borgar-
fulltrúum meirihlutans í
borgarstjórn og félagsmála-
ráði, en það virtist ætla að
bregðast. Borgarstjórnar-
meirihlutinn samþykkti síð-
an frávísunartillögu sína.
Einsdæmi í borgarstjórn:
Borgarst j órnarmeirihlutinn
visar frá tveimur einróma sam-
þykktum sinna eigin fulltrúa!
Borgarstjórnarmeirihlut-
inn ómerkti tvívegis á síð-
asta borgarstjórnarfundi
gjörðir fulltrúa sinna í
tveimur ráðum borgarinnar!
Þetta gerðist með því, að
tveimur einróma samþykkt-
um sem fulltrúar allra
flokka höfðu staðið að var
vísað frá! Á fundi félags-
málaráðs 15. marz sam-
þykkti ráðið einróma: „Fé-
lagsmálaráð beinir því til
borgarráðs að heimilað
verði, að starfsmenn úti-
deildar haldi áfram störfum
þar til samstarfsnefnd um
starfsemi í þágu unglinga
hefur lagt fram tillögur
sínar“ (um framtíð útideild-
ar). Á umræddum fundi í
félagsmálaráði voru mætt:
Gerður Steinþórsdóttir (F),
Guðrún Helgadóttir (Abl),
Frá og með þriðjudeginum 10. apríl endurbætum við rjómann til að
auðvelda þeytingu.
Fituinnihaldið er aukið úr 33% í 36%.
Ahrifin verða:
• Miklu auðveldari þeyting. • Auðveldara er að sprauta rjómanum
• Rúmmál þeytirjómans eykst, og skreytingar halda sér betur.
hann verður u.þ.b. 10% drýgri
en fyrr, þegar búið er að
þeyta hann.
Neytendur eru beðnir velvirðingar á því að gömlu umbúðirnar verða í
notkun meðan beðið er eftir nýjum.
MJÓLKURSAMLÖGIN UM LAND ALLT.
Þorbjörn Broddason (Abl),
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir (A),
Markús Örn Antonsson (S),
Bessí Jóhannsdóttir (S) og
Hulda Valtýsdóttir (S). Af
þessum hópi undirritaði
Þ.Br. ekki fundargerðina og
hefur trúlega verið farinn af
fundi, en á borgarstjórnar-
fundinum flutti hann frá-
vísunartillögu við áður ein-
róma samþykkt meirihlut-
ans, sem Markús Örn flutti
sem sjálfstæða tillögu og
stuttu Sjöfn Sigurbjörns-
dóttir og Þorbjörn Brodda-
son frávísunartillöguna
ásamt sex öðrum fulltrúum
borgarstjórnarmeirihlut-
ans! Á sama borgarstjórn-
arfundi kom einnig fram
ósk frá veiði- og fiskirækt-
arráði, sem annars staðar er
greint frá, og borgarstjórn-
armeirihlutinn, hvað skyldi
hann hafa gert? Hann vís-
aði bara frá einróma sam-
þykkt eigin manna í ráðinu!
Gamalt
fólk gengur