Morgunblaðið - 10.04.1979, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1979
Petur
• West Bromwieh Albion veitir Liver-
pool haröa keppni að þesau sinni. Á
meðfylgjandi mynd hefur hins vegar
mark liðeins sloppið vel, bjargað f horn
frí Brian Kidd, þá leikmaður með
Manchester City, nú með Everton.
Stefnirihörku
uppgjör 3 liða
STAÐAN á toppi fyrstu deildarinnar fer að æsast og framundan er sá
tími sem mjög oft sker úr um hvaða lið hafa getu og þol til að hremma
titilinn, þ.e.a.s. páskavikan, sem er sem þéttriðið net leikja. Liverpool
hefur sem stendur 4 stiga forskot umfram WBA, en Birmingham-liðið
á þó einn leik til góða. Meistararnir frá síðasta vetri, Nottingham
Forest, eru einnig á næstu grösum og firnasterkir þessar vikurnar.
Fallbaráttan virðist á hinn bóginn vera ótrúlega skýr um þessar
mundir. Þar virðast QPR, Birmingham og Chelsea vera allar bjargir
bannaðar. Ef þau falla, verður það kjaftshögg fyrir Lundúnaknatt-
spyrnuna að missa tvö lið úr fyrstu deild. Af þeim þremur, fékk aðeins
Birmingham stig um helgina.
Endaspretturinn
verður rosalegur
Þau þrjú lið, sem nú berjast
hvað harðast um titilinn, unnu öll
leiki sína á laugardaginn. Liver-
pool, nýslegnir út úr undanúrslit-
um FA-bikarsins, áttu í litlum
vandræðum með Arsenal, sem
ásamt Manchester Utd. leikur til
úrslita um bikarinn í Wemhley.
Liverpool tókst þó ekki að skora í
fyrri hálfleik og þóttu leikmenn
liðsins enn bera vonbrigði bikar-
leiksins gegn Man. Utd. Þetta stóð
þó allt til bóta og snemma í síðari
hálfleik skoraði Jim Case eftir að
Phil Thompson hafði lagt knöttinn
á tærnar á honum. Ken Dalglish
skoraði annað markið skömmu
síðar eftir að Jennings hafði hálf-
varið skot frá Souness. Og Souness
kom einnig við sögu á 88. mínútu,
þegar hann einlék í gegnum vörn
Arsenal og sendi á Terry McDer-
mott, sem skoraði þriðja markið.
WBA fékk Everton í heimsókn.
Everton var lengi vel með jafna
möguleika og hin topplið deildar-
innar, en hefur hrakað illilega að
undanförnu. Liðið sótti ekki svo
mikið sem eitt stig á The
Hawthornes að þessu sinni, því að
Ally Brown, framherji WBA, skor-
aði eina mark leiksins. Everton
varðist þó lengst af vel og það var
ekki fyrr en 8 mínútum fyrir
leikslok, að Colin Todd urðu á
slysaleg mistök sem leiddu til
marksins.
Forest var ekki i vandræðum
með lélegt lið Chelsea, lék þó
meistaraliðið án þeirra Garry
Birtles og Tony Woodcock. Trevor
Francis átti stórleik með liðinu,
skoraði fyrsta markið á 8. mínútu
og lagði annað markið upp fyrir
Martin O’Niel á 42. mínútu.
Chelsea lék nokkuð vel framan af
síðari hálfleik og minnkaði þá Ray
Wilkins muninn með góðu marki,
en Ian Bowyer innsiglaði sigurinn
skömmu fyrir leikslok með góðu
marki eftir fyrirgjöf frá Francis.
Botnliðin í basli
Auk Chelsea, sem áður er um
rætt, áttu botnliðin flest litlu láni
að fagna. QPR tapaði gegn Bolton
á marki Alan Gowling 5 mínútum
fyrir leikslok, áður hafði Frank
Worthington náð forystunni fyrir
Bolton, en Paul Goddard jafnað.
Gerry Francis gerði félögum sín-
um hjá QPR lítin greiða þegar
hann lét reka sig út af fyrir að
sparka mótherja niður. Töldu
fréttamenn BBC á staðnum það
vera áberandi hefndaraðgerð hjá
Francis og dómarinn var fljótur að
grípa rauða spjaldið.
Birmingham missti niður stór-
gott forskot, 2—0, þegar Steve
Baker og Austin Hayes skoruðu
fyrir Southampton í síðari hálf-
leik. Stewart Barrowclough skor-
aði bæði mörk Birmingham, sitt í
hvorum hálfleik.
Bæði Derby og Wolves töpuðu
leikjum sínum og eru nærri botn-
1. DEILD I 2.DEILD
Liverpool 31 22 6 3 66 11 50 Brighton 36 19 9 8 60 33 47
West Bromwich 30 20 6 4 62 27 46 Stoke City 36 16 14 6 50 30 46
Nottingham Forest 31 15 14 2 48 20 44 Crystal Palace 35 14 17 4 42 22 45
Everton 35 15 14 6 46 33 44 Sunderland 35 17 11 7 54 37 45
Leeds United 33 14 12 7 58 42 40 West Ham 33 15 10 8 61 33 40
Arsenal 34 15 10 9 51 36 40 Notts County 33 13 13 7 44 46 39
Coventry 36 11 14 11 44 58 36 Orient 36 14 8 14 48 44 36
Manchester United 31 13 9 9 51 52 35 Fulham 34 12 11 11 42 38 35
Bristol City 36 13 9 14 41 44 35 Burnley 32 12 10 10 46 49 34
Ipswich 34 13 8 13 43 41 34 Preston 34 9 15 10 49 51 33
Norwich 35 7 20 8 48 50 34 Newcastle 32 14 5 13 40 45 33
Aston Vilia 31 10 13 8 39 33 33 Cambridge 35 9 15 11 38 43 33
Tottenham 34 11 11 12 37 51 33 Leicester 34 9 14 11 37 38 32
Middlesbrough 34 12 8 14 49 45 32 Charlton 36 10 12 14 56 60 32
Southampton 32 10 12 10 38 38 32 Bristol Rovers 33 11 10 12 42 48 32
Manchester City 33 9 12 12 46 45 30 Luton 34 12 6 16 52 47 30
- Bolton 33 11 8 14 46 57 30 Wrexham 29 10 9 10 35 28 29
Derby County 35 9 9 17 37 57 27 Sheffield United 33 8 10 15 37 51 26
Wolverhampton 33 10 5 18 33 58 25 Cardiff 32 10 6 16 38 63 26
Queen’s Park R. 35 5 11 19 34 57 21 Oldham 33 7 11 15 34 56 25
Birmingham 34 5 7 22 31 52 17 Blaekburn 33 6 9 18 32 58 21
Chelsea 34 4 8 22 33 74 16 Millwall 30 7 5 18 29 46 19
inum. Derby sótti mjög gegn
Bristol City, en fékk fá umtalsverð
færi. Bristol-liðið átti á hinn
bóginn nokkrar góðar sóknarlotur
og úr einni slíkri í síðari hálfleik
skoraði Tom Ritchie sigurmark
Bristol. Manchester City vann loks
leik og var það á kostnað Úlfanna.
Mick Channon og Roger Palmer
komu City í 2—0 áður en að Ken
Hibbitt skoraði eina mark Úlf-
anna. Nýi maðurinn frá Plymouth,
Barry Silkman, skoraði hins vegar
þriðja mark MC.
Aðrir leikir
Norwich og Manchester Utd.
áttu með sér þófkenndan og
markalausan fyrri hálfleik, en
Norwich tók síðan af skarið
snemma í þeim síðari og Graham
Paddon og Kieth Robson komu
Norwich í 2—0. Tíu mínútum fyrir
leikslok var staðan óbreytt og
sigur Norwich virtist í höfn, en þá
skoraði Gordon McQueen fyrir MU
og Lou Macari var síðan fljótur að
jafna metin áður en tíminn rann
út.
Tottenham hefur dalað hrika-
lega undanfarið og féll nú á
heimavelli fyrir Middlesbrough,
sem er ekki meðal efstu liða
deildarinnar. Þess ber þó að gæta,
að Boro hefur verið í miklu stuði
síðustu vikurnar og sigur liðsins
gegn Tottenham var 7. leikur
liðsins í röð án taps. Mark Proctor
skoraði fyrst fyrir Boro, Peter
Taylor jafnaði í síðari hálfleik úr
víti, en sigurmarkið kom stundar-
korni síðar og það skoraði Billy
Ashcroft.
Þá er eftir að geta tveggja 1—1
jafntefla. Trevör Cherry náði for-
ystunni fyrir Leeds gegn Ipswich í
fyrri hálfleik, en Ipswich tókst að
tryggJA sér annað stigið með
marki Eric Gates í síðari hálfleik.
Ipswich lék þennan leik mjög vel
og verðskuldaði annað stigið. Virð-
ist sem Leeds hafi misst algerlega
vindinn með stórtapinu gegn
Manchester Utd. fyrir skömmu.
Tommy Hutchinson náði forystu
fyrir Coventry í fyrri hálfleik gegn
Aston Villa, en Villa tókst að jafna
í síðari hálfleik með marki John
Deehan. Miðvörður Villa, Alan
Evans, var rekinn af leikvelli fyrir
grófan leik.
Leikurinn æsist
í 2. deild
Á þessu stigi getur enginn séð
fyrir endann á toppbaráttunni í
annarri deild. Þar eru 5 lið í hrúgu
og getur allt gerst og gerist raunar
hverja helgi. Að þessu sinni tókst
engu toppliðanna að knýja fram
sigur. Brighton gerði jafntefli úti
gegn Orient. Joe Mayo náði foryst-
unni fyrir Orient, en Peter Sayer
jafnaði. Þá komu við sögu tveir
gamalkunnir enskir landsliðs-
menn, þeir Martin Chivers hjá
Brighton og Ralph Coats hjá
Orient. Þeir skoruðu báðir fyrir lið
sín og staðan var 2—2 í hálfleik.
Brian Clarke tókst að ná foryst-
unni á nýjan leik fyrir Brighton,
en lokaorðið átti Ian Moores sem
jafnaði 3—3 fyrir Orient.
Alan Shoulder skoraði sigur-
mark Newcastle gegn Crystal
Palace og mark frá Viv Busby
tryggði Stoke annað stigið gegn
Leicester. Þá gerði bæði West
Ham og Sunderland markalaus
jafntefli á útivöllum, WH gegn
Cambridge og Sunderland gegn
Bristol Rovers.
PÉTUR Pétursson lætur alltaf meira
og meira að sér kveða með hollenska
stórliðinu Feyenoord. Liðið vann um
helgina mjög athyglisverðan sigur á
útivelli gegn PSV Eindhoven og kom
fram í fréttaskeytum að Pétur hefði
verið maðurinn aö baki sigrinum.
Mbl. sló á þráöinn til Hollands á
sunnudaginn og varð faðir Péturs
fyrir svörum. Hann kvað Pétur hafa
leikið mjög vel og gert hvað eftir
annaö mikinn usla í vörn PSV. T.d.
átti hann algerlega sigurmark Feyen-
orrd, skallaöi knöttinn til Van Der
Lem, sem skoraði, enda í dauöafæri.
Reyndar var það PSV sem náðu
forystunni í leiknum með marki Rene
Van Der Kerkhov, sem komst inn í
sendingu til markvarðar. Jan Peters,
hollenski landsliðsmaðurinn, átti
einnig frábæran leik með Feyenorrd
og hann jafnaði með fallegu marki.
Og eins og áður sagði var það Pétur
sem lagöi upp sigurmarkiö. Pétur lék
í stööu vinstri útherja aö þessu sinni.
ENGLAND, 1. DEILD;
Birminghara — Southampton 2—2
Bolton - QPR 2-1
Chelsea — Nott. Forest t —3
Coventry — Aston Villa 1—1
Derby — Brietol City 0—1
Leede — Ipswich 1—1
Liverpool — Arsenal 3—0
Man. City — Wolves 3—1
Norwich — Man. Utd. 2—2
Totthenhara — Middlesbr. 1—2
WBA — Everton 1—0
ENGLAND, 2. DEILD:
Blackburn - Sheffield Utd. 2-0
Bristol Rovers — Sunderland 0—0
Cambridge — We«t Ham 0—0
Cardiff - Miilwall 2-1
Charlton — Preston 1 — 1
Leicester — Stoke 1—1
Luton — Burniey 4—1
Newcastle — Crystal Paiace 1—0
N. County — Kulham 1—1
Orient — Brighton 3—3
ENGLAND, 3. DEILD:
Blackpool — Bury 1—2
Carliale — Giliingham 1—0
Lincoln — Chester 0—0
Mansfield - Watford 0-3
Plymouth — Huli 3—4
Rotherhara — Oxford 0—0
Sheffield Wed. - Swansea 0-0
Shresbury — Peterbrough 2—0
Swindon — Chesterfield 1—0
Walsail — Brentford 2—3
ENGLAND, 4. DEILD:
Aldershot — Huddersfield 1—0
Bournemouth — Barneley 0—2
Crewe — Reading 0—2
Darlington — Newport 1-0
Grlmaby — Stockport 2—1
Haiifax - Wimbledon 2-1
Hartlepool — Bradford C 2—2
Hereford — Scunthorpe 3—1
Portsmouth — Northampton 1—0
Port Vale - York 0-0
Rochdaie — Doncaater 2—0
SKOTLAND, ÚRVALSDEILD:
Aberdeen — Hibernian 0—0
Ceitic — Partick 2—0
Dundee Utd. — St. Mirren 2—0
Hearte — Motherweil 3—0
Rangers — Morton 1—1
VESTUR ÞÝSKALAND:
Koln - Schaike 04 1-0
Darmstadt — Duisburg 2—0
KaÍBersiautern — Dortmund 3—1
Nilrnberg — Hamburger 3—3
Werder Bremen — Mönchengladb. 3—1
Bochum - Bayern 0-1
Sutttgart — Armenia Bieiefeldt 5—1
Hertha — Frankfurt 4—1
Fortuna DUsseldorf — Brunswick 2—2
Kaiserslautern hefur 38 stig. Stuttgart
hefur 36 stig og Hamburger er f þriðja
sœti m»ð 34 8tig.
Buijan. Hrubesch og Hidien skoruðu
mörk Hamburger gegn NUrnberg sem
svaraði og tryggði sér jafntefii með
mörkum Weyerich, Szymunek og
Lieberwirth. Zimmermann skoraði eina
mark Kölnar gegn Schalke og það naegði
til sigurs.
BELGlA:
Anderlecht — FC Brugge 3—0
Lokeren — Beveren 1—1
Berchot — Molenbeek 1—3
Winterslag — Berchem 3—5
Charleroi —. Standard 1—2
Lierse — Courtrai 2—0
Waregem — La Louviere 5—0
FC Liege — Waterschei 4—0
Berlngen — Antwerp 2—0
Að þessum leikjum ioknum, eru
Lokeren og Standard jöfn f 3.-4. sæti
með 33 stig. Efsta llðlð Beveren hefur 41
stlg, en Anderlecht er í öðru sæti með 38
stig.
HOLLAND:
Ajax — Maaatricht 6—0
Nec Nljmegen — FC Utrecht 0—0
Sparta — Pec Zwolle 2—2
Den Haag — Nac Breda 1—1
AZ '67Alkmaar — Tvente 3—0
Haarlem — Volendam 0—1
GAE Deventer — Roda JC 3—0
PSV Elndhoven — Feyenoord 1—2
VW Venlú — Vitesse Arnhem 1 —2
Roda heldur forystu sinni þritt fyrir
stdrtap á útivelii gegn Deventer. Roda
hefur nú 34 stig, Ajax 33 og Feyenoord
hefur dregið mikið á iiðin, hefur nú 32
stig f þriðja sæti.
Pétur Pétursson var heldur betur í
sviðsljðsinu er Feyenoord vann mjög
ðvæntan útisigur gegn PSV Eindboven.
en mjög fátftt er að Eindoven-liðið tapi
stigi á heimavelli sfnum. PSV náði meira
að segja forystunni f leiknum með markl
Rene Van Der Kerkhov. Fréttaskeyti AP
aetir, að er PSV hafði náð forystunni,
hafi Feyenoord farið f gang svo að um
munaði og lelkið vörn heimaliðsins hvað
eftir annað grátt. Segir skeytið, að þeir
Pétur Pétursson og Jan Peters hafi leikið
sína bestu leiki íyrr og síðar fyrir
Feynoord. l>að var Jan Peters sem
jafnaði með góðu marki og Gerd Van Der
Lem skoraðf sfðan úrsiitamarkið.
Dick Schownmaker og Frank Arneaen
skoruðu tvö mörk hvor fyrir Ajax, Ray
Clarke og Sören Lerby eltt hvor, er Ajax
flengdl Maastricht 6—0.