Morgunblaðið - 10.04.1979, Page 29

Morgunblaðið - 10.04.1979, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1979 29 Fyrsta lögbundna grunnkaupsskerðingin: „Konur og börn í lífbeltin............................” — sagði Sighvatur um sérstöðu Svövu og Kjartans Nokkrar sögulegar atkvæðagreiðslur, með tilheyrandi nafnaköllum og greinargerð- um fyrir atkvæðum, fóru fram við lokaafgreiðslu á efnahagsfrumvarpi forsætisráð- herra í neðri deild Alþingis sl. laugardag. í greinargerðum féllu í senn þung alvöruorð og önnur, sem nálguðust gamansemi. Efnispunktar úr þessum greinargerðum verða lauslega raktir hér á eftir. Matth<«8 Bjarnaxon Svava JakobNdóttir Sex prósent kjaraskerðing Fyrsti kaflinn í efnahagsfrum- varpinu, sem leiddi til klofnings í stjórnarliði, var 8. kaflinn „um verðbætur á laun“. Gegn honum greiddu 2 þingmenn Alþýðubanda- lags atkvæði (50. gr., fyrstu mgr. ásamt tölulið 1), þ.e. Kjartan Ólafs- son og Svava Jakobsdóttir. • Kjartan Ólafsson (Alb) gerði grein fyrir atkvæði sínu. Hann sagði efnislega á þessa leið: Þar sem ákvæði verðbótakaflans í frumvarpinu, eins og hann liggur fyrir í heild, felur í sér 6% kaup- skerðingu, að dómi Þjóðhagsstofn- unar, og nær að fullu til alls láglaunafólks í landinu áður en árið er á enda, og þar sem ákvæði þessarar greinar ganga á gerða kjarasamninga, segi ég nei. • Sighvatur Björgvinsson (A) sagði efnislega. Ákvæði þessa frumvarps öll eru hluti af heildar- samkomulagi stjórnarflokkanna þriggja. Hér er því um tvennt að ræða, að standa við gert samkomu- lag og stuðla þannig að áframhald- andi stjórnarsamstarfi — eða breyta í gagnstæða átt og ganga í lið með stjórnarandstöðu. Eg segi já. Viðskiptakjaraáhrif á vísitölu 51. gr. fv., um viðskiptakjara- áhrif á vísitölu, var næsta ágrein- ingsefnið. Þar var enn viðhaft nafnakali. Einn stjórnarþingmað- ur, Kjartan Ólafsson (Abl), greiddi atkvæði gegn frumvarpsgreininni. • Kjartan Ólafsson (Abl) sagði efnislega í greinargerð fyrir at- kvæði sínu. Eg er ekki andvígur viðskiptakjaraviðmiðun út af fyrir sig, en í þessari frumvarpsgrein er tenging vísitölu og viðskiptakjara þann veg unnin, að hún leiðir af sér 3% kaupskerðingu, með því að miðað er við viðskiptakjarastig ársins 1978 í heild. Ef miðað hefði verið við viðskiptakjarastig sl. 6 mánuði þ.e. þriggja síðustu mánaða 1978 og 3 fyrstu 1979, hefði kaup- skerðingin ekki orðið nema 0.3%, sem ég hefði getað sætt mig við, en ekki að gengið sé jafn mikið á hlut launafólks og hér er lagt til. Ég segi nei. • Sigvatur Björgvinsson (A) sagði það hlutskipti sumra að hlaupa undir þiljur, þegar gæfi á bátinn, og leita skjóls meðan skipsfélagar kæmu bátnum heilum í höfn. Slík sjóhræðsla þætti þó ekki til fyrir- myndar, hvorki á ísafirði né í Súgandafirði. Ég segi já. Grunnlaunaskerðing — ekki allir jafnir fyrir lögunum Þriðja nafnakallið var um ákvæði til bráðabirgða, fyrstu mgr. og tölulið I, þar sem m.a. er kveðið á um grunnlaun „við upphaf gildis- tíma þessara laga“. Þetta ákvæði var samþykkt með 23 atkvæðum allra viðstaddra þingmanna stjórn- arflokkanna þriggja, gegn atkv. Halldórs Blöndal (S), 12 sátu hjá, 4 vóru fjarverandi. • Halldór Blöndal (S) gerði grein fyrir atkvæði sínu efnislega á þessa leiða. Hér er í fyrstu sinn hróflað við grunnlaunaákvæðum gildandi Matthías Bjarnason: Veiðiskattur í kjölfar aflatakmarkana ópol- andi. Kjartan Ólafsson: 6% kaupskeröing. Sighvatur Björgvins- son: Sjóhræðsla ekki lofsverð á ísafiröi né Súgandafirði. Halldór Blöndal: Ekki allir jafnir fyrir pessum lögum. Svava Jakobsdótfir: Sit hjá vegna afnáms láglaunabóta. kjarasamninga með lögum. Það er gert með þeim hætti að sumir halda óbreyttu grunnkaupi, aðrir ekki. Þetta felur í sér óverjandi óréttlæti sem er ekki samboðið virðingu Alþingis og staðfestir þá reglu, að menn sem ekki jafnir fyrir lögunum. Ég segi því nei. Láglaunabætur í sex mánuði en falli þá burt Nafnakall var við tölulið II í ákvæðum til bráðabirgða, sem fela í sér láglaunabætur fram til 1. desember 1979, sem þá falli niður. Þetta ákvæði var samþykkt með 23 samhljóða atkvæðum þingmanna stjórnarflokkanna en þrír þing- menn gerðu grein fyrir atkvæði sínu. • Svava Jakobsdóttir (Abl) sagðist greiða þessu ákvæði at- kvæði, því láglaunabætur, þó til skamms tíma væri, væru réttlætis- mál. Hins vegar myndi hún mót- mæla því ákvæði, að lálglaunafólk yrði svipt þessum bótum síðar á árinu, með því að sitja hjá við atkvæðagreiðslu um frumvarpið í heild. Ég segi já. • Kjartan ólafsson (Abl) sagði ákveðið um skammtíma láglauna- bætur betra en ekki og segði því já. Það hins vegar, að bætur þessar eru teknar aftur síðar á árinu, valdi því, með öðru, að hann geti ekki stutt frumvarpið í heild. • Halldór Blöndal (S) minnti á, að það hefði verið grundvöllur efna- hagsráðstafana stjórnar Geirs Hallgrímssonar að halda láglauna- bótum þann veg, að kaupmáttur lægstu launa rýrnaði ekki. Eftir stjórnarskiptin hefði orðið breyting á. I september sl. hefðu verið sett bráðabirgðalög, sem fólu í sér lækkun lægstu launa í krónum talið, meðan hærri laun hækkuðu um allt að 12% eða meira. í desember hefði kaupgjaldsvísitala verið skert um 5% bótalaust, án uppbóta á lægstu laun. Nú stæði til skerðing k-vísitölu um 6—7% án annars en skammtímabóta á lægstu laun. Þar sem gert væri ráð fyrir láglaunabótum í bili sagðist H.Bl. ekki greiða atkvæði gegn frv. greininni en sæti hjá við atkv.greiðsluna. Skattur á þorskveiðar í kjölfar aflatakmarkana Síðasta frumvarpsákvæðið, sem nafnakall var um, var 64. gr. þess, sem m.a. gerir ráð fyrir „bæta upp verð á þeim tegundum, sem van- nýttar kunna að vera, og leggja í því skyni sérstakt gjald á afla af þeim tegundum, sem taldar eru ofnýttar" (heimildarákvæði). • Kjartan ólafsson (Abl) sagði m.a., að sjávarútvegsráðherra hefði nýlega gefið út reglugerð, sem skerti mjög atvinnu og afkomu fólks í þeim byggðarlögum, sem einkum er háð þorskveiðum og vinnslu (togarasjómenn og fisk- vinnslufólk). Sérstök sköttun þorskveiða að auki myndi verða óbærileg þessum byggðarlögum, og veikja atvinnulega stöðu þeirra úr hófi. Ég segi nei. • Halldór Blöndal (S) sagði rétt, að illa hefði verið haldið á málefn- um sjávarútvegs í þessari ríkis- stjórn. Rétt væri og, að óhóflega miklir skattar hefðu verið lagðir á þennan atvinnurekstur sem annan. Hér væri enn einn skatturinn á ferð, skattur á þorskveiðar, sem yrðu fyrir miklum takmörkunum á þessu ári. Hann segði því nei. • Matthías Bjarnason (S) sagði óþolandi að lögfesta ákvæði sem þetta á þennan hátt sem hér væri lagt til. Greinin fjallaði einvörð- ungu um, að „lög um aflatrygg- ingarsjóð verði tekin til gagngerðr- ar endurskoðunar" á þessu ári. Við þessa stefnuyfirlýsingu væri hnýtt heimildinni um sérstakan skatt á þorskveiðar; og í næsta kafla frv. væri heimild til sjávarútvegsráð- herra til að setja með „reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd" skattsins. Vafalaust samþykkir handjárnað stjórnarlið þetta ákvæði; en fróðlegt verður að sjá, hvaða þingmenn samþykkja þenn- an veiðiskatt í kjölfar aflatakmark- ana, sem kom illa niður á heildum landshlutum. Ég segi nei. • Sighvatur Björgvinsson (A) sagði að ekki yrði bæði sleppt og haldið. Aðalatriðið væri að sigla þjóðarskútunni heilli í höfn. Þó væri ekkert á móti því að „konur og börn“ meðal farþega færu strax í lífbeltin og leituðu skjóls í björgunarbátum ýmiss konar sér- stöðu. (hér mun SBj eiga við þá tvo þingmenn Alþýðubandalags, sem greiddu atkv. gegn nokkrum frumvarpsgreinum). Þessi frumvarpsgrein var síðan samþykkt með 22 atkvæðum stjórnarliða, en gegn vóru 14 þing- menn Sjálfstæðisflokks og Kjartan Ólafsson (Abl). Við kynnum nýjar snyrtivörur frá Pierre Robert v Ný og betri Soft Skin baðlína. Eftir baðkrem, Freyðibað, Roll-on svita- lyktaeyðir, Dush fyrir steypibað. 2 ferskar ilmtegundir. FÁST í SÉRVERSLUNUM. Tunguhálsi 11, R. Sími 82700 SKÍÐAB0GAR fvrir flestar œröir bifreióa Allt á sama stað Laugavegi 118- Simar 22240 og 15700 EGILL VILHJÁLMSSON HE

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.