Morgunblaðið - 10.04.1979, Page 31

Morgunblaðið - 10.04.1979, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1979 3 1 Jósefma Eyjólfsdótt- ir - Minningarorð í dag kveðjum við hinstu kveðju stórbrotna og sterkbyggða konu sem lokið hefur erfiðu dagsverki, farin á sál og líkama. Jósefína andaðit á Landspítala 2. apríl síðastliðinn eftir mikla sjúkdómserfiðleika undanfarin tvö ár. Ellefu urðu ferðir hennar á sjúkrahús þessi tvö ár. Jósefína fæddist 30. september 1893 og hefur verið búsett á höfuðborgarsvæðinu alla sína tíð. Vorið 1922 giftist hún sæmdar- og heiðursmanninum Halldór i Sigurðssyni knattspyrnufrömuði. Á heimili þeirra voru ekki stórir salir né ríkulegt samansafn veraldlegra hluta en þangað áttu margir erindi til Halldórs vegna hlutdeildar hans í stofnun Knatt- spyrnufélagsins Þróttar og þeirrar félagsmálaforystu sem á eftir fór en til Jósefínu komu ungir sem aldnir af öllum stéttum til þess að biðja hana um að gá í spilin. Verzlunarmærin að unnustanum, útgerðarmaðurinn að fiskinum. Þá komu hæfileikar Jósefínu bezt í ljós, þaðan fóru oft ánægðir viðskiptavinir og ósjaldan barst 'heimilinu vinargjöf frá heim- sækjendum ásamt þakklæti fyrir framkominn spádóm. í blaðaviðtali var Jósefínu ein- hvern tíma spurð hvernig unnt vær að fá alla þessa vitneskju úr spilum. Hún svaraði: Ég finn það innra með mér. Jósefína var viljasterk kona og sterktrúuð á kærleika Guðs. Um- hyggja Jósefínu fyrir öllum ást- vinum sínum og þeim sem áttu hana að vini var alveg með ein- dæmum mikil alla tíð. Jósefína hafði mikla ánægju af að ferðast til útlanda og fyrir aðstoð góðra manna átti hún þess kost að fara slíkar ferðir núna seinni árin. Aldrei tapaði hún reisn sinni né virðuleik. Áður en hún giftist eignaðist hún eina dóttur, Steinþóru, og til Árnýjar dóttur sinnar fluttist Jósefína er hún var farin að heilsu, löngu eftir fráfall Halldórs. Ég hef reynt að gera ljóst hve mikinn hug hún lagði í að þjóna öðrum og ljúft er mér að geta þeirra er léttu henni sjúkdóms- byrðina, þar ber fyrst að nefna Árnýju dótturdóttur hennar og eiginmann hennar, Hálfdán Gústafsson í Garðabæ, en jafn- framt verður mér lengi minnis- stæður kærleikur og umburðar- lyndi sem hjúkrunarfólk á Land- spítalanum sýndi hinni sárþjáðu vinkonu minni í erfiðleikum hennar og helstríði. Þá er lokið lífsferð þessarar ágætu vinkonu minnar sem kveður eftir langan og oft strangan dag. Guð gefi henni góða ferð og aukna innsýn í djúp fegurðar annars lífs. Samúðarkveðjur sendi ég aðstandendum öllum. B.K.G. smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Páskaferöir 12.—16. apríl kl. 08. 1. Snæfellsnes. 2. Landmannalaugar. 3. Þórsmörk. Allt eru þetta fimm feröir. Einnig er fariö í Þórsmörk á laugardaginn kl. 08. Nánari upplýsingar og farmiða- sala á skrifstofunni. Feröafélag íslands. IOOF Rb. 1=- 1284108% — □ Edda 59794107 — 1. □ HAMAR 59794107 — Frl. Í l.f J UTIVISTARFERÐIR Páskaferðir, 5 dagar: Öræfaferö, fararstj. Jón I. Bjarnason, Uppselt. Snafellsnes, fjallgöngur, strandgöngur, gist á Lýsuhóli, sundlaug, hitapottur, ölkeldur, kvöldvökur. Fararstj. Erlingur Thoroddsen og fleiri. Farseölar á skrifst. Lækjarg. 6a, sími 14606. AAalfundur Utivistar veröur í Snorrabúð (Austurbæjarbíó) þriöjud. 10.4. kl. 21. Myndasýn- ing eftir fundinn. Útivist. Hjálpræöisherinn Biblíulestur og bæn í kvöld kl. 20 hjá Major Ona. Fíladelfía Almenn samkoma í kvöld kl. 20.30. Ræöumaöur Einar J. Gíslason. ■ GEOVERNDARFÉLAG ISLANDSB Hörgshlíö 12 Samkoma í kvöld, sunnudag kl. 8.00. tilkynningar* O-jUL Hilmar Foss lögg. skjalaþýö. dómt. Hafnar- stræti 11, sími 14824. Freyju- götu 37. Sími 12105. Frúarkápur til sölu í stæröum 36— 50 úr ullarefn- um. Sumt ódýrt. Kápusaumast. Diana, Miötúni 78, sími 18481. Keflavík 4ra herb. sem ný íbúö til sölu, eingöngu í skiptum fyrir ein- býlishús eöa raöhús á einni hæö. Upplýsingar aöeins á skrifstofunni. Brotamálmur er fluttur aö Ármúla, sími 37033. Kaupi allan brotamálm lang- hæsta veröi. Staögreiösla. Viltu gefa hestefni í fermingar-, afmælis- eöa tækifærisgjöf Úrval eins og tveggja vetra trippa, svo og hryssur þriggja vetra og eldri. Sanngjarnt verö. Upplýsingar í síma 24905 eftir kl. 18. Vogar 3ja herb. góö risíbúö. Eigna og Veröbréfasalan, Hringbraut 90, Keflavík. Sími 92-3222. AUGLYSINGASIMINN ER: 22410 JHor0iutbUbiö raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar Fákur unglingadeild Vorstarfiö hefst meö sameiginlegri hópferö á hestum frá efri Fák í dag kl. 2.30 e.h. Væntum þess aö sjá sem flesta aftur sem tóku þátt í starfinu síðasta ár og bjóöum nýja unglinga velkomna. Miðaö er viö aldur 15 ára og yngri. Nefndin. Keflavík — Njarövík Óskum eftir aö fá leigöa 2ja herb. íbúö í Keflavík eöa Njarövík. Tilboö sendist Mbl. merkt: „Húsnæöi — 5800“. Hestaeigendur í Mosfellshreppi Hagabeit fyrir reiöhesta veröur látin í té í löndum hreppsins á næsta sumri. Þeir, sem hafa hug á aö fá beit, sæki um þaö á sérstökum eyðublöðum sem eru afhent á skrifstofu hreppsins. Sveitastjóri. Keflavík — Njarövík Til sölu 150 til 160 fm iönaöarhúsnæöi í góöu ástandi. Hentugt fyrir margs konar iðnaö t.d. bifreiöaverkstæöi. Góöir viöskiptavinir í þeirri grein geta fylgt. 937 fm iðnaðarhúsnæði í byggingu. Selst fokhelt. Góö verzlunar- eöa iönaðarlóö í Ytri Njarövík 2500 fm meö stækkunarmöguleik- um. Góö bílastæöi. Eignarlóö. Miklir mögu- leikar. Eignamiðlun Suöurnesja, Hafnargötu 37, Keflavík. Sími 3868. 28 tonna bátur Til sölu er N/B Silfá ÍS — 188. Báturinn er 28 tonn. Smíðaöur 1964 meö 220 ha Caterpillar vél frá 1977. Lister Ijósavél frá 1965. Furno radar og C Loran frá 1977, rafkerfi nýlegt og lúkar innréttaöur 1978. 6 rafknúnar handfærarúllur, allur rækjuveiöi- búnaöur og snurvoð fylgja. Arnar G. Hinriksson hdl., Aðalstræti 13, ísafiröi, sími 94-3214. Verö í síma 22322, Reykjavík frá þriðju- dagskvöldi til laugardags. fll ÚTBOÐ Tilboö óskast í dælumótora fyrir Hitaveitu Reykjavíkur. Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboöin veröa opnuð á sama staö þriöjudaginn 15. maí n.k. kl. 11 f.h. INNKAUPASTOFNUN REVKJAVÍKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 — Simi 2*5800 á (P ÚTBOÐ Tilboö óskast í 250 stk. tréslár á háspennu- línur fyrir Rafmagnsveitur Reykjavíkur. Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboöin veröa opnuö á sama staö miövikudaginn 9. maí n.k. kl. 11 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 8 — Simi 25800 Útboð Framkvæmdanefnd um byggingu leigu- íbúöa, Raufarhöfn, óskar eftir tilboöum í smíöi 11 íbúöa fjölbýlishúss. Útboösgögn veröa til afhendingar á skrif- stofu Raufarhafnarhrepps og hjá tæknideild Húsnæöismálastofnunar ríkisins frá þriöju- deginum 10. apríl gegn 30.000 króna skilatryggingu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.