Morgunblaðið - 10.04.1979, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. APRIL 1979
33
r
Jón Asbergsson:
Aukum verðmætin sem
til skiptanna koma
HÉR fer á eftir frumræða Jóns
Asbergssonar, varaþingmanns úr
Norðurlandskjördæmi vestra,
sem hann flutti í efri deild við
umræðu um efnahagsfrumvarp
forsætisráðherra.
Efnahagsstefna
sem byggir á
skattpmingu
Ég vona, að það teljist ekki brot
á neinum óskrifuðum siðvenjum
hins háttvirta Alþingis að nýliði
biðji um orðið fyrsta dag sinn á
þingi. Og þó að svo sé, þá hlýtur
mér að fyrirgefast framhleypnin,
því að eins og háttvirtur 5. þingm
aður Vestfirðinga, flokksbróðir
minn, Þorvaldur Garðar Kristj
ánsson, benti á í sinni ræðu við 2.
umræðu þessa máls í gær, þá er
ekki að sjá að löng ræðuhöld þm.
Alþ.flokks og Alþýðubandalags
muni tefja að ná afgreiðslu þessa
frumvarps hér í deildinni. Örfá orð
frá nýliðanum ættu því vart að
saka.
Eina lífsmarkið sem í gær mátti
finna hjá gömlu stjórnarandstöð-
unni var örstutt en djúpt framík
all frá hv. þm. Norðurl. e. Stefáni
Jónssyni þess efnis, að Ólafur
Jóhannesson væri góður maður.
þetta var eina innleggið úr þeirri
átt þann daginn um frv. til laga
um stefnumörkun í efnahagsmál-
um, stefnumörkun, sem hvorki
minna né meira á að tryggja næga
og stöðuga atvinnu, halda verð-
hækkununum í skefjum, stuðla að
jafnvægi í viðskiptum við önnur
lönd, greiða fyrir félagslegum og
efnahagslegum framförum og
bættum lífskjörum alls almenn-
ings. Já, mikil er trú þín kona.
Þetta stutta framíkall er þá líkl
ega merkilegasta framlag ASlþ.b.
til íslenskrar efnahagsmálaumr
æðu um langt skeið, því að það má
færa nokkur rök fyrir því, að þetta
framlag sé sannleikanum sam-
kvæmt og af hinu góða, sem er
nýlunda úr þeim herbúðum.
En þótt Ólafur Jóhannesson sé
góður maður, þá er frv. það til 1.
sem hér er um fjallað, ekki gott,
það er slæmt. Það er svo slæmt, að
viðbúið er, að höfundur þess muni
áður en langt um líður gefa því
svipuð eftirmæli og hann, að vísu
af nokkurri ósanngirni, gaf skatt
alögum Framsóknarflokks og
Sjálfstæðisflokks. Hann taldi ákv
eðnar greinar í þeim lögum gera
mönnum næstum ókleift að ákveða
sjálfir, hvenær og hvar þeir köst-
uðu af sér vatni. Ástfóstur þessa
frv. við alls kyns skýrslugerð og
áætlanagerð mun ekki auðvelda
mönnum þær ákvarðanir. En þó er
*\ýnu verra að verði frv. þetta
grundvöllur efnahagsstefnu ríkis-
stjórnar þá mun skattpíningarst
efnu ríkisstjórnar ekki linna á
næstunni. Þeir hafa þegar sýnt
fádæma frumleik í vali skatt-
stofna og er aldrei að vita, hvar
þeir bera niður næst. Þarfir
manna til baks og kviðar hafa
áður verið skattlagðar af fjárs
oltnum yfirvöldum og kynni svo að
geta farið, að ríkisstjórnin leitaði
þar fyrirmyndar.
Þögn þm. Alþ.fl. og Alþ.b. við
umr. hér í gær er sjálfsagt besta
staðfesting þess, hversu tilgangsl
aust þetta frv. er. Alþfl.-menn
lofuðu kjósendum sínum á síðasta
vori, að þeir skyldu kenna kerfis-
og verðbólguflokkunum vondu,
hvernig ætti að ráða niðurlögum
verðbólgunnar. Nú ætla þeir að
standa að samþykkt frv., sem
lögleiðir 40 verðbólgu. Alþb.-menn
lofuðu hins vegar öllum sínum
kjósendum, að þeir skyldu jafna
um kaupránsflokkana. Ríkisstj.
frá og samningana í gildi, var
kosningaslagorð þeirra. Ríkisstj.
fór frá og þeirra eigin óskastjórn,
vinstri stjórn, tók við. Nú eru hins
vegar engir kjarasamningar í
gildi. Hinn áður heilagi frjálsi
samningsréttur er nú einskis met-
inn og kommar skeggræða í smá-
klíkum, sem þeir kalla nú forystu
launþegasamtakanna, hversu
mörgum prósentum þeir eiga að
„ræna“ af launþegum.
Hvar eru nú
skyndiverkföll,
útflutningsbann
og útifundir?
Ríkisstj.-flokkarnir hafa mjög
gumað af því samráði, sem þeir
hafa haft við ýmsa hagsmunaaðila
og þrýstihópa í landinu við sam-
ningu þessa frv. Slíkt samráð skal
að vísu ekki alfarið vanvirt. En
hvers virði er slíkt samráð, ef þeir
hinir sömu hagsmunaaðilar hafa
sýnt sig í því að láta pólitíska
þjónkun sína við kommúnista ráða
afstöðu sinni í allri faglegri kjar
abaráttu? eða hvar eru núna
skyndiverkföllin, útflutningsbann-
ið og útifundirnir? Og hvers virði
er slíkt samráð, ef útkoman er
löggjöf svo útþynnt og vesæl, að
hún nær hvergi að vinna á því
meini, sem henni er ætlað að vinna
á, þ.e.a.s. verðbólgunni.
Ég er viss um, að allir hv. þm.
þessarar deildar hafa haldið yfir
kjósendum sínum magnþrungnar
ræður um skaðsemi verðbólgunn-
ar, um hvernig verðbólgan eyðil
eggur allt verðmætaskyn manna,
um það, hvernig verðbólgan leiðir
til fjárfestingar, sem gefur engan
arð af sér, um það, hvernig
arðurinn af fjárfestingunni er í
raun og veru það, sem kemur til
skiptanna milli atvinnurekandans
og launþegans og um það, hvernig
stöðvun verðbólgunnar og áhersla
á arðsemi fjárfestingar er grundv-
öllur þess, að unnt sé að bæta
lífskjör almennings í landinu.
Þessar staðreyndir og samhengi
þeirra eru öllum þingmönnum
ljósar. Því þá ekki að setja löggjöf,
sem miðar hiklaust að því marki
að stöðva verðbólguna og bæta
lífskjörin í landinu. Að því hljóta
þó allir stjórnmálaflokkar að
stefna. Auðvitað kemur slík löggj
öf við einhvern í upphafi, en hann
verður þeim mun betur settur eftir
á. Læknir sem meðhöndlar keðjur
eykingamann, sem sýnir merki
lungnakrabba, eyðir ekki miklu
púðri í að diskútera við sjúkling-
inn þau óþægindi, sem hann muni
hafa af því að hætta að reykja. Val
sjúklingsins er milli lífs og dauða.
Hið sama á við hér. Lausn þess
efnahagsvanda, sem þjóðin hefur
strítt við undanfarin ár, er val
milli lífs og dauða, milli vaxandi
eða minnkandi velmegunar, milli
byggðar í landinu eða fólksfl ótta.
Valið ætti því að vera auðvelt.
Brottflutningur
fólks úr landi
Eitt mest notaða orð íslenskrar
þjóðmálabaráttu er orðið byggð
astefna. Er þar átt við þá stefnu,
sem allflestir eru sammála um, að
nauðsynlegt sé að viðhalda blóml
egri byggð sem víðast um landið.
En ef fram fer sem horfir í
íslenskum þjóðmálum er líklegt,
að þetta hugtak fái víðtækari
merkingu, og þá verði megininnt
ak íslenskrar byggðastefnu að
halda landinu í byggð, þ.e.a.s.
koma í veg fyrir fólksflutninga í
ríkum mæli til annarra landa.
Brottflutningur fólks af landinu
undanfarin ár þrátt fyrir næga
atvinnu gæti verið aðeins for-
smekkurinn af því sem koma skai.
Augljóst er, hvers vegna fólkið
flytur. Þjóðartekjur á mann eru
hærri meðal nágrannaþjóðanna en
hér er og vinnudagurinn þar þó
styttri og talsverður fjöldi manna
atvinnulaus í þokkabót. það er með
öllu ástæðulaust að ætla, að ísl-
endingar sætti sig til lengdar við
lakari lífskjör en gerist meðal
nágrannaþjóðanna. Og ef lífskjör-
in batna ekki hér heima, þá fara
menn, fyrst þeir, sem hafa lært
fræðigreinar eða handverk, svo
hinir.
Þessi fólksflótti verður ekki
stöðvaður með skírskotun til ættj
arðarástarinnar og fjallkonunnar,
því malbikskynslóðin tengist eng-
um slíkum böndum við land sitt og
þjóð, að hún meti ekki meira þegar
á reynir beinhjarða efnahagslega
afkomu og öryggi. En ef bæta á
lífskjörin verður að brjóta leið út
úr vítahring verðbólgunnar,
minnkandi kaupmáttar og tapr
ekstrar fyrirtækjanna. Slíkt verð-
ur ekki gert með neinum einföld-
um ráðum eða slagorðum og það
Jón Ásbergsson.
tilgangslausa kukl, sem hér er lagt
til, að stundað verði, mun ekki
leiða okkur út af ógæfubrautinni.
Aukinn þjóðar-
auður til
skiptanna
Ég sagði hér áðan, að rkisstj.
gumaði af samráði sinu við ýmis
hagsmunasamtök. Þó er ekki að
sjá, að henni hafi tekist að velja
þau heilræði, sem þaðan hafa
komið og sem best mundu duga. I
byrjun marsmánaðar ályktaði t.d.
aðalfundur verkalýðsfélagsins
Einingar á Akureyri á þessa leið
og sendi ríksistj.
„Komið ykkur umsvifalaust
saman um langtíma stefnumörk-
un, er miði að aukinni framleiðni
og auknum kaupmætti launafólks.
Tryggið öllum atvinnu við arðbær
störf, er skapa aukinn þjóðarauð
til skipta."
Þessi ályktun hittir kjarna
þeirrar lausnar, sem er á efnah
agsvanda þjóðarinnar. Menn verða
að glöggva sig á því til hlítar,
hverjar eru undirstöður efnah
agslegrar velferðar á Islandi í
nútíð og framtíð og hvernig rétt
tök á þessum undirstöðum geta
skapað þjóðinni aukinn auð til
skiptanna, aukið kaupmátt og
tryggt arðbær störf. Þessar und-
irstöður eru sjávarútvegur og ork
ufrekur iðnaður. Hvernig sem
menn reyna að rangfæra og mist-
úlka þessa staðreynd, þá er hún
óumflýjanleg. Þessar tvær atvinn
ugreinar hafa slíka sérstöðu hér á
landi, að þær eiga að geta boðið
upp á álíka framleiðni og þá um
leið lífskjör og gerist meðal hinna
iðnvæddu nágrannaríkja okkar.
Allur annar íslenskur útflutningur
muj verða að berjast um markaðs-
aðstöðu um vörur frá vaxandi
iðnveldum Asíu, svo sem Suður-
Kóreu, Indónesíu, Malasyu og
fleiri. Þar er vinnuaflið ódýrt og
lífskjör almennings frumstæð.
Neiti menn að viðurkenna sérstöðu
sjávarútvegsins og orkufreks iðn-
aðar til að skapa hér velferðarríki
framtíðarinnar, þá eru menn að
dæma þjóðinni versnandi lífskjör.
Það er óþarfi að tíunda hér í d. í
dag þá hættu, sem sjávarútvegur-
inn er í nú vegna ofveiði helstu
nytjafiska. Hins vegar er vitað, að
skipulögð sóknarminnkun mun
gera þessum fiskstofnum kleift að
ná sér aftur á strik og tryggja um
leið, að þessi mikilvæga auðlind,
sjórinn, gefi af sér varanlegan
afrakstur í framtíðinni. En meðan
þorskur og loðna eru að nokkru
hvíld, verður að hefja skipulega
nýtingu orkunnar og orkufreks
iðnaðar.
Orkufrekur
iðnaður
Ég ætla ekki í dag að verða
langorður um hvernig það skuli
helst gert, en skjótasta, einfald-
asta og besta leiðin út úr efnah
agsöngþveitinni hér er að reisa á
næstu 10 árum 3—4 orkufrek
iðnfyrirtæki á stærð við ISAL og
auka raforkuframleiðslu sem því
næmi. Þessi fyrirtæki myndu veita
rösklega 2000 manns vinnu og
leggja grunn að störfum annarra
6000. Til að raska ekki félagslegri
uppbyggingu hinna dreifðu byggða
yrðu fyrirtæki þessi reist hér á
þéttbýlissvæðinu á Suðvesturl
andi, hugsanlega einnig á Suður-
landi. Þm. þyrftu þá ekki að hlusta
á umr. eins og hér rétt áðan í Sþ.
um skiptingu þorskanna, þeirra
fáu, sem til skipta eru. Fyrirtækin
yrðu algerlega í eigu erlendra
aðila oig framkvæmdafé íslenska
ríkisins ekki bundið í uppbyggingu
áhættusamra fyrirtækja, auk þess
sem fyrirtækin yrðu látin greiða
sem hæst raforkuverð með fram-
leiðsluskatti eins og gert er við
ÍSAL. Með þessu væri dregið úr
mikilvægi sjávarútvegsins fyrir
byggðina á Suður- og Suðvesturl
andi og dreifbýlinu veittur forrétt-
ur að nýtingu sjávarauðlindanna.
Þannig yrðu varanleg lífskjör
allra Islendinga tryggð umók
omna tíð án röskunar á þeirri
uppbyggingu landsins, sem við nú
þekkjum og viljum ekki breyta.
ALMNGI
Skáldverk
Kristmanns Guömundssonar
Krtatmann Guömundason
Elnn af víölesnustu höfundum
landslns. Nokkrar af bókum
hans hafa veriö þýddar aö
mlnnsta kostl á 36 tungumál.
Brúöarkyrtillinn
Morgunn lífsins
Arfur kynslóöanna
Ármann og Vildís
Ströndin blá
Fjalliö helga
Góugróöur
Nátttrölliö glottir
Gyöjan og nautiö
Þokan rauöa
Safn smásagna
Aimenna Bókafélagiö,
Auaturatrseti 18, Skemmuvegur 3«,
•ími 19707 SÍmi 7305«