Morgunblaðið - 24.04.1979, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 24.04.1979, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 1979 5 Sigurður Grímsson í góðviðrinu við sýnmgarsalinn að Hellusundi 6. (Ljósm. Emilía) Heyrðu ný kvikmynd að vestan „HEYRÐU“ heitir ný, kvik- mynd, sem tekin var á ísafirði og í nágrenni í fyrrasumar. Höfundar myndarinnar eru fjórir skólafélagar í Hochschule fiir Fernsehen und Film í Munchen, og er einn þeirra Sigurður Grímsson frá Isafirði. Myndin tekur um 80 mínútur í sýningu, og verður hún sýnd í ->HeHusundi 6 í Reykjavík frá þriðjudegi til laugardags, að báðum dögum meðtöldum, klukkan 5, 7 og 9. „Heyrðu“ var frumsýnd á ísafirði í byrjun mánaðarins og var sýnd þar nokkum sinnum við góða aðsókn, en vestur-þyzka sjónvarpið hefur keypt sýningarrétt að mynd- inni og verður hún sýnd þar í októbermánuði næstkomandi, nokkuð stytt. Sigurður Grímsson ræddi um myndina við fréttamenn í gær og sagði þá meðal annars, að myndin væri skólaverkefni, og því að langmestu leyti kostuð af Hochschule fiir Fernsehen und Film, en einnig hefði þýska sjónvarpið lagt fram nokkra fjárhæð. Verkefni sem þetta væru reglulegir liðir í námi við skólann og væri hverjum nemenda úthlutað ákveðinni upphæð til kvikmyndagerðar á ári hverju. Hann sagði ennfrem- ur að oft væri kvartað yfir því hve kostnaðarsöm kvikmynda- gerð væri, en sjálfur kvaðst hann þeirrar skoðunar að þetta væri orðum aukið, — ein leiðin til að halda kostnaði niðri væri sú að sækja efnivið beint í lífið og tilveruna í stað þess að ráðast í umfangsmiklar fram- kvæmdir og sviðsetningu. Sigurður tók fram að við gerð myndarinnar hefðu fjölmargir Vestfirðingar lagt sitt af mörk- um án endurgjalds, en án þeirr- ar aðstoðar hefði vart verið unnt að fullgera myndina. Kvik- myndatakan tók tvo mánuði, en síðan hafa þeir félagar, Sigurður, Berhard Stamper, Sigi Meier og H.P. Voigt unnið við frágang myndarinnar. I myndinni er brugðið upp svipmyndum af bæjarlífinu á Isafirði, þá liggur leiðin í Vigur og ýmsa staði við ísafjarðar- djúp, og í eyðibyggðir á Horn: ströndum og í Jökulfjörðum. í lok myndarinnar kemur Finnbogi Bernódusson í Bolungarvík við sögu og segir þar frá einum af frumbyggjum á Hornströndum. I Reykjavík verður myndin sem fyrr segir sýnd í síðasta sinn á laugardaginn kemur, en á sunnudaginn gerir Sigurður Grímsson ráð fyrir sýningu á Akureyri. Jóhann G. Jóhanns- son sýnir á Akureyri Akureyri, 21. aprfl. JÓHANN G. Jóhannsson list- málari opnar í dag málverka- sýningu á Gallerý Háhól á Akureyri. Þar sýnir hann um 60 vatnslita- og olíumálverk, sem öll eru til sölu. Þetta er fyrsta sýning Jóhanns á Akureyri, en hann hefir sýnt nokkrum sinnum í Reykjavík. Sýningin verður opin til 30. apríl kl. iö—22 um helgar en kl. 20—22 virka daga. — Sv.P. Mikill rekaviður á Skagafirði Bæ. Höfðaströnd, 23. aprfl. OKKUR finnst sumar ekki anda hlýju hér í Skagafirði. Bænadagana og um páskana var hér stórhríð, að minnsta kosti í útsveitum, og nú má heita að flekkótt sé af snjó, og þegar komið er út í Fljót er töluverð fönn ennþá. Sagt er að um 60 til 120 sm þykkur klaki sé í jörðu og um eins metra ís á vötnum. Þó eru Héraðsvötn tekin að bræða af sér ís. Eftir að tók af Skagafirði hefur orðið vart við óvenju- mikinn trjáreka, svo ekki hefur annað eins borið við um margra ára bil. Eitthvað hefur ísruðningur í fjörum þó orðið til þess að reki hefur ekki festst eins og efni standa til, en bátar sem farið hafa út á fjörð hafa komið að með fullfermi. Netabátar í Skagafirði hafa aflað ágætlega að ’ ndanförnu, og virðist fiskganga hafa komið inn á fjörðinn með ísnum. Tog- arar kváðu þó hafa aflað mjög miklu minna nú en áður. Skemmtanahald hefur verið mjög mikið, sérstaklega eru söngfélög nú að sýna árangur mikillar elju sinnar í vetur. Sauðburður er rétt að byrja og hey munu víðast hvar vera nægjanleg. — Björn í Bæ. U U.YSIM.ASIMINN KR: ^>22480 J JHorpunblnbib

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.