Morgunblaðið - 24.04.1979, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 1979
Þingfréttir í stuttu máli:
Lánadeild iðngarða
við Iðnlánasjóð
Landhelgi, efnahagslögsaga, landgrunn
ALÞINGI kom saman til starfa í
Kær eftir hálfs mánaðar páskafrí.
Fundur var í báðum þingdeildum. í
efri deild mælti MaKnús H.
Maunússon. félagsmálaráöherra,
fyrir stjórnarfrumvarpi um eftir-
laun aldraðra. í neðri deild komu
eftirtalin mál til umfjöllunar.
• Fjölgun hæsta-
réttardómara
SteinKrímur Hermannsson, dóms-
málaráðherra, mælti fyrir frv. um
fjölgun hæstaréttardómara — úr sex
í sjö. Jafnframt er gert ráð fyrir því
að þrír dómarar skipi dóm í kæru-
málurn, þ.e. að hæstiréttur geti
unnið í 2 dómum, nema þegar mál
eru sérlega vandasöm úrlausnar.
Með tveimur 3ja dómara deildum í
minni háttar einkamálum og opin-
berum málum er stefnt að því að
hraða meðferð slíkra mála í hæsta-
rétti. Þá er í frv. lagt til að
áfrýjunarfjárhæð verði hækkuð úr
25 í 200 þúsund krónur. Ekki hefur
verið fjölgað dómurum í hæstarétti
síðan 1945. Málið hefur þegar hlotið
afgreiðslu frá efri deild.
• Landhelgi, efnahags-
lögsaga, landgrunn
Benedikt Gröndal, utanrikisráð-
herra, mælti fyrir frumvarpi um
ofanskráð efni:
Frumvarp þetta er flutt til að
draga saman í ein lög öll megin-
ákvæði um landhelgi og lögsögu
Lýðveldisins Islands í hafinu
umhverfis landið og á landgrunninu
og lögfesta í þágu Íslands ný réttindi
á þessu sviði með hliðsjón af þróun
þjóðarréttar að undanförnu. Frum-
varpið hefur verið undirbúið í utan-
ríkisráðuneytinu og felast í því þessi
aðalatriði:
1. Sjálf landhelgin, en með því
hugtaki, er átt við hafsvæði það, þar
sem ríkið hefur fullveldisrétt hlið-
stæðan og yfir landinu, er færð úr 4 í
12 sjómílur.
2. Fiskveiðilögsaga hefur, síðan
1975, verið 200 sjómílur, og var það
ákveðið með reglugerð, er byggðist á
landgrunnslögunum frá 1948. Með
þessum lögum mundi Island taka sér
200 mílna efnahagslögsögu með lög-
um.
3. Auk þess að fiskveiðilögsagan er
staðfest, telur ísland sér 200 mílna
lögsögu yfir vísindarannsóknum á
hafsvæðum umhverfis landið.
4. Þar að auki tekur ísland sér 200
mílna mengunarlögsögu, og veitir
það íslenskum stjórnvöldum rétt til
að gera ráðstafanir til að vernda
hafið umhverfis landið fyrir mengun
að þeim mörkum.
5. Með efnahagslögsögu tryggir
Lýðveidið Island sér allan rétt til að
ráða byggingu mannvirkja eða afnot
af þeim innan 200 mílna, en þetta
getur hafið þýðingu í sambandi við
hugsanlega olíuvinnslu.
6. Með frumvarpi þessu eru
ítrekuð reglugerðarákvæði um
miðlínur milli íslands og Grænlands
og íslands og Færeyja, en ákvæði um
framkvæmd 200 mílna fiskveiðilög-
sögu gagnvart Jan Mayen er fellt
niður.
• Frumvarp um
afborgunarkaup
Svavar Gestsson, viðskiptaráð-
herra, mælti fyrir stjórnarfrum-
varpi um afborgunarkaup, en hér-
lendis hefur engin löggjöf verið sett
um afborgunarkaup og eignaréttar-
fyrirvara. Kaup þau, er frv. nær til,
eru skilgreind þannig: a) Að um sé
að ræða lausafjárkaup. b) Kaupverð
sé greitt í hlutum. c) Einn eða fleiri
hlutar kaupverðs falli í gjalddaga
eftir afhendingu söluhlutar. d)
Seljandi hafi áskilið sér endur-
heimtu eða eignarrétt. í frumvarp-
inu er höfð hliðsjón af norrænum
lögum um sama efni, sagði ráðherra,
og leitast við að skýra sem bezt
réttarstöðu og úrræði kaupanda og
seljanda við afborgunarkaup og
vernda kaupanda gegn ósanngjörn-
um kröfum eða harkalegu framferði
seljanda.
• Iðngarðar
Hjörleifur Guttormsson, iðnaðar-
ráðherra, mælti fyrir stjórnarfrum-
varpi til laga um breytingar á lögum
um Iðnlánasjóð. Felur frv. í sér að
stofna skuli lánadeild iðngarða við
Iðnlánasjóð. Úr sjóðnum skal lána til
sveitarfélaga, félagasamtaka og ein-
staklinga, sem reisa iðnaðarmann-
virki. Tekjur lánadeildar skulu vera,
skv. frumvarpinu: 1) Framlög úr
ríkissjóði, sem veitt kunna að verða.
2) Fyrstu 4 árin skal 250 m.kr. af
tekjum Iðnlánasjóðs varið árlega til
deildarinnar. 3) Andvirði lána, sem
ráðherra heimilar að taka til
deildarinnar. 4) Vextir og vísitölu-
álag.
Eggert Haukdal (S) minnti á
þingsályktunartillögu, er hann hefði
flutt, um undirbúning löggjafar af
þessu tagi. Fagna bæri þessu frv. þó
það væri lágreist. Tekjur lánadeildar
iðngarða virtust eiga að koma svo til
eingöngu úr skerðingu á lánagetu
sjóðsins til annarra verka. Æski-
legra hefði verið að sjá deildina
stofnaða af meiri reisn en í frv.
fælist.
Nýr þingmaður:
Bjarnfrídur
Leósdóttir
Bjarnfríður Leósdóttir, 2.
varaþingmaður Alþýðu-
bandalagsins í Vestur-
landskjö-rdæmi, tók í gær
sæti á Alþingi í veikinda-
fjarvistum Jónasar Árna-
sonar, alþingismanns.
Eftirlaunasjóður aldraðra:
— -
Afangi að sam-
felldu lífeyriskerfi
Magnús H. Magnússon, félags-
málaráðherra, mælti í gær fyrir
stjórnarfrumvarpi um eftirlaun
aldraðra. Frumvarpið er samið á
vegum 17-manna lífeyrisnefndar,
sem fv. fjármálaráðherra skipaði
árið 1976 til að hrinda f fram-
kvæmd fyrirheitum, sem þáv. ríkis-
stjórn gaf til að greiða fyrir sam-
komulagi á vinnumarkaði.
I fyrrgreindu samkomulagi er
kveðið á um tveggja ára fram-
lengingu þeirrar verðtryggingar líf-
eyrisgreiðslna til aldraðra í stéttar-
félögum, sem samið var um í febrúar
1976, og gilda áttu til ársloka 1977.
Útgjöld vegna verðtryggingar
þessarar voru borin af lífeyrissjóð-
um á samningssviði aðila, skv. sér-
stökum samstarfssamningi þar að
lútandi. Því var heitið að áfram
skyldi unnið að undirbúningi sam-
fellds lífeyriskerfis fyrir alla lands-
menn. Sem áfanga að því marki voru
eftirtalin tvö atriði:
1) Tryggt skyldi í samvinnu við
sveitarfélög og ríkisbanka, að það
fólk, sem lýkur starfsævi sinni í
þjónustu hins opinbera og á ekki
betri rétt í lífeyrissjóðum opinberra
starfsmanna, hafi sama lágmarks-
rétt. og lögin um eftirlaun til
aldraðar félaga í stéttarfélögum og
samkomulag aðila færði þeim, sem
þeirra njóta.
2) Samdar skyldu tillögur , sem
tryggðu öllum landsmönnum svip-
aðan rétt og lögip um eftirlaun
aldraðra ákveða félögum í stéttar-
félögum, fram til þess að nýskipan
lífeyriskerfis tekur gildi.
í frv. því, sem nú hefur verið lagt
fram, er gert ráð fyrir því, að
framangreind tvö atriði verði leyst
með þeim hætti, að í stað laga nr.
63/1971, með áorðnum breytingum,
sbr. lög nr. 33/1976 og lög nr.
67/1977, komi nýr lagabálkur um
eftirlaum aldraðra. Um þetta mál
hefur verið fjallað af tveimur nefnd-
um, 7-manna nefnd og 17-manna
nefnd, er þáv. ríkisstjórn skipaði
1976. Helztu breytingar sem í frv.
felast eru:
•1. Fellt er niður skilyrði um aðild
að stéttarfélagi.
•2. Fellt er niður skilyrði um
skylduaðild að lífeyrissjóði.
•3. í stað gjaldskyldra launtekna, er
gert ráð fyrir, að vinnsla réttinda
geti miðast við atvinnutekjur skv.
skattframtölum.
Kostnaður af hinum nýju eftir-
launum og uppbót á þau, er borinn af
sérstökum sjóði, sem myndaður er
þannig: Lífeyrissjóðir, sem eiga aðild
að lífeyrissamkomulagi ASI, FFSÍ
og vinnuveitenda greiði 5% af
iðgjaldatekjum sínum í sjóðinn,
sjálfstæðir atvinnurekendur greiði
eftirlaunagjald sem nemi 0.5% af
launaskattstofni, og ríkissjóður,
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga og
Atvinnuleysistrygginasjóður greiði
það sem á vantar.
Nokkrar umræður urðu í þing-
deildinni um málið. Frumvarpið
mætti, á heildina litið, jákvæðum
undirtektum, þó athugasemdir
kæmu fram um einstök fram-
kvæmdaatriði sem og fjármögnum
útgjalda af frv., ef að lögum verður.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Njarðvíkingar
Félag ungra sjálfstæöismanna Njarövík heldur félagsfund þriðjudag-
inn 24.4. 1979 í sjálfstæöishúsinu kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Kosning fulltrúa á landsfund.
2. Starfsemi félagsins.
Önnur mál.
Ungt fólk sérstaklega hvatt til aö mæta á fundinn.
Stjórnin.
Aðalfundur
Sjálfstæðisfélagsins
í V-Hún
veröur haldinn í Félagsheimilinu Hvammstanga, jaröhæö, miöviku-
dagskvöld 25. apríl kl. 20.30.
Venjuleg aöalfundarstörf.
Athugiö breyttan fundardag.
Stjórnin.
Hafnarfjörður — Stefnir
Fundur miövikudaginn 25. apríl kl. 20.30 í sjálfstæöishúsinu.
1. Kosning landsfundarfulltrúa.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Sjálfstæðiskvenna-
félag Árnessýslu
Almennur félagsfundur verður haldinn miövikudaginn 25. apríl aö
Tryggvagötu 8, Selfossi kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Kosning fulltrúa á 23. landsfund Sjálfstæöisflokksins.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Aðalfundur
Sjálfstæðisfélags
Eyrarsveitar
Aöalfundur Sjálfstæðisfélags Eyrarsveit-
ar, veröur haldinn í safnaöarheimilinu f
Grundarfirði fimmtudaginn 26. apríl kl.
8.30 síöd. Alþingismennirnlr Friöjón
Þórðarson og Jósef H. Þorgeirsson mæta
á fundinn.
Kynnt veröa drög að ályktunum til
landsfundar og fl.
Stjórnin.
Sjálfstæðisfélag
Grindavíkur
Fundur veröur flmmtudagskvöld kl. 21 í Festi. Dagskrá: Kosning
fulltrúa á landsfund.
Önnur mál.
Félagar fjölmenniö.
Stjórnin.
Sjálfstæðisfélagið Huginn
Árnessýslu
Aðalfundur félagsins veröur í Aratungu,
þriöjudaginn 24. apríl kl. 21.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kosning fulltrúa á landsfund.
önnur mál.
Steinþór Gestsson og Eggert Haukdal
mæta á fundinn.
Stjórnin.
Fulltrúaráð Sjálfstæðis
félaganna í Reykjavík
efnir til fundar í Sígtúni miövikudaginn 25.
apríl 20.30.
Fundarefni:
1. Kosníng fulltrúa 23. landsfundar Sjálf-
stæöisflokksins
2. Ræöa.
Fundarstjóri Davíð Oddsson.
Fundarmenn framvísi skírteinum viö Inn-
ganginn.
ísfirðingar
Aöalfundur Sjálfstæölsfélags isfiröinga veröur haldlnn í Sjálfstæöis-
húsinu ísafiröi fimmtudagskvöldiö 26. apríl kl. 8.30.
Venjuleg aöalfundarstörf.
Kosnir fulltrúar á landsfund.
Matthías Bjarnason alþingismaöur mætlr á fundinn og segir frá
stjórnarástandinu.
Félagar fjölmennlö.
Stjórnin.
/