Morgunblaðið - 24.04.1979, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 1979
39
Leonid Brezhnev
f ær verðlaun í
bókmenntum
Moskvu, 23. aprfl. Reuter. AP.
LEONID Brezhnev forseti
hefur verið sæmdur
bókmenntaverðlaunum
Leníns fyrir æviminning-
ar sínar í þremur bindum
og óþreytandi baráttu
fyrir friði.
Minningar Brezhnevs fjalla
um heimsstyrjöldina síðari,
endurreisnina eftir stríðið og
landbúnaðarbyltingu á óræktuð-
um svæðum í Kazakstan fyrir 25
árum. Þær birtust upphaflega í
bókmenntaritinu Novi Mir og
hafa síðan verið þýddar á öll
helztu tungumál heimsins og
endurbirtar í risastóru upplagi í
blöðum, tímaritum og í bókar-
formi sem skyldulesning fyrir
alla sovézka borgara.
Einnig hefur verið lesið upp
úr þeim í útvarpi og sérstakar
ráðstefnur hafa verið haldnar
fyrir virka flokksmenn til þess
að rannsaka þær.
Ritari rithöfundasambands-
ins, Georg Markov, formaður
dómnefndar bókmenntaverð-
launa Leníns, segir í Pravda, að
þúsundir sovézkra verkamanna
hefðu tilnefnt „hjartnæm og
gáfuleg" skrif Brezhnevs.
Markov sagði að þrjú ritverk
Brezhnevs, „Malaya Zemlya"
(Litla land), „Endurfæðing" og
„Nýræktarlöndin" hefðu flutt
sannleikann um sovézku þjóðina
til endimarka jarðarinnar.
„Þess eru engin dæmi að minn-
ingar samtímastjórnmálamanns
hafi orðið svona vinsælar," sagði
Markov.
Hann kvað minningar
Brezhnevs gerólíkar skrifum og
bókum annarra stjórnmála-
manna — líklega vestrænna —
sem boðuðu stríð, fjandskap við
aðrar þjóðir og útþenslu.
Þetta er í fyrsta sinn sem
forseti Sovétríkjanna fær verð-
launin sem eru venjulega veitt
kunnum rithöfundum. Brezhnev
Leonid Brezhnev í marskálks-
búningi
hefur líka fengið öll helztu
heiðursmerki heraflans. A 72
ára afmæi sínu í desember í
fyrra fékk hann tvær orður:
þriðju gullstjörnu sína og
sjöundu Lenínorðuna.
Verðlaunaveitingin var aðal-
fréttin í kvöldfréttatíma sov-
ézka sjónvarpsins.
50.000 flýja
inn í Thailand
Bankok, 23. apríl. AP.
UM 50.000 Kambódíumenn sem
flúðu inn í Thailand um helgina
héldu kyrru fyrir meðfram landa-
mærunum í dag á sama tíma og
andstæðar fylkingar Kambódíu-
manna og Víetnama voru að
sækja til svæðisins.
Fréttamenn á staðnum segja að
Kambódíumennirnir, þar á meðal
þúsundir hermanna stjórnar Pol
Pots, hafi komið sér upp bráða-
birgðaskýlum beggja vegna landa-
mæranna um 30 km suðvestur af
thailenzka landamærabænum
Aranyaprathet.
Thailenzk yfirvöld segja að
ástandið á landamærunum sé
„ótryggt" og ráðlagður var brott-
flutningur fjölskyldna landa-
mæralögreglumanna sem búa
nálægt landamærunum í
Aranyaprathet.
Stjórn Heng Samrin og
víetnamskt herlið hafa haldið uppi
stórsókn meðfram landmærunum
og virðast hafa hrakið leifar hers
Pol Pots lengra inn á hrjóstrug
svæði í Suðvestur-Kambódíu.
Utvarp stjórnarinnar i Phnom
Penh hélt því fram í dag að herlið
hennar hefði upprætt hersveitir
Pol Pots í syðsta og vestasta
héraði Kambódíu, Koh Kong, með
aðgerðum sem hófust 15. apríl.
Utvarpið sagði að herlið Pol
Pots hefði flúið inn í frumskóga
Koh Kong þar sem það gæti fengið
vopn og matvæli en væru
„algerlega sigraðir". Þetta er fjöll-
ótt svæði og gamalt athvarf upp-
reisnarmanna.
Harðara stríði
spáð í Rhódesíu
Karpov efstur að nýju
Montreal, 23. aprfl. AP.
HEIMSMEISTARINN
Karpov sigraði
Ljubojevich og Kavalek í
biðskákum úr fyrri skák-
um í gær og komst þar með
í efsta sæti.
í biðskákunum vann
Ljubojevich Portisch sem
hafði verið í efsta sæti.
Ljubojevic gerði einnig
jafntefli við Hiibner. Lar-
sen vann Kavalek.
í 10. umferð á morgun, þriðju-
daginn, teflir Karpov við Hubner,
Ljubojevic við Larsen, Hort við
Portisch, Spassky við Tal og
Timman við Kavelek.
Salisbury, 23. aprfl. AP.
TALNING hófst í kosningunum
um meirihlutastjórn blökku-
manna í Rhódesíu í dag að við-
stöddum erlendum eftirlitsmönn-
um og blaðamönnum.
Jafnframt segja öryggissveitir
Rhódesíu að þær búi sig undir
auknar árásir skæruliða sem
höfðu lýst því yfir að þeir ætluðu
að cyðileggja kosningarnar.
Sigurstranglegasti flokkurinn í
kosningunum er flokkur Abel
Muzorewas biskups, Sámeinaða
afríska þjóðarráðið, og gert er ráð
fyrir því að hann fái mestöll
þingsæti blökkumanna sem eru 72.
Þar með verður Muzorewa biskup
fyrsti forsætisráðherra
Zimbabwe-Rhódesíu eins og landið
verður kallað.
Muzorewa hefur heitið því að
reyna að telja skæruliða á að
leggja niður vopn og snúa aftur
heim þegar þing þar sem blökku-
menn verða í meirihluta hefur
tekið til starfa.
En 90.000 manna lið hefur verið
kallað út vegna kosninganna, fjöl-
mennara lið en nokkru sinni áður í
Rhódesíu, og yfirmenn hersins
segjast búa sig undir að mæta
auknum árásum skæruliða.
Skæruliðar gerðu fyrstu meiri-
háttar borgarárás sína eftir kosn-
ingarnar í nótt þegar þeir skutu úr
fallbyssu á hús Borrowdale, 32 km
norður af miðborg Salisbury, en
engan sakaði.
I gær sögðust Rhódesíumenn
hafa gert loftárásir á stöðvar
skæruliða í Zambíu og eyðilagt
þær þegar rhódesískir hermenn á
landamærunum á Zambezi-fljóti
höfðu orðið fyrir harðri eldflauga-
Skæruliðaleiðtogarnir Robert
Mugabe og Joshua Nkomo hafa
sagt að þeir ætli að herða á
stríðinu og kollvarpa fyrstu ríkis-
stjórninni undir forystu blökku-
manna.
Karpov er nú efstur með 6 'k
vinning af níu mögulegum,
Portisch er með sex og Ljubojevic
5'k. Tal og Hubner eru jafnir með
fimm vinninga hvor. Síðan koma
Timman og Spassky með 3 'k vinn-
ing hvor, Hort með þrjá, Larsen
2'A og Kavalek l'k vinning.
Aðstaða
fanga bætt
Buenos Aires, 23. aprfl. AP.
ALBERTO Rodriguez V'arela
dómsmálaráðherra Argentínu
skýrði frá því í dag að á næstunni
yrði aðbúnaður þeirra 2.700
pólitískra fanga sem eru í landinu
verulega bættur.
I þessu felst að ættingjar fang-
anna og lögmenn fá að heimsækja
þá oftar. Einnig verður aðstaða til
náms, lestrar, íþrótta og annarrar
iðju í fangelsunum bætt.
Hægri sigrar í Japan
Tokyo, 23. aprfl. AP.
SIGURGANGA hægri manna og
miðjumanna hélt áfram í annarri
umferð bæjar- og sveitarstjórnar-
kosninga í Japan í gær en vinstri
frambjóðendur töpuðu mikilvæg-
um embættum.
Frambjóðendur hægri manna og
miðjumanna unnu kosningar um
98 bæjarstjórastöður, framfara-
sinnar 19, óháðir 34 og smáflokkur
eina. í Futtsu suður af Tokyo fékk
enginn frambjóðandi meirihluta
og þar verður kosið aftur.
í borgunum Kunitachi og
Koganei á Tokyo-svæðinu, gömlu
vígi vinstri flokkanna, töpuðu
tveir frambjóðendur sem nutu
stuðnings sósíalistaflokksins og |
Arabar
mótmæla
Vínarborg, 23. aprfl AP
FULLTRÚAR Arabaríkja hættu við
þátttöku í ráðstefnu arabískra og
evrópskra fréttastofnana í dag vegna
þátttöku fulltrúa Egyptalands. Auk
fulltrúa fréttastofnana hættu
fulltrúar stjórnmálaflokka úr
Arabaríkjunum þátttöku í ráðstefn-
unni, en hún er nú haldin þriðja
sinni.
kommúnistaflokksins fyrir nýjum
frambjóðendum íhaldsmanna.
Fyrri umferð kosninganna fór
fram 8. apríl og þá unnu frambjóð-
endur íhaldsmanna og miðju-
manna 14 af 15 fylkisstjóra-
embættum sem kosið var um.
Kjörsókn í gær var 76.09% og
hefur aldrei verið minni.
Kjóll Shams prinsessu, eldri systur íranskeisara, boðinn upp af byltingarmönnum. Ekki fvlgdi sögunni
hversu hátt menn vildu greiða fyrir gripinn. S(mamynd ap.
Trúin á Gud eykst hjá Bretum
og færri telja Jesú son Guds
SAMKVÆMT skoðana-
könnun sem GALLUP—
stofnunin brezka gerði
fyrir brezka blaðið The
Sunday Telegraph kemur
í ljós að brezkur
almenningur trúir í
auknum mæli á Guð og
himnaríki, en trúin á
Jesús sem son Guðs og
guðlegt vald Biblíunnar
fer þverrandi. Niður-
stöður þessar eru fengnar
með samanburði við
samskonar kannanir frá
fyrri árum.
I ljós kom að 96 af hundraði
þeirra sem sækja guðsþjónustu
a.m.k. einu sinni í mánuði trúa á
Guð, og að 52 af hundraði þeirra
sem sjaldan eða aldrei sækja
guðsþjónustu trúa á Guð. Af
hinum fyrrnefndu trúðu 78 af
hundraði á vist í himnaríki að
loknu jarðlífi, og 39 af hundraði
þeirra síðarnefndu voru þeirrar
skoðunar.
Einnig kom í ljós að fleiri og
fleiri trúa á ýmsa anda og
lífskrafta. Eldra fólki er gjarn-
ara að trúa á Guð, en yngra fólki
á ýmsa anda og lífskrafta. Kom
í ljós að roskið fólk er íhald-
samara í trúarefnum en ungt
fólk.
Þótt færri telja nú en áður að
Jesú hafi verið Guðssonur er
mikill meirihluti brezks
almennings þeirrar skoðunar að
svo sé. Um 55 af hundraði sögðu
að svo væri, 25 af hundraði
sögðu Jesú hafa verið venju-
legan mann, sjö af hundraði
sögðu söguna um hann vera
tilbúning og 13 af hundraði
höfðu ekki skoðun á málinu.
Loks kom í ljós að 80 af
hundraði þeirra sem fóru til
messu a.m.k. einu sinni í mánuði
töldu Biblíuna ómissandi fyrir
hina kristnu kirkju, en aðeins 49
af hundraði þeirra sem sjaldan
eða aldrei sóttu messu voru á
þeirri skoðun.