Morgunblaðið - 12.05.1979, Side 22

Morgunblaðið - 12.05.1979, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MAÍ1979 Frumvarp að lánsfjárlögum: Ríkissjóður hjálpi til við skuldabyrði RARIK — Lán en ekki skil til Ríkisútvarps Lánsf járáætlun (lánsfjárlög) 1979, sem verið hefur til meðferðar í f járhags- og viðskiptanefnd neðri deildar og hjá þingdeildinni frá því skömmu eftir áramót, var afgreidd í fyrrakvöld frá deildinni til efri deildar. Frumvarpið var samþykkt með 19 samhljóða atkvæðum viðstaddra stjórnarþingmanna, þingmenn Sjálfstæðis- flokks sátu hjá við atkvæðagreiðsluna, 13 þingmenn greiddu ekki atkvæði og 8 voru fjarverandi. • 5) Enn kom til atkvæða breyt- ingartillaga frá EUert B. Schram (S) þess efnis, að fjármálaráð- herra skuli heimilt, f.h. ríkisjóðs, að taka lán í því skyni að skila Ríkisútvarpinu eftirstöðvum af tolltekjum af innfluttum sjón- varpstækjum á árinu 1978 að fjárhæð 832 m.kr. Tillagan var felld með 17 atkvæðum gegn 7. Hins vegar var samþykkt með 21 atkv. gegn 1 (Einar Ág. F) tillaga frá fjármálaráðherra og Breytingar- tillögur Nokkrar breytingartillögur við lánsfjáráætlun komu til afgreiðslu í neðri deild, bæði frá stjórnar- þingmönnum og stjórnarandstöðu. • 1) Fyrsta breytingartillagan, sem kom til atkvæða, var þess efnis. að hækka lántökuheimild í l. gr. frv. úr 9.295 m.kr. í 9.955 m. kr. Heimildin var bundin 660 m.kr. láni til að ljúka tveimur vinnsluholum við Kröflu á þessu ári, sem flutningsmenn, Ingvar Gíslason (F) og Lárus Jónsson (S), töldu fljótvirkustu og hag- kvæmustu leið til orkuöflunar 1979. Tillagan var felld að við- höfðu nafnakalli með 19 atkv. gegn 11, 2 sátu hjá, 8 vóru fjarver- andi. Stjórnarþingmenn sem sátu hjá vóru Stefán Valgeirsson og Lúðvík Jósepsson (Abl). Aðrir stjórnarþingmenn, sem þátt tóku í atkvæðagreiðslunni, greiddu at- kvæði gegn tillögunni. • 2) Þá kom til atkvæða breyting- artillaga frá Pálma Jónssyni (S) þess efnis, að ríkissjóður skuli standa að fullu undir afborgunum, vöxtum og öðrum kostnaði við 600 m.kr. lántöku vegna skulda- greiðslna Rafmagnsveitna ríkis- ins. Tillagan var samþykkt að viðhöfðu nafnakalli með 21 at- kvæði gegn 8, 3 sátu hjá, 8 fjarverandi. Með tillögunni greiddu atkvæði flestir þingmenn Sjálfstæðisflokks og Alþýðu- bandalags. • 3) Næst kom til atkvæða breyt- ingartillaga frá Eggert Haukdal (S) þess efnis að hækka lánt.öku- heimild til hitaveituframkvæmda, og skyldi ákveðinn hluti hækkun- arinnar renna til Hitaveitu Vest- mannaeyja. Tillagan var felld með 19 atkv. gegn 7. • 4) Breytingartillaga frá Albert Guðmundssyni (S) þess efnis, að ákvæði í tillögu á þingskjali 577 (breytingartillögur nefndar við lánsfjárfrumv.) um að „framlag úr ríkissjóði skv. 25. gr. laganna" til ferðamála af sérstöku gjaldi „fari eigi fram úr 30% af skilum Frí- hafnarinnar til ríkissjóðs", séu bundin við árið 1979. Tillagan var samþykkt með 30 samhljóða at- kvæðum. menntamálaráðherra, sem fól í sér heimild til þess fyrrnefnda að taka lán, f.h. ríkisjóðs, innlent eða erlent, að fjárhæð 300 m.kr., til að greiða framkvæmdakostnað við dreifingu sjónvarps á þessu ári. Frumvarpið var samþykkt til efri deildar um miðnætti í fyrra- kvöld, kom til umræðu efri deildar í gær og var þar afgreitt við eina umræðu til nefndar. Fundi frestað 1 miðri atkvæðagreiðslu — vegna fjarveru stjórnarþingmanna Á FUNDI neðri deildar í sær sleit forseti hennar, Ingvar Gíslason, fyrir- varalaust fundi í miðri atkvæðagreiðslu um frum- varp ríkisstjórnarinnar um framhaldsskóla, þar sem ekki voru mættir nægilega margir þing- menn úr stjórnarflokkun- um til þess að koma mál- inu áfram, en þingmenn Sjálfstæðisflokksins sátu hjá. Til fundar í sameinuðu þingi hafði verið boðað kl. 16, en honum var frestað til þess að atkvæða- greiðsla gæti farið fram í neðri deild um framhaldsskólafrum- varpið og höfðu þingmenn stjórn- arflokkanna verið boðaðir sér- staklega vegna þess. Minni hluti menntamálanefndar, Ellert B. Schram og Ólafur G. Einarsson, hafði lagt til, að frumvarpinu yrði vísað frá, þar sem það þyrfti „bersýnilega frekari athugunar við“. Sú tillaga var felld með 19 atkvæðum gegn 9. Síðan kom 1. gr. frumvarpsins til atkvæða og vegna ónógrar þátttöku í atkvæðagreiðslu greip forseti til nafnakalls og var grein- in samþykkt með 20 atkvæðum, en 7 sátu hjá. 13 voru fjarstaddir. Þegar sama sagan endurtók sig við 2. gr., frestaði forseti atkvæða- Ölgerðarefnin: Nefndarálit Stjórnarfrumvarp um bann við innflutningi og sölu á efnum til ölgerðar og vína, sem fengist hafa í venjulegum verzlunum. greiðslunni og sleit fundi. 21 þingmaður verður að taka þátt í atkvæðagreiðslu í neðri deild eða meirihluti þingmanna til þess að hún sé lögleg. komið fram hefur hlotið meðferð í fjár- hags- og viðskiptanefnd efri deildar. Meirihluti nefndarinnar hefur skilað nefndaráliti, svohljóðandi: „Nefndin var ekki sammála um afgreiðslu málsins. Meiri hl. bygg- ir afstöðu sína á því, að Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins hafi einkasölu á vörum til framleiðslu á áfengi, og mælir því með sam- þykkt frv. Jón G. Sólnes leggur til að frv. verði fellt. Karl Steinar Guðnason og Eyjólfur K. Jónsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins. Jón Helgason, form., frsm. Ólafur Ragnar Grímsson, fundaskr. Ágúst Einarsson. Geir Gunnarsson. Álit minnihlutans, Jón G. Sól- nes, sem leggur til að frumvarpið verði fellt, hefur enn ekki verið lagt fram. Málið á eftir að fara til 2ja umræðna í efri deild og 3ja í neðri deild, ef það nær samþykki í hinni fyrri. Alþingi í gær: Ríkisreikningur og útgjáLdatiUögur FUNDIR vóru í báðum þing- deildum og í Sameinuðu þingi í gær og nokkur skriður á þing- málum. Meðal þingmála, sem komu á dagskrá, var „Ríkis- reikningur 1977“, sem lagður var fram áður en þingi lauk á sl. vori. Af því tilefni spurði Matthías Á. Mathiesen (S) fv. fjármálaráðherra, hvort líkur væru á því að ríkisreikningurinn fyrir árið 1978 kæmi fram fyrir þinglausnir, sem æskilegt væri, vegna undirbúnings þingmanna fyrir næstu fjárlagagerð. Tómas Árnason, f jármálaráðherra, sagði m.a. að tveir fyrstu kaflar ríkisreiknings 1978 yrðu full- unnir aður en þingi lyki og afhentir þingmönnum. Hins vegar væri verið að taka í notk- un nýjar vélar í ríkisprentsmiðj- unni Gutenberg, sem nota ætti við vinnslu taflna og töluupp- setningar. Einhverjar tafir yrðu því á afhendingu ríkisreiknings í heild en hann myndi ýta á að þær yrðu ekki úr hófi. Matthfas Bjarnason (S), fv. sjáArarútvegsráðherra, gagnrýndi harðlega, að stjórnar- liðar hlypu nú upp með alls konar útgjaldatillögur, sem spönnuðu milljarða króna út- gjöld og gengju þvert á nýja löggjöf forsætisráðherra um stjórn efnahagsmála. Verkstjórn ríkisstjórnar og ráðherra á stjórnarþingmönnum væri verri en engin og samhengið í stefnu- mótun og gjörðum ekkert. Til- lögur stjórnar og stjórnarliða gengju á víxl og stönguðust á og forystan fyrir liðinu væri fum og fuður. Þessi gagnrýni kom fram í umræðu um frv. um almanna- tryggingar. Matthías minnti á, að á sl. ári hefðu verið sam- þykktar, að lokinni vandaðri könnun nefndar, sem allir þing- flokkar hefðu átt aðild að, ýmsar mikilvægar breytingar í heil- brigðis- og tryggingarmálum. Núverandi rikisstjórn hefði sett á laggir hliðstæða nefnd til að vinna að framhaldskönnun og endurskoðun þessara mála í einstökum atriðum og í heild. Tillagna hennar væri að vænta áður en þing kæmi saman að nýju. Ekki gætu þó stjórnar- þingmenn beðið með tillögugerð í þessum málaflokki eftir niður- stöðum nefndarinnar, heldur hlypu til' með allra handa út- gjaldaaukandi tillögugerð. Svava Jakobsdóttir (Abl) taldi fæðingarorlof, sem næði til allra kvenna og tryggingakerfið stæði straum af, í samræmi við stefnu- mótun í löggjöf frá fyrri árum. Eðvarð Sigurðsson (Abl) sagði rangt að Atvinnubótasjóður bæri kostnað af fæðingarorlofi, eins og núv. lög kvæðu á um, enda væri svo komið, að sjóður- inn stæði ekki undir hlutverki sínu, greiðslum til atvinnu- lausra, ef út af bæri með atvinnuöryggi í þjóðarbúskapn- um. Hann mótmælti og öðrum ráögerðum útgjaldaákvörðunum úr sjóðnum, sem ekki féllu undir upphaflegan tilgang hans. Synjað um lánsfjárút- vegun tíl boranavið Kröflu Fundur í Sameinuðu þingi í gær: Matthías Bjarnason, fv. sjávarútvegsráðherra í ræðustól. I forsetastól er Gils Guðmundsson. Ritarar Friðrik Sophusson og Páll Pétursson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.