Morgunblaðið - 27.09.1979, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 27.09.1979, Qupperneq 1
40 SIÐUR 211. tbl. 66. árg. FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Gagnárás á stöðvar skæruliða iHlamabad — 26. september — Reuter NÝI forsetinn í Afghanistan, Hafizullah Amin, hefur hafið nýja sókn gegn skæruliðum og þar með er lokið hléi sem hefur verið á bardögum siðan stjórnar- bylting var gerð í Kabul fyrir 12 dögum. Sóknin miðar að því að hrekja ættflokkastríðsmenn úr vígjum þeirra umhverfis mikilvæga setu- liðsbæi í héruðunum Paktia og Kunar. Jafnframt segja ferðamenn að skæruliðar hafi ráðizt úr launsátri á bílalest á aðalþjóðvegi landsins og mikið mannfall hafi orðið. Uppreisnarmenn réðust á bíla- lestina skömmu eftir að hún fór frá borginni Kandahar til Kabul og töfðu hana í 12 tíma. Bíla- lestin var tvo daga að komast á áfangastað en ferðin tekur venju- lega sex tíma. Helztu þjóðvegir hafa orðið stöðugt ótryggari á undanförnum mánuðum vegna árása skæruliða. I Þjóðarmorð Francisco Macias Nguema hlýðir á ákæru um þjóðar- morð er hann var forseti Mið- baugs-Guineu þar til fyrr á þessu ári. Hann var dreginn fyrir rétt í Malabo, Mið- baugs-Guineu. Dómsforseti segir að 70% þjóðarinnar hafi setið í fangelsi á 11 ára valda- tima Macias. Kosningar í Danmörku Frá fréttaritara Mbl. í Kaupmannahöfn i gær. VIÐRÆÐUR Vinstri flokksins og flokks jafnaðarmanna um hásætis- ræðuna við setningu þingsins 2. október hafa farið út um þúfur og efnt verður til nýrra þingkosninga i októberlok eða nóvemberbyrjun. Anker Jörgensen forsætisráð- herra neitaði að ræða 17 blaðsíðna uppkast Vinstri flokksins að há- sætisræðu og hafnaði tillögum flokksins um bindingu kaupgjalds og verðlags. Jafnaðarmenn gerðu kröfu um launaviðræður milli ríkisstjórnarinnar, vinnuveitenda og launþega í nóvember og stofnun tveggja launþegasjóða og eins alls- herjarsjóðs. Töf varð á því að kosningar yrðu boðaðar þar sem landbúnaðarráð- herra Kína vildi skoða dráttarvélar og heimsótti Jörgensen sem varð að bjóða honum til hádegisverðar í dag. Málsverðinum var ekki hægt að fresta. Auk þess hafði Margréti drottningu ekki verið skýrt frá niðurstöðum úrslitafundar flokk- anna. En Jörgensen ákvað í dag að ganga á fund drottningar og síðan verður efnt til nýrra kosninga. Rætt hefur verið um að kosn- ingarnar fari fram 23. október, en ákvörðun verður ekki tekin um kosningadaginn fyrr en í nótt. Stjórnmálamenn eru hræddir við haustleyfi skólanemenda, sem er um miðjan október, og að það geti dregið úr áhuga landsmanna á kosningunum og þýðingu þeirra. Því getur farið svo að kosningarnar fari fram í nóvemberbyrjun. Starfskona SÞ tekin í Póllandi Varsjá, 26. september. Heuter. PÓLSK dómsyfirvöld staðfestu í dag, aö ung pólsk kona. Alicja Wesolowska, sem starfaði hjá SÞ í New York, hefði verið handtekin i Varsjá í síðasta mánuði, ákærð fyrir njósnir i þágu erlends rikis. Að sögn SÞ var ungfrú Wesol- owska handtekin í Póllandi þeg- ar hún var á leið til Ulan Bator í Mongolíu, þar sem hún átti að taka við öðru starfi hjá SÞ. Starfsmaður SÞ í Varsjá kveðst hafa heyrt um málið eftir óopin- berum leiðum, en án þess að SÞ eða pólsk yfirvöld hafi haft formlegt samband við sig. Vinir ungfrú Wesolowska í New York segja, að pólsk yfir- völd hafi tekið af henni vega- bréfið nokkrum dögum áður en hún var handtekin. Hún fór til Varsjár til að heimsækja for- eldra sína. í New York sagði talsmaður SÞ, að samtökin fylgdust náið með málinu. Sendinefnd Póll- ands hjá Sþ tilkynnti SÞ um málið fyrir sex dögum, en ekki fyrr en skrifstofa SÞ í höfuðborg Mongolíu hafði spurzt fyrir hvers vegna ungfrú Wesolowska væri ekki komin þangað. Spá samkomulagi um Rússa á Kúbu WaHhington, 26. september. Reuter. LÍKUR bentu til þess í dag að deila Bandaríkjamanna og Rússa um sovézka hermenn á Kúbu yrði til lykta leidd. Carter forseti segir að það verði gert á viðunandi hátt fyrir bandarísku þjóðina og málamiðlunar samkomulagi er spáð. Þótt báðir aðilar virðist einstrengings- legir lofaði Carter í ræðu að skýra þjóðinni frá ástandinu innan einnar viku. „Við reynum nú eftir diplómat- ískum leiðum að fá Rússa til að breyta þessu liði úr bardagasveit- um,“ sagði Carter. „Ég veit ekki hvort okkur tekst það. Ef okkur tekst það ekki gerum við viðeig- andi ráðstafanir til að breyta ástandinu. Ég held að þið verðið ánægðir þegar ég gef skýrslu mína innan viku.“ Engin skýring fékkst á því hvað Carter átti við með viðeigandi ráðstöfunum og ekki var upplýst hvort hann flytti sjónvarpsávarp. Carter kvaðst sannfærður um að sovézkar bardagasveitir væru á Kúbu þótt Andrei Gromyko utan- ríkisráðherra neitaði því í gær og sagði að allskonar tilbúnar ásakanir hefðu komið fram um dvöl Rússa á Kúbu. Carter kvaðst vilja koma Rússum í skilning um að banda- ríska þjóðin væri einstaklega við- kvæm fyrir veru sovézkra bar- dagasveita á Kúbu sem Rússar notuðu til íhlutunar í öðrum lönd- um. Cyrus Vance utanríkisráðherra ræðir þetta mál við Gromyko. Málið hefur dregið úr líkum á því að öldungadeildin samþykki Salt— samninginn. Andstæðingar hans segja, að ekki sé hægt að treysta Rússum til að halda samninginn, þar sem þeir hafi í frammi blekk- ingar um hersveitirnar á Kúbu. Enginn heldur því fram í alvöru að ástandið líkist hið minnsta eldflaugadeilunni 1962 þegar Bandaríkjamenn beittu hafnbanni til að neyða Rússa til að flytja kjarnorkueldflaugar sínar frá Kúbu. Carter sagði í ræðu sinni að þótt öryggi Bandaríkjanna stafaði ekki hætta frá sovézku hermönn- unum væri ástandið óviðunandi þar sem Kúba væri leppríki og algerlega háð Sovétríkjunum. Olga í Bangui Banffui, 26. september. Reuter. AP. ÞRJATÍU og sjö lýbískir hern- aðarráðunautar, sem voru hand- teknir í Mið-Afríku-lýðveldinu eftir byltinguna gegn Bokassa keisara, voru sendir flugleiðis heim í dag, en nýi forsetinn, David Dacko, segir að allt að 400 aðrir libýskir hermenn séu í felum i Bangui ásamt vopnum sinum. Reiðir stúdentar í Bangui mót- mæltu því í kvöld að Frakkar kafa íeitað að leyfa Ange Patasse íyrrverandi forsætisráðherra að snúa aftur heim úr útlegð í París. Frakkar segja að honum hafi verið meinað að fljúga til Bangui þar sem hann hafi haft á sér skammbyssu og vegabréf hans hafi verið ógilt. Leiðtogar stúdentanna" hótuðu því að allsherjarverkfall yrði gert á morgun. Franskir her- menn lokuðu flugvellinum í öryggisskyni. Talsmaður Frakklandsforseta sagði í París í dag að Frakkar hefðu ákveðið að hætta við stuðning sinn við Bokassa og taka þátt í því að kollvarpa honum þegar fyrstu fréttir baf- ust til Parísar um óeirðir í höfuðborginni í janúar. Mugabe vongóður London. 26. septembcr. Reuter. AP. SKÆRULIÐALEIÐTOGINN Rob- ert Mugabe sagði í dag að frið- samleg lausn væri möguleg á Rhódesíu-ráðstefnunni. Þetta er í fyrsta sinn sem skæruliðar hafa látið í ljós bjartsýni á ráðsteín- unni síðan hún hófst. „Ég er bjartsýnn að sumu leyti, en ég held ég verði bjartsýnni þegar við förum að ræða um bráðabirgðafyrirkomulag," sagði Mugabe. En fundarmenn vara við of mikilli bjartsýni á þessu stigi og leggja áherzlu á að harka muni færast í leikinn þegar umræður hefjast um yfirráð yfir hernum í tímanum áður en þingkosningar fara fram. Fulltrúi í sendinefnd Abel Muz- orewas biskups sagði aft ef Bretar reyndu að taka við stjórn oryggis- sveitanna eða setja svarta her- menn þeirra i þjóðarher þar sem skæruliðar yrðu alls ráðandi yrði stjórn Zimbabwe Rhódesíu þess albúin að hætta þátttöku sinni á ráðstefnunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.