Morgunblaðið - 27.09.1979, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 27.09.1979, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1979 bands sveitarfélaga ÁRSFUNDUR Hafnasambands sveitarfélaga 1979 verður hald- inn að Hótel Sögu i Reykjavik i dag og á morgun. Auk venju- legra ársfundarstarfa verður á undinum fjallað um fjárhags- stöðu og gjaldskrármál hafna og flutt yfirlit um starfsemi sam- bandsins frá stofnun þess. Þá verða á fundinum umræður um skipulagsmái hafna óg aðstöðu atvinnufyrirtækja á hafnarsvæð- Tapaði 183 þiís. í GÆRDAG varð kona fyrir þvi óhappi að veski hennar rann út úr bíl hennar, þar sem hún var að sækja barn að Langholtsskóla kl. 14.35. Konan var á dökkbláum Volkswagen. í veskinu voru meðal annars 183 þúsund krónur i peningum. Síðar um daginn var veskinu skilað í Holtsapótek en þá voru pen- ingarnir horfnir úr því. Lög- reglan í Reykjavík biður þá sem kynnu að geta gefið upplýsingar um málið að hafa samband við lögregluna og sérstaklega biður lögregl- an foreldra og forráðamenn barna og unglinga að veita því eftirtekt, hvort þau hafa óeðlileg fjárráð þessa dag- ana. um. Ennfremur verður á fundin- um fjallað um 4ra ára áætlun um hafnargerðir. Formaður hafnasambandsins, Gunnar B. Guðmundsson, hafnar- stjóri í Reykjavík, mun setja fundinn. Við fundarsetningu mun samgönguráðherra, Ragnar Arn- alds, flytja ávarp, svo og Jón G. Tómasson, formaður Sambands ísl. sveitarfélaga. Þetta verður 10 ársfundur Hafnasambands sveitarfélaga, sem stofnað var 12. nóvember 1969 fyrir forgöngu Sambands ís- Ienzkra sveitarfélaga, en hafna- sambandið starfar í tengslum við það. Aðildarhafnir Hafnasambands sveitarfélaga eru nú 55, og eiga 67 fulltrúar þeirra rétt til setu á ársfundinum. Auk kjörinna full- trúa munu allmargir boðsgestir sitja fundinn, meðal annarra full- trúar frá hafnasamböndum á Norðurlöndunum. Núverandi stjórn Hafnasam- bands sveitarfélaga skipa: Alex- ander Stefánsson, Ólafsvík, Guð- mundur Ingólfsson, ísafirði, Sig- urður Hjaltason, Höfn í Hornaf- irði, Stefán Reykjalín, Akureyri og Gunnar B. Guðmundsson, Reykjavík, sem verið hefur form- aður Hafnasambandsins frá stofnun þess. INNLENT Ársfundur Hafnasam- Frá aðalfundi Rauða kross íslands, Eggert Ásgeirsson framkvæmdastjóri i ræðustól. Rauói kross íslands: V eitti fé til kaupa á 13 sjúkrabflum NÝLEGA VAR haldinn aðalfund- ur Rauða kross íslands og auk venjulegra aðalfundarstarfa voru ýmis mál á dagskrá fundar- ins. M.a. voru lagðar fram tillög- ur neyðarnefndar R.K.Í. um sam- ræmingu sjúkraflutninga um land aiit og voru þær einróma samþykktar. Þá var raett um alþjóðlegt hjálparstarf Rauða krossins og þátttöku R.K.Í., en fjórir íslend- ingar hafa sótt Norðurlandafund Rauða kross félaga um alþjóðlegt hjálparstarf auk þess sem hér var sl. vor haldið námskeið þar sem 30 íslendingar voru þjálfaðir til al- þjóðlegra hjálparstarfa. Jóhannes Reykdal var einn þeirrá er sótti fyrrnefndan fund og í erindi er hann flutti benti hann á að mikilvægt væri fyrir R.K.Í. að taka þátt í aljóðlegu starfi, auk þess sem hann ræddi einnig um ungliðastarf Rauða'krossins í öðr- um löndum. Leifur Dungal flutti erindi um starf sitt í Simbabwe og sr. Sigurður H. Guðmundsson flutti erindi um flóttamenn frá Malasíu. Gengið var frá fjárhags- og framkvæmdaáætlun fyrir næsta ár og veitt úr svokölluðum sér- verkefnasjóði R.K.Í. til starfsemi deilda. Veittar voru 52,5 m.kr. á þessu ári og rennur meginhlutinn til kaupa á sjúkrabílum til 13 staða á landinu. Þá var veitt fé til barnaheimilis, öldrunarverkefna, skyndihjálparfræðslu og til ann- arra verkefna sem deildir hafa með höndum víðs vegar um landið. Á þessu ári er ráðgert að 61 milljón renni til sérverkefnasjóðs- ins, en það er fjórðungur af afrakstri söfnunarkassa um land allt. Núverandi stiórn R.K.Í. er þannig skipuð: Ólafur Mixa for- maður, Benedikt Blöndal varafor- maður, Sigurður H. Guðmundsson ritari, Björn Friðfinnsson gjald- keri, Björn Tryggvason, Jón Guð- mundsson frá Seyðisfirði, Ragn- heiður Þórðardóttir, Akranesi, Guðrpn Holt og Arinbjörn Kol- beinsson. Meðal hinna erlendu fyrirlesara á ráðstefnunni eru: Ole Bentzen yfirlæknir frá Danmörku, sem verið hefur framámaður í endur- hæfingu heyrnarskertra og stuðl- að að uppbyggingu heyrnarstöðva á vegum WHO víða um heim; Sven Forssman prófessor frá Svíþjóð og hefur hann m.a. verið forstöðu- maður atvinnusjúkdómadeildar heilbrigðisstofnunar sænska ríkis- ins og læknisfræðilegur ráðgjafi sænska vinnuveitendasambands- ins; Kaye H. Kilburn frá Banda- ríkjunum sem mikið hefur fengist við rannsóknir atvinnusjúkdóma lungna; Michael Brennan frá írlandi, sem starfað hefur í Kan- ada lengst af. Starfaði hann sem aðstoðarprófessor í heimilislækn- ingum í London, Ontario og þykir kennsla í heimilislækningum skól- ans þar ein hin fremsta í heimi; Jack Pepys, sem tók læknapróf í Suður-Afríku og stundaði þar heimilislækningar í 10 ár, en fluttist síðan til London og lagði stund á ónæmisfræði. Hefur hann aðallega rannsakað ónæmisfræði lungnasjúkdóma í mönnum og varð hann ásamt samstarfs- mönnum fyrstur til að sýna fram á samband milli heymæði og sveppa í mygluðu heyi. Aðspurðir kváðu þeir Árni Björnsson og Tryggvi Ásmunds- Vitni vantar að árekstri á Laugavegi FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ 21. september s.l. klukkan 23.50 varð árekstur milli tveggja bifreiða á mótum Suðurlandsbrautar, Laugavegar og Kringlumýrar- brautar. Datsun-bifreið ók vestur Suðurlandsbraut og Honda-bifreið ók austur Laugaveg og beygði norður Kringlumýrarbrau Skullu bílarnir saman. Ágreininj ur er um stöðu umferðarljósann en bifreiðarstjórarnir halda þ’ báðir fram, að þeir hafi ekið móti grænu ljósi og þarf lögregla nauðsynlega að ná tali af vitnui að árekstrinum. Frá námskeiðinu um atvinnuheilbrigðismál. Lýkur því i dag, en á morgun verður ráðstefna með þátttöku lækna og fulltrúa vinnumarkaðarins. Ljósm.: Emiiia. Læknafélag íslands og Læknaf élag Reyk javíkur: N ámskeið og ráðstefna um atvinnuheflbrigðismál UM þessar mundir stend- ur yfir í Domus Medica í Reykjavík læknaþing, með námskeiði um atvinnu- sjúkdóma og ráðstefnu um atvinnuheilbrigðismál , á vegum Læknafélags ís- lands og Læknafélags Reykjavíkur. Árni Björns- son formaður námskeiðs- og fræðslunefndar lækna- félaganna sagði að þarna kæmu saman læknar úr hinum ýmsu sérgreinum og héldu erindi um verk- efni sín og rannsóknir. Á námskeiði um atvinnusjúk- dóma hafa innlendir og erlendir fyrirlesarar rætt ýmis efni svo sem slitsjúkdóma og vöðvagigt, vinnuleiða, vinnuslys, skráningu atvinnusjúkdóma, heyrnask- emmdir og um heilbrigðisvandam- ál í Kísilgúrverksmiðjunni, Álver- inu og Kísiljárnverksmiðjunni. Þá verður á morgun, föstudag, ráð- stefna um atvinnuheilbrigðismál og er hún öllum opin. Þar verður m.a. fjallað um íslenzka löggjöf um atvinnuhéilbrigðismál, þátt heilsugæzlustöðva og vinnustaða í þeim og almannatryggingar og fulltrúar ASÍ, VSÍ og Stéttarsam- bands bænda greina frá sjónar- miðum sínum. Árni Björnsson og Tryggvi Ásmundsson, sem báðir sitja í námskeiðs- og fræðslunefnd læknafélaganna greindu m.a. frá því á fundi með fréttamönnum að á aðalfundi Læknafélags íslands í fyrra hefði verið samþykkt álykt- un þar sem vakin var athygli á aukinni þörf heilsugæzlu á vinnu- stöðum og eftirliti og rannsóknum á atvinnusjúkdómum. Var stjórn L.í. falið að boða til ráðstefnu um þau mál og fræðslunefndinni að hrinda ályktuninni í framkvæmd. son að e.t.v. mætti segja að ísland væri á þróunarstigi hvað varðaði stöðu atvinnuheilbrigðismála, eft- irliti með atvinnusjúkdómum og skráningu þeirra væri ábótavant, svo og eftirliti með hvort í notkun væri hættuleg efni í hvers kyns iðnaði o.s.frv. Mætti rekja til fjárskorts og skorts á starfsfólki hversu lítt hefði miðað hérlendis í skipulagningu þessara mála og væri ráðstefnunni ætlað að vekja athygli á þeim ef verða mætti til þess að almenningsálitið ýtti við stjórnmálamönnum og yfirvöldum til að sinna þessum málaflokki meira. Sýnt væri, að væri það reynsla nágrannalanda, sem væru komin mun lengra áleiðis á sviði atvinnuheilbrigðismála, að fjár- magn er veitt væri til þessa málaflokks skilaði sér margfalt aftur. Dœmdur fyrir illa meðferð á hundum í VIKUNNI féll í sakadómi Reykjavíkur dómur í máli 27 ára gamals manns, sem gerst hafði sekur um illa meðferð á hundum. Var maðurinn dæmdur í þriggja mánaða fangelsi, þar af i tvo mánuði skilorðsbundið fyrir brot á dýraverndunarlögum. Umræddur maður, sem býr skammt fyrir ofan Reykjavík, átti fjóra hunda. í febrúar 1978 fór maðurinn á sjóinn og skildi hundana eftir umhirðu- og matarlausa í læstum skúr. Tæpum hálfum mánuði seinna áttu skátastelpur leið þarna um. Heyrðu þær ýlfur í hund- unum og var Dýraverndunar- félaginu gert viðvart. Var skúrinn brotinn upp og blasti þá við ljót sjón, hundarnir nær dauða en lífi af sulti. Voru þeir svo illa haldnir að lóga varð þeim öllum. Við yfirheyrslur vildi maðurinn ekki gefa neinar skýringar á þessu framferði sínu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.