Morgunblaðið - 27.09.1979, Side 4
4
Þakka mér sýnda vinsemd
á níutíu ára afmæli mínu.
Sigrún Ólafsdóttir,
Borgarnesi.
íttorsjmtMfiínti
v____________________________________
Bankaútibús-
stjórar á
námstefnu
Dagana 27. til 29. ágúst var haldin
á Laugarvatni námstefna fyrir úti-
bústjóra bankanna í dreifbýlinu, en
slíkt er árlegur viðburður í starfi
Bankamannaskólans, þar sem
kynntar eru nýjungar og málefni,
sem ofarlega eru á baugi í banka-
málum hverju sinni. Nú voru tekin
til umfjöllunar hin nýju lög um
efnahagsmál og áhrif þeirra á
bankastarfsemina, vaxtastefnan
nýja, framkvæmd hennar og áhrif,
lánsfjáráætlunin, afurðalánin, mat
lánsumsókna, ný viðhorf við gerð
skuldaskjala og loks staða og stjórn
útibúanna í bankakerfinu. Ýmist fór
þetta fram í formi fyrirlestra, um-
ræðna eða í starfshópum.
Fyrirlesarar og frummælendur
voru aðallega úr hópi deildarstjóra
eða sérfræðinga aðalbankanna. Jón-
as H. Haralz, bankastjóri Lands-
banka og Ármann Jakobsson, banka-
stjóri Útvegsbanka, voru frummæl-
endur í umræðum um vextina og
lánamálin, en Einar Njálsson, úti-
bústjóri Samvinnubanka og Halldór
Vilhjálmsson, útibústjóri Útvegs-
banka, höfðu framsögu um stöðu og
stjórn útibúanna og um bankamál
dreifbýlisins. Alls voru fluttar um 15
ræður og erindi á námstefnunni, en
allir þátttakendur, um 60 að tölu,
tóku virkan þátt í umræðum og
fundarstörfum.
Þótti námstefnan takast mjög vel,
og fannst mönnum mikil þörf á
frekari umræðu og fræðslu innan
bankanna um þessar miklu breyt-
ingar, sem nú ganga yfir bankakerf-
ið, og mun skólinn því halda fleiri
slíkar námstefnur eða námskeið
jafnhliða sínu eiginlega skólastarfi.
(Fréttatilkynning).
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1979
Sveinn Einarsson
Bríet Héðinsdóttir.
Þorsteinn ö. Stephensen
Fimmtudagsleikritið klukkan 20.10:
Við dánarbeð
Leós Tolstojs
I kvöld klukkan 20.10 er
á dagskrá útvarpsins
leikritið Dagrenning eftir
Emlyn Williams. Leik-
stjóri er Sveinn Einars-
son, en þýðingin er eftir
Helga J. Halldórsson. Með
hlutverkin fara þau
Þorsteinn Ö. Stephensen,
Bríet Héðinsdóttir og
Edda Björnsdóttir.
Gítarleik annast Gunnar
Jónsson.
Efni leikritsins er í
stórum dráttum það, að
14
ERP" HÐB HEVRH!
kona á níræðisaldri rifjar
upp þær stundir er hún
sat við dánarbeð Leós
Tolstojs, en þá var hún
átján ára gömul, í nóv-
emberbyrjun árið 1910.
Hinn heimsfrægi rithöf-
undur hafði hneykslað
samborgara sína með því
að strjúka að heiman,
rúmlega áttræður öldung-
ur. En hann kemst ekki
lengra en til þorpsins
Astapova. Hann vill að
ung sveitastúlka sitji hjá
sér, og Katja verður fyrir
valinu. Og þessi næturst-
und hjá deyjandi skáldinu
verður henni ógleyman-
leg.
Emlyn Williams fædd-
ist í Mostyn í Wales árið
1905. Hann stundaði m.a.
nám í Oxford, en fór
snemma að leika og skrifa
leikrit. Fyrsta verk hans,
„And So to Bed“, var
frumsýnt 1927. Hann
hlaut mikla frægð þegar
hann lék aðalhlutverkið í
leikriti sínu „Night Must
Fall“ 1935, sem Leikfélag
Reykjavíkur sýndi fyrir
um tuttugu árum undir
nafninu ^,Þegar nóttin
kemur". A stríðsárunum
var Williams þulur í
brezka útvarpinu, og
skömmu eftir 1950 tók
hann að lesa opinberlega
upp úr verkum Charles
Dickens og ferðaðist þá
víða, m.a. til Bandaríkj-
anna og Suður-Afríku.
Auk þess að leika á sviði
og stjórna leikritum, kom
Emlyn Williams fram í
mörgum kvikmyndum.
Þótt leikrit hans seú
orðin fjölmörg, er þetta í
fyrsta skipti sem útvarpið
flytur verk eftir hann.
Útsölur
í útvarpi
Útsölur eru fyrir-
brigði, sem flestir
kannast við, og þeir eru
ófáir, sem finnst sem
kalt vatn renni milli
skinns og hörunds þeg-
ar þeir heyra minnst á
útsölur, — af eintómum
æsingi við tilhugsun-
ina. Á útsölum er oft
hægt að gera reyfara-
kaup, og á útsölum er
einnig oft hægt að
kaupa mikið af varn-
ingi sem engin þörf er
fyrir, en margir hugsa
sem svo, að „ég hef ekki
efni á að sleppa þessu,
þetta er slíkt gjafverð!“
— En hvað um það, í
útvarpi í dag klukkan
11.00 fjallar Ingvi
Hrafn Jónsson um út-
sölur í þætti sínum
„Verslun og viðskipti".
Ingvi Hrafn Jónsson.
Utvarp Reykjavfk
FIM41TUDKGUR
27. september
MORGUNNINN
7.00 Veðurfreiínir. Fréttí:
Tónleikar.
7.20 Bæn
7.25 Morgunpósturinn
Umsjón: Páll Heiðar Jónsson
og Sigmar B. Hauksson.
(8.00 Fréttir).
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.). Dagskrá. Tón-
leikar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Herútti og björninn í Refa-
rjóðri“ eftir Cecil Bödker.
Steinunn Bjarman lýkur
lestri þýðingar sinnar (9).
9.20 Tónleikar. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. 10.25 Tónleikar.
11.00 Verzlun og viðskipti.
Umsjón: Ingvi Hrafn Jóns-
son. Fjallað um útsölur.
11.15 Morguntónleikar
Peter Schreier syngur lög
eftir Felix Mendelssohn;
Walter Oplertz leikur á
píanó / Svjatoslav Rikhter
leikur píanótónlist eftir Fré-
dric Chor?n.
12.00 Díu' krain. Tónleikar.
Tilkym gar. V>>, .u» =
jc -:g
14.30 Ai -
járntia
IngoP Sveinsson
pjónn frá fen ,i
Sovétríkja.nna ár?ð 9/7; —
í.»rsti hluti af fjóro
Y 00 Miðdegistónlt.kar
Sinfóníuhljómsveitin i Vín
ieikur Coriolan-forleik op. 62
eftir Ludwig van Beethoven;
Christoph von Dohnany stj. /
Artur Rubinstein og Fílhar-
moníusveitin í ísrael leika
Píanókonsert nr. 1 i d-moll
op. 15 eftir Johannes
Brahms; Zubin Mehta stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Tónleikar.
17.05 Atriði úr morgunpósti
endurtekin.
17.20 Lagið mitt.
Helga b. Stephensen kynnir
óskalög barna.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
K' ',k*LD*0
y Uaauki. Til-
lytur þátt-
. 'ngvarar
o;
20. i grenning"
eítir Fmíj'í. Ailliams
byöandi: Helgi J. Halldórs-
son. Leikstjóri: Sveinn Ein-
arsson. Persónur og leikend-
ur:
Tolstoj/ Þorsteinn Ö. Steph-
ensen. Katja (18 ára)/ Sig-
rún Edda Björnsdóttir. Katja
(82 ára)/ Bríet Iléðinsdóttir.
21.05 Sinfónía í D-dúr eftir
Franz Anton Rössler
Kammersveitin i Kurpfalz
leikur; Wolfgang Hofman
stjórnar.
21.25 „Fólk og maurar", smá-
saga eftir Peter Balgha. Þýð-
andinn, Sigurður Jón ólafs-
son, les.
21.40 Swingle Singers syngja
lög eftir Stephen Foster og
George Gershwin.
22.00 Maður og náttúra; —
annar þáttur: Landeyðing
Umsjónarmaður: Evcrt Ing-
ólfsson.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.50 Áfangar
Umsjónarmenn: Ásmundur
Jónsson og Guðni Rúnar
Agnarsson.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
FÖSTUDAGUR
28. september
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dag-
skrá
20.40 Prúðu leikararnir
Gestur í þessum þætti er
leikkonan Lesley Ann War-
ren. Þýðandi Þrándur
Thoroddsen.
21.05 Andlit kommúnismans
Þriðji og síðasti þáttur.
Alþýðulýðveldið Kongó var
fyrsta ríkið f Afríku, sem
tók upp skipulag kommún-
ismans. Siðan hefur gengið
á ýmsu, og nú þykir stjórn-
völdum sýnt, að ekki verði
allur vandi leystur með
Marx-Leninisma.
býðandi Þórhallur Gutt-
ormsson. Þulur FHðbjörn
Gunnlaugsson.
22.00 Saga Selíms
Ný, frönsk sjónvarpskvik-
mynd.
Aðalhlutverk Djelloul Beg-
houra og Evelyne Didi.
Ungur Alsírmaður kemur
til Frakklands. Hann fær
atvinnu, sem hæfir ekki
menntun hans, og býr i
vondu húsnæði, en hann
kynnist góðri stúlku og er
fullur bjartsýni.
Þýðandi Ragna Ragnars.
23.35 Dagskrárlok
_______ j